Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Page 3
3 MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚÁR 1991. viðskiptavina íslandsbanka Lögfrœðideild íslandsbanka hefur flutt aðsetur sitt að Laugavegi 31, 3.hœð. Nýtt símanúmer lögfrœðideildar er 626230 og faxnúmer 626235. Fullkomn un Bak við sérhverja hörmun liggur leitun aó formiolþeins og sést á egginu er það oftast náttúran sjálf sem kemst næst hinni eftirso'ttu - FULLKOMNUN Fréttir Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum: Veruleg fólksfjölgun varð á þétt- býlisstöðunum á Héraði á síöasta ári. Á Egilsstöðum fjölgaði um 4,7% og eru íbúar nú 1450. í Fellabæ, hand- an Lagarfljóts, fjölgaði um 35 manns og nú eru íbúar þar 385. í viötali við Sigurð Símonarson, bæjarstjóra á EgUsstöðum, sagði fólksfjölgunina mætti að hluta rekja til aukningar í þjónustu og verslun. Rækjusjómenn á Ísafírði: Róum ekki rækjuverð haldist óbreytt - segir Torfi Bjömsson skipstjóri „Við róum ekki nema rækjuverð haldist óbreytt. Jafnframt genun við þá kröfu að það verði hætt að neyða okkur til að selja rækjuverksmiðjun- um við Djúp afla okkar. Við viljum vera fijálsir að því að selja þeim rækju sem borga best,“ segir Torfl Björnsson, skipstjóri á ísafirði. Á fundi rækjusjómanna í fyrra- kvöld var ákveðið að róa ekki nema rækjuverð verði það sama og fyrir áramót. Að vísu halda 9 bátar áfram að róa en þeir leggja upp þjá Niður- suðuverksmiðjunni en hún hefur ákveðið að greiða sama verð og greitt var fyrir áramót uns nýtt lágmarks- verð á rækju hefur verið ákveðið. Framleiðendur hafa farið fram á 20 prósent lækkun á rækjuveröi í Verðlagsnefnd sjávarútvegsins þar sem verðfall hefur verið á rækju- mörkuðunum erlendis. „Það hafa ekki verið neinar samn- ingaumléitanir í gangi við sjómenn því framleiðendur bíða eftir nýju lág- marksverði á rækju. Við höfum gert sjómönnum grein fyrir því að við getum ekki borgað sama verð og gilti fyrir áramót vegna verðfalls á mörk- uðunum. Nú eru engar bætur greidd- ar úr Veröjöfmmarsjóði sjávarút- vegsins og því má segja að hvert kíló af rækju hafi fallið um 33 prósent í verði en verðfallið er enn meira á smárækjunni. Ég á ekki von á að það náist samkomulag í Verðlagsnefnd sjávarútvegsins um nýtt lágmarks- verð í dag og málinu verði því vísað til yfirnefndar," segir Guðmundur Agnarsson, framkvæmdastjóri Rækjustöðvarinnar á ísafiröi. „Hvað varðar kröfu sjómanna um að verksmiöjukvótinn verði felldur niður þá er áratugur síðan honum var komið á. Að vísu hafa forsend- urnar breyst á þessum tíma því kvótakerfið hefur ruglað kerfinu að einhveiju leyti því hann fylgir bátun- um, ekki verksmiðjunum. Eg sé samt ekki ástæðu til að hafna verk- smiðjukvótanum að svo komnu máh því sjávarútvegsráðuneytið er búið að gefa upp löndunarmark á verk- smiðjumar fyrir vetrarvertíðina." -J.Mar Egilsstaðir: Flugvallar- gerðinni seink- arumeittár Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum: Nú er ljóst að flugvöllurinn á Egils- stöðum verður ekki tilbúinn fyrr en síðsumar^ 1992 en upphaflega var gert ráð fyrir að hann yrði tekinn í notkun á þessu ári eða nánar tiltekið næsta haust. „Ástæður fyrir seinkun eru þær að á síðasta vori samþykkti Alþingi að flugvöllurinn skyldi verða 2700 metrar í stað 2000 eins og áður var stefnt að. Þar með þarf að byggja upp flugbrautir sem bera vélar allt að 350 tonnum í stað 150 tonna véla en það em þyngstu vélar sem nota 2000 metra brautir. Þar með varð verkið allt dýrara og þyngra í vöfum,“ sagði Ingólfur Arnarson, umdæmisstjóri Flugmálastjómar á Austurlandi. Nú era aö hefjast framkvæmdir við fjórða áfanga flugvallarins. í þeim áfanga felst að skipta um jarðveg í flugvallarhlaði, fjarlægjafarg á norð- urhluta flugbrautar og jafna öryggis- svæði. Það em Héraðsverk hf. og Austfirskir verktakar hf. sem skipta þessum áfanga á milh sín. Þegar þessi 2000 metra flugbraut hefur ver- ið tekin í gagnið er áformað að hefj- ast strax handa vorið 1993 að lengja völlinn í 2700 metra að sögn Ingólfs. Samhhða þessu er verið- að vinna við að innrétta nýju flugstöðina. Skrifstofur verða fluttar á efri hæð- ina seinna í vetur og þá verður tekið til við að breyta gömlu skrifstofunum í afgreiðslusal fyrir flug erlendis frá. Veitingasala verður síðan flutt upp á efri hæðina. Fólkstreymir íþéttbýlið Farþegar frá Reykjavík ganga frá borði á Egilsstöðum. DV-mynd Sigrun Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 laugardaga, 9.00— 14.00 sunnudaga, 18.00—22.00 Þú hringir... Vid birtum... Það ber árangurl Smáauglýsingadeildin er i Þverholti I I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.