Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991. Viðskipti Sljórn Laxalóns lýsir f yrirtækið gjaldþrota - bomban féll þegar íslandsbanki ákvað að ganga að fyrirtækinu Laxalón er gjaldþrota. Á meðal helstu eigna Laxalóns er útivistarsvæðið við Hvammsvik. Þar er golfvöllur, hestaleiga, veiði, fótboltavöllur, tjald- stæði og önnur útivistaraðstaða. Stjórn elsta laxeldisfyrirtækis Is- lendinga, Laxalóns sem stofnað var fyrir 40 árum, hefur ákveðið að lýsa fyrirtækið gjaldþrota. Þessi ákvörð- un var tekin eftir að íslandsbanki ákvaö að gjaldfella 83 milljóna króna afurðalán og ganga að fyrirtækinu. íslandsbanki er viðskiptabanki Laxalóns og á í reynd fyrirtækið. Það á veð í fiskinum og á þar meö fisk- inn. Samkvæmt heimildum DV hyggst bankinn láta slátra öllum fiski í stööinni og innheimta þannig 83 milljóna króna afurðalániö. Velgengni í Hvammsvík Laxalón hefur verið í fleiru en fisk- eldi. Fyrir nokkrum árúm ákvaö fyr- irtækið aö fjárfesta í útivist. Það hóf miklar framkvæmdir við Hvamms- vík í Hvalfirði. Hvammsvíkin hefur notið mikillar velgengni og er talin arðvænleg ijár- festing. Þar er fallegur golfvöllur, hestaleiga, tjaldleiga og veiði. Eftir því sem DV kemst næst eru eignir Laxalóns metnar á um 200 milljónir króna, og fiskbirgðir á um 80 milljónir. Samtals eignir upp á um 280 milljónir. Heildarskuldir fyrir- tækisins eru hins vegar um 300 millj- ónir, þar af er skuldin vegna afurða- Tilstendur aðsameina RammaogBÓ Viöræður standa yfir um sam- einingu á gluggasmiðjunni Ramraa hf. á Suðurnesjum og Trésmiðju BÓ í Hafnarfiröi. Þeg- ar er búið að tilkynna starfs- mönnum fyrirtækjanna aö sam- runinn sé fyrir dyrum. Rammi hf. á Suðurnesjum er eitt þekktasta fyrirtæki landsins á sínu sviði í framleiðslu glugga og hurða. Trésmiðja BÓ, Björns Ólafssonar, í Hafnafirði er einnig þekkt fyrir framleíðslu á glugg- um og hurðum. Auk þess vinnur fyrirtækið mikiö af listum, eins og kverklistum og gólflistum. -JGH VÍBveHi17 milljörðum Verðbréfaviðskipti Verðbréfa- markaðar íslandsbanka, VÍB, námu um 17 milljörðum króna á síöasta ári. Veröbréfasalan nam um 13,6 milljörðum króna en verðbréfakaup um 3,5 milljörð- um. Af skuldabréfúm seldist mest af sjóösbréfum Verðbréfasjóða VÍB eða fyrir um 5,4 milljarða, veödefidarbréf íslandsbanka og bankavíxlar seldust fyrir 5,1 milljarð, spariskírteini ríkissjóðs fyrir 826 milljónir, skuldabréf Glitnis fyrir 268 milljónir og önn- ur skuldabréf fyrir 612 milijónir. Hagnaöur eftir skatta af rekstri VÍB er áætlaður um 40 milijónir á síöasta ári. Starfsmenn fyrir- tækisins voru 20 í ársbyrjun en voru orönir 35 í lok ársins. -JGH lánsins við íslandsbanka um 83 millj- ónir króna. Skuldir Laxalóns umfram skráðar eignir eru því um 20 milljónir króna. Hins vegar er alltaf hætta á að minna fáist fyrir eignirnar komi til gjald- þrotaskipta. „Þetta lítur ef til vill einkennilega út en það var ákveðin sölumennska hjá mér að setja nafnið Aldi inn í heiti fyrirtækisins. Ég tók þetta upp hjá sjálfum mér. Þýska verslunarfyr- irtækið Aldi er ódýrasta verslunar- keðjan í Evrópu. Hún var mjög í umræðunni hér á landi þegar ég stofnaði Bónus og því setti ég nafnið inn. Eins má segja að nafniö Bónus eigi sér fyrirmynd frá Danmörku en þar er afsláttarverslun sem heitir Bonus. Bónus Ís-Aldi hf. er hins veg- ar alíslenskt fyrirtæki, stofnað af mér og minni fjölskyldu. Þetta er hefðbundið lítið íslenskt þjónustu- fyrirtæki í eigu íjölskyldu minnar." Þetta segir Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, um nafn fyrir- tækisins, Bónus Ís-Aldi hf. Þeir sem greiða með ávisunum í Bónus skrifa aðeins nafnið sitt og númer reikn- ingsins á ávísunina. Tölva verslun- arinnar skráir hins vegar upphæð- ina, dagsetningu og stílar ávísunina á Bónus Ís-Aldi hf. Margir hafa eðlilega spurt sig að því, þegar þeir hafa séö nafnið á ávís- ununum, hvort þýska verslunar- keðjan Aldi standi ekki á bak við Bónus fyrirtækið og sé hinn raun- verulegi eigandi. Þegar DV leitaði til Hlutafélaga- skrárinnar í gær fengust þau svör að fyrirtækið héti Bónus Ís-Aldi hf. Stofnendur þess væru Jóhannes Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Ása Ásgeirsdóttir, Kristín Jóhannes- dóttir, Jón Garðar Ögmundsson. Samningurinn við KLM Nokkra athygli vakti þegar sagt var frá því í fréttum á síðasta ári að Laxa- lón hefði gert samning við flugfélagið KLM um sölu á smálaxi. Með þessum samningi töldu Laxalónsmenn sig hafa tryggt söluna í fiskeldinu. Fyrirtækið var skráð hjá Hlutafé- lagaskrá 16. mars 1989. Tilgangur þess er inn- og útflutningur, útlána- starfsemi og verslunarrekstur ásamt skyldri starfsemi. Samkvæmt Hlutafélagaskrá er for- maður stjómar Kristín Jóhannes- dóttir, ritari er Jóhannes Jónsson og þriðji stjórnarmaðurinn er Jón Ás- geir Jóhannesson. Framkvæmda- stjóri er Jóhannes Jónsson. Bónus rekur nú fiórar verslanir. Laxalón náði ekki að standa við umræddan samning. Ástæðan er sú, samkvæmt heimildum DV, að fyrir- tækinu tókst ekki að ala laxinn upp í 200 gramma stærðina, sem getið var um í samningnum við KLM, þar sem fyrirtækið fékk ekki fyrirgreiðslu í bönkum til kaupa á rekstrarvörum eins og fóðri. Laxalón fær gjaldþrot Faxalax í hausinn Þá má geta þess að Laxalón er í miklum ábyrgðum í gjaldþroti fisk- eldisstöðvarinnar Faxalax. í þvi fyr- irtæki átti Laxalón 50 prósent á móti aðilum eins og Reykvískri tryggingu, Tryggingamiðstöðinni og fleirum. Utíit er fyrir að hátt i 50 milljóna króna biti af gjaldþroti Faxalax lendi á Laxalóni og einstökum hluthöfum þess vegna ábyrgða á lánum Faxalax. Bankinn krafðist nýs framkvæmdastjóra Síðasthðið haust var skipt um framkvæmdastjóra hjá Laxaloni. Eftir því sem heimhdir DV herma var það að kröfu íslandsbanka. Ólaf- ur Skúlason, framkvæmdastjóri og einn af eigendum fyrirtækisins, son- ur stofnandans Skúla Pálssonar, varð tæknilegur framkvæmdastjóri. Við starfi hans sem aöalfram- Tvær í Reykjavík, við Skútuvog og Faxafen, eina í Kópavogi og eina í Hafnarfirði. Fyrirtækið hefur lengi reynt að verða sér úti um húsnæði vestur í bæ en ekki tekist. Hins vegar má sjá stóra auglýsingu frá Bónus á hús- næði, sem Ehingsen á við Eiðis- grandann, og hafa sumir haldið að þar væri kominfimmtá Bónus versl- unin. -JGH kvæmdastjóri tók Matthías Gíslason. Hann var á árum áður hjá Slátur- félagi Suðurlands. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 2-3 ib Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2,5-3 Allir nema 6mán. uppsógn 3.5-4 Bb Íb.Sb 12 mán. uppsögn 4 5 ib 18mán. uppsögn 10 Íb Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Bb Sértékkareikningar 2-3 íb Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5 Allir 6mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir nema ib Innlán með sérkjörum 3-3,25 Íb Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 6,5-7 Ib.Lb Sterlingspund 12 12.5 Sb Vestur-þýsk mörk 7 7.6 Sp Danskarkrónur 8,5-9 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 12.25-13.75 ib Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 12.5 14,25 Lb Viðskiptaskuldabréf(1)y - kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 16-17.5 Allir nema Útlán verðtryggð i- ib . Skuldabréf 7.75-8.75 Lb.Sb Útlán til framleiðslu isl. krónur 12.25-13,75 Lb.Sb SDR 10,5-11.0 Ib.Bb Bandarikjadalir 9,5-10 Allir nema Sterlingspund 15-15.25 Sb Sb Vestur-þýsk mörk 10-10,7 Sp Húsnæðislán 4.0 Lífeyríssjóðslán 5-9 Dráttarvextir 21.0 MEÐALVEXTIR Óverðtr. des. 90 13.2 Verðtr. des. 90 8.2 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala jan. 2969 stig Lánskjaravisitala des. 2952 stig Byggingavisitala jan. 565 stig Byggingavisitala jan. 176,5 stig Framfærsluvisitala des. 148.6 stig Húsaleiguvísitala 3% hækkun 1 jan VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5,274 Einingabréf 2 2,856 Einingabréf 3 3.468 Skammtimabréf 1,770 Kjarabréf 5,186 Markbréf 2,573 Tekjubréf 2.016 Skyndibréf 1,540 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2.534 Sjóðsbréf 2 1.797 Sjóðsbréf 3 1.761 Sjóðsbréf 4 1.514 - Sjóðsbréf 5 1,060 Vaxtarbréf 1.7855 Valbréf 1.6736 Íslandsbréf 1.095 Fjórðungsbréf 1,049 Þingbréf 1,095 Öndvegisbréf 1.085 Sýslubréf 1.102 Reiðubréf 1,076 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun Tt.V. 100 nafnv.: KAUP SALA Sjóvá-Almennar hf. 6,55 6.88 Eimskip 5.57 5,85 Flugleiðir 2.41 2.53 Hampiðjan 1.72 1.80 Hlutabréfasjóðurinn 1.76 1.84 Eignfél. Iðnaðarb. 1.89 1.98 Eignfél. Alþýðub. 1,38 1,45 Skagstrendingur hf. 4,00 4.20 islandsbanki hf. 1.36 1.43 Eignfél. Verslb. 1.36 1.43 Oliufélagið hf. 6,00 6.30 Grandi hf. 2,20 2.30 Tollvörugeymslan hf. 1.07 1.12 Skeljungur hf. 6.40 6.70 Ármannsfell hf. 2.35 2,45 Fjárfestingarfélagið 1,28 1,35 Otgerðarfélag Ak. 3.47 3,65 Olis 2.12 2,25 Hlutabréfasjóður VÍB 0.95 1.00 Almenni hlutabréfasj. 1.01 1,05 Auðlindarbréf 0,96 1.01 islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08 (1) Við kaup á viðskiptavixlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn, lb = lslandsbanki Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Bónus heitir Bónus Ís-Aldi hf.: „Þýska keðjan Aldi á ekkert í Bónus“ - segir Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus Þessi viðskiptavinur greiddi í Bónus með ávisun. Tölva fyrirtækisins stilar ávísunina sjálfkrafa á fyrirtækið Bónus Ís-Aldi hf. Þetta hefur eðlilega vak- ið upp spurningar um hvort Bónus sé í eigu þýska fyrirtækisins Aldi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.