Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991. 39 DV ísaflarðarkirkja: Fréttir Hugmyndum Húsafriðunar- nef ndar ríkisins haf nað Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafirði: Á fundi skömmu eftir áramótin hafnaöi sóknamefnd ísafjarðar al- gerlega hugmyndum Húsafriðunar- nefndar ríkisins um endurbyggingu og stækkun ísafjarðarkirkju ásamt byggingu safnaðarheimilis en þær voru kynntar ísfirðingum nokkru fyrir jól. Nú er liðið hálft fjórða ár síðan kirkjan skemmdist í eldi og hefur æ síðan verið rætt hvað gera skuli. Sóknamefnd heldur fast við að byggð skuli ný kirkja og safnaðar- heimili þar sem gamla kirkjan og safnaðarheimilið standa nú. Jafnframt var þeim Gunnlaugi Jónassyni og Gunnari Steinþórssyni fahð „að leita álits sérfróðra manna um það, hvernig haga skuli ofantöku gömlu kirkjunnar á næstu mánuð- um“. Sömu mönnum var einnig falið að leita heimildar hjá byggingar- nefnd ísafjarðarkaupstaðar til að „taka niður Ísaíjaröarkirkju, gömlu' prentsmiðjuna við Sóigötu svo og bílskúr en þar kæmi aðkomuleið að kirkjunni". Ltkan af tillögum Húsafriðunarnefndar ríkisins um endurbyggða, lengda og hækkaða ísafjarðarkirkju ásamt nýju safnaðarheimili á tveimur hæðum við Sólgötu, aftan við kirkjuna, og samkomusal, til hliðar. DV-mynd Vestfirska fréttabiaðið Fjölbra.utaskóli Vesturlands: 22 útskrif uðust - þar af 15 stúdentar Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi: Alls útskrifuðust 22 nemendur frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra- nesi fyrir síðustu jól. Af þessum 22 voru 15 stúdentar. Þrír luku prófum á tæknisviði. Þrír verslunarprófl og einn nemandi lauk prófi á uppeldis- braut. Fimm nemendur hlutu viðurkenn- ingu fyrir ágætan námsárangur. Bestum árangri stúdenta náði Anna Guðnadóttir af félagsfræðibraut. Bryndís Böðvarsdóttir, nýstúdent, ávarpaði samkómuna fyrir hönd brautskrá§ra nemenda. Um 550 nemendur stunda nám við skólann á Akranesiauk 60 í öldunga- deild. Þá eru nemendur skólans utan Akraness 110 talsins en kennt er á Hellissandi, í Stykkishólmi og Borg- arnesi auk Akraness. Ennfremur hafa um 200 manns sótt námskeið á vegum Farskóla Vesturlands í vetur en sá skóli er einnig á snærum Fjöl- brautaskólans. Vesturland: Fræðsluskrif stofan fékk tölvu Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi: Fræðsluskrifstofa Vesturlands fékk fyrir skömmu tölvu að gjöf frá Radíóbúðinni og bókaverslunum á Vesturlandi. Þær verslanir eru Bóka- búð Andrésar Níelssonar og Bóka- skemman, Akranesi. Kaupfélag Borgfirðinga (bókadeild) og Bókabúð Grönfeldts, Borgarnesi. Bókabúð Sigurðar Jónssonar, Stykkishólmi, og Bókabúðin Dalaker, Búðardal. Tölvan verður í umsjón sérkenn- ara fræðsluskrifstofunnar. Hún kemur til með að nýtast til margra hluta, m.a. gagnast hún beint nem- endum sem eiga við sértæka lesörð- ugleika að stríða. Ýmis forrit munu þar koma að gagni, m.a. tvö forrit sem Lars H. Andersen kennari vinn- ur að ásamt öðrum, annað lestrarfor- rit, hitt málörvunarforrit. ■:—r Fjölmargir mættu á útifund samtakanna Átak gegn stríði á Lækjartorgi seinnipartinn í gær. Á fundinum var ítrekuð krafa um að rikisstjórn íslands lýsti yfir andstöðu við styrjaldaraðgerðir við Persaflóa. Voru Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra afhentar um 4000 undirskriftir vegna þessa. Eftir fundinn var síðan haldið til bandariska sendiráðsins þar sem áskorun til Bush Bandaríkjaforseta var afhent. DV-mynd Brynjar Gauti YANMÆUt LOFTKÆLDAR DlSILRAFSTÖÐVAR sumarhúsaeigendur og út- gerðarmenn. Eigum á lag- er margar stærðir frá 2000 W til 5500 W. Sala - Ráðgjöf-Þjónusta Skútuvogi 12 A, s. 91-82530 Fjölmiðlar Hvar er hlutleysið? Þaö kemur fyrir að dagskrárgerö- armenn í útvarpi gæti þess ekki að vera hlutlausir þegar þeir „eru í loftinu". Slikt er þó vafalaust ill- mögulegt þegar hlustendur hringja til stjórnenda ýmissa þátta og fá að vera raeö í daglegum umræðum sem ber á góma. í Þjóðarsálinni á rás 2 er gjarnan spurt: „Hvað finnst þér?“ Oftþarfþóekkiað spyrja. Borgar- ar, sem reynt hafa að ná sambandi í langan tima, þurfa oft ekki hjálpar við að koma sér beint að efninu í hálfgerðum málspreng og láta gamminn geisa af miklum móð. Síð- an ræðir viðkomandi sljómandi við hringjanda. Sigurður G. Tómasson reynir greinilega eftir mætti að gæta hlutleysis enþað er grunnt á sliku hjá kollega hans, Stefáni Jóni Haf- stein. Hann lætur það bara vaða: „Mér finnst...“ Einhvem veginn hélt maður að þessi þáttur væri fyr- irhlustenduren ekki stjórnendur sjálfa. Annað og verra er þegar svokallað Stefnumót fer fram á Bylgjumú. Þar eru mjög persónulegir hlutir til meðferðar og ástæða til að vera að minnsta kosti kurteis við, ,biðlana“ sem hringja. Þaö virðist þó eitthvað hafa farið á milli stafs oghurðar í þessum þáttum aö stjórnandi sýni fulla tillitssemi. Þarna virðist hlut- ley si einnig vera eitthvað óþekkt fyrirbæri. Þaö getur ekki verið meiningin að stjórnandinn hafi áhrif á þann sem situr í stúdíóinu með því að lýsa göllum þeirra sem hringdu i beinni útsendingu. Auk þess skiptir það litlu máli fyrir hlustendur að heyra í framhjá- hlaupi almennt álit stjórnandans á hvað honum þykir um hitt kynið. Það er ekki aðalatriöið að stjómand- inn láti ljós sitt skína. Óttar Sveinsson Veður I dag gengur norðanáttin niður og léttir þá smám saman til norðan- og austanlands en sunnantil á landinu gengur til suðvestan- og sunnanáttar og þykknar þar upp þegar líður á daginn. Sunnan- og vestanlands má búast við smásnjómuggu í nótt. Frost verður 2-8 stig. Akureyri Egilsstaðir Hjarðarnes Galtarviti Kefla víkurflug völlur Kirkjubæjarklaustur Raufarhöfn Reykjavik Vestmannaeyjar Helsinki Osló Stokkhólmur Þórshöfn Amsterdam Barcelona Berlín Chicagó Feneyjar Frankfurt Glasgow Hamborg ■ London LosAngeles Lúxemborg Madrid Malaga Mallorca Montreal New York Nuuk Orlando París Róm Valencia Vín Winnipeg skýjað -4 hálfskýjað -3 léttskýjað -2 léttskýjað -5 léttskýjað -4 skafr. -3 skafr. -4 léttskýjað -5 léttskýjað -3 snjókoma -4 léttskýjað -11 skýjað -2 hálfskýjað 1 skýjað 7 þokumóða 9 alskýjað 7 snjókoma -2 þokumóða 7 rigning 8 skúr 5 rigning 6 léttskýjað 5 heiðskírt 13 rign/súld 8 skýjað 9 heiðskírt 8 skýjað 13 heiðskírt -21 alskýjað -3 heiðskírt -12 rigning 21 skýjað 9 þokumóða 8 heiðskírt 11 þokumóða 3 snjókoma -12 Gengið Gengisskráning nr. 7. -11. janúar 1991 kl. 9.15 Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi Dollar 55,690 55,850 55,880 Pund 106,496 106,802 106,004 Kan. dollar 48,306 48,445 48,104 Dönsk kr. 9,4783 9,5056 9,5236 Norsk kr. 9,3244 9,3512 9,3758 Sænsk kr. 9,7805 9,8086 9,7992 Fi. mark 15,1723 15,2159 15,2282 Fra. franki 10,7506 10,7814 10,8132 Belg.franki 1,7693 1,7744 1,7791 Sviss. franki 43,3892 43,5138 43,0757 Holl. gyllini. 32,3450 32,4379 32,6926 Þýskt mark 36,4595 36,5642 36,7753 It. líra 0,04848 0,04862 0,04874 Aust. sch. 5,1793 5,1941 5,2266 Port. escudo 0,4064 0,4076 0,4122 Spá. peseti 0,5783 0,5799 0,5750 Jap. yen 0,41388 0,41507 0,41149 Irskt purld 97,471 97,751 97,748 SDR 78,7796 79,0060 78,8774 ECU 75,2984 75,5148 75,3821 Simsvari vegna gengisskráningar 623270. Fiskmarkaöimir Fiskmarkaður Hafnarfiarðar 10. janúar seldust alls 53,460 tonn. Magn í Verð í krónum tonnum Meöal Lægsta Hæsta Langa, ósl. 0,119 70,00 70,00 70,00 Lifur 0,036 20,00 20,00 20,00 Gellur 0.136 327,50 320,00 340,00 Smár þorskur 1,794 92,84 92,00 94,00 Hlýri 0,041 89,00 89,00 89,00 Ýsa 11,996 116,25 107,00 137,00 Ufsi 4,790 57,10 57,00 58,00 Þorskur 22,155 122,06 97,00 136,00 Steinbítur 1,213 92,02 79,00 96,00 Skötuselur 0,537 276,87 266,00 290,00 Skata 0,092 110,00 110,00 110,00 Langa 1,183 83,47 77,00 84,00 Koli 0,350 46,49 41,00 47,00 Keila 0,793 93,16 45,00 100,00 Karfi 3,051 93,16 45,00 100,00 Hrogn 0,628 137,06 100,00 370,00 Ýsa.ósl. . 0,916 98,26 95,00 100,00 Smáþorskur, ósl 0,291 85,00 85,00 85,00 Þorskur, ósl. 1,343 103,00 103,00 103,00 Steinbítur, ósl. 0,982 66,09 65,00 92,00 Lúða 0,269 397,29 360.00 480,00 Keila, ósl. 0,743 41,95 34,00 42,00 Faxamarkaður 10. janúar seldust alls 24,156 tonn. Blandað 0,080 41,00 20,00 76,00 Hrogn 0,268 308,80 20,00 390,00 Keila 0,643 43,30 43,00 45,00 Lúða 0,090 298,67 200,00 405,00 Saltfiskflök 0,037 200,00 200,00 200,00 Skarkoli 0,274 90,00 90,00 90,00 Steinbítur 0,577 78,74 67,00 83,00 Þorskur, sl. 8,896 106,34 98.00 108,00 Þorskur, ósl. 3,775 97,31 96,00 101,00 Undirmálsf. 1,353 71,12 54,00 87,00 Vsa, sl. 1,533 111,34 102,00 116,00 Ýsa, ósl. 6,630 96,31 90,00 119,00 Fiskmarkaður Suðurnesja 10. janúar seldust alls 33,760 tonn. Ýsa,sl. 1,000 114,00 114,00 114,00 Ýsa.ósl. 8,574 97,76 76,00 100,00 Þorskur, ósl. 12,690 111,95 99,00 125,00 Þorskur, sl. 6,747 109,56 83,00 111,00 Lúða 0,049 507,76 380,00 555,00 Skata 0,083 100,00 100,00 100,00 Keila 1,620 42,59 40,00 43,00 Undirmál. 0,190 60,00 60,00 60,00 Lýsa 0,070 30,00 30,00 30,00 Ufsi . 0,534 36,25 36,00 37,00 Skarkoli 0,158 86,85 86,00 89,00 Hrognkelsi 0,011 40,00 40,00 40,00 Blandaö 0,027 49,00 49,00 49,00 Langa 0,422 62,84 60,00 68,00 Steinbitur 1,247 65,54 56,00 70,00 Karfi 0,255 66,02 60,00 76,00 Gellur 0,051 324,00 324,00 324,00 Hrogn 0,032 299,48 245,00 315,00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.