Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1990, Blaðsíða 9
9
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990.
tJtlönd
Flutningaprammi strandar við suðurströnd Finnlands:
Tveimur naum-
lega bjargað úr
sökkvandi flakinu
Tveimur mönnum var naumlega
bjargaö úr flutningapramma sem
strandaöi fyrir utan Hangö á suð-
urstönd Finnlands í gærdag. Átta
manns af prammanum var enn sakn-
aö í gærkvöldi.
Flutningapramminn, sem hlaðinn
var 14 þúsund tonnum af járni,
strandaöi skyndilega rétt eftir hádegi
í gær og gafst áhöfninni ekki ráörúm
til að senda út neyðarskeyti. Hins
vegar sást til prammans frá höfninni
í Hangö og voru björgunarsveitir
strax sendar á vettvang. Veöur var
vont þegar pramminn strandaði,
mikiö rok og hríð af og til. Hitastig
sjávar var rétt yfir frostmarki þannig
aö útht var fyrir að alhr um borö, 9
skipverjar og einn lóös, heföu farist
þegar björgunarsveitir komu á vett-
vang.
Pramminn hálfmaraði í kafi og
hófu kafarar þegar að rannsaka flak-
ið. Undir kvöld heyrðu þeir veikt
bank innan úr flakinu og raddir sem
gáfu til kynna aö að minnsta kosti
tveir menn væru á lífi. Virðast menn-
irnir hafa hafst við í loftrými því er
myndaðist í hærri hluta flaksins er
það sökk til hálfs.
Var gert gat á flakið og mönnunum
bjargað út rúmlega hálftíu í gær-
kvöld, um níu tímum eftir strandið.
Þeir voru sæmilega á sig komnir en
voru fluttir rakleiðis á sjúkrahús.
Að sögn mannanna fylltist pramm-
inn strax af sjó og því eru líkur á að
átta manns hafi drukknað í ísköldum
sjónum. Björgúnaraðgerðum var
hætt í gærkvöldi vegna veðurs og
eins af ótta við að flakið sykki alveg
og ylli ennfrekari mannskaöa.
Ekki er vitað um orsök strandsins
en talið er að vont veður með miklum
hliðarvindi hafi þar ráðið úrshtum.
Ritzau
Norður-írland:
Sprengja sprakk
við lögreglustöð
Sprengju var kastað að dyrum lög-
reglustöðvar í Belfast í fyrrinótt með
þeim afleiðingum að tveir lögreglu-
menn særðust. Enginn lýsti sig
ábyrgan fyrir verknaðinum en írski
lýðveldisherinn, IRA, lýsti sig hins
vegar ábyrgan fyrir skothríð á varð-
stöð í einu hverfa Belfastborgar þar
sem einn lögreglumaður særðist lítil-
lega. í tilkynningu frá IRA sagði
einnig að sjö byssumenn hefðu skotið
á breska hermenn við landamæra-
stöð án þess þó að særa neinn.
Þessir atburðir gerðust aðeins 20
mínútum eftir aðþriggja daga vopna-
hléi IRA í tilefni jólanna lauk og
gerðu vonir manna um framlengt
vopnahlé að engu. Síðasta opinbera
vopnahlé IRA, 1974, var framlengt í
nær átta mánuði en því lauk þar sem
friðarviðræður fóru út um þúfur.
Reuter
Kína:
Ráðherrar settir af
Japan:
Ráðherra
kærður
fyrirskattsvik
Fyrrum umhverfismálaráð-
herra Japans, Toshiyuki Ina-
mura, hefur veriö kærður fyrir
að svíkja um 370 mihjónir ís-
lenskra króna undan skatti.
Ráðherrann mun hafa grætt
stórfé ásamt veðmangara, sem
nú situr í fangelsi, sem falsaði
gengi hlutabréfa,
Reuter
Wang Fang hetur var settur at sem
ráðherra öryggismála í Kína.
Ráðherra almenningsöryggismála
í Kína, Wang Fang, var settur af í
morgun. Heimildir telja að brott-
rekstur hans megi rekja til slæglegr-
ar frammistöðu sveita hans við að
hemja stúdentamótmælin í Peking í
fyrra. Wang Fang er 70 ára en eftir-
maður hans, Tao Siju, 55 ára. Fréttir
fréttastofunnar Nýja Kína sögðu
reyndar að Wang hefði lagt fram af-
sögn sína en skýrði ekki hvers vegna.
Þá hefur ráðherra utanríkisvið-
skipta, hinn 66 ára Zheng Tubbin,
verið settur af og hinn 58 ára Li
Anging, settur ráðherra í hans stað.
Diplómatar hafa lýst undrun sinni
yfir þesum breytingum en utanríkis-
viðskipti Kína hafa verið talin einn
af ljósu punktunum í annars dapur-
legu efnahagslífi landsins.
Reuter
Húsnæðisvandi í Berlin er mikill og hafa átök milli hústaka og oftsinnis
lögreglu átt sér stað á árinu. Hústakar gera meira en að slást við lög-
regluna. Á myndinni sést kofakumbaldi sem hústakar byggðu framan við
skrifstofuskýjaklúf í miðborg Berlínar til þess að vekja athygli almennings
á húsnæðisvandanum.
PERLIR OG SILKI
"GLADBEITTU, EGGJANDI OG LYSTAUKANDl” rödd
BOGOMIL FONT
KYNNIR: LAÐDl ( ÞORHALLUR SIOURÐSSON |
DRAGSHOW - MYNDYNDI (SÝNIR MYNDIR) - MATARDANS -
MÖR-LEIKHÚSIÐ FLYTUR TRAGEDlUNA "SVEITAMORД - JOHNNY TRIUMPH -
MANDOLIN-SPIL - HÖH - UPPLESTUR ÚR MENNINGARTlMARITINU GISPI
HUSIÐ OPNAR KLUKKAN 22:00 OO VERÐUR ÞA BOÐIÐ UPPA VEITINGAR
MIÐAVERÐ AÐEINS 1.700,- KRÓNUR
OPIÐ TIL KLUKKAN 03:00
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA: SKAPARANUM, N1 BAR, 22 ( MIÐAR EINNIG SELDIR A STAÐNUM )
Svíþjóð - Japan kl. 18.
ísland - Noregur kl. 20.
Á morgun, laugardag 29. desember,
keppa í Laugardalshöll:
Npregur - Svíþjóð kl. 15.
ísland - Japan kl. 17.
NÚ VERÐUR KÁTT í HÖLLINNI
Flugleiðamótið í handbolta hefst í Laugar-
dalshöll í kvöld, 28. desember.
FLUGLEIÐIR