Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991.
Afmæli
Guðný Svava Gísladóttir
Guðný Svava Gísladóttir húsmóðir,
Stakkholti, Vestmannabraut 49,
Vestmannaeyjum, er áttræð í dag.
Starfsferill
Guðný Svava fæddist á Amarhóli
í Vestur-Landeyjum og ólst upp í
Landeyjunum. Hún stundaði öll al-
menn störf, sem þá tíðkuðust til
sveita og við sjávarsíðuna, eins og
t.d. fiskvinnu á stakkstæðum for-
eldra sinna, auk þess sem hún
stundaði framreiðslustörf á Hótel
Skjaldbreið í Reykjavík árið 1932.
Þá hefur hún verið húsmóðir, lengst
af í Stakkholti við Vestmannabraut
þar sem hún hefur komið öllum
bömum sínum til manns.
Fjölskylda
Eiginmaður Guðnýjar Svövu er
Óskar P. Einarsson, f. 11.1.1908, lög-
regluþjónn en hann er sonur Einars
Sigurjónssonar, b. að Búðarhóli í
Vestur-Lanbdeyjum, og Valgerðar
Oddsdóttur.
Börn Guðnýjar Svövu og Óskars
em Guðný, f. 1.6.1935, húsmóðir,
gift Páli Sæmundssyni tæknifræð-
ingi og eiga þau fjögur börn; Val-
gerður Erla, f. 24.5.1937, húsmóðir,
gift Friðriki Ásmundssyni skóla-
stjóra og eiga þau þijú börn; Gísli,
f. 19.6.1939, vélfræðingur, kvæntur
Kristínu Haraldsdóttur banka-
starfsmanni og eiga þau þrjú börn;
Rebekka, f. 23.10,1941, d. 26.10.1971,
húsmóðir, var gift Ara Pálssyni bif-
reiðastjóra og eru börn þeirra þrjú;
Sigurbjörg Rut, f. 22.9.1946, lækna-
ritari, gift Atla Einarssyni sjómanni
og eignuðust þau tvö börn; Einar,
f. 7.1.1951, líffræðingur, kvæntur
Önnu Peggy Friðriksdóttur veit-
ingamanni og eiga þau fimm börn.
Börn Guðnýjar og Páls em Sæ-
mundur tannlæknir, kvæntur Ólaf-
íu Magnúsdóttur og eiga þau fjögur
böm, Guðna Pál, Andra, Brynjar og
Hlyn; Gísli Pétur hagfræðinemi;
Ingi Kristinn nemi; Páll Svavar
nemi.
Börn Valge^öar Erlu og Friðriks
eru Ásmundur fiskverkandi,
kvæntur Sigríði Magnúsdóttur og
eiga þau fjögur börn, Friðrik, Maríu
Höbbý, Ásu Hrönn og Erlu; Óskar
Pétur stýrimaður, kvænturTorf-
hildi Helgadóttur og eiga þau tvö
börn, Grétar Má og Valgerði Erlu;
Elías Jörundur nemi en sambýlis-
kona hans er Kolbrún Kristjáns-
dóttir.
Börn Gísla og Kristínar eru Svava
húsmóðir og á hún þrjú börn, Gísla
Birgi Ómarsson, Kristínu Sjöfn
Ómarsdóttur og Sigrúnu Ellu Óm-
arsdóttur; Sigrún Olga læknaritari
og er hennar sonur Guömundur
Eyjólfsson; Styrmir sjómaöur.
Börn Sigurbjargar Rutar og Atla
em Einar Vilberg, f. 30.3.1970, d.
28.10.1990; Ósk Rebekka nemi.
Börn Rebekku og Ara eru Ósk
Guðrún fulltrúi, í sambúð með
Sveini Segatta fulltrúa en sonur
hennar er Ólafur Birgir Georgsson;
Óskar Valgarð framkvæmdastjóri,
kvæntur Þórhöllu Sigurgeirsdóttur
nema; Guðný Elva fóstra, í sambúð
með Héðni Hákonarsyni nema en
þeirra dóttir er Rebekka.
Börn Einars og Önnu eru Óskar
Pétur; Anna Guðrún; Kristjana Luc-
ille; Katrín Sif; Rut Vilbjörg.
Systkini Guðnýjar Svövu: Salóme,
f. 13.4.1913, húsmóðir og ekkja Vig-
fúsar Jónssonar vélsmiðs; Óskar
Magnús, f. 27.5.1915, skipstjóri, út-
gerðarmaður og verkstjóri í Eyjum,
kvæntur Kristínu Jónínu Þorsteins-
dóttur verkakonu; Einar J., f. 31.1.
1923, fyrrv. forstöðumaður Filadelf-
íu, var kvæntur Guönýju Sig-
mundsdóttur er lést 1963 en seinni
kona hans er Sigurlína Jóhanns-
dóttir; Kristín Þyrí, f. 10.11.1925,
húsmóðir í Reykjavík, ekkja eftir
Harald Steingrímsson rafvirkja.
Foreldrar Guðnýjar Svövu vom
Gísli Jónsson, f. 23.1.1883, d. í októb-
er 1975, útvegsb. á Arnarhóli og í
Vestmannaeyjum, og kona hans,
Guöný Einarsdóttir, f. 10.5.1885, d.
31.3.1956, húsfreyja.
/Ett og frændgarður
Faðir Gísla var Jón, b. í Vestra-
Fíflholti í Landeyjum, Brandsson,
sem átti þrjátíu og eitt bam.
Móðir Gisla var Sólveig Gísladótt-
ir, b. í Björnskoti, Brynjólfssonar,
b. á Minna-Núpi, Jónssonar Thorla-
cius, klausturhaldara á Kirkjubæj-
arklaustri, Brynjólfssonar Thorla-
cius, sýslumanns á Hliðarenda,
Þórðarsonar, biskups í Skálholti,
Þorlákssonar, biskups á Hólum,
Skúlasonar. Möðir Þorláks var
Steinunn Guðbrandsdóttir, biskups
Guðný Svava Gísladóttir.
á Hólum, Þorlákssonar.
Guðný, móðir Guðnýjar Svövu,
var dóttir Einars, b. í Arnarhóli í
Landeyjum, Þorsteinssonar, b. í
Akurey í Landeyjum, Eyvindarson-
ar, b. í Hallg'eirseyjarhjáleigu, Jóns-
sonar, smiðs í Hlíðarhúsum í Rvík,
Fjalla-Eyvindarsonar, frá Hlíð í
Hrunamannahreppi, Jónssonar.
Móðir Guðnýjar var Salvör
Snorradóttir, b. í Skipagerði i Land-
eyjum, Grímssonar og konu hans,
Önnu Sigurðardóttur. Móðir Önnu
var Sigríður, systir Sæmundar, töð-
urTómasar Fjölnismanns. Sigríður
var dóttir Ögmundar, prests á
Krossi, Presta-Högnasonar. Móðir
Sigríðar var Salvör Sigurðardóttir,
systir Jóns, afa Jóns forseta.
Gísli Friðrik Johnsen
Gísh Friðrik Johnsen, ljósmyndari
og útgerðarmaður í Vestmannaeyj-
um, Nönnustíg 13, Hafnarfirði, er
áttatíu og fimm ára í dag.
Gísli Friörik er fæddur í Vest-
mannaeyjum og lauk gagnfræða-
prófi í Reykjavík.
Starfsferill
Gísli var í námi í menntaskóla um
tíma en hætti námi og réðst í útgerö
um tvítugt. Gísli gerði út fimm báta
í Vestmannaeyjum ásamt Ástþóri
Matthíassyni en þegar síðari heims-
styijöldin skall á seldu þeir bátana
að einum undanskildum. Hann hét
Þristur VE og gerði Gísh þann bát
út ásamt ísleifí Ámasyni og Ástþóri
Matthíassyni um árabil. Gísli fékk
áhuga á ljósmyndun og tók mikiö
af myndum sem hann síðan litaði.
Hann er þekktur fyiir myndir sínar
og hefur haldið nokkrar sýningar.
Gísh hefur búið í Hafnarfirði frá því
eftir Vestmannaeyjagos og dvelur
nú ásmt konu sinni á Sólvangi.
Fjölskylda
Gísli kvæntist Friðbjörgu
Tryggvadóttur, f. 25. maí 1907,
hjúkrunarfræðingi. Foreldrar Frið-
bjargar eru Tryggvi Sigurðsson, b.
á Jórunnarstöðum í Eyjafiröi, og
kona hans, Lhja Frímannsdóttir.
Börn Gísla og Friðbjargar eru:
Hrafn Johnsen, f. 6. janúar 1938,
tannlæknir, kvæntur Sigurrós
Skarphéðinsdóttur handavinnu-
kennara; Örn Tryggvi Johnsen, f.
30. maí 1944, d. 9. október 1960, og
Ásdís Anna Johnsen, f. 6. febrúar
1949, hjúkrunarfræðingur í Kefla-
vík, gift Birni Blöndal fréttamanni.
Systur Gísla eru: Sigríður, f. 22.
nóvember 1904, gift Ástþóri Matthí-
assyni, lögfræðingi og útgerðar-
manni í Vestmannaeyjum, móðir
Gísla Ástþórssonar blaðamanns, og
Soffia, f. 1. júní 1907, gift ísleifi Árna-
syni prófessor, móðir Gisla lögfræö-
ings og Árna hljóðfæraleikara
ísleifssona.
Ætt
Foreldrar Gísla eru Gísli Johnsen,
f. 10. mars 1881, stórkaupmaður og
útgerðarmaður í Vestmannaeyjum,
og kona hans, Anna Ásdís Gísladótt-
ir, f. 11. mars 1878. Föðursystkini
Gísla eru Lárus, afi Ríkarös Páls-
sonar tónskálds. Annar toðurbróðir
Gísla er Sigfús, faðir Baldurs
Johnsens, fv. forstööumanns Heil-
brigðiseftirlits ríkisins, foður Skúla
borgarlæknis og Önnu, konu Vil-
hjálms Vilhjálmssonar borgarfull-
trúa. Þriðji fóðurbróðir Gísla er
Guðni, afi Jakobs Möller, fulltrúa
mannréttindanefndar SÞ í Genf.
Fjórði fóðurbróðir Gísla er Árni,
faðir Ingibjargar, móðurafi Árna
Johnsen, fv. alþingismanns. Bróðir
Ingibjargar er Sigfús, faöir Árna
borgarfulltrúa.
Gísh er sonur Jóhanns Jörgens
Johnsens, kaupmanns í Vestmanna-
eyjum, sonar Kaspers Jóhanns
Jörgens Johnsens, kaupmanns í
Flensborg í Hafnarfirði, Jörgens-
sonar Johnsens, kaupmanns í
Flensborg í Hafnarfirði. Móðir
Kaspers var Anna María Lehne.
Móðir Jóhanns Jörgens var Guö-
finna, amma Péturs Jónssonar,
óperusöngvara og langamma Krist-
bjargar Lilju, móður Rúnars Guð-
jónssonar, sýslumanns í Borgar-
nesi. Guðfinna var einnig
langamma Ragnheiðar, móður Sig
Rogich, ráðgjafa George Bush
Bandaríkjaforseta. Þá var Guöfinna
langamma Elísabetar, móður Helgu
Möller söngkonu. Guðfinna var
dóttir Jóns Austmanns, prests í
Vestmannaeyjum, Jónssonar og
konu hans, Þórdísar, systur Bene-
dikts, langafa Ólafíu Jóhannsdóttur,
rithöfundar og kvenréttindakonu,
og Gunnars, foður Birgis ísleifs al-
þingismanns. Benedikt var einnig
langafi Sigríðar, ömmu Gunnars
Guðmundssonar, prófessors í lækn-
isfræði, og langömmu Guðmundar
Magnússonar, deildarstjóra félags-
Gísli Friðrik Johnsen.
og skipulagsdeildar Sjálfstæðis-
flokksins. Þórdís var dóttir Magnús-
ar, klausturhaldara í Þykkvabæjar-
klaustri, Andréssonar og konu
hans, Helgu Ólafsdóttur, systur
Ingibjargar, langömmu Guömund-
ar, afa Guömundar í. Guðmunds-
sonar ráðherra og langafa Davíðs
Á. Gunnarssonar, forstjóra Ríkis-
spítalanna, og Hauks Helgasonar,
aðstoðarritstjóra DV. Móðir Jóns
Austmanns var Guðný Jónsdóttir
eldprests, prófasts á Prestbakka,
Steingrímssonar. Móðir Gísla var
Anna Sigríður, dóttir Árna, b. á
Hofi í Öræfum, Þórarinssonar og
konu hans, Steinunnar Oddsdóttur.
Anna Ásdis er dóttir Gísla, kaup-
manns í Vestmannaeyjum, Stefáns-
sonar, stúdents í Selkoti undir Eyja-
fjöllum, Ólafssonar, gullsmiðs í Sel-
koti, Jónssonar, lögréttumanns í
Selkoti, ísleifssonar, aéttfóöur Sel-
kotsættarinnar. Móðir Gísla var
Guölaug Stefánsdóttir, vígslubisk-
• ups í Laufási, Einarssonar og konu
hans, Jórunnar Steinsdóttur, bisk-
ups á Hólum, Jónssonar.
Móðir Önnu Ásdísar var Soffía
Andersdóttir, skipstjóra í Vest-
mannaeyjum, Asmundssen, kom
þangað 1833 frá Noregi, og konu
hans, Ásdísar Jónsdóttur, b. á Núpi
á Berufjarðarströnd, Jónssonar.
Til hamingju med afmælið 11. janúar
80 ára 60 ára
Sigurður Sigurðsson, Hraunkambi 8, Hafharfiröi. Magnús Þorbergsson, Klífagötu 6B, Kópaskeri Jóna S. Guðmundsdóttir, Lækjargötu 10, Hafharfírði. Svavar Ellertsson, Aðalgötu 13, Sauðárkróki. Sigurður ÓIi Valdimarsson, Akurholti 12, Mosfellsbæ Þórunn Eliasdóttir, Lækjarkinn 14, Hafharfirði. Árni Reynir Hálfdánarson, Svalbaröi 5, Hafnarfiröi. Hann veröur aö heiman.
40 ára
75 ára
Svavar Þórhallsson, Furugrund 46, Kópavogi. Sigriður Káradóttir, Víöihliö 34, Reykjavik. Ólafur Georg Kristjánsson, Dalalandi 11, Reykjavík. Kristín Halldórsdótir, Krabbastíg 1B, Akureyri. Magnús Stefánsson, Kríunesi 4, Garðabæ.
Hermann Eyjólfeson, Miðtúni 10, Höfh í Homafirði. Ragnheiður Friðriksdóttir, Hringbraut 52, Reykjavík. Hún verður heima laugardaginn 12. janúar kl. 18-21.
70 ára
Ólafur Örn Árnason, Álfheimum 13, Reykjavík. Trausti Valdimarsson, Úlfsstöðum, Akrahreppi. Sigurborg Guðnadóttir, Stóra-Sandfelli 2, Skriðdalshreppi. Valdimar Jónsson, Vesturgötu 15A, Keflavlk. Guðlaugur Þórðarson, Faxabraut 8, Keflavik. Jarþrúður Rafnedóttir, Goðheimum 12, Reykjavík. Bragi Óskarsson, Grandavegi 37, Reykjavík. Gisli Benediktsson, Akurgerði 26; Reykjavík. Snorri Tómasson, Brekkutanga 10, Mosfellsbæ. Ester Anna Ingólfsdóttir, Skaftárvöllumll, Kirkjubæjarklaustri.
Ingólfur Dan Gislason og Jóhanna Jónsdóttir.
Ingólfur Dan Gíslason og
Jóhanna Jónsdóttir
Ingólfur Dan Gíslason kaup-
maður, Hörgslundi 9, Garðabæ, er
fimmtugur í dag og kona hans, Jó-
hanna Jónsdóttir verslunarmaður,
verður fimmtug 17. janúar.
Ingólfur er fæddur á Engimýri í
Öxnadal í Eyjafirði og ólst upp í
Skagafiröi og Reykjavík. Jóhanna
er fædd á Dilksnesi i Hornafirði og
ólst upp í Hornafirði. Börn Ingólfs
og Jóhönnu eru: Erna, f. 28. maí
1962, skrifstofumaður, gift Hilmari
Júlíussyni, búsett í Þýskalandi;
Dóra, f. 24. júní 1965, hárgreiðslu-
maður, sambýhsmaður hennar er
Guðjón Engilbertsson, búsett á Sel-
tjarnarnesi, ög Eðvarð, f. 14. ágúst
1972, fjölbrautaskólanemi.
Bróðir Ingólfs er Axel Hólm,
kvæntur Jódísi Jóhannesdóttur.
Systkini Ingólfs samfeðra eru:
Hreinn; Sigurlaug og Gísli. Systkini
Jóhönnu eru: Björn Lúðvík, útgerð-
armaöur, kvæntur Bryndísi Hólm;
Kristján, verkstjóri, kvæntur Ing-
unni Ólafsdóttur; Birna, skrifstofu-
maður, gift Eðvarð Jónssyni, sem
er látinn, og Agnes Olga, gift Hall-
dóri Olgeirssyni.
Foreldrar Ingólfs voru Gísli Ing-
ólfsson og kona hans, Sólborg
Sveinsdóttir.
Foreldrar Jóhönnu eru Jón
Björnsson frá Dilksnesi í Homafirði
og kona hans, Björg Antoniusdóttir.
Hjónin Ingólfur og Jóhanna taka
á móti gestum í AKOGES salnum í
Sigtúni 3, uppi, fostudginn 11. jan-
úarkl. 18-20.