Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1990, Blaðsíða 22
30
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990.
Smáauglýsingar - Sími 27022
WrPdboy-plus
Þjónusta
Heilsaðu nýja árinu með stíl. Höfum til
leigu smókinga og kjólföt. Opið á lau.
og til hádegis gamlársd. Gleðilegt ný-
ár. Efnalaugin, Nóatúni 17, s. 16199.
Leigjum út gólfslipivélar f/parket-,
stein- og marmaragólf og dúka. Til-
boðsv. A & B, Bæjarhr. 14, s. 651550.
Drögum úr hraða &>■
-ökum af skynsemi!
i|rXdBR0ab
Tek að mér snjómokstur á daginn og á
nóttunni. Upplýsingar í símum
91-40579 og 985-28345,
Sigurður Ingólfsson.
UMFERÐAR
RÁÐ
BJÓRWHÖLUNhf
r r
GAMLARS- OG NYARSGLEÐI
föstud. 28. og laugard. 29. des.
Hin eldhressa hljómsveit Léttir sprettir
sér um fjörið.
Sunnud. 30. des.:
Einar Jónsson og Ann Andreasen
skemmta gestum.
Gamlársdagur 31. des.:
Lokað.
Nýársdagur 1. jan.
Einar Jónsson og Torfi Ólafsson
halda uppi frábærri stemmningu
á nýja árinu.
Opið frá kl. 18-3.
Frítt inn.
Óbreytt verð á veitingum.
Snyrtilegur klæðnaður.
BJÓRWHÖLUNhf
GEROUBERG11
111REYKJAVÍK SÍMI 74420
Sviðsljós
DV
Ivana Trump er sigurviss og gerir sér vonir um að krækja í fimmtiu milljónir doliara þegar skilnaður hennar
við Donald Trump verður tekinn fyrir.
Skilnaður Trump-hjónanna:
Hvað fær Ivana
í sinn hlut?
- ætti að eiga fyrir salti í grautinn
Einhver umtalaðasti skilnað-
ur á þessu ári er vafalítið skiln-
aður Trump-hjónanna í Banda-
ríkjunum enda hjónin fasta-
gestir í slúðurdálkablöðum þar
vestra og þó víðar væri leitað.
Ekki spilhr heldur fyrir að eign-
ir þeirra eru taldar í milljónum
dollara. Reyndar var veldið svo
mikið að eignirnar voru taldar
vera nálægt fjórum billjónum
Bandaríkjadala en risaveldið
reyndist vera að einhverju leyti
byggt á brauðfótum og í dag er.
talið að eignir þeirra hjóna séu
metnar á rétt yfir hundrað
milljónir dollara.
Donald og Ivana eiga þrjú börn
og er'gert ráð fyrir að móðir
þeirra fái umráðarétt yfir þeim.
Ef vel gengur í skilnaðarmálinu
má Ivana reikna með að fá
fimmtíu milljónir dollara í sinn
hlut en í versta falli sæti hún
uppi með tíu milljónir dollara.
Hvort heldur verður er Ijóst að
hún ætti að hafa í sig og á.
Meðal þeirra eigna sem Ivana
fengi er húseign í Greenwich
og hún myndi einnig halda
starfi sínu sem forstjóri Plaza-
hótelsins.
Þrátt fyrir að skilnaðarpapp-
íramir hafi verið kunngjörðir í
síðasta mánuði vom Ivana og
Donald ekki lengi að finna sér
nýja fórunauta. Donald sést nú
iðulega í fylgd með 23 ára sýn-
ingarstúlku, Rowanne Brewer
að nafni. Brewer þessi hefur
sýnt sundfatnað með góðum
árangri en þeir sem gleggst
þekkja segja að hún sé dæmi-
gerð gljátík. Fylgisveinn Ivönu
er allnokkru eldri en Rowanne
og heitir Boaz Mazor og starfar
sem framkvæmdastjóri hjá Os-
car de la Renta. Donald Trump og nýja fylgikonan, Rowanne Brewer.