Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991.
Útlönd
Franski vamarmálaráðherrann:
Bandaríkin samþykki
alþjóðlega friðarráðstefnu
Jean-Pierre Chevenement, vamar-
málaráðherra Frakklands, sagði í
gær að Miðausturlönd hefðu beðið
of lengi eftir alþjóðlegri friðarráð-
stefnu. Sagði ráðherrann að Banda-
ríkin gætu talið íraka á að fara frá
Kúvæt með því að samþykkja al-
þjóðlega ráðstefnu um frið í Miöaust-
urlöndum.
Bandarísk yfirvöld eru mótfallin
því að tengja Persaílóadeiluna
ágreiningi Palestínumanna og ísra-
ela. Segja þau að með því væri verið
að verðlauna Saddam Hussein íraks-
forseta fyrir innrásina í Kúvæt.
Franskir heimildarmenn segja að
bandarísk yfirvöld hafi aftur á móti
samþykkt að frönsk yfirvöld reyndu
að kanna hvort slíkir samningar
myndu leiða til lausnar Persaflóa-
deilunnar.
ísraelsk yfirvöld eru andvíg hug-
myndinni um alþjóðlega ráðstefnu
og vilja heldur ræða einslega við
arabíska óvini sína.
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti sagði á miðvikudaginn aö
Frakkland og ríki Evrópubandalags-
ins myndu beijast áfram fyrir því aö
alþjóðleg ráðstefna yrði haldin um
Miðausturlönd á þessu ári.
Reuter
ísraelski herinn ætlar að sýna sína hörðustu hlið ef Palestinumenn nota
tækifærið til að gera uppreisn ef stríð brýst út við Persaflóa. Myndin er af
átökum ísraeiskra hermanna og Palestínumanna. Símamynd Reuter
ísraelski herinn í viðbragðsstödu
ísraelsk yfirvöld búa sig nú undir
að bæla niður fyrstu merki uppreisn-
ar Palestínumanna á herteknu svæð-
unum ef stríð brýst út. Heimildar-
maður innan ísraelska hersins, sem
ekki vildi láta nafns síns getið, sagði
að jafnvel harðvítugustu uppreisnar-
mönnum myndi bregða þegar ísra-
elski herinn léti til skarar skríða.
ísraelskar öryggissveitir hafa myrt
að minnsta kosti sjö hundrúð sextíu
og tvo araba frá því að uppreisnin á
herteknu svæðunum hófst fyrir
rúmur þremur árum.
Heryfirvöld sögðu í gær að þau
myndu setja útgöngubann á Palest-
ínumenn ef stríð virtist óumflýjan-
legt til aö koma í veg fyrir að þeir
hindruðu herflutninga á Vestur-
bakkanum sem liggur að landamær-
um Jórdaníu. Fréttamönnum yrði
ekki leyfður aðgangur að herteknu
svæðunum nema í fylgd með her-
mönnum.
Margir Palestínumenn eru sagðir
styðja írösk yfirvöld vegna andstöðu
þeirrar við ísraela og bandamenn
þeirra, Bandarikjamenn. Innan ísra-
elska hersins eru menn þeirrar skoö-
unar að Palestínumenn kunni að
beita ofbeldi til að setja málstað sinn
á oddinn. Margir forystumenn Pal-
estínumanna og nokkrir ísraelskir
liðsforingjar efast þó um að leiðtogar
Frelsissamtaka Palestínumanna,
PLO, muni hvetja til uppreisnar þar
sem þeir óttist hefndaraðgerðir. Telja
þeir stuðningsyfirlýsingu Arafats,
leiðtoga PLO, við írak táknræna.
Reuter
Skyndileit á heimilum araba
Lögreglan í Bonn gerði í fyrra-
kvöld skyndileit á heimilum nokk-
urra araba. Kváðust lögregluyfirvöld
í gær taka alvarlega hótun íraka um
hermdarverk á Vesturlöndum.
Að því er þýsk dagblöð greindu frá
í gær gerðu lögreglan og sérþjálfaðar
sveitir gegn hryðjuverkamönnum
leit á nokkrum heimilum og voru
tveir arabar handteknir. Ekki er vit-
að um þjóðerni þeirra. Lögreglan
viðurkenndi að leit hefði verið gerð
en vildi ekki tjá sig nánar um málið.
Lögreglan í suðvesturhluta Þýska-
lands er nú með mikinn viðbúnað til
aö vernda bandaríska hermenn þar
eftir að flugmiöar fundust með ákalli
um heilagt stríð ef Bandaríkjamenn
færu í stríö við íraka. Sagðist lögregl-
an búast við árásum af Palestínu-
mönnum, aröbum og múhameðskum
mótmælendum.
Fulltrúi Frelsissamtaka Palestínu,
PLO, í Bonn sagði samtök sín hafna
hryðjuverkum og myndu ekki taka
þátt í slíkum. Kvaðst hann efast um
að írakar myndu gera árásir á Vest-
urlöndum. „Ef maður er með milljón
manns undir vopnum þarf maður
ekki að grípa til slíkra aðgerða,"
sagöi hann.
Reuter
Irakar flýja til Norðurlanda
Að minnsta kosti fjórir írakar, sem
neita að gegna herþjónustu í heima-
landi sínu, hafa komið til Svíþjóðar
undanfamar vikur. Hafa þeir komið
til Svíþjóðar ásamt fjöratíu venjuleg-
um flóttamönnum frá írak. Flestir
flóttamannanna era íraskir Kúrdar.
Fyrsti viðkomustaður flóttamann-
anna var Jórdanía og voru þeir í fel-
um í höfuöborginni Amman þar til
hægt var að senda þá úr landi. Vegna
sambands jórdanskra yfirvalda við
írak var ekki hægt að leyfa þeim sem
neituðu aö gegna herþjónustu að
dvelja um kyrrt í Jórdaníu. Auk
þeirra sem fóra til Svíþjóðar hafa
tveir komið til Danmerkur og einn
til SVÍSS. Ritzau og TT
Breskur sprengjuslæðari sækir fram eftir að hafa eytt stórri sprengju við heræfingu í Saudi-arabíu þar sem alvöru-
vopn voru notuð. Símamynd Reuter
Friðarferð á
elleftu stundu
Framkvæmdastjóri Sameinuöu
þjóðanna, Javier Perez de Cuellar,
kom til Parísar í morgun á leið sinni
til Bagdad í írak. í París mun fram-
kvæmdastjórinn ræða við Mitter-
rand Frakklandsforseta og aðra emb-
ættismenn áður en hann heldur til
Genfar. Þar mun hann hitta að máli
utanríkisráöherra Evrópubanda-
lagsins. Gert er ráö fyrir að de Cuell-
ar komi til íraks á morgun.
Talsmaður Sameinuðu þjóðanna
visaði í gær á bug frétt um að fram-
kvæmdastjórinn myndi bjóðast til að
senda friðargæslusveitir til Kúvæt
ef írakar færu þaðan. Utanríkisráð-
herra Ítalíu, Gianni De Michelis,
hafði sagt í Róm í gær að helsta boð
framkvæmdastjórans yrði að sendar
yrðu friðargæslusveitir án þátttöku
Bandaríkjamanna og bandamánna
þeirra. Talsmaðurinn gat þess að
Noröurlönd hefðu þegar lagt til að
sendar yrðu friðargæslusveitir og að
Perez de Cuellar hefði sjálfur sagt
að þörf myndi vera fyrir slíkar sveit-
ir. Hins vegar sagði talsmaðurinn að
framkvæmdastjórinn væri ekki með
slíka tillögu reiðubúna þó svo að
vissulega kynni að vera minnst á
hana.
Sovésk yfirvöld hvöttu eindregið til
þess í gær að reynt yrði fram á síð-
ustu stundu að koma í veg fyrir stríð
við Persaflóa. í yfirlýsingu sovésku
stjórnarinnar var lýst yfir velþóknun
yfir fór framkvæmdastjóra Samein-
uöu þjóðanna til Bagdad.
Leiðarahöfundar bandarískra dag-
blaða voru í gær sammála um að lít-
il von væri um að friður héldist við
Persaflóa en hvöttu þó til áfram-
haldandi friðarumleitana.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hitti í morgun Fahd,
konung Saudi-Arabíu, og ræddi við
hann um stríðsáætlanir.
Fjöldi sendiráða í Bagdad lokaði í
gær og streyma starfsmenn þeirra
nú frá írak.
Reuter
írak:
Fyrrum ráðherra sagður
handtekinn við f lóttatilraun
Samtök útlaga Kúrda sagði í gær
aö fyrram olíumálaráðherra íraks,
Issam Abdul-Rahim al-Chalabi, hefði
verið handtekinn 28. desember síð-
astliöinn af íröskum landamæra-
vörðum er hann reyndi að flýja til
Tyrklands.
í yfirlýsingu, sem send var Reuter-
fréttastofunni í Kaíró, sagði að
Chalabi hefði verið handtekinn
ásamt fjölskyldu sinni nálægt kúr-
disku borginni Zakho.'í yfirlýsing-
unni sagði einnig að ráðherrann
fyrrverandi hefði verið sendur til
Bagdad í fylgd vopnaðra manna.
Mjög líklegt þykir að honum verði
refsað.
Tilkynnt var að Chalabi heföi verið
rekinn eftir að hann fyrirskipaði
bensínskömmtun í október síðast-
liðnum vegna viðskiptabanns Sam-
einuðu þjóðanna. í gær tilkynntu ír-
ösk yfirvöld aö engin hætta væri á
bensínskorti og þyrftu menn ekki aö
hamstra. Langar biðraðir mynduð-
ust við bensínstöðvar í írak eftir að
Ijóst var að viðræður James Bakers,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
og Tareq Aziz, utanríkisráðherra ír-
aks, í Genf á miðvikudaginn hefðu
mistekist. Reuter
Breskur stjómarerindreki um bréf Bush til Saddams:
Aziz stakk afritinu í vasann
Þó svo að utanríkisráðherra íraks
hafi neitað að afhenda forseta sínum
bréfið frá Bandaríkjaforseta þá stakk
hann afriti af bréfinu í vasa sinn.
Þetta fullyrti breskur stjómarerind-
reki f gær.
Sagðist stjómarerindrekinn, David
Hannay, sem starfar hjá Sameinuðu
þjóðunum, hafa.nokkuð trúverðugar
heimildir fyrir því að Tareq Aziz, ír-
aski utanríkisráðherrann, hafi
stungið afritinu í vasann.
Fyrr í gærdag sagði bandarískur
embættismaður að bréf Bandaríkja-
forseta hafi legið óhreyft á meðan
viðræður Aziz og utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, James Baker, fóra
fram í Genf á miðvikudaginn. Aziz
hefði lesið afrit af bréfinu en neitað
að afhenda bréfið þar sem það væri
ókurteislega orðað. Þegar ráðherr-
amir yfirgáfu fundarherbergið til að
snæöa hádegisverð skipaði Baker
öryggisvörðum aö gæta þess að bréf-
ið yrði ekki hreyft, að því er banda-
ríski embættismaðurinn greindi frá.
í fundarlok á Baker að hafa spurt
Aziz aftur að því hvort hann vildi
ekki taka við bréfinu. íraski ráð-
herrann neitaði enn og Baker tók þá
bréfið. Aðstoðarmaður Bakers er
sagður hafa tekið afritið. Aö því er
bandaríski embættismaðurinn
greindi frá eru nú bæði bréfið og af-
ritið í vörslu starfsmanns
bandaríska þjóðaröryggisráðsins
sem er í för meö Baker.
Reuter