Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991. 7 dv Fréttir Húsnæðisstofnuri: Rætt um fækkun starfs- manna og aukna hagræðingu - viöræöur fyrirhugaðar milli flármálaráðuneytis og stjórnar stofnunarinnar um endurskipulagningu og spamað Áætlanir eru um að fækka starfs- fólki Húsnæðisstofnunar ríkisins og draga verulega úr rekstrarkostnaði hennar. Alls vinna um 55 manns hjá stofnuninni. Að auki eru um 35 manns í störfum fyrir stofnunina hjá Veðdeild Landsbanka íslands. Á Ijárlögum þessa árs er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður stofnun- arinnar dragist saman um 32 milljón- ir frá fyrra ári og verði um 410 millj- ónir. Þessi sparnaður jafngildir því að starfsmönnum fækki um allt að 25. Formlegar viðræður munu heíj- ast á næstunni milli stjómar Hús- næðisstofnunar og fjármálaráðu- neytisins um hvemig staðið skuh að endurskipulagningu stofnunarinnar og ná fram aukinni hagræðingu. Halldór Ámason, skrifstofustjóri hjá Fjárlaga- og hagsýslustofnun, segir eðlilegt að starfsmönnum Hús- næðisstofnunar fækki á næstunni þar sem hún sé að losna við ýmis verkefni, til dæmis innheimtu að hluta. Þá muni starfsemin minnka verulega ef Byggingasjóður ríkisins hætti útlánum og lokað verði lána- kerfmu frá 1986. „Það verða engar fjöldauppsagnir. Það hefur reynst happadrýgra að ráða ekki í þær stöður sem losna þegar verið er að endurskipuleggja og ná fram hagræðingu. Hins vegar getur vel farið svo að eftir þing- kosningar í vor sé það mat manna að rétt sé að stokka starfsemi stofn- unarinnar algjörlega upp. Enn er það þó órætt mál.“ Halldór segir húsnæðismálastjórn hafa starfað mjög sjálfstætt gagnvart fjármálaráöuneytinu á undanforn- um árum. Oftlega hafi hún lítt sinnt tilmælum ráðherra og álitið sig að takmörkuðu leyti bundna af íjárlög- um. Hann segir að í fyrirhuguðum viðræðum verði meðal annars reynt að ná samkomulagi um þessi atriði. Að sögn Sigurðar E. Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra Hús- næðisstofnunar, hafa enn engar ákvarðanir verið teknar um fækkun starfsfólks né hvernig starfsemi stofnunarinnar verði hagað á árinu, „Það er verið að samþykkja breyt- ingar á lögum um Húsnæðisstofnun á hverju einasta þingi og hengja ný verkefni utan á hana. Nýverið voru til dæmis gerða viðamiklar breyting- ar á greiðsluerfiðleikalánunum og félagslega lánakerfinu sem hafa auk- ið álagið á stofnuninni verulega. Ef við eigum að geta sinnt þeim verk- efnum sem Alþingi hefur falið okkur þá verðum við að hafa mannskap til þess. Eins og staðan er í dag er stofn- unin síður en svo ofmönnuð." Sigurður segir að ástæða þess að rekstrarfé stofnunarinnar var skorið niður í ár á fjárlögum sé trú manna á að húsbréfakerfið leiði til sparnað- ar. Hann segir þaö sjónarmið út af fyrir sig en menn þurfi þó ekki að vera sammála því. -kaa Egilsstaðir: Húsin rísa eittaf öðru Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstödum; Mikið var um nýbyggingar á Egils- stöðum á liðnu ári. Fimm kaupleigu- íbúðir voru byggðar og teknar í notk- un. Þær eru í tveimur parhúsum. Nokkur einbýhshús voru reist og nýja lögreglustöðin var gerð fokheld. Ulfar Jónsson, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, sagðist þó ekki sjá að hún yrði tekin í notkun á þessu ári, þar sem engin fjárveiting væri áætl- uð til hennar. „Það verður þá að koma til láns- fé,“ sagði Úlfar, „en við erum orðnir langeygir í lögreglunni eftir að fá viðunandi aðstöðu, þar með tahn fangageymsla sem ekki hefur verið til staðar hér lengi“. ísaQörður: Reynt að endur- reisa Pólstækni Hfynur Þór Magnússcm, DV, ísafirði: Nú eru uppi hugmyndir um að end- urreisa fyrirtækið Pólstækni hf„ sem lýst var gjaldþrota rétt fyrir jól, en það er ísfirskt og með útibú i Reykja- vík. Starfsmenn fyrirtækisins á ísafirði með Hörð Ingólfsson, Sigur- jón Sigurjónsson og Albert Högnason í broddi fylkingar hyggjast gera til- boð í tæki fyrirtækisins með það fyr- ir augum að halda starfseminni áfram. Starfsmennimir hyggjast leggja fram hlutafé og gera Pólstækni að almenningshlutafélagi, þannig að hlutafjáreign nýtist væntanlegum hluthöfum tíl skattafrádráttar. Eprkólfar Pólstæknimanna hafa leitað hófanna hjá ýmsum forsvars- mönnum atvinnulífs á Vestfjörðum. Hefur þeim verið vel tekið enda mik- ið í húfi fyrir fiskvinnslufyrirtæki hér og víðar að búnaður fyrirtækis- ins verði framleiddur áfram, ella gætu þau innan fárra ára neyðst til að skipta út þeim vinnslulínum sem Pólstækni hefur framleitt fyrir þau. Þeir Pólstæknimenn hafa ekki í hyggju að gera tilboð í húseign fyrir- tækisins, telja sig ekki hafa bolmagn til þess, heldur að leigja húsnæði til starfseminnar ef til kemur og hafa m.a. leitað hófanna hjá íshúsfélagi ísfirðinga um afnot af 3ju hæð húss- ins, sem er htið notuð. Akureyri: Fær slökkviliðið körf u- bíl á þrítugsaldri? Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Ég hef í sjálfu sér ekki áhyggjur af aldri þessa bíls, einu áhyggjumar ef af þessum kaupum verður eru þær að menn haldi að búið sé að leysa þetta mál til frambúðar en svo er auðvitað ekki,“ segir Tómas Búi Böðvarsson, slökkvihðsstjóri á Ak- ureyri, en slökkvihðið hefur gert th- boð í körfubh sem er í eigu slökkvi- hðs í smábæ í N-Svíþjóð. Körfubhlinn sem um ræðir er 21 ára gamah, en í mjög góðu standi að sögn Tómasar Búa og nær lyftubún- aður hans í 22 metra hæð. Óskað var eftir tilboðum í bílinn og var slökkvi- liðið á Akureyri með hæsta thboðið, og segir Tómas Búi að kominn th Akureyrar muni bíhinn kosta 3,5-4,0 mhljónir króna, en nýr körfubhl kostar hinsvegar um 25 milljónir. Það hefur lengi staðið th að kaupa körfubh fyrir slökkvihðið á Akureyri en fjárveiting hefur ekki fengist th þess þótt brýn nauðsyn sé til að liðið hafi yfir slíkri bifreið að ráða. Tómas Búi segir að fyrst besti kosturinn hafi ekki verið vahnn, að kaupa nýja bifreið, þá sé það gott að næst besti kosturinn hafi verið vahnn, og ef Akureyringar fá þessa bifreið frá Svíþjóð verður hann kominn í gagnið á Akureyri í vor. DV-mynd Sigrrún Lögreglustöðin nýja á Egilsstöðum sem stendur við Fagradalsbraut. VERKIN TALA Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins, á opnum fundi í Valaskjálf, Egilsstöðum n.k. laugardag, 12. jan. kl. 15. Hvað hefur áunnist? Hvað er framundan? Hvers konar ríkisstjórn? Fundarstjóri: Hermann Níelsson Fjölmennum á skemmtilegan fund með einum litríkasta stjórnmálamanni landsins!, Alþýðuflokkurinn Jafnaðarmannaflokkur íslands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.