Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991. 9 Utlönd Frelsun Kúvæts í þremur áföngum - allt traust sett á flugherinn í dag er runninn út fresturinn sem Sameinuðu þjóðirnar settu írökum til að hafa sig á braut frá Kúvæt. Þeir eru ekki farnir enn og sýna ekki á sér fararsnið. Því spyrja menn sig hvort stríð verði viö Persaflóann. Og ef svo fer þá hvernig verður það stríð? Fyrri spurningunni verður ekki svarað nema til komi sérstök spá- dómsgáfa en það er hægt að lýsa í stórum dráttum hvernig stríðsrekst- ur kemur til greina. Hernaðarsér- fræðingar segja að herstjórn Banda- manna í Saudi-Arabíu hafi samið áætlun í þremur áfóngum til að koma Saddam Hussein á kné án þess að átökin dragist mjög á langinn. Lykill- inn að áætluninni er yfirburðir Bandamanna í lofti. Byrjað á lofthernaði Sú hemaðaráætlun sem á að taka skemmstan tima er að hefja orr- ustuna um frelsun Kúvæts með víð- tækum loftárásum sem miðuðu að því að eyða flugher íraka á jöröu niðri. Sömu örlög eiga eldflaugar þeirra að hljóta og þar með mögu- leikar íraka á að fara með eitur- hernaði á hendur nágrönnum sínum. Talið er að til þessa verks þurfi um 400 orrustu- og sprengjuflugvélar sem nytu leiðsagnar frá AWACS- ratsjárvélum. Þessu mætti 'stjórna frá flugmóðurskipum eða herstöðv- um í Tyrklandi. Ef allar áætlanir standast ætti fyrsta þætti að ljúka eftir tvo til fjóra daga. Stöðvun flutninga frá íraktil Kúvæt Næsta stig yrði að ijúfa allar að- flutningsleiðir frá írak til Kúvæt með loftárásum á hernaðarlega mikil- væga staði. í þessum áfanga yrðu varnarlínur rofnar og jarðvegurinn undirbúinn fyrir innrás. Af stríðstólum yrði nú bætt við 200 orrustuþotum og einnig yrðu teknar í gagnið árásarþyrlur. Ovíst er hve langan tíma það tekur að ljúka þess- um áfanga. Það gæti tekið nokkra daga eða jafnvel vikur. Stórsókn á landi Þriðji áfanginn hæfist með sókn á landi úr suðvestri og af sjó úr norö- austri þannig að í það minnsta 20 herdeildir íraka króuðust af í Kú- væt. Erfiðasta hindrunin eru varn- arlínur íraka við landamæri Kúvæts og íraks. Við þennan áfanga yrðu einkum notaðar vélaherdeildir og þær studdar úr lofti af árásarþyrlum. Engin leið er að áætla hve langan tíma það tekur að ljúka lokaáfangan- um að freslun Kúvæts. Bandamenn hafa ekki umtalsverða yfirburði á landi þegar litið er á fjölda skriö- dreka en útbúnaðurinn er betri og og gera verður ráð fyrir að írakar geti ekki lengur beitt sér úr lofti. Herstyrkur íraka felst einkum í miklum mannafla en útbúnaður hersins er misgóður. Flugherinn verður að notast við úreltar vélar að hluta og skriðdrekarnir eru margir gamlir. iHermenn' Bandamenn fHermenn] ikriödrekar Bandaríkin Arabarikin 1.430 Evrópa Flugvólar Flugvélar Bandarikin Arabaríkin 378 Evrópa 126 Aörir 17 iip og sex litlir tundurskeytabátar smaerri skipa. ÍÉf Bandaríkin 20.000 hermenn || Arabarikin 200 skriödrekar 100 herflugvélar 10 herskip Evrópa 45 Í Bandaríkin II 390.000 Arrötrfí | iil Arabaríkin 223550 rmrmmi M — 1 Evrópa É 49.000 rn —1 É Aörir 679.100 i |i| 16.550 lliSkriödrekar ~-L- — Atli Dam hefur myndað síðustu landstjórn sina i Færeyjum. Hann hættir að öllum líkindum þátttöku t stjórnmálum undir lok næsta árs. DV-mynd Kalmar Lindenskog Stjómarkreppan á enda í Færeyjum: Atli Dam hættir á næsta ári Ný landstjórn hefur tekið við völd- um í Færeyjum. Ath Dam, formaður Jafnaðarflokksins, leiðir stjórnina í embætti lögmanns eins og fastlega var gert ráð fyrir. Myndun stjórnar- innar hefur þó gengið hægar fyrir sig en reiknað var með því að Atli sagði eftir kosningarnar 17,- nóvember að ný stjórn gæti orðið til á þremur til fjórum vikum. Jafnaðarmenn sitja nú í stjórn með erkifjendum sínum í Fólkaflokknum. Mörgum jafnaðarmönnum þótti sem Alti gæfl of mikið eftir við þá til að ná samkomulagi um myndun tveggja flokka stjórnar sem sé fær um að taka á gríðarlegum efnahagsvanda Færeyinga. Jafnaðarmenn fá fjóra ráðherra í landstjórninni en Fólkaflokkurinn þrjá. Þá vekur það athygh að Atli Dam ætlar að ganga úr ríkisstjórn- inni 1. desember árið 1992. í Færeyj- um velta menn fyrir sér hvort þetta jafngildi yfirlýsingu um að Ath hætti þar með þá'tttöku í færeyskum stjórnmálum. AtU Dam hefur verið formaður Jafnaðarflokksins aUt frá árinu 1970 og einn litríkasti stjórnmálamaður Færeyja síðustu tvo áíatugi. Á þess- um tíma hefur hann oft verið lög- maður og er án efa reyndasti stjórn- málamaður Færeyja. Fyrsta verkefni nýju stjórnarinnar verður að setja fjárlög. Frá 1. janúar hafa bráðabirgðaijárlög verið í gildi. Nýju fjárlögin einkennast af miklum niðurskurði útgjalda landssjóðsins og aðhaldi á öUum sviðum efnahags- lífsins. Landssjóðurinn var á síðasta ári rekinn með um 12% halla og hef- ur svo verið mörg undanfarin ár. Skuldirhanseruþvímiklar. Ritzau HELGARFERÐIR I JANUAR FEBRUAR OG MARS Skemmtiskrepp um helgi, kostar ekki mikið... ...með Flugleiðum. AMSTERDAM Amsterdam iðar af mannlífi og skemmtun. Amsterdam er borg sælkera og listunnenda. Sigling á síkjimum eða rómantískur kvöldverður - Amsterdam er lifandi borg að nóttu sem degi. Hagstætt vöruverð og vöruval. Amsterdam er borg verslunar og glæsileika. § FOSTUDAGUR TIL ÞRIÐ JUDAGS HÓTEL MUSEUM TVEIR í HERB. KR. 38.610 Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir i sima 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrimofum Flugíeiða, hjá , hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.