Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDÁtíUR 16. JANÚAR 1991. 11 Sviðsljós S T A Ð G R I Ð S L A Könnun leiddi í Ijós aö Dallasbúar virðast trygglyndir en að óvarlegt sé aö treysta Chicagobúum þegar ástamál eru annars vegar. Myndir þú halda fram hjá? Bandarískt tímarit spurði nýlega lesendur sína hvort þeir myndu halda fram hjá maka sínum ef þeir væru vissir um að það kæmist ekki upp um þá. Þrír af hverjum fjórum, sem spurðir voru, svöruðu spurning- unni neitandi. 15% karlanna og 9% kvennanna sögðust líkast til myndu freistast til að halda fram hjá ef hið fullkomna tækifæri byðist. Mikill munur var þó á því hvernig fólk svafaði, eftir því hvar það var búsett. Þannig svör- uðu allir Dallasbúar þvi neitandi að þeir myndu nýta sér tækifærið en helmingur Chicagobúa sagðist hins vegar myndu grípa gæsina ef hún flygiífangiðáþeim. H.Guð. Mark Phillips og Anna prinsessa. Anna Bretaprinsessa fær lögskilnað Breskt dagblað skýrði frá því í síð- ustu viku að líkur væru á því að Anna Bretaprinsessa og maður hennar, Mark Phillips, fengju lög- skilnaö í júní í sumar. Þau hjón hafa verið skilin að borði og sæng síðan í ágúst 1989. Talsmenn konungsflölskyldunnar hafa hvorki viljað neita né staðfesta þessar fréttir en Daily Mirror skýrði frá því um daginn að Mark Phillips heíði nú þegar þegiö a.m.k. 25 millj- ónir króna frá Elísabetu Breta- drottningu fyrir að ræða hvorki skilnaðinn né önnur einkamál þeirra Önnuviðflölmiðla. H.Guð. Skatthlutfall og persónuafsláttur áríð 1991 Aríðandi er að launagreiðendur kynni sér rétt skatthlutfall og skattafslátt 1991 Þrátt fyrir breytingar á almennu skatt- hlutfalli og persónuafslætti verða ný skattkort ekki gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Frá og með 1. janúar 1991 ber launa- greiðanda því að reikna staðgreiðslu af launum miðað við auglýst skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar og taka tillit til þess hlutfalls persónuafsláttar sem tilgreint er á skattkorti launamanns. Ný skattkort sem gilda fyrir árið 1991 verða einungis gefin út til þeirra sem öðlast rétt til þeirra í fyrsta sinn. Á þeim verður aðeins tilgreint hlutfall persónu- afsláttar auk persónubundinna upplýs- inga um launamanninn en skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar kemur þar ekki fram. Frá og með 1. janúar 1991 eru fallin úr gildi eftirfarandi skattkort: Skattkort með uppsöfnuðum persónuafslætti og námsmannaskattkort útgefin 1988-1990. Skatthlutfall staðgreiðslu er 39,79% Áárinu 1991 verður skatthlutfall staðgreiðslu 39.79%. Skatthlutfall barna, þ.e. sem fædd eru 1976 eða síðar, verður 6%. Persónuafsláttur er22.831 kr. Persónuafsláttur ársins 1991 hefurverið ákveðinn 273.969 kr. Mánaðarlegur persónuafsláttur verður þá,22.831 kr. Sjómannaafsláttur er 630 kr. Sjómannaafsláttur ársins 1991 verður 630 kr. fyrir hvern dag sem maður telst stunda sjómannsstö.rf. Breytingar síðar á árinu Breytingar sem kunna að verða á upp- hæð persónu- og sjómannaafsláttar síðar á þessu ári verða auglýstar sér- staklega. Auk þess fá allir launagreið- endur sem hafa tilkynnt sig til launa- greiðendaskrár RSK orðsendingu um breytingar á fjárhæðum. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL... AMSITOAM Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Krinqlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskriftofum HELGARFERÐ FÖSTUDAGUR TIL ÞRIÐ JUDAGS HÓTEL MUSEUM TVEIR í HERB. KR. 32.610 Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.