Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1991, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991.
31 *
dv_______________________________________________Merming
Rikshaw - Angels/Devils
Byrjuð að blómstra
Hljómsveitin Rikshaw hefur lengi verið spum-
ingarmerki án svars. Enginn hefur efast um
hæflleika liösmanna sveitarinnar og metnaður
þeirra og þolinmæði hefur verið til fyrirmynd-
ar. Samt hefur afraksturinn ekki verið mikill
og þær plötur, sem hljómsveitin hefur sent frá
sér, ekki uppfyllt þær vonir sem við þær voru
bundnar,' hverju svosum er um að kenna.
Rikshaw hefur alla tíð verið nokkuð sér á
parti í íslensku poppi fyrir þær sakir að hljóm-
sveitin hefur ekkert verið að fela þá drauma
- Hljómplötur
Sigurður Þór Salvarsson
sína aö stefnan er að komast á markað erlend-
is. Því hefur enskan verið móðurmál hljómsveit-
arinnar og er það kaniiski að hluta til skýringin
á því hversu illa plötur sveitarinnar hafa gengið.
Og þó svo þessi nýja plata sveitarinnar hafi
ekki gengið neitt mikið betur en þær fyrri er í
mínum huga engin spurning að áralöng vinna
og þrjóska Rikshawmanna er nú loks að skila
sér á plötu. Angels/Devils er nefnilega langbesta
plata Rikshaw til þessa og í fáum orðum sagt
mjög frambærileg rokkplata.
um sér. Þá skýrist til hvers leiddur var fram
heittrúarmaðurinn faðir hans. Jafnframt er
þetta skýring á geðleysi söguhetju í samskiptum
við fólk sem honum finnst skoplegt, ef ekki and-
styggilegt, en hann lætur vaða yfir sig.
Fléttað
Hér fer tveimur sögum fram senn. Annars
vegar er hversdagslegt líf þessa unga manns,
sem stundar sitt nám, hittir kunningja sína á
kafíihúsi, fer á ljóðakvöld o.s.frv. Hins vegar eru
hjónin í húsinu sem lifa alveg í fortíðinni eða
öllu heldur í draumórum sínum. Smám saman
er pilturinn dreginn meira og meira inn í þessa
draumóra, og veitir lítt viðnám, loks er hann
að verða aukapersóna í eigin lífi. Sagan sýnir
vel hve háskalegt samband slíkra pergóna verð-
ur og þessi söguþráður er burðarásinn í verk-
inu. Hinn þráðurinn, einkalíf sögumanns, styð-
ur þennan burðarás haglega. T.d. fer sögumaður
á ljóðakvöld og sýnishornin sem birt eru hér
af þeirri ljóðlist, fáránlegt þrugl um ást og til-
gang í lífinu, eru eins og margvíslegur forboði
vaðalsins í frúnni. Vinur sögumanns er alltaf
að semja smásögur og í þeim ríkir sama skop-
lega andleysið og er í ljóðabullinu. En þær eru
forboði meginsögunnar, hver á sinn hátt.
Aukapersónur eru dregnar fáum skörpum
dráttum, góðar skrípamyndir. Á sama hátt eru
velheppnaðar stuttar skopstælingar á textum
ljóðakvöldsins. Og það er í góðu samræmi við
meginstefnu sögunnar sem sýnir hve lífshættu-
legt það er að lifa sig inn í klisjur og draumóra.
Sagan nær vel málfari mismunandi persóna
og er skrifuð af öryggi. Hér rætast þau fyrirheit
sem höfundur gaf í 11 bls. sérprentaðri smásögu
fyrir fjórum árum, Bréf til mömmu. Einnig hún
var vel skrifuð, skemmtileg tilraun með að láta
algert úrþvætti úthella hjarta sínu og réttlæta
sig.
Einar Örn Gunnarsson: Næöingur.
Grágás, Keflavik, 1990, 128 bls.
Smellin saga
Skáldsaga þessi segir frá stúdent sem leigir
sér herbergi í kjallara í stóru, gömlu húsi í
Reykjavík. í húsinu búa roskin hjón sem eru
að leigja í fyrsta skipti. Húsið er táknmynd íbú-
anna eins og oft er, einu sinni var það fallegasta
húsið í bænum en nú ryðbrunninn, illa lyktandi
hjallur. Aukapersónur vara sögumann við þess-
um hjónum, en smám saman aukast samskipti
pilts við þau, og jafnframt afhjúpast fortíð
þeirra, skuggaleg leyndarmál, jafnvel morð,
hvað þá annað..
Þetta er kunnuglegur rammi og nú mætti bú-
ast viö að pilturinn hjálpaöi þeim gömlu til að
„sigrast á skuggum fortíðarinnar“. En sagan fer
ekki eftir hefðbundnum leiöum, heldur þvert á
móti, notar rammann til að ganga gegn klisjum.
Söguhetja
Stúdentinn er sjálfur sögumaður og segir til-
tölulega beint frá lífi sínu og umhverfi án veru-
legra heilabrota. Það leiðir lesendur til að taka
hann sem sjálfsagðan, samsama sig honum. Og
þá leiðast þeir væntanlegá til að skoöa í eigin
barm því betur að gáð eru undarlegir hlutir í
fari hans. Þetta dylst nokkuð vegna þess hálf-
kæringsgríns sem hann temur sér. Þannig
minnist hann bernskuleikja sinna í venjulegu
heimsósómaformi, að allt hafi verið betra áður
fyrr en innihaldið snýst gegn þessu:
„Við strákarnir eltum kóngulærnar uppi og
tíndum af þeim fæturna. Búknum hentum viö
en fæturnir sprikluðu í lófunum á okkur og við
hlógum miskunnarlaust. Þetta var alltaf jafn-
forvitnilegt, framandi og skrítið [... ] Við þurft-
um ekki rándýr leikfóng til þess að skemmta
okkur því að við höfðum allt sem börn þarfn-
Bókmenntir
Örn Ólafsson
ast, auðugt hugmyndaflug og slæmt innræti."
Þetta er jafnframt forboði framkomu hans við
leirskáld, kunningja hans síðar, hann skjallar
hann falskur til þess að hann gefi á sér höggstað
því hann hefur unun af að ráðast á hvern veik-
an blett.
Annað atriði er enn athyghsverðara í fari
söguhetju. Hann er yfir sig hrifinn af skólasyst-
ur sinni, svo mjög aö hann getur ekki látið það
í ljós, heldur ekki þegar hann hittir hana á balli
og þau dansa, samtal þeirra er eins og hvaða
kunningja sem er. Hún fer ein af ballinu en
hann fer heim með annarri stúlku. Fyrst þegar
hann sá hana var henni lýst svo að hún væri
„stórglæsileg með fíngerða andlitsdrætti og blá
augu, en því miður hafði hún gríðarstóra slaufu
í hárinu. Slaufuna tekur hún niður að áeggjan
hans, en þegar í ljós kemur að hún þekkir ekki
vel til Kafka, „gerði ég mér fullkomlega grein
fyrir því að stúlkan var aðeins til eins brúk-
leg“. En morguninn eftir það eru viðbrögðin
þessi: „Hvíhkur viðbjóður," hugsaði ég þegar
ég barði hana augum. Þung ilmvatnslykt hvíldi
yfir herberginu eins og nálykt. Ég var með
vindlabragð í munninum og mér var mál aö
æla.“
Hvernig stendur á svona viðbrögðum við nótt
með „stórglæsilegri stúlkunni“? Það verður
varla skýrt með öðru en að piltinum hafi verið
innrætt andstyggð á eigin nautnum, þ.e. á sjálf-
Rikshaw á hljómleikum.
Tónlistin er fjölbreytt án þess þó að vera ein-
hver samtíningur og miklu líflegri og bjartari
en það sem frá Rikshaw hefur farið áður.
Grunnurinn er þétt rokk en tilbrigðin margs-
konar eins og til aö mynda kántrí og blús. Ut-
setninngar hafa tekist mjög vel, sérstaklega
finnst mér raddútsetningar hafa lukkast vel.
Og það þarf vart að taka fram að hljóðfæraleik-
ur og söngur er fyrsta flokks.
Lögin eru flest eftir söngvara Rikshaw, Ric-
hard Scobie og hefur hann greinilega tekið stór-
stígum framförum sem lagasmiður og ekki síður
sem textasmiður. Og niðurstaðan er einfaldlega
plata sem á fullt erindi á hvaða markáð sem er,
hér heima og erlendis.
Fjölmiðlar
Tíminn er eins og torfbær
Einn best varðveitti minnisvaröi
um gullöld samvinnuhugsjónarinn-
ar er dagblaðið Tíminn. Þessi boð-
beri frjálslyndis og framfara í sjötíu
ár minnir mig oft á gamlan tortbæ.
Þessi torfbær má muna fifil sinn
fegurri. Áður var þetta reisulegt
höfuðból, sannkölluð héraðsprýði
með skála um þjóöbraut þvera. Þar
sátu andans stórmenni, máttar-
stólpar og forystumenn í sinni s veit.
Nú er öldin önnur. Nútíminn hef-
ur séð til þess að gamh torfbærinn
stendur utan alfaraleiöar. Eyðilegg-
ing og hrörnun hafa náð tökum á
byggingunni og þangað leggur eng-
inn málsmetandi maöur leið sína
lengur. Bakhúsin eru sliguö og hálf-
hrunin, þekjurnar rofnar og lekar
og fátt sem minnir á forna reisn. Þó
hafa stafnþilin veríð máluð með
blárri málningu. Sú tilraun tiland-
litslyftingar er óðum að flagna af í
látlausum rigningum.
Ef við göngum til bæjar í þögninni
þar sem ekki einu sinni hundur
fagnar gestakomunni verður fyrst
gengið um dimm og krókótt göng til
eldhúss. Þar situr ritstjóri og hrærir
í stórum kjötsúpupotti og fljóta uh-
arlagöar ofan á. Hann tekur ekki
kveðju komumanna.
{baðstofu sitja menn við tóvinnu
og tá hrosshár eða kemba ull í hin
ýmsu klæði. Þeir þrasa góðlátlega
sín á milh um þaö hvort setja eigi
upp vindrafstöð á gamla bænum og
freista þess að fá annað Ijós en lýsis-
kolurnar.
I homi baðstofunnar liggur niður-
setningurinn Garri, óumdeilanlega
geðversta gamalmenni núlifandi.
Sprök ogelhhrum rödd hans suðar
eins og skilvinda og eintóna skamm-
ir hans um allt og alla verða fljót-
lega eins og lækjaraiður í bak-
grunninum.
Á sama tíma og dagblöð eins og
aðrir fiölmiðlar reyna að skynja tíð-
aranda samtíðarinnar og fylgjast
meö því sem efst er á baugi hverju
sinni heldur Tíminn dauðáhaldi í
gamlar og fornar heföir. Gamalt er
gott, virðast vera einkunnarorð
blaðsins sem áttar sig ekki á þeim
sannleik að þó gamaltsé vissulega
oft gott getur það líka verið afkára-
legt, villandi eða beinlínis rangt. Þó
tilraun hafi verið gerð til þess að
gera forsíðu Tímans nútímalega
meö stórum fyrirsögnum sem vekja
gjarnan mikla kátinu þá eru inn-
viðir blaösins að öðru ley ti, .og mál-
fiutningur þess nákvæmlega eins
og tíðkaðist á fyrstu áratugum ald-
arinnar.
Ef svo heldur sem horfir mun
þjóðminjavörður, í samvínnu við
Náttúruveradarráö friða Tímann í
heild sem náttúruvætti eða ómetan-
Iegarfornminjar.
PáU Ásgeirsson
Veður
Sunnan- og suðvestanátt, viða hvöss vestanlands en
hægari austanlands. Él verða sunnanlands og vestan
en þurrt og víða léttskýjað á Norður- og Norðausturl-
andi. Lægir talsvert með kvöldinu. Heldur kólnandi
veður, einkum vestanlands.
w
Akureyri
Egilsstaðir
Hjarðarnes
Galtarviti
Keflavíkurflugvöllur
Kirkjubæjarklaustur
Raufarhöfn
Reykjavík
Vestmannaeyjar
Bergen
Helsinki
Kaupmannahöfn
Osló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Berlin
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madrid
Malaga
Mallorca
Montreal
New York
Nuuk
Orlando
Paris
Róm
Valencia
Vin
Winnipeg
léttskýjað 4
léttskýjað 5
léttskýjað 4
.snjókoma 2
snjóél 1
snjóél 2
léttskýjað 3
haglél 3
úrkoma 4
léttskýjað 2
skýjaö -3
skýjað 0
alskýjað -14
léttskýjað -3
alskýjað 7
heiðskirt -4
skýjað 6
heiðskirt -4
heiðskírt -1
heiðskirt -4
heiðskirt -2
heiðskírt -4
mistur 0
heiðskírt 18
heiðskirt -5
skýjað -4
skýjað 9
skýjaö 8
þokumóða -6
þokumóða 3
skafr. -15
rigning 18
léttskýjað -1
skýjaö 7
heiðskirt 1
þokumóða -9
alskýjað -3
Gengið
Gengisskráning nr. 10. -16. janúar 1991 kl. 9.15
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 56,080 56,240 55,880
Pund 106,947 107,252 106,004
Kan. dollar 48,835 48,975 48,104
Dönskkr. 9,4371 9,4640 9,5236
Norsk kr. 9,3094 9,3360 9,3758
Sænsk kr. 9,7786 9,8065 9,7992
Fi. mark 15,0976 15,1407 15,2282
Fra. franki 10,6997 10,7303 10,8132
Belg. franki 1,7649 1,7699 1,7791
Sviss. franki 43,5471 43,6714 43,0757
Holl. gyllini 32,2707 32,3628 32,5926
Þýskt mark 36,3684 36,4721 36,7753
It. lira 0,04832 0,04846 0,04874
Aust. sch. 5,1646 5,1794 5,2266
Port. escudo 0,4070 0,4082 0,4122
Spá. peseti 0,5756 0,5772 0,5750
Jap. yen 0,41069 0.41186 0,41149
Irskt pund 97,117 97,394 97,748
SDR 78,8563 79,0813 78.8774
ECU 75,0603 75,2744 75,3821
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Fiskmarkaðimir
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
15. janúar seldust alls 43,549 tonn.
Magn í Verð í krónum ^
tonnum Meðal Lœgsta Hœsta
Smáþorskur, ósl 0,484 75,00 75,00 75,00
Ýsa, ósl. 0,900 91,05 89,00 94,00
Þorskur, ósl. 0,724 80,96 80,00 82,00
Ýsa 4,959 113,87 91,00 116,00
Steinbitur 0,666 69,00 69,00 69,00
Skötuselur 0,023 181,00 181,00 181,00
Skötuselur 0,021 425,00 425,00 425,00
Skata 0,064 92,00 92,00 92,00
Lúða 0,069 382,13 300,00 435,00
Langa 0,304 69,00 69,00 69,00
Koli 1,202 79.43 50,00 80.00
Keila 0,071 45,00 45,00 45,00
Karfi 23,161 47,57 46,00 50,00
Ufsi 3,767 - 52,48 51,00 53,00
Þorskur 7,137 122,76 87,00 125,00
Faxamarkaður
15. janúar seldust alls 92,650 tonn.
, Blandað 0,279 50,75 50,00 63,00
Hrogn 0,271 272,42 190,00 315,00
Karfi 1,597 44,44 33,00 45,00
Keila 1,296 39,14 38,00 43,00
Kinnar 0,040 210,00 205,00 215,00
Langa 13,206 69,89 57,00 73,00
Lifur 0,145 26,81 20,00 32,00
Lúða 0,598 317,11 255,00 395,00
Skata 0,032 105,00 105,00 105,00
Skarkoli 0,080 81,25 70,00 85,00
Sólkoli 0,048 110,00 110,00 110,00
Steinbítur 3,422 67,92 65,00 69,00
Þorskur, sl. 46,759 98.72 77,00 114,00
Þorskur, smár 5,541 90,00 90,00 90,00
Þorskur, ósl. 13,236 86,15 80,00 90,00
Ufsi 0.394 44,41 33,00 47,00
Undirmál. 0,659 80,76 65,00 82,00
Ýsa, sl. 4,263 99,24 81,00 117,00
Ýsa, ósl. 0,775 84,83 79,00 105,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
15. janúar seldust alls 30,767 tonn.
Ýsa, ósl. 1,472 114,14 50,00 120,00
Þorskur, ósl. 22,000 114,45 100,00 127,00
Þorskur.sl. . 0,033 81,00 81,00 81,00
Undirmál. 0,055 70,00 70,00 70,00
Skata 0,052 99,00 99,00 99,00
Langa 0,739 52,73 44,00 60,00
Ufsi 0,705 15,00 15,00 15,00
Skarkoli 0,317 76,54 61,00 99,00
Blandað 0,022 10,00 10,00 10,00
Karfi 1,190 46,47 44,00 47,00
Lúða 0,564 445,76 270.00 620,00
Keila 1,092 25,99 15,00 27,00
Blálanga 2,482 80,00 80,00 80,00
Náskata 0,044 10,00 10,00 10,00
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900