Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Síða 2
2
MIÐVIKUÐAGUR 13. FEBRÚAR 1991:
Fréttir
Til deilna og stimpinga kom 1 Grænáshliði á Keflavíkurflugvelli:
Herlögreglumenn hentu
íslenskum kollega út
- langvarandi óánægja hjá íslenskum lögreglumönnum vegna stirðra samskipta
Mikill kurr er kominn upp hjá
íslenskum lögreglumönnum á
Keflavíkurflugvelli vegna stiröra
samskipta við bandaríska kollega
þeirra. Tveir íslendingar hafa ný-
lega sagt starfi sínu lausu og fleiri
íhuga að hætta. Hér er um að ræða
langvarandi óánægju sem er meðal
annars sprottin af því að frá síðasta
sumri hafa herlögreglumenn borið
vopn, meðal annars á íslensku
yflrráðasvæöi utan Keflavíkur-
flugvallar.
í síðustu viku kom til snarpra
orðaskipta og stimpinga á milli ís-
lensks lögregluþjóns og bandarísks
kollega hans í Grænáshliði við
Keflavíkurflugvöll. Bandaríski
hliðvörðurinn var að segja hinum
fyrir verkum. Því mótmælti sá ís-
lenski harðlega og benti með vísi-
fingri á bijóstkassa hins til að
leggja áherslu á mál sitt. Við svo
búið ýttu bandarísku verðirnir
þeim íslenska út úr vaktskýlinu.
Sá sem fékk fmgurinn á brjóstkass-
an sagðist ætla að leggja fram
kæru. íslendingurinn hafði þegar
sótt um vinnu annars staðar en
sagði starfi sínu síðan lausu á
mánudag.
„Bandaríkjamennirnir færa sig
sífellt upp á skaftið. Óánægjan hef-
ur ríkt síðan í fyrrasumar þegar
þeir byrjuðu að bera vopn,“ sagði
Unnsteinn Jóhannsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn í samtali við DV
í gær.
„Herlögreglumennirnir í hliðinu
hafa ekki veriö vopnaðir frá því ég
byijaði hér árið 1954. Þeir eru orðn-
ir frekir og þykjast eiga þennan
stað. Mér finnst þetta mál vera
komið það langt að ríkisstjórnin
ætti frekar aö fjalla um hvort við
erum sjálfstætt ríki í stað þess aö
vera að hlaupa austur í Eystra-
saltslönd.
í dag fékk einn starfsmaður hér
þau svör hjá herlögreglumanni að
Islendingar ættu ekki aö tékka
umferð inn um hliðin - heldur að-
eins Bandaríkjamenn. Sá hinn
sami sagði að þetta væri ekki mál
lögreglustjórans á Keflavíkurflug-
velli heldur réði íslenska ríkis-
stjórnin því hvað gerðist hér. Ný-
lega fór ég sjálfur í hliðið eftir að
herlögreglumaður hafði sagt við
einn af okkar mönnum að honum
kæmi ekkert viö hvað væri aö ger-
ast þarna - hann væri bara fyrir.
Þegar ég spurði hverju þetta sætti
skipaði herlögreglumaðurinn mér
umsvifalaust að þegja. Þetta er því
orðin spurning hér hvað þessir
menn fá að ganga langt,“ sagði
Unnstein.
Stefán Karl Baldursson, formað-
ur lögreglufélags Suðurnesja, sagði
við DV í gær að óánægjan, sem upp
er komin, væri ekki eingöngu
bundin við atvikið í síðustu viku
heldur væri meira um „uppsafnaöa
óánægju“ að ræða.
„Þessir menn eru ekkert alslæm-
ir en það er stundum einn og einn
sem sker sig úr og heldur aö hér sé
í gangi eitthvert styrjaldarástand
eins og í Persaflóa. Herlögreglan
hefur verið að færa sig upp á skaft-
ið með yfirgangi og okkur finnst
því að við eigum að spyrna við fót-
um,“ sagði Stefán Karl.
-ÓTT
Konur úr kvenfélaginu Hringnum ætla aö selja öskupoka í Kringlunni i dag. En vegna þess aö engin dagskrá
veröur þar er hugsanlegt að þær færi sig einnig í miðbæinn þar sem kaupmenn hafa boðið krakka velkomna.
DV-mynd BG
Metum hugrekki
ykkar mjög mikils
- segir Aurelijus Katkevicius ráðgjafi Landsbergis forseta
Loðnan:
Fundum
þokkalegan
f lekk út af
Hvalbak
- segir Gísli Runólfsson
„Við fundum þokkalegan
loðnuflekk út af Hvalbak í fyrri-
nótt og það segir manni að það
eigi eftir að koma meiri loðna.
Ekki er enn búið aö mæla hversu
flekkurinn er stór en þessi loðna
sem við fundum hlýtur aö bætast
ofan á það sem búið var að fínna,“
segir Gísli Runólfsson, skipstjóri
á Bjama Ólafssyni AK.
„Við teljum að það sé meiri
loðna í sjónum en þau 450 þúsund
tonn sem flskifræöingar hafa
mælt,“ segir Grímur Grímsson,
skipstjóri á Guömundi VE.
Guömuridur var aö veiðum 8
mílur vestur af Ingólfshöfða f gær
og fyllti sig í þremur köstum, fékk
alls 850 tonn. í tveimur fyrri köst-
unum fékk hann 400 tonn en 50
tonn í þriðja kastinu.
„Torfan, sem viö vorum að
veiða úr, var S'A míla að lengd
og mjög þétL Grindvíkingur var
að veiða úr sömu torfu og við og
fyllti sig líka. Við löndum i Vest-
mannaeyjum og höldum svo fljót-
lega aö því loknu austur til skoða
loðnuflekkinn sem fannst þar,“
segir Grímur.
Skipverjar á Bjarna Ólafssyni
munu halda áfram að skoða
flekkinn sem þeir fundu við Hval-
bak, ætla þeir aö fylgja loönunni
eftir upp aö ströndinni.
-J.Mar
Fékk
sígarettu-
glóð í augað
Piltur fékk sígarettuglóö í auga
er hann var á skólaballi á Hótel
íslandi i nótt Hann var fluttur á
slysadeild með sjúkrabíl. Lög-
reglan þurfti að fara á staðinn
vegna tveggja annarra atvika.
Skemmdarverk voru unnin á
einu salemi í húsinu og stúlka
hafði einnig meiðst á fæti.
-ÓTT
„Þessu skrefi höfðum viö beðið
lengi eftir. Við metum hugrekki og
röggsemi ríkisstjómar íslands, Al-
þingis og ekki síst íslensku þjóðar-
innar mjög mikils. Viðurkenning á
sjálfstæði Litháen og myndun stjóm-
málatengsla er áhrifamesta vörn sem
Litháar geta notið í núverandi hættu-
ástandi. Samþykkt Alþingis er afar
mikilvæg fyrir framtíð Litháens,"
sagöi Aurelijus Katkevicius, per-
sónulegur ráögjafi Vytautas Lands-
bergis, forseta Litháens, í símaviðtali
við DV í gærdag.
Landsbergis var mjög upptekinn í
gærdag en eftir að hafa verið með
forsetanum í kjölfar þingsályktun-
artillögu Alþingis frá því í fyrrakvöld
taldi ráðgjafmn sig geta farið nærri
um viðbrögð hans.
Landsbergis tilkynnti þinginu í Vil-
nius um þingsályktunartillögu Al-
þingis á fundi í gærmorgun. Að sögn
ráðgjafans fagnaði þingheimur frétt-
unum lengi og afar innilega.
„Þessi viðurkenning Alþingis er
mjög mikilvægt skref í þá átt að gera
vandamál okkar alþjóðlegs eðlis.
Sovétmenn hafa alltaf lýst því yfir
að vandamál Litháens væru innan-
ríkismál þeirra en viðurkenning ís-
lendinga hrekur þá skoðun. Með
samþykkt Alþingis og stofnun stjóm-
málasambands er stigið skref sem
færa mun Litháen undir ramma al-
þjóðalaga."
Ráðgjafinn sagðist ekki vita um
nein viðbrögð af hálfu Sovétmanna
en honum var kunnugt um hótanir
þær sem Sovétmenn höfðu í frammi
við íslendinga þegar möguleg viður-
kenning þeirra og stofnun stjórn-
málatengsla var í sjónmáli. í ljósi
þeirra fannst honum mun meira til
samþykktar Alþingis koma.
Ráðgjafinn var spurður hvort hann
byggist við að fleiri þjóðir fylgdu for-
dæmi íslendinga. Hann svaraði því
til að búist væri við aö Danir og
Norðmenn stigju svipuö skref.
-hlh
Kringlan
ekki með
öskudags-
skemmtun
- segirEinarHalldórsson
Engin skemmtidagskrá veröur í
Kringlunni í dag í tilefni öskudags-
ins. Tvö undanfarin ár hefur verið
skipulögð dagskrá þar sem kötturinn
hefur veriö sleginn úr tunnunni en
vegna óláta og aðgangshörku barn-
anna verður ekkert shkt í dag.
Einar Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Kringlunnar segir að aðgang-
urinn hafi verið slíkur undanfarin
ár að þeir vilji ekki standa fyrir slík-
um samkomum. „Við erum ekki van-
ir því að banna fólki að koma hingað
inn en ef fólk hagar sér ekki eins og
reglur gera ráð fyrir munum við taka
á því.“
- Munuð þið reka krakka út ef
þeir koma til að syngja og sníkja
gotterí?
„Ef það verður í einhverjum mæh
munum við taka á því og erum með
viðbúnað til þess. Við viljum ýta
þessu frá okkur því þetta hefur þrb-
ast út í hálfgerð skrílslæti. Krakk-
arnir eru uppivöðslusamir og frekir
þannig að það er ekkert gaman að
þessu. En við ætlum ekki að amast
við krökkunum ef þau haga sér vel.“
Kaupmenn við Laugaveginn hafa
hins vegar boöið krökkum sérstak-
lega að koma í verslanir sínar og
þiggja góðgæti og fá í staðinn eitt eða
tvö lög.
-ns
Kópavogur:
Lögreglan
viðumferðar-
Ijós
Lögreglan í Kópavogi mun á
næstu dögum veröa með eftirht
með umferðarljósum í bænum.
Töluvert hefur verið um rada-
reftirht að undanfómu en áhersla
verður lögð á umferö við götuvita
á næstunni.
Að sögn lögreglunnar hefur þaö
greinilega talsvert færst í vöxt að
ökumenn virði ekki stöövunar-
skyldu við umferðarljós og hafa
slys oröiö af þessum sökum.
-ÓTT