Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991.
5
dv______________________________________________________________________________Fréttír
Þríburaafamir Blrgir Helgason og Karl Hjaltason samkennarar við Bamaskóla Akureyrar:
Slökkviliðið
Akureyri:
Erum báðir þrælmontnir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
í Barnaskóla Akureyrar starfa
tveir kennarar sem eiga það sameig-
inlegt að vera afar þríbura. Þríbura-
afar eru ekki mjög margir hér á landi
og því skemmtíleg tílviljun að tveir
þeirra skuli starfa saman, og eins
hitt að það er að koma upp á yflrborð-
ið að afarnir eru skyldir.
Þetta eru þeir Birgir Helgason, sem
kennir aðallega tónmenntír, og Karl
Hjaltason sem kennir smíðar og
fóndur. Þeir voru hressir og kátír
þegar þeir litu inn á ritstjórn DV á
Akureyri og það er greinilegt að þeir
eru dálítið upp með sér vegna þríbur-
anna sinna og skyldi engan undra.
Þrælmontnir
„Auðvitað erum við þrælmontnir
með okkur,“ sagði Birgir sem er afi
Hönnu Mariu, Birgittu Elínar og
Fannars Hólm Halldórsbarna. Þau
fæddust 29. júní 1985 á Akureyri og
eru því 5 ára. „Ég átti tvö barnabörn
fyrir og reyndar sögðu læknar að
Jóhanna Kristín, dóttir mín, gengi
með tvíbura þegar þríburarnir voru
á leiðinni. Síðar kom hins vegar í Ijós
að eitt barnanna hafði falist bak við
hin og þau voru sem sagt þrjú. Auð-
vitað var þetta mjög ánægjulegt og
fyrir öllu að börnin voru heilbrigð
og allt gekk mjög vel,“ sagði Birgir.
„Ég vissi áður en börnin fæddust
að þau yrðu þrjú,“ segir Karl, en
hann er enginn nýgræðingur í afa-
hlutverkinu, átti nefnilega 10 barna-
börn fyrir. „Mínir þríburar eru
glasabörn, allt strákar sem eru hinir
hressustu og ég er ákaflega ánægður
með þá. Þeir heita Ottó, Ari og Daði
Rúnarssynir en dóttir mín, sem eign-
aðist þá 5. desember sl. heitir Þóra
og þau búa i Grundarfirði. Ég hef því
ekki séð þá mikið ennþá, en reyndar
hitt þá og fengið að halda á þeim.“
Já, þeir eru hressir, afarnir með
þríburana sína. „Það sagði við mig
kunningi minn að hann hefði orðið
svo montinn að hann hefði ekki ver-
ið viðræðuhæfur ef honum hefði
hlotnast svona happ. Þetta á hins
vegar ekki við um okkur Birgi þótt
við séum e.t.v. nokkuð góðir með
okkur,“ segir Karl.
Þekki þær í sundur
Þar sem dóttursynir Karls eru ekki
nema um tveggja mánaða gamlir
getur hann ekki sagt. okkur neinar
sögur af afrekum þeirra ennþá, og
Birgir sagðist reyndar ekki hafa
neinar slíkar sögur á hraðbergi.
„Þótt stelpurnar séu mjög líkar þá á
ég ekki í vandræðum meö að þekkja
þær í sundur. Þær eru hins vegar
afar ólíkar í sér á ýmsan hátt sem
kemur m.a. fram í því að önnur er
dugleg við að hjálpa mömmu sinni
en hin vill ekkert með slíkt hafa, má
ekkert vera að því.“
Birgir hefur kennt í Barnaskóla
Akureyrar frá árinu 1959 en Karl
fimm árum skemur og er því „ungl-
ingur í starfi" eins og Birgir orðaði
það. Og þótt það sé afar skemmtileg
tilviljun að þeir þríburaafarnir séu
starfsfélagar þá er ekki allt búið þar
með. Þeir eru nefnilega skyldir.
Afarnir skyldir
„Við erum nú ekki með það alveg
á hreinu hvernig þeim skyldleika er
háttað, en við verðum að vinna í því
að koma því á hreint,“ sagði Karl.
„Mamma sagöi mér einhvern tíma
frá skyldleika okkar," bætti Birgir
við og sagði svo íbygginn á svip:
„Ætli einhveijir sem eru skyldir
okkur, Kalli, getí átt von á því að
eignast þríbura, hvað heldur þú um
það?“
Samkennararnir og þriburaafarnir Karl Hjaltason og Birgir Helgason gefa hressir og kátir viðeigandi merki.
DV-mynd gk
f lytur loks í
nýtt húsnæði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Samningaviðræður milli Akur-
eyrarbæjar og eigenda húseignar-
innar að Árstíg 2 eru nú á lokastigi
og stefnir allt í það að Akureyrarbær
kaupi húsið og slökkvilið bæjarins
flytji þangað.
Halldór Jónsson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri, sagði að ekki væri búið að
ganga frá kaupum á húsinu en stefnt
væri að því að ljúka því verki nú í
vikunni. Gólfílötur hússins er um
1800 fermetrar og mun því aðstaða
slökkviliðsins batna verulega, en það
hefur lengi verið í allt of litlu hús-
næði.
Allar líkur eru á að hluti kaup-
verðs hússins verði greiddur með
húsnæði sem bærinn á í verslunar-
miðstöðinni Kaupangi þar sem emb-
ætti húsameistara bæjarins er til
húsa. Að sögn Halldórs standa nú
fyrir dyrum flutningar ýmissa bæj-
arfyrirtækja. „Það er stefnt að sam-
einingu bæjarstofnana og flutningi
þeirra og það losnar t.d. stórt hús-
næði þar sem slökkviliðið er nú til
húsa. En þetta eru mál sem ekki hef-
ur endanlega verið gengið frá enn-
þá,“ sagði Halldór Jónsson.
Húsnæðið að Árstíg 2 á Akureyri, en þangað mun slökkvilið bæjarins flytja
áður en langt um líður. DV-myndgk
Þríburabörn Birgis Þríburastrákar Karls með foreldrum sinum, Rúnari
Russel og Þóru Karlsdóttur. DV-mynd GVA
STJÓRNMÁLAÁSTANDIÐ
<íí!'!Wv' jÍ y—w Jk é j
FRAMBOÐSMÁL
Þingflokkur Borgaraflokksins
boðar til opins fundar
fimmtudaginn 14. febrúar
að Hótel Selfossi kl. 20.30.
Allir velkomnir
BORGARA
FLOKKURINN