Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1990, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990.
31
Merming
Regnboginn - Ryð
'k+ckVi
Vandað og sterkt drama
Það er einfalt líf sem er lifað á bílaverk-
stæði Badda. Lífið gengur sinn vanagang við
smurningar og ýsu í hádeginu. Baddi og
Raggi, sem vinnur hjá honum, dútla saman
og Raggi elskar Sissu, dóttur Badda. Haffi,
sonur Badda, er uppreisnanmglingur sem
málar villt málverk á veggina á verkstæðinu.
Móðir barnanna dó fyrir mörgum árum, féll
fyrir hendi morðingja. Ódæðismaðurinn,
Pétur, stakk af til Suður-Ameríku og hefur
ekkert til hans spurst síðan og atburðurinn
ekki ræddur á heimilinu þó hann hvíli eins
og skuggi yfir öllu lffi þar.
Það veldur því nokkrum óróa þegar Pétur
skýtur upp kollinum og vffi að þeir Baddi
geri upp fortíðina. Atburðarásin verður að
nokkurs konar einvígi milh þeirra þar sem
aðrar persónur eru samviskulaust notaðar
sem fótgönguliðar í því sorglega stríði sem
aðeins getur endað á einn veg.
Lárusi Ými Óskarssyni og kumpánum
hans hefur tekist að búa til vandaða og sterka
bíómynd um mannleg örlög. Hér er lítið sem
ekkert lagt í brellur og heljarstökk en þess
meiri vinna lögð í persónusköpun og einfald-
an framsagnarmáta. Kvikmyndatakan er
Eifar falleg og íslenskt landslag, sem oft hefur
þurft að bera uppi'íslenskar myndir, er hér
notað með hryssingslegri veðráttu til þess
að skapa rétt andrúmsloft.
Þeir sem bera myndina uppi eru að sjálf-
sögðu leikararnir. Bessi Bjarnason og Sig-
urður Sigiujónsson eru stjörnur myndarinn-
ar. Báðir ná að skapa heUsteyptar persónur
Stefán Jónsson, Bessi Bjarnason og Sigurður Sigutjónsson í hlutverkum sinum.
Kvikmyndir
Páll Asgeirsson
sem áhorfandinn getur ekki annað en fylgst
með og tekið þátt í örlögum þeirra. Egjll Ól-
afsson leikur veigamikið hlutverk Péturs og
gerir það af meira öryggi en hann hefur sýnt
áður. Nýliðarnir Christine Carr og Stefán
Ólafsson, sem leika börn Badda, standa sig
bæði mjög vel þó hlutverk Stefáns sé sýnu
átakameira. Þórhallur Sigurðsson er mjög
góður í litlu hlutverki forpokaðs barnakenn-
ara.
Ólafur Haukur Símonarson skrifaði hand-
ritið eftir eigin leikriti. Ekki veit ég hvort
það hefur tekið miklum breytingum en það
er sterkt og markvisst og sparlega farið með
orðin. Slíkt er einmitt einkenni góðra kvik-
mynda. Það sem einkennir þessa mynd er
fagmennska. Það má þykja einkennUegt að
shkt skuli vera fréttnæmt en þetta er fyrsta
íslenska kvikmyndin sem ég hef séð þar sem
engar aðfinnslur er beinlínis hægt að gera
og viðvaningsbragurinn er víðs fjarri. Ljóst
er að vandað hefur verið til hvers smáatriðis
og sérstaklega hefur þó tekist vel með val á
leikurum.
Hins vegar er framvindan mjög hæg fram-
an af og áhorfandinn er ekki mataður á upp-
lýsingum um fjölskyldutengsl eða orsakir
þeirrar spennu sem liggur í loftinu. Það tek-
ur því drjúgan tíma fyrir hann að átta sig á
öllum atriðum málsins áður en hlutir fara
að gerast.
Því er hætt við að íslenskum bíógestum
þyki myndin varla nógu spennandi eða æsi-
leg. Það er enginn bílaeltingaleikur og ekk-
ert sprengt í loft upp fyrir hlé. Stríðið er háð
með orðum og vígvöllurinn er mannshugur-
Ryð - íslensk
Framleiðandi: Sigurjón Sighvatsson
Leikstjóri: Lárus Ýmir Óskarsson
Handrit: Ólafur Haukur Simonarson
Tónlist: Wim Wertens og Egill Ólafsson
Myndataka: Göran Nilsson
Aðalhlutverk: Bessi Bjarnason, Sigurður Sigur-
jónsson, Egill Ólafsson, Stefán Jónsson, Christine
Carr og Þórhallur Sigurðsson
Gildran - Ljósvakaleysingjamir
Höfðar ekki
til fjöldans
Ef einhver hljómsveit á íslandi ætti þrautseigjuverð-
laun skilin er það hljómsveitin Gildran. Hún hefur
verið starfandi í ein tíu ár með sama mannskap án
þess að ná nokkurn tíma verulegri hylii. Skýringuna
má kannski fyrst og fremst rekja til þungrar og frekar
óaðgengilegrar tónlistar, sem einfaldlega höfðar til
alltof lítils hóps. Vissulega hefur eitt og eitt lag Gildr-
unnar náð einhverjum vinsældum en ekki nógmn til
að vekja almenna athygh á hljómsveitinni.
Og ekki á ég von á að þessi nýja plata Gildrunnar
breyti neinu um þessi örlög eða álög hljómsveitarinn-
ar, þó að hún sé að mörgu leyti það aðgengilegasta sem
hljómsveitin hefur sent frá sér.
Gildran hefur nefnilega á að skipa bæði góðum hljóð-
færaleikurum og söngvara og lögin sem hljómsveitin
semur eru mörg hver hin áheyrilegustu. Hér reynir
sveitin aðeins að létta tónlistina og lögin finnast mér
vera mun melódískari en þau hafa verið. Tilffilagið
er til að mynda mjög frambærilegt melódískt rokklag
sem á fyllstu athygli skilið. Sama má segja um þrælg-
ott blúslag, Játningu, sem er síðasta lag plötunnar þar
Nýjar plötur
Sigurður Þór Salvarsson
sem Guðlaugur Falk, gestagítarleikari á plötunni, sýn-
ir góð tilþrif á gítarinn.
Eitt lag er það lag á plötunni sem hefur fengið meiri
spilun en önnur en það er útgáfa Gildrunnar á gamla
góða laginu Vorkvöld í Reykjavík. Því miður held ég
að þetta lag sé ekki góð auglýsing fyrir plötuna því
að mínu mati er þessi útsetning á laginu algerlega
misheppnuð, gróf og fráhrindandi. Betur færi á að
beina athyglinni að öðrum lögum plötunnar.
En ég held að meðan sá hópur fólks á íslandi sem
hefur áhuga á þessari semiþungu rokktónlist er ekki
stærri en hann er verði þeir Gildrumenn að sætta sig
við að ná eyrum fárra. Tónlistin á hins vegar fyllsta
rétt á sér.
\\A'-A
. v\^
Veitingastadur
í miðbæ Kópavogs
35=
Tilboð vikunmr
Koníaksbœtt humarsúpa
lambafillet meó
villibráðarsósu, grœnmeti
og bakaðri kartöflu
og kaffi
Kr. 980,-
Nauta-, grísa- og
lambagrillsteikur
Opið frá kl. 11.30 til 23.30
Hamraborg 11 - sími 42166
A
zé.
, 1 Nlaslhi Tim llUlíll
LJÓSRI ARVELAR
Fjölbreytt úrval, frá þeim minnstu upp í afar fullkomnar og afkastamiklar ljósritunarvélar.
■ If feslhi ELEI LUIil
i ?AX
Frá litlum upp í afar fullkomin telefaxtæki.
HUQMVER
Akureyri
ARMULA 8 - S/MI 67 90 00