Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1990, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rítstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Ðreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 1990.
Evrópumeistarakeppni:
Hannes Hlífar
gerir það gott
„Ég gæti vel trúað því að Hannes
Hlífar gerði það gott þarna úti í Hol-
landi og byrjunin lofar vissulega
góðu. Svo gæti jafnvel farið aö við
eignuðumst Evrópumeistara í hon-
um,“ segir Þráinn Guðmundsson,
formaður Skáksambands íslands.
Hannes Hlífar Stefánsson tekur um
þessar mundir þátt í Evrópumeist-
aramóti skákmanna, tuttugu ára og
yngri, sem fram fer í Hollandi. í gær
sigraði hann de Graaf og hefur hann
því unnið allar sínar skákir í þeim
fimm umferðum sem tefldar hafa
verið. Alls verða tefldar 11 umferðir.
Hannes Hlífar, sem er 18 ára, er
alþjóðlegur meistari og hefur þegar
unniö fyrsta áfangann að stórmeist-
aratitli. Frammistaða hans hefur
vakið mikla athygli og er hann talinn
líklegur sigurvegari á mótinu.
Skáksamband íslands sendir ár-
lega efnilegasta skákmann sinn á
Evrópumeistaramótið og kostar
bæði ferð og uppihald hans. í mótinu
nú taka þátt um 40 ungir skákmenn
víðs vegar úr Evrópu, þar af margir
alþjóðlegir meistarar.
-kaa
v Köldjólá
mörgum
heimilum
„Við höfum reynt að passa upp á
að öllum hafi getað liðið vel um jólin
og að engum yrði kalt. Það hafa tveir
til þrír starfsmenn Hitaveitunnar
verið á vakt yfir allar hátíðirnar og
aðstoðað fólk í köldum húsum. Ætli
útköllin hafi ekki verið um 20 á
dag,“ segir Jakob Ólafsson vaktmaö-
ur hjá Reykjayíkurborg.
Jakob segir ástandið í hitavatns-
málum höfuðborgarsvæðisins vera
■**að færast í samt lag eftir mjög anna-
samar vikur. Þó er ennþá nokkuö
um að inntök í hús stíflist vegna út-
fellinga og einhverra hluta vegna
virðast sum hús verða frekar fyrir
barðinu á þessu en önnur. Á því seg-
ir hann enga einhlíta skýringu.
„Sumir húseigendur eru sjálfir
byrjaðir að reyna að bjarga sér og
hreinsa inntökin upp á eigin spýtur.
Það getur hins vegar verið varhuga-
vert ef fólk kann ekki vel til verka
því kranar geta til dæmis brotnað.
Þá er eina leiðin að loka fyrir vatns-
rennslið úti í götu. Slíkt getur tekið
nokkurn tíma og á meðan getur heitt
vatnið valdið miklum skaöa. Þetta
er ekki hættulaust og þyí rétt að láta
okkur um þetta. Hjá okkur er þessi
þjónusta líka ókeypis.“
-kaa
LOKI
Hannes hlífir þeim ekki!
Reykjafossí
/
Missti sjo gáma útbyrd
is í 10-11 vindstigum
- náðum að festa tvo gáma, segir 1. stýrimaður
Reykjafoss, skip Eimskipafélags
islands, missti sjö gáma af stærstu
gerö, 40 feta, í sjóinn um 600 mílur
suðvestur af íslandi þegar skipið
var á leið til landsins fyrir hátíðir.
Um 10-11 vindstig voru á þessum
slóðum, vestanátt en norðvestan-
kvika og mjög mikill sjór. Skip-
verjar fóru út á þilfar eftir að gám-
arnir fóru útbyrðis og tókst þeim
að bjarga tveimur gámum sem fest-
ingar losnuðu á í sömu stæðu á
þilfarinu. Engan sakaði.
„Það slitnuðu allar festingar af
gámunum og það varð ekki við
neitt ráöið,“ sagði Siguröur Hrólfs-
son, 1. stýrimaður á Reykjafossi, í
samtali við DV. „Við fórum út á
dekk og festum það sem hægt var.
Tveir gámar voru eftir úr sömu
stæðu. Þeir voru komnir á hliöina.
Það var mikið sem gekk á og við
vorum í um tvo tima að ganga frá
þessu,“ sagði Sigurður.
Nokkuð margir innflytjendur
hafa haft samband viö Eimskip
vegna gámanna sem fóru í sjóinn.
Gámarnir, sem losnuðu, voru í
þremur hæðum stjórnbörðsmegin
fyrir miðju gámaþilfarinu. í fjórum
þeirra, sem fóru í sjóinn, var fros-
inn fiskur sem flytja átti til Ham-
borgar frá Nýfundnalandi um ís-
land. í hinum þremur voru bílar
og svokölluð almenn vara. Að sögn
Sigurðar hefur þó ekki komið alveg
í Ijós ennþá hvað var í þeim gám-
um.
Fiskurinn var í frystigámum og
var hver þeirra um 25 tonn að
þyngd. Hinir gámarnir voru 6-7
tonn að þyngd. Varan var lestuö í
Argentia á Nýfundnalandi ogEver-
ett í Bandaríkjunum. Reykjafoss
lestaði einnig í Portsmouth ogNew
York. Ekkert af þeirri vöru fór í
sjóinn.
Gámarnir, sem fóru á hliðina,
voru einnig lestaðir frosnum fiski.
Þeirri vöru hefur verið umstaflað
í aðra gáma. Skiþið kom til Njarð-
víkur á Þorláksmessu en þaðbggur
nú í Reykjavík. Öll vara, sem var
í skipinu, var í gámum. Haldið
verður áfram með losun skipsins í
dag en áætluð brottfór er á morgun.
-ÓTT
Kirkjusókn var fádæma góð um allt land þessi jól, enda færð og veður víðast hvar með ágætum. Margar kirkjur
voru fullar út úr dyrum eins og sjá má á þessari mynd sem lekin var í Bústaðakirkju á jóladag. í Hallgrimskirkju
voru um 2500 manns í tveimur messum á aðfangadagskvöld og er það um eitt prósent þjóðarinnar. Kópavogs-
kirkja var yfirfull á aðfangadagskvöld og stóð fólk utan dyra i góðu veðri. Að sögn sr. Bernharðs Guðmundsson-
ar upplýsingafulltrúa var áberandi hvað ungt hjónafólk með börn sótti vel messur um jólin og einnig á aðventunni.
Á Þorláksmessu var góð kirkjusókn og margir skiiuðu inn söfnunarfé til Hjálparstofnunar kirkjunnar en nú hefur
safnast um þremur milljónum meira en i fyrra og er búist við að meira eigi eftir að skila sér. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Snjókoma
ogél
Á morgun verður breytileg átt,
gola eða kaldi. Líkur eru á snjó-
komu eða éljum viða um land.
Hiti verður á bilinu -1 til -5 stig.
Útvarpslaust
í 2 tíma
Útsending Ríkisútvarpsins féll nið-
ur í 2 klukkutíma í nótt vegna raf-
magnsleysis. Varaaflstöð, sem taka á
viö ef rafmagnsleysi verður, virkaði
ekki. Að sögn Haröar Vilhjálmsson-
ar, íjármálastjóra RÚV, hefur þetta
aldrei gerst áöur í sögu stofnunar-
innar en getur skapað alvarlegt
ástand. -ns
Unglingur léster
sviffluga hrapaði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Átján ára piltur beið bana er svif-
fluga, sem hann flaug, hrapaði til
jarðar á Melgerðismelum í Eyjaflrði
s.l. laugardag.
Sviíflugan hafði nýlega verið dreg-
in á loft er hún hrapaði skyndilega
til jarðar úr þónokkurri hæð og mun
pilturinn hafa látist samstundis.
Hann hét Erlendur Árnason og bjó á
Akureyri.
Arnarflug innanlands:
Aukiðviðhlutaféð
Ákveðiö var á fundi á föstudags-
kvöld fyrir jól að auka hlutafé í Arn-
arflugi innanlánds hf. Hlutaféð verð-
ur aukið úr 35 milljónum í 60 milljón-
ir króna. Auk eigenda félagsins taka
nokkrir starfsmenn þátt í hlutafjár-
aukningunni. -JGH