Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1991, Síða 16
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1S91. 100 kr. leikurinn mánudaga til föstudaga kl. 12.00-17.00. Keilusalurinn Öskjuhlíð Sími 621599. Pykkwkejm KARTÖFLUVERKSMIÐJA ÞYKKVABÆJAR HF. TILBOÐ í VÖRUFLUTNINGA Kartöfluverksmiðja Þykkvabæjar hf. óskar eftir tilboð- um í vöruflutninga fyrir verksmiðjuna. Útboðsgögn liggja frammi í verksmiðjunni Þykkvabæ. Tilboðin verða opnuð í verksmiðjunni Þykkvabæ 9. mars 1991 kl. 15.00. Vikutilboð: á heildsöluverði frá 6.-13. febrúar rjrrf •r Thaus S. 626002 í I 'N Ungir höfundar Sjónvarpsstöðvar og menningarmálastofnanir í Evr- ópu standa sameiginlega að verðlaunasamkeppni í því skyni að hvetja unga höfunda til að skrifa hand- rit að sjónvarpsleikritum eða leiknum sjónvarpsþátt- um. Keppt er um starfsverðlaun er veitt verða síðari hluta þessa árs. Verðlaunahafar koma síðan til greina er Evrópuverðlaunin verða veitt ári síðar. Starfsverðlaunin eru að upphæð 25.000 svissneskir frankar og verða veitt í nóvember 1991. Sjónvarpið hefur heimild til að tilnefna allt að 3 hand- rit sem valin verða af sérstakri dómnefnd. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en þrjátíu og fimm ára á árinu sem samkeppnin til starfsverðlauna fer fram. Umsækjendur mega ekki hafa samið nema eitt hand- rit í fullri lengd (50 mínútur) fyrir sjónvarp eða kvik- mynd þegar handriti er skilað. Umsækjendur leggi fram 5-10 síðna efnisútdrátt úr frumsömdu handriti með nákvæmri lýsingu á inni- haldi verksins, markmiði og persónum. Einnig skal fylgja sýnishorn af handriti (2 síður) og æviágrip höfundar. Hugmyndum skal skila til innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarpsins, Laugavegi 176, 105 Reykjavík, þar sem reglur samkeppninnar liggja ennfremur frammi. Umsóknarfrestur er til 15. maí 1991. Leitaðu Hver á réttinn? Þannig er oft spurt og svarið liggur ekki alltaf í augum uppi. DV-mynd S réttar þíns Lögfræðipistlar DV og Orators Vegna þess hve miklu það varðar fólk að kunna skil á hinum algeng- ustu lagareglum er snerta daglegt líf hefur DV í samvinnu við Öra- tor, félag laganema ákveðið að birta næstu vikurnar á mánudög- um pistil undir heitinu „Hagnýt lögfræði". Viðfangsefni þessara þátta munu verða atriði sem reynir á hjá þorra fólks og miklu skiptir að almenningur þekki. Næstu greinar munu íjalla um: 1. Helstu reglur stjórnsýslunnar. 2. Umboðsmann Alþingis. 3. Bílakaup. 4. Fasteignakaup. 5. Gjaldþrot. 6. Skilnaði. 7. Óvígða sambúö. 8. Kaupmála. 9. Forsjármál. 10. Erfðarétt. 11. Ávöxtun fjár. 12. Skaöabætur. 13. Ákvörðun refsingar. 14. Mannréttindi. Lögunum er ætlað að vera rammi um það lýðræðissamfélag sem við búum í. Þau kveða á um starfsemi þjóðfélagsins í heild, en marka jafnframt þær leikreglur sem gilda í samskiptum einstaklinganna. Flestir verða fyrir því einhvern tímann á lífsleiðinni að þeim finnst á sér brotið. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að fólk viti hvert það getur leitað til að fá upplýsingar um réttarstöðu sína og þau úrræði sem tæk kunna að vera. Refsimál Sumar athafnir manna eru lýstar refsiverðar að lögum. Lögreglan hefur það hlutverk að rannsaka slík mál. Telji menn að á þeim eða öðrum hafi verið brotið með refsi- veröum hætti ber þeim að leita til hennar. Lögreglan hefur einnig það hlutverk að veita brotaþolendum aðstoð og ráðgjöf um hvar frekari aöstoð er að fá. Refsimál eru þess eðlis að það er að öllu jöfnu ekki í höndum ein- staklinganna sem brotið er á að taka ákvörðun um framgang Umsjón: Órator, félag laganema þeirra. Slíkt er hlutverk opinberra aðila. Einkamál Þau ágreiningsmál manna sem ekki varða refsiverðar athafnir eru nefnd einkamál komi þau til kasta dómstóla. Dómstólunum er falið það hlútverk að skera endanlega úr ágreiningi og verða aðilar aö hlíta dómi. Ríkið aðstoðar menn viö aö fá dómnum framfylgt með valdi ef á þarf að halda. Lögmenn Reglur um meðferð mála fyrir dómstólum eru flóknar. Þar sem oft er mikið í húfi er fólki eindregið ráðlagt að nýta sér aðstoð lög- manna viö málarekstur. Lögmenn eru lögfræðingar sem uppfylla ákveðin skilyrði til að mega taka að sér flutning mála fyrir dómstól- um. Lögfræðingar veita einnig alla almenna lögfræðiaðstoð og er sjálf- sagt fyrir fólk að nýta sér þjónustu þeirra við gerð samninga og frá- gang ýmissa annarra mála til að forðast formgalla og önnur mistök. Með því móti má oft koma í veg fyrir dýran málárekstur síðar. Ókeypis lögfræðiaðstoð Fyrir utan þjónustu lögmanna, þá eru til aðilar sem veita fólki lög- fræðiaðstoö án endurgjalds. Hér er fyrst og fremst um að ræða miölun upplýsinga um réttarstööu fólks og hvert það getur leitað með vanda- mál sín. 1. Lögfræðiaðstoð Orators: Orator, félag laganema hefur í mörg ár veitt ókeypis lögfræðiaðstoð í gegn- um síma. Þjónusta þessi er starf- rækt af laganemum sem eru að ljúka námi. Starfandi lögmaður er alltaf á staðnum þeim til aðstoðar. Lögfræöiaðstoðin er opin á fimmtudagskvöldum kl. 19.30-22 í sima 1-10-12. 2. Kvennaráðgjöfin: Kvennaráð- gjöfin er starfrækt í Hlaðvarpan- um, Vesturgötu 2. Þar er konum veitt ókeypis lögfræði- og félagsráð- gjöf á þriðjudagskvöldum kl. 20-22. Bæði er hægt að koma á staðinn eöa hringja í síma 2-15-00. Leitast er viö að veita upplýsingar um rétt- arstöðu aðila og bent á hvar mögu- legt er að leita frekari aðstoðar. Um málarekstur eða aðra slíka þjón- ustu er ekki að ræða. 3. Opinber réttaraðstoð: Nú liggur fyrir á Alþingi frumvarp til laga um opinbera réttaraðstoð. í frum- varpinu er gert ráð fyrir að fólk, sem af efnahagsástæðum er ekki fært að leita aðstoðar lögmanna, geti að vissum skilyrðum uppfyllt- um fengiö slíka þjónustu kostaða úr ríkissjóði. Er bæði um að ræða almenna ráðgjöf lögmanna og viða- meiri aöstoð í einstökum málum sem eru til meðferðar hjá hinu op- inbera eða fyrir dómstólum. Víða í nágrannalöndum okkar eru í gildi lög um sambærilega lögfræðiaö- stoð. Þykir slíkt sjálfsagður þáttur í því réttarkerfi sem ætlaö er að tryggja aö allir séu jafnir fyrir lög- um án tillits til efnahags. Á þessari stundu er óvíst um framgang frum- varpsins á Alþingi. „Flestir verða fyrir því einhvern tím- ann á lífsleiðinni að þeim fmnst á sér brotið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.