Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991.
11
Utlönd
Þurfa Sovétríkin
bráðum að
flytja inn olíu?
Sovétríkin, sem eru stærsti olíu-
framleiðandi heims, munu innan
tveggja ára neyðast til aö flytja inn
olíu ef eigin olíuframleiðsla heldur
áfram að minnka í sama takti og 1990.
Þetta fullyrðir Pravda, málgagn
sovéska kommúnistaílokksins.
Blaðið greinir frá því að á hinum
mikilvægu olíusvæðum í Tjumen í
vesturhluta Síberíu hafi olíufram-
leiðslan í fyrra minnkaö um 40 millj-
ónir tonna miðað við framleiðsluna
1988 sem var 394 milljónir tonna.
Samkvæmt Prövdu hafa sérfræðing-
ar reiknað út að Tjumensvæðið sjái
Sovétríkjunum fyrir um það bil
helmingi þeirrar olíu sem flutt er út
gegn gjaldeyri.
í síðbúnum fjárlögum, sem lögð voru
fram í síðasta mánuði, er gert ráð fyr-
ir áframhaldandi minnkun á olíu-
framleiðslunni á þessu ári. Ef ástandið
batnar ekki verða Sovétríkin að kaupa
olíu erlendis frá þegar árið 1993 skrifar
Pravda og spyr í leiðinni hvernig verði
þá hægt að borga þau lán sem Sovét-
ríkjunum hafa boðist.
Búnaður við olíuvinnslustöðvar í
vesturhluta Síberíu er orðinn úreltur
og hefur olíuframleiðslan þar
minnkað gífurlega.
Úreltur búnaður
Vegna skorts á vestrænum gjald-
eyri hefur ekki reynst unnt að end-
urnýja úr sér genginn búnað auk
þess sem viðgerðum hefur verið
ábótavant. Samtímis hafa olíuverka-
menn, sem orðnir eru langþreyttir á
versnandi lífsafkomu, skorti á hús-
næöi, skólum og matvælum, hótað
aðgerðum.
Samkvæmt Alþjóðlegu orkumála-
stofnuninni í París var meðalolíu-
framleiðslan í Sovétríkjunum í fyrra
11,4 milljónir tunna á dag og var það
0,7 milljónum tunna minna en 1989.
Síðustu mánuðina í fyrra fór fram-
leiðslan niður í 10,9 milljónir tunna
á dag og hafði þá ekki verið jafnlítil
í tíu ár.
Endurbótum lofað
Síðastliðið haust tókst sovéskum
yfirvöldum með naumindum að
koma í veg fyrir að olíuframleiðslan
í Síberíu legðist alveg niður með því
að lofa endurbótum í olíuvinnslu-
stöðvunum. En í Tjumen sögðu menn
að ef Moskvuvaldiö sæi ekki um að
senda nauðsynlegan búnað fljótlega
yrði ástandið svo alvarlegt að loka
Olíuleit I Síberiu.
þyrfti nokkrum dælum.
Fullyrt er að skipta þurfi strax um
fjórða hluta olíuröranna, að minnsta
kosti þúsund kílómetra, á Nizjne-
vartovsksvæðinu. Rörin þar eru sögð
vera að ryðga sundur.
í síðasta mánuði skipaði Gor-
batsjov Sovétforseti sérfræðingum
að sjá til þess að olíuiðnaðurinn fengi
meira af varahlutum og tæknibún-
aði. Einnig átti að bæta vinnu- og lífs-
skilyrði verkamannanna í olíuiðnað-
inum.
Þörfin er sögð mikil. Samkvæmt
Prövdu hafa íbúar Nizjnevartovsk
og Surgut enn ekki getað notfært sér
kjötskömmtunarseðlana sem þeir
fengu fyrir nóvembermánuð.
Hjutafélög
í ööru málgagni sovéskra yfirvalda
sagöi nýlega að Gorbatsjov styddi til-
lögu um að mynduð yrðu hlutafélög
í olíuiðnaðinum og að staðaryfirvöld
hefðu meiri yfirráð yfir olíuvinnsl-
unni. Væri þetta liður í umbótum
forsetans í átt að markaðsbúskap.
Leonid Filiminov, olíumálaráð-
herra Sovétríkjanna, sagði í sama
blaði að nú væri einnig kominn tími
til fyrir Sovétríkin að hefja orku-
sparnað. Hann hélt því fram að mið-
að við þjóðarframleiöslu notuðu Sov-
étríkin tvisvar sinnum meiri olíu en
Bandaríkin og þrisvar sinnum meiri
en Japan.
TT
Teikning Lurie
Samsæriskenning í Sovétríkjunum:
Vesturlönd reyndu
að ræna völdum
Valentin Pavlov, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, segir í nýútkomnu
blaðaviðtali að „öfl“ á Vesturlöndum
hafi í síðasta mánuði reynt að steypa
Mikhail Gorbatsjov forseta af stóli í
„efnahagslegu valdaráni".
Pavlov segir í viðtali við Trud, blað
verkalýðshreyfingarinnar í Sovét-
ríkjunum, að hann viti um áætlanir
á Vesturlöndum sem gengu út á að
auka peningamagn i landinu svo
mjög í umferð að hagkerfið hefði
hrunið og Gorbatsjov orðið að segja
af sér.
„Það var ekkert frumlegt við þessa
áætlun. Þetta sama hefur verið reynt
í fjölmörgum löndum til að knýja
fram pólitískar breytingar og losna
viö óþægilega stjórnmálamenn," seg-
ir Pavlov.
„Gorbatsjov forseti var einhverjum
óþægur ljár í þúfu,“ bætti Pavlov
við. Hann var fjármálaráðherra Sov-
étríkjanna þar til í síðasta mánuði
að hann var útnefndur forsætisráð-
herra.
„Ég get fullvissað ykkur um aö í
þessu máli munaði ekki dögum held-
ur klukkustundum. Við vorum á
barmi þess að glata efnahagslegu
sjálfstæði. Þetta átti að verða eins-
konar innlimun, yfirlætisláus og án
blóðsúthellinga," segir Pavlov.
„Með því að grafa undan ríkisvald-
inu og svipta okkur sjálfstæði átti að
ræna okkur öllum auðlindum í
mannafla og landsins gæðum. Með
fullri virðingu fyrir vestrænni sið-
menningu þá held ég að það sé óþarfi
að fara í grafgötur um þetta mál,“
segir Pavlov.
Pavlov segist vita með vissu um
undirbúning þess að auka mjög pen-
ingamagn í umferð í Sovétríkjunum.
Hann segir að ein aðferðin hafi verið
að kaupa mikið magn af 100 og 50
rúblna seðlum.
Hann segir ennfremur að í sam-
særinu hafi bankar í Sovétrikjunum
lagst á eitt með nokkrum einkabönk-
um í Austurríki, Sviss og Kanada.
Hann segist vita hvaða bankar þetta
séu en vill ekki nefna þá.
Pavlov var spurður um hvort bank-
arnir hafi komist yfir mikið af rúbl-
um en hann segist ekki mega segja
frá því vegna þess að landið eigi í
efnahagslegu stríði. „Efnahagslegu
stríði hefur verið lýst á hendur okkur
og það stendur enn. Stríð er stríð,“
segir Pavlov.
Hann segir að ríkisstjórninni hafi
tekist að forða efnahagslegu hruni
með því að innkalla alla 50 og 100
rúblna seðla í síðasta mánuði. Það
var ákvörðun sem mæltist illa fyrir
um allt land.
Reuter
:> ;
V fy
r..
TRYGGINGAGJALD
Eindagi
tryggingagjalds
er 15. hvers mánaðar
Tryggingagjaldi af launagreiðslum og
reiknuðu endurgjaldi er unnt að skila til
banka, sparisjóða eða pósthúsa. Einnig má
gera skil hjá innheimtumönnum ríkissjóðs
en þeir eru tollstjórinn í Reykjavík, bæjar-
fógetar og sýslumenn og lögreglustjórinn á
Keflavíkurflugvelli.
S
Bent skal á að bankar, sparisjóðir og pósthús
taka aðeins við gíróseðlum sem eru fyrir-
fram áritaðir af skattyfirvöldum. Ef aðili árit-
ar seðilinn sjálfur eða breytir áritun verður
að gera skil hjá innheimtumanni ríkissjóðs.
Til þess að komast hjá dráttarvöxtum þarf
greiðsla að hafa borist á eindaga. Athygli
skal vakin á því að ekki er nægilegt að póst-
leggja greiðslu á eindaga.
m
R ÍKISS KATTSTJ Ó RI