Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991. 9 Gríska stjómin riðar til falls eftir átök námsmanna og lögreglu: Nemendur neita að sýna vottorð eftir f iarvistir - tveir kennarar hafa þegar látið Mð Hætta er nú talin á aö gríska stjórnin falli eftir miklar óeirðir í Aþenu vegna áforma um aö breyta menntakerfmu í landinu. Þar hafa námsmenn barist viö lögreglu tvo daga í röð og um 100 manns særst og tveir kennarar hafa látist af sárum sínum. Deilan virðist snúast um heldur léttvæg atriði. Námsmenn eiga sam- kvæmt nýjum lögum að koma með vottorð frá foreldrum sínum ef þeir mæta ekki í tíma og tekin verður upp ný aðferð til að meta hegðun nem- enda. Táragas lék um Aþenu í gær eftir að óeirðalögreglan hafði barist á göt- um úti við um 60 þúsund mótmæl- endur. Dauði kennaranna tveggja hefur vakið mikla reiði og efir að sá fyrri lét lífið varð menntamálaráð- herrann Kondoyannopoulos að segja af sér. Dauða hans bar að með þeim hætti að hópur manna reyndi að ryðja skólastofu sem nemendur höfðu lagt undir sig. Var kennarinn barinn í höfuðið með járnstöng og lét lífið. í gær lét annar kennari lífið eftir að mótmælendur kveiktu í íbúð hans. Sá hafði mælt nýju reglunum bót. Deilan um vottorðin eru þó aðeins tilefni þess að átökin blossuðu upp því óánægja hefur lengi kraumað undir. Aðbúnaður í skólum þykir lélegur og hefur stjórnin nú lofað að bæta þar úr. Hins vegar neita yfir- völd með öllu að fella úr gildi nýju reglurnar um mætingar nemenda. Töluvert tjón varð á eignum í Aþenu í mótmælunum í gær. Náms- menn kveiktu í bílum, brutu rúður og grýttu grjóti. Tjónið var metið á um hálfa milljón dollara eða yfir 200 miljóniríslenskrakróna. Reuter Ingvar Carlsson hefur ekki náð að halda vinsældum Jafnaðarmannaflokksins í Sviþjóð. Hann ætlar engu að siður að leggja upp með niðurskurð á kosningaári. Hér er Carlsson ásamt þremur ráðherrum sinum með Larsson sér við hægri hönd. . Simamynd Reuter Niðurskurður á kosningaári í Svíþjóð: Svíar sleppa við skattahækkanir í ár Niðurskurður á ríkisútgjöldum og engar skattahækkanir eru lausnar- orð sænska fjármálaráðherrans Ail- ans Larsson í frumvarpi til íjárlaga fyrir þetta ár. Tilgangurinn er aug- Ijóslega að ná niður verðbólgunni og að undirbúa Svía fyrir inngöngu í Evrópubandalagið. Athygh vekur hversu harkalega stjómin ætlar að ganga fram í niður- skurðinum þegar haft er í huga að aðeins átta mánuðir eru til kosninga. Ríkisstjórn Ingvars Carlsson stendur hölum fæti og jafnaðarmenn hafa ekki haft minna fylgi í langan tíma en undir forystu hans. Þess vegna þykir það tíöindum sæta að fjárlaga- frumvarpið skuli ekki vera kosning- afrumvarp. „Stefna okkar er ábyrg en ég viður- kenni að hún er hörð,“ sagði Larsson þegar hann kynnti frumvarpið. Margir áhrifamenn í flokki jafnaðar- manna eru ekki of hrifnir af stefn- unni en hins vegar hefur Larsson fengið lof frá hagfræðingum sem standa utan við hringiðu stjórn- málanna. Niðurskurðurinn tekur einkum til hermála og mannaráðninga hjá rík- inu. Ætlunin er að draga úr útgjöld- um sem nemur 15 milljörðum sænskra króna en það eru um 150 milljarðar íslenskra..Fækka á mönn- um í utarríkisþjónustunni, ráðu- neytunum og draga úr opinberum útgjöldum við heilbrigðiskerfið. Þá er svitarfélögunum ætlað að taka aukinn þátt í opinberri þjónustu en til þess er tekið að ætlunin er að draga lítillega úr skattheimtu. Það þykja tíðindi í Svíþjóð þar sem skatt- ar eru með því hæsta sem gerist í heiminum og hafa farið jafnt og þétt hækkandi á síðustu árum. Með breyttri stefnu í skattamálum er ætl- unin að undirbúa Svía undir inn- göngu í Evrópubandalagið. Einn þeirra sem fagnar frumvarp- inu er Ulf Jakobsson, hagfræðingur hjá Verslunarbankanum. Hann segir að í því felist „hálft skref í rétta átt. Það er merkilegur áfangi þegar haft er í huga að þetta er kosningaár og staða stjórnarflokksins er slæm,“ sagöi Jakobson um frumvarpið. Reuter og TT Útiönd SonurdeKSerksætlar að kvænast blökkukonu Það þykir tíðindum sæta í Suður- Afríku aö allar líkur eru á að blökkukona verði tengdadóttir F.W. de Klerk, forseta íandsins, áður en langt um líður. Dagblöð í Suðui'-Aíríku hala sagt fráþvíað WillemdeKlerkogErica Adams ætli bráðlega að opinbcra tralofun sína. Ungfrú Adarns til- heyrir lituðum í landinu og verður því að sætta sig við ýmsar tak- markanir sem aðskílnaðarstefha stjórnar de Klerks hefur í fór með sér. Hjónaband þeirra ýrði ekki olög- legt en margir ráðamenn af hvita De Klerk tekur lett á hjónabands- minnihlutanum líta svo náin tertgsl málum sonar síns en segir jxb fátt. hvítra og svartra homauga, enda voru þau bönnuð til ársins 1985. F.W. de Klerk hefur ekkert viljað segja um þessar fréttir annað en að hann viti um samband ungfrú Adams og sonar síns. „Sonur minn er 24 ára gamall og hefur ekki búið með íjölskyldunni um nokkurn tíma, Hann er sjálfstæður maður og tekur sínar ákvarðanir sjálf- ur,“sagðideKlerk. • Reuter Vilja ekki læra mál nágrannanna Formaður danska kennarasambandsins hefúr viðurkennt að danskir kennarar brjóti lög sem kveða á um að kennd skuli bæði norska og sænska í skólum. Þeir segja að lítill áhugi sé á þessum málum og því verði minna úr kennslu en lögin gera ráö fyrir. Þá hefur einnig komið fram að ástandið er svipaö bæði 1 Noregi og Svíþjóð þar sem hliðstæö lög eru í gildi. í Svíþjóð gengur illa að fá nemend- ur til að læra norsku og dönsku og í Noregi vilja þeir ekki læra sænsku og dönsku. Frá íslandi berast hins vegar þær fréttir frá Svavari Gestsyni mennta- málaráðherra að kennslu í norsku og sænsku haft verið bætt við dönsku- kennslunaogalltgangivel Ritzau Leiðtogar júgóslavnesku lýðveldanna sex ræddu við sfjórn landsins í gær og var ákveðið að halda annan fund 23. janúar. Á meðan ætla leið- togarnir að ræðast við. til að reyna aö fmna lausn á deilunni um framtíð landsins. Heimildarmenn segja að Slóvenía og Króatía hótí enn aðskilnaði og að Serbía vilji stækka landssvæði sitt. Forseti Króatíu á að hafa sagt að þörf kynni að vera á alþjóðlegri ráöstefnu til að jafha ágreininginn. Sérfræðingar segja að Serbía geti ekki víkkað út landamæri sín án þess að til borgarastyrjaldar komi. í Bosniu-Herzegovinu búa 1,8 milljónir Serba, 2 milljónir múhameðstrúarmanna og 400 þúsund Króata. Alls búa 2,5 milljónir Serba utan Serbíu. Reuter og Ritzau Bæjarstjóri tekinn vegna ölvunaraksturs Bæjarstjórinn og þingmaðurinn Torben Emil Lynge í Narsaq á Græn- landi verður ákærður vegna ölvunaraksturs að því er lögregluyfirvöld sögðu í viðtali viö grænlenska útvarpið. Bæjarstjórinn var staðinn að verki þremur dögum fyrir jól en logreglu- stjórinn vildi í gær ekki greina frá því hversu mikið áfengismagn reyndist í blóði bæjarstjórans. Skortur á sjúkragögnum í Sómalíu Erlendir læknár, sem hjúkrað hafa fórnarlömbum borgarastríös- in& í SómaJíu, sögöu í gær að tíu tonna birgðir af sjúkragögnum væru nær uppurnar. Jafnframt greindu þeir frá því að enn væri barist í höfuðborginni Mogadishu og hafa nú bardagar staðið þar yfir í tólf daga. Tugir manna hafa flykkst til stærsta sjúkrahússins i Mogadishu til aö láta gera að sárum sínum. Flogið var raeö læknana til Moga- díshu á miðvikudaginn í flugvél Rauða krossins. Uppreisnarmenn segja að að Enn er barist í Sómaliu og hafa tvö minnsta kosti tvö þúsund manns þúsund manns verið myrtir að hafi verið myrt og fjögur þúsund sögn uppreisnarmanna. særðir frá því að bardagarnir hóf- Srniamynd Reuter ust. Enn er ekki vitað nákvæmlega hvar Siad Barre forseti heldur sig. Sumar fregnir herma að liann hafi flúið land en samkvæmt öðrum á hann að vera í felum í neðanjarðar- byrgi eöa jafnvel sitja við skrifborð sitt í forsetabústaðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.