Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1991.
13
Fréttir
Um 700 kvartanir trillukarla vegna kvótaúthlutunar:
Oréttlætið er
með ólíkindum
- segja Kristinn Gunnarsson og Bjarni Ólafsson
Enn er endanlegri kvótaúthlutun
til trillukarla ekki lokið. Viðbrögð
þeirra við tilraunaúthiutun þeirri
sem fram fór fyrir áramót voru með
þeim hætti að nú liggja um 700 kvart-
anir hjá sjávarútvegsráðuneytinu
vegna hennar. Alls fengu 2070 trillur
úthlutað kvóta í tilrauninni. Þar af
eru 140 nýjar trillur sem fá sjálfkrafa
10 prósent af heildarúthlutuninni.
„Það er aiveg með ólíkindum hve
mikið óréttlæti ríkir við þessa kvóta-
úthlutun. Trillukarlar, sem hafa róið
árum eða áratugum saman en voru
með bilaða báta eða hrjáðir af heilsu-
bresti þessi svokölluðu viðmiðunar-
ár, fá einfaldlega ekki neitt. Mannlegi
þátturinn í þessari kvótaúthlutun er
ekki tll,“ sögðu þeir Kristinn Gunn-
arsson og Bjarni Ólafsson, trillukarl-
ar af Suðurnesjum, í samtali við DV.
Þeir félagar bentu á fjölmörg atriði
máh sínu til stuðnings. Þeir nefndu
sem dæmi að menn sem komu inn
með nýjar trillur, og höfðu því enga
viðmiðun, fá úthlutað kvóta sam-
kvæmt meðaltalsreglu. Þeir bátar fá
úthiutað kvóta sem er meðaltal þess
sem bátar fá í þeirra stærðarflokki.
„En ef ég úreldi bátinn minn, sem
er orðinn gamall, og kaupi annan
sem er nokkurra ára fæ ég engan
kvóta. Ef ég hins vegar káupi nýja
trillu fæ ég meðaltalskvóta,“ sagði
Bjarni.
„Drepa trilluútgerðina“
Kristinn sagði einnig að í lögum
og reglugerð frá 1984 hefði verið gert
ráð fyrir að hafi skip tafist frá veiðum
á viðmiðunarárunum af einhverjum
orsökum yrði tekið tillit til þess. Því
var bættur kvóti sem nam því sem
áætla hefði mátt að skipið veiddi
þann tíma sem það var frá veiðum.
Nú, þegar trillukarlar fá úthlutað
kvóta eftir afla viðmiðunaráranna,
er ekkert tillit tekið til þess þó trilla
hafi verið frá veiðum af einhverjum
orsökum.
„Það er alveg sama hvernig þessi
kvótalög eru skoðuð og borin saman
við eldri lög og reglugerðir um
stjórnun fiskveiða. Allt virðist hafa
verið gert til aö drepa trilluútgerðina
niður. Viðmótið, sem við fáum við
kvörtunum okkar í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, er líka eftir því. Menn
lofuðu okkur hinu og þessu í fyrra.
Nú segjast þeir aldrei hafa sagt neitt
í þá veru. Enda er nú svo komið að
fjöldinn allur af kærum hefur borist
til umboðsmanns Alþingis vegna
þessara nýju kvótalaga og bíður þar
umsagnar hans,“ sagði Kristinn
Gunnarsson. -S.dór
Ingi Bjöm Albertsson alþingismaður:
Kaup á björgunarþyrlu
þola ekki lengri bið
- flársafnanir dreifðra hópa duga ekki í þvi sambandi
„Ný björgunarþyrla fyrir Land-
helgisgæsluna er dýrari en svo að
safnanir dreifðra hópa í þjóðfélaginu
dugi til að fjármagna þau kaup,“
sagði Ingi Björn Albertsson alþingis-
maður í samtali við DV. Hann hefur
lagt fram þingsályktunartillögu um
að ríkið sjái til þess að gerður verði
samningur á þessu ári um kaup á
fullkominni björgunarþyrlu fyrir
Landhelgisgæsluna.
Ingi Björn kallar björgunarþyrlu
sjúkrabifreið sjómanna. Og í því
sambandi bendir hann á að stærri
þyrla Landhelgisgæslunnar, sem nú
er aðalbjörgunarþyrlan, geti flogið
150 sjómílur á haf út og að hún taki
6 menn. Hún hefur ekki afísingar-
búnað og ekki er hægt að setja slíkan
búnaö í hana. Hann nefnir sem dæmi
að vegna þessa yrði þyrlan að fljúga
300 sjómílna leið með ströndum fram
ef sjóslys yrði við Hornstrandir að
vetri til. Þyrla með afísingarbúnað
ingi Björn Albertsson alþingismað-
ur.
gæti farið stystu leið sem er aðeins
90 mílur. Þyrlan, sem Landhelgis-
gæslan á nú, yröi í þessu tilviki að
koma við á ísafirði til að taka elds-
neyti.
Ef slys yrði á svæðinu við Langa-
nes gæti þyrla án afísingarbúnaðar
þurft að fljúga 410 mílur sem tæki
tæpa 3 klukkutíma. Meö afísingar-
búnaði væri vegalengdin ekki nema
230 mílur og flugið tæki ekki nema
innan við tvær klukkustundir.
Þá bendir Ingi Björn á annað mikil-
vægt atriði. ísfisktogarar okkar eru
með 12 til 16 manna áhöfn. Frystitog-
ararnir eru með 20 til 26 manna
áhöfn, vertíðarbátar 10 til 12 manna
áhöfn, loðnuskipin 13 til 15 manna
áhöfn og kaupskipin með 6 til 16
manna áhöfn. Stærri þyrla Land-
helgisgæslunnar getur ekki tekið
nema 6 menn.
„Vill einhver hugsa þá hugsun til
enda, ef skilja yrði menn eftir um
borð í skipi sem er að farast vegna
þess hve lítil þyrlan er?“ spurði Ingi
Björn.
Hann segir að afgreiðslutími full-
kominnar björgunarþyrlu sé ekki
undir 18 mánuðum. Þess vegna þoli
það enga bið að hafist verði handa
um að panta slíka þyrlu. -S.dór
NYTT OG BETRA LIF!
KJARNEFLI
KYNNING
Fimmtudagskvöldiö
14. feb. kl. 21.00
í Gerðubergi, Breiðholti.
Miðar seldirvið
innganginn.
Aðgangur kr200.-
Kynningin og
námskeiöiö fer fram á Leiöbeinandi er bandaríski MANNRÆKTINNI í s.
. salfræðingurinn Dr Paula
ensku. fioran 625717.
MATREIÐSLUMENN
Almennur félagsfundur verður haldinn að Óðinsgötu
7 þriðjudaginn 12. febrúar kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Fræðslumál
Framsögumenn:
Sigrún Magnúsdóttir, Jón Sveinsson,
Pétur Snæbjörnsson, Kristján Sæmundsson
2) Matreiðsluskólinn okkar
3) Vera okkar í Þ.S.I.
4) Kosning fulltrúa á sambandsþing Þ.S.Í.
5) Önnur mál
Stjórnin
NOTAÐU
PENINGANA ÞÍNA
í EITTHVAÐ ÁNÆGJULEGRA EN
iiÁTTMVEXTI
Við mjnnum á gjalddaga
húsnæðislána sem var
1. FEBRÚAR
16, FEBRÚAR_______
leggjast dráttarvextir á
lán með lánskjaravísitölu.
1. MARS__________
leggjast dráttarvextir á
lán með byggingavísitölu.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
O SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVlK ■ SÍMI 696900
KJARNEFLI
.E.T.
THE
CORE
EMPOWERMENT
TRAINING
kjarnefli
NAMSKEIÐ
Helgina 16. og 17. og
helgina 23. og 24. feb.
fyrir þá sem vilja læra
öfluga og hagnýta leiö til
að breyta lífi sínu.
Uppl. og skráning f.
hád. í s. 620037 og hjá
Erum flutt í múrsteinshusiöaö Knarrarvogi 4
Eigum yfir 100 tegundir af flísum af öllum geröum
og allt efni til flísalagna, frá Þýskalandi, Ítalíu,
Portúgal og Spáni.
ÁLFABORG ?
BYGGINGAMARKAÐUR
KNARRARVOGI 4, SÍMI 686755
Sérverslun með flísar og flísalagningaefni
m
PORCaANOSA'
CERAMICA
AGROB
W CERAMICHt
PAVIGRES
DEITERMANN
MP
moden
m