Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991.
13
Oddvitar almenns verkafólks og meðstjórnendur þeirra berjast fyrir því að koma upp öreigastétt á íslandi.
Kvislingar í
kjarabaráttu
í 3. tbl. Dagsbrúnarblaðsins 1990
má sjá að einn af tíu starfsmönnum
á skrifstofu félagsins er Þorleifur
Friðriksson söguritari. Sagnfræð-
ingur þessi vinnur að ritun sögu
félagsins, verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, sem að sögn formanns
þess, Guðmundar J. Guðmunds-
sonar, er ekki bara skrifstofa á
Lindargötunni heldur lifandi og
kraftmikið samfélag yfir 5000 karla
og kvenna.
Þess er aö vænta að þetta verði
failegt ritverk og að formaðurinn
leggi hönd á plóg til að svo verði.
Saga hans og Dagsbrúnar eru svo
tengdar að fáum kæmi á óvart þó
hannsegði: „Dagsbrún - það er ég.“
Frá og vegna félagsmanna
Dagsbrún er rúmlega áttrætt
félag. Vegna þess að svo margt gott
og fallegt er og verður um það
hægt aö segja og semja gæti svo
farið að mörgu yrði að sleppa úr
ritinu. Þess vegna er þessi grein
rituð; til að upplýsa einn þáttinn í
starfi Dagsbrúnar sem vafalítið
verður felldur úr ritverkinu um
Dagsbrún.
Á þeim tíma, sem Dagsbrún hefur
starfað, rúmum 80 árum, hefur
félagiö nurlað saman nokkrum
krónum og komið þeim fyrir hing-
að og þangað, í hinum ýmsu sjóð-
um og m.a. í bankahlutabréfum.
Þetta fé hefur félaginu áskotnast
frá og vegna félagsmanna sinna.
Félagsmenn standa að sjálfsögðu
undir launum stjórnar og starfs-
manna og verður ekki séð að þeir
hafi refsað stjórn eða starfsmönn-
um á nokkum hátt, ekki einu sinni
fyrir lélega samninga.
Félaginu mun í staðinn vera ætl-
að að standa vörð um réttindi
félagsmanna sinna, þó einhvers
misskilnings virðist gæta innan
Dagsbrúnar í umræddu máli. Þess
er að vænta að réttindavörslu fé-
lagsins verði gerð góð skil í riti
sagnfræðingsins, sem auðvitað er
launaður af félagsmönnum eins og
útgáfan svo síðar.
Þeir fá svo trúlega aö kaupa rit-
verkið á fullu verði þegar lokið er.
Svona ritsmíð er mikið verk, og
væntanlega fær sagnfræðingurinn
rýmri tíma en þeir sem sækja bóta-
greiðslur til félagsins. Þeir fá tvo
tíma á viku.
Horfviðhæfi!
Formaður Dagsbrúnar og VMSÍ
hefur undanfama áratugi háð
Kjailarinn
Þorsteinn
Sch. Thorsteinsson
vaktmaður hjá Eimskip
og nemi í TÍ
harða baráttu fyrir kjömm félags-
manna sinna og mikið borið á hon-
um. Hefur verið einn af þessum
stóra, í fararbroddi og fylkingar-
bijósti. Eftir gífurlega harða bar-
áttu og með óbilandi þreki hefur
honum nú tekist að koma taxta-
launum félagsmanna sinna í það
horf að honum finnst við hæfi að
framlengja þau óbreytt.
Fyrir 172 tíma dagvinnu á mán-
uði teljast þau eiga að vera þúsund
krónum lægri en viðurkennd
fátrækramörk einstaklings. Slíkur
árangur í kjarabaráttu er svo ein-
stakur að trúlega á hann sér hvergi
hliðstæðu í veröldinni.
En því fer fjarri að þessi formað-
ur standi einn að þessu afreki. For-
ystumenn annarra launþega og
stjórnarmenn, svo og forysta Al-
þýðusambandsins og stjómar-
menn hafa heilshugar og svika-
laust staðið að þessu méð honum.
Þeir hafa notið til þessa stuðnings
atvinnurekendasamtakanna og
Vinnumálasambands samvinnu-
félaganna.
Þá hafa stjómvöld einnig verið
hlynnt þessari launastefnu og gild-
ir einu hver þau hafa verið. Rétt
er að taka fram að margir atvinnu-
rekendur fyrirverða sig fyrir
launataxtana og fara ekki eftir
þeim, þykir trúlega smán að borga
samkvæmt þeim. En þeir eru líka
margir sem fara eftir töxtunum
heilshugar.
Hverra hagur?
Svo undarlegt og óskiljanlegt sem
það virðist, þá berjast oddvitar al-
menns verkafólks og meðstjómend-
ur þeirra, svo og samtök atvinnu-
rekenda og ríkisstjóm, fyrir því að
koma upp öreigastétt á Islandi.
Hefur einhver þessara aðila
virkilega hag af því?
Þó reynt sé af alefli að skilja þessa
aðila er það ógjörningur. Þessi
stefna er í algjörri andstöðu við
markmið og tilgang verkalýðs-
félaga. Hún skaðar meira að segja
sjóði þeirra og veikir félögin fjár-
hagslega. Það hlýtur að þurfa
hærra hringl en í þrjátíu silfurpen-
ingum til að menn snúist svona
algjörlega gegn yfirlýstum mark-
miðum sínum.
Áðurnefndir oddvitar launþega
era sæmilega silfri bomir af félags-
mönnum sínum ef miðað er við
taxtalaun félagsmanna og -kvenna.
Það er illskiljanlegt að atvinnu-
rekendur hafi hag af slíkri launa-
stefnu, a.m.k. þeir sem ætla sér al-
menning sem viðskiptavini. Þeir
sem vinna eða framleiða fyrir
íslenskan almenning sjá sér varla
hag í að gera hann að öreigum.
Ekki er það vænlegt viðskiptafólk.
, Þeir sem selja vörar og þjónustu
hér innanlands geta varla ætlast til
að þeirra hagur vænkist við að
skipta við öreiga og ölmusufólk.
Enn torskildara er sjónarmið
stjórnvalda. Geta þau virkilega
haft hag af því að fjöldi heimila og
einstaklinga lendir á opinlDerri
framfærslu? Hvers konar stjórn-
völdum er hagur í því?
Þorsteinn Sch. Thorsteinsson
„Eftir gífurlega harða baráttu og með
óbilandi þreki hefur honum nú tekist
að koma taxtalaunum félagsmanna
sinna 1 það horf að honum finnst við
hæfi að framlengja þau óbreytt.“
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæða-
greiðslu um kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og
endurskoðenda í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur
fyrir árið 1991.
Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu
félagsins, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, eigi síð-
ar en kl. 12.00 á hádegi mánudaginn 14. ja,núar 1991.
Kjörstjórnin
HVÍTUR STAFUR
TÁKN BLINDRA.
UMFERÐ
FATLAÐRA'
k VIÐ EIGUM
SAMLEIÐ
ilæ
IFERÐAR
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Jörðin Brjánslækur II, Barðastrand-
arhreppi, þingl. eign Kirkjujarðasjóðs,
fer fram eftir kröfú Byggingarsjóðs
ríkisins, Búnaðarbanka Islands og
Ingvars Bjömssonar hdl. mánudaginn
14. janúar 1991 kl. 15.00 á eigninni
sjálfri.
Jörðin Neðri-Rauðsdalur, Barða-
strandarhreppi, þingl. eign Ragnars
Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu
Byggingarsjóðs ríkisins, Áma Páls-
sonar hdl. og Ingvars Bjömssonar
hdl. mánudaginn 14. janúar 1991 kl.
15.30 á eigninni sjálfri.
Kjarrholt 4, Barðastrandarhreppi,
þingl. eign Kristínar Theodóm Ragn-
arsdóttur, fer fram eftir kröíú Bygg-
ingarsjóðs verkamanna mánudaginn
14. jan. 1991 kl. 16.00 á eigninni sjálfri.
Kjarrholt 1, Barðastrandarhreppi,
þingl. eign Guðrúnar Sigfríðar Samú-
elsdóttur, fer fram eftir kröfu Bygg-
ingarsjóðs verkamanna mánudaginn
14. jan. 1991 kl. 16.30 á eigninni sjálfri.
Kjarrholt 3, Barðastrandarhreppi,
þingl. eign Kristjáns Sigurbrandsson-
ar, fer fram eftir kröfú Byggingarsjóðs
verkamanna mánudaginn 14. janúar
1991 kl. 17.00 á eigninni sjálfri.
Gilsbakki 1, Bfldudal, þingl. eign
Hauks Kristinssonar, fer fram eftir
kröfu Byggingarsjóðs verkamanna og
Landsbanka Islands þriðjudaginn 15.
janúar 1991 kl. 10.00 á eigninni sjálfri.
Bmnnar 6, Patreksfirði, þingl. eign
Eiðs B. Thoroddsen, fer fram eftir
kröfu Byggingarsjóðs ríkisins þriðju-
daginn 15. janúar 1991 kl. 11.00 á eign-
inni sjálfri.
SÝSLUMAÐUR BARÐASTRANDAESÝSLU
SÍÖumúla33
símar 603878 og 38125