Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 11. JANUAR 1991. 3 I>v Viðtalið Fréttir ----------- Félagsstörf eru mér hugleikin Nafn: Gunnlaugur Auðunn Júlíusson Aldur: 38 ára Starf: Aðstoðarmaður la ndbún aðarráðherra Gunnlaugur Júlíusson hag- fræðingur var ráðinn aðstoðar- maður Steingríms J. Sigfússonar, landbúnaöar- og samgönguráð- herra um áramótin. Gunnlaugur er fæddur á Mó- bergi á Rauðasandi í Vestur- Barðastrandasýslu, alinn þar upp og búsettur til skamms tíma. Ættir sínar á hann að rekja til fæöingarstaðarins og eins til Húnavatnssýslu. Fyrstu kynni Gunnlaugs af kennslu voru í farskóla en síðan fór hann í unglingaskóla í Stykk- ishólmi og þaðan á Hvanneyri þar sem hann var í 5 ár. „Þar kláraði ég búfræðikandidatspróf 1975 og vann sem ráðunautur og fleira tengt landbúnaði. Haustið 1980 fór ég til Svíþjóðar og var í hagfræðinámi í sænska land- búnaðarháskólanum í 3 ár. Þáfór ég í doktorsnám í Kaupmanna- höfn og kom heim 1987.“ Eftir aö Gunnlaugur kom heim frá Kaupmannahöfn hóf hann störf hjá Stéttarsambandi bænda og var þar í 3 ár. Og fyrir tæpu ári síðan byijaði hann hjá land- . búnaöarráðuneytinu og sá um ýmis verkefni. Starfsmaður ráðherra Verksvið aðstoðarmanns ráö- herra er nokkuö vítt. „Ég sé um framkvæmd ýmissa þeirra mála sem ráðherrann leggur áherslu á að unnin séu og kem fram sem fulltrúi hans undir ákveðnum kringumstæðum, en aðállega felst mitt starf í að vera starfs- maður fyrir ráðherrann. Ég veit nú ekki ennþá hversu umfangs- mikið starfið er en ég á ekki von á öðru en að það geti orðið tölu- vert timafrekt. Hins vegar líst mér vel á þetta starf.“ Áhugamál Gunnlaugs eru mörg. „Að vísu hef ég haft alltof lítinn tíma fyrir áhugamál síðan ég kom heim en ég hef starfað að ýmsum félagsstörfum. Ég hef verið viðloðandi Dansk-íslenska félagið, var í stjóm SÍNE, núna er ég í stjórn Útvarðar, samtök- um um byggðamál þannig að félagsmál eru mér hugleikin. Svo eru náttúrlega hlutir sem maður hefur alltof lítinn tíma til aö sinna, eins og það að vera úti. Aö fara með byssu upp á fjöll þótti mér gaman hér í gamla daga, ekki endilega til að skjóta sem mest heldur bara að vera úti. Eins að lesa góðar bækur.“ Hvað lífsmottó varðar segir Gunnlaugur: „Ég segi nú bara eins og tfændi minn Bjöm á Löngumýri: Að hafa gaman af því sem maður er að gera.“ Hangikjöt og mjólk Uppáhaldsmatur aöstoöar- manns landbúnaðarráðherra em nátturlega landbúnaöarafurðir, hangikjöt og köld mjólk. Gunniaugur er i sambúð með Sigrúnu Sveinsdóttur lyfjafræð- ingi og þau eiga 2 syni, 5 og 2ja ára. -ns Herinn á Miðnesheiði: Byggir hátt í500 íbúðir fyrir fjölskyldufólk - stefnt að því að fækka sem mest einhleypum hermönnum á Vellinum Bandarísk hernaðaryfirvöld hafa gert stórátak í byggingu íbúðar- húsnæðis fyrir hermenn og fjöl- skyldur þeirra á svæði Varnarliðsins á Miðnesheiði. Á næstunni verður lokið við byggingu 248 íbúða og á næstu tveimur árum verða byggðar 224 til viðbótar. Með þessu er herinn að leitast við að bæta aðbúnað hermannanna og styrkja stöðu sína gagnvart öðrum atvinnugfeinum í Bandaríkjunum. Herinn byggir sinn mannafla á sjálf- boðaliðum og neyðist því til að bjóða starfsfólki sínu upp á kjör og að- búnað sem ekki em lakari en þekkist á almennum vinnumarkaðinum. Að sögn Friðþórs Eydal, upplýs- ingafulltrúa hersins, era nú alls um 3200 hermenn á vegum bandaríska hersins á Miðnesheiði, þar af um 500 konur og 2700 karlar. Um 800 þeirra era hér með fjölskyldum sínum og alls eru um 1000 börn á svæðinu. Samtals er því um 5000 manna byggð á Miðnesheiði í tengslum við herinn. Friðþór segir það stefnu bandarí- skra og íslenskra stjómvalda að fjölga sem mest fjölskyldufólki á vell- inum. Með því náist fram meiri stöð- ugleiki og minni samskiptavanda- mál. Vegna íbúðaeklu hefur hins veg- ar ekki verið hægt að bjóða óbreytt- um hermönnum í fjórum neðstu virðingarflokkunum að hafa fjöl- skyldur sínar með sér hingað til lands. Hann segir að á þessu muni nú verða breyting. „Því fylgja ótvírætt miklir kostir að fá fleira fjölskyldufólk hingað. Auk þess sem það skapast meiri festa á svæðinu skuldbinda hermennirnir sig til að vera héma ári lengur. Það verður því ekki eins mikið los á mannskapnum." Aðspurður kveðst Friöþór ekki eiga von á því að reglum um ferðir hermannanna utan hernaðarsvæöis- ins verði breytt í kjölfar þessa. í gildi séu mjög rúmar reglur sem í raun setji engar hömlur á ferðir fjöl- skyldufólks né yfirmanna. Óbreyttir og ógiftir hermenn mega hins vegar ekki vera utan svæðisins eftir mið- nætti nema þeir séu á hóteli og gisti þar. -kaa „Við vorum bara á rúntinum. Vissum ekki hvað við áttum að gera og þetta var að minnsta kosti gáfulegra en að fara á fylliri," sagði Þorsteinn Stein- þórsson á Egilsstöðum, en hann og sex aðrir framtakssamir ungir menn á staðnum tóku sig til aðfaranótt þrettándans og bjuggu til þennan myndar- lega snjókarl á planinu við Shell-skálann á staðnum. Kallinn er fimm metr- ar á hæð og það er áreiðanlega rétt því strákarnir fengu tæki hjá lögregl- unni til að mæla hæðina. Þeir voru hálfan annan tima að skapa verkið, luku því kl. hálfþrjú aðfaranótt 6. janúar. DV-mynd Sigrún Björgvinsdóttir, Egilsstöðum Loönuleitin: Vonumst eftir niður- stöðu um helgina „Það hefur ekkert verið rætt enn að leyfa loðnuveiðar og verður ekki fyrr en niðurstaða úr mælingum fiskifræöinganna liggur fyrir. Loðnuleitin og mælingarnar eru eins og annað í sjávarútvegi háð veðri og vindum. En ef leitarskilyrði haldast er ég að vonast til að niðurstöður úr mælingum fáist um helgina eða í byrjun næstu viku. Þá fyrst er hægt að segja eitthvað," sagði Jón B. Jón- asson, skrifstofustjóri sjávarútvegs- ráðuneytisins, í samtali við DV. Jákob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, sagði að ekkert væri að frétta af mælingum fiski- fræðinganna á rannsóknaskipunum. Sjómenn á veiðiskipunum, sem verið hafa við loðnuleit, halda því fram að allmikið sé af loðnu út af Austfjörðum. Hún sé hins vegar dreifð. Loðnan mæhst ekki nema hún þétti sig í torfur. Þessu til sönn- unar er bent á gríðarlega stóra torfu sem Hólmaborgin kastaði á og sprengdi nótina. Fjórum klukku- stundum síðar fannst ekki tangur né tetur af torfunni sem var á milli 50 og 6Q faðma djúp. Þetta atriði styrkir menn í að mikið sé af loðmu en að hún sé ekki farin að þétta sig. -S.dór Verðbólga 6,4 prósent Verðbólga er nú um 6,4 prósent samkvæmt vísitölu framfærslu- kostnaðar sem birt var í gær. Vísital- an í janúar veröur 149,5 stig eða 0,6 prósent hærri en í desember. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi- tala framfærslukostnaðar hækkað um 7,3 prósent. Undanfarna þrjá mánuði hefur hún hækkað um 1,6 prósent og jafngildir sú hækkun 6,4 prósent verðbólgu á heilu ári. Stærsti hluti þessarar 0,6 prósent hækkunar núna er vegna hækkunar á matvöru og rafmagns- og húshitun- arkostnaði. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.