Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991.
31
Fréttir
Hornfirðingar
eignast
nýtt f iskiskip
mm
Hið nýja fiskiskip Hornfirðinga er glæsilegt fley.
DV-mynd Ragnar Imsland
- tókniöriíinnsiglingunni
Júla Imsland, DV, Homafirði
Nýtt fiskiskip, Þinganes SF 25, kom
til Hornafjarðar á miðvikudaginn.
Skipið var smíðað í Portúgal og er
162 brúttó tonn 25,95 m langt 7,90 m
breitt, búið 1000 hestafla deutz vél
ásamt góðum búnaði nýjustu fiski-
leitar- og siglingatækja. Siglingin frá
Aveiro í Portúgal tók sjö sólarhringa
og var mjög slæmt veður hluta leið-
arinnar og reyndist Þinganesið hið
besta sjóskip. Þegar komið var inn-
fyrir Hornaíjarðarós tók skipið niðr
og náði straumurinn til að snúa þvi
heilan hring, en allt fór vel og inn á
höfn sigldi Þinganes fánum prýtt þar
sem fjöldi bæjarbúa fagnaði komu
þess. Skipstjóri er Gunnar Ásgeirs-
son. Þinganes er annað af þeim skip-
um sem smíðuð eru í Portúgal fyrir
Hornfirðinga en hið fyrsta, Hauka-
fell, kom sl. sumar og þriðja skipið,
Æskan SF 111, verður væntanlega
tilbúið með vorinu.
Smáauglýsingar
Póstverslunin Svanni Bon’a Parte
Bleikjukvísl 6, 110 Rvk.
Útsala, útsala úr eldri listum.
Þægilegur danskur gæðafatnaður á
mjög góðu verði. Vor- og sumarlistinn
kemur í mars. Opið virka daga frá kl.
10-17. Sími 91-673718.
i________________________________________1
Hitaveitur, vatnsveitur. Þýskir rennslis-
mælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís
s/f, símar 91-671130 og 91-667418.
■ BQar til sölu
Suzuki GSX 60 F, árg. '88, blátt og hvítt,
ekið 7.000 km, ekki skipti. Uppl. í síma
91-671895 eftir kl. 19.
Til sölu DAF 3300, árg. ’82, mikið
endumýjaður. Verð 2.500.000. Uppl. í
símum 985-22660 og 92-15943.
Ford Econoline 350, með öllu, nýskráð-
ur 10. jan., nýtt framdrif, millikassi
og fjaðrir geta fylgt. Verð án fram-
drifs 2.500.000 staðgreitt, verð með
framdrifi 3.000.000 staðgreitt. Uppl. í
síma 91-6V0324 e.kl. 18.
Til sölu Scout Terra, árg. ’80, Nissan
disil, turbo, ekinn 76 þús., 36" dekk,
no spin framan og aftan, 4/56 hlutföll
o.fl. Uppl. hjá bílasölunni Braut, sími
91-681510.
Toyota Landcruiser II, árg. ’86, til sölu,
dísil turbo, ekinn aðeins 65 þús. km,
verð kr. 1100 þús. staðgreitt. Uppl. í
síma 91-44666 á skrifstofutíma eða
91-32565 á kvöldin.
Porsche 928, árg. 79, til sölu, grænn
að lit, skipti á ódýrari koma til greina.
Uppl. í síma 91-671896 eftir kl. 19.
■ Ymislegt
Hárgreiös'lustofan
^f^jpena
Leirubakka 36 S 721053
Gerið verðsamanburð. Dæmi um verð:
• Klipping og þurrkun kr. 1100.
• Permanent frá kr. 2500. •Skol frá
kr. 850. •Litun frá kr. 1380. Opið
laugard. kl. 10-14. Kreditkortaþj.
Merming
Háskólabíó - Kokkurinn, þjófurinn, konan hans og elskhugi hennar ★★★
Matur, kynlíf og dauði
Háskólabíó sýnir þessa dagana umtalaða mynd
breska leikstjórans Peters Greenaway. Þarna er fjallað
um ást, matarást, kynlíf og dauða á sérkennilegan og
áreitinn hátt.
Sagan segir frá skúrknum Albert sem er glæpamað-
ur og illmenni. Albert kúgar fólk og kvelur og níðist
miskunnarlaust á öllum sem í kringum hann eru.
Albert venur komur sínar mjög á veitingastað nokk-
um sem hann telur sig eiga að einhveiju leyti. Albert
telur sig mikinn smekkmann og sælkera þegar matur
og vín eru annars vegar. Sannleikurinn er hins vegar
sá að Albert og hans nótar eru smekklaus rustamenni
og það er að kasta perlum fyrir svin að færa þeim
munngæti.
Þessu er öðruvísi farið með Georgínu, eiginkonu
Alberts. Hún hefur fíngerðan og vandaðan smekk og
þess vegna er sérstakt trúnaðar- og skilningssamband
Kvikmyndir
Páll Ásgeirsson
miUi hennar og Richards, meistarakokksins á staðn-
um. Síðan gerist það að Georgína verður ástfangin af
Michael, bókabéusi nokkrum sem borðar við næsta
borð. Þau stofna til ástarsambands og fara leynifundir
þeirra fram á klósettinu á veitingastaðnum og síðar í
eldhúsinu undir verndarvæng Richards.
Þrátt fyrir mikla leynd kemst Albert hinn illi að öllu
saman. Hann verður bæði sár og reiður og lætur drepa
Michael með því að troða ofan í hann samanvöðluðum
blaðsíðum úr uppáhaldsritverki hans um frönsku bylt-
inguna. Það virðist því ekkert nema grimmUeg refsing
bíða Georgínu. En skamma stund veröur hönd höggi
fegin og rétt að hver sjái fyrir sig hver endalokin veröa.
Þessi kvikmynd er mikið konfekt fyrir augað, vand-
virknislega tekin og kUppt og aUar sviðsetningar afar
faUegar. Við kynnumst afmörkuðum heimi veitinga-
hússins sem er í þremur hlutum. Sá fyrsti er ótrúlegt
eldhúsið þar sem sveittir matreiðslumenn bisa við
potta og pönnur og uppþvottadrengurinn syngur ægi-
fagran sópran við vaskinn, annar er veitingastaðurinn
sjálfur þar sem aUt virðist vera rautt á litinn og enda-
stöðin er salernið þar sem hringrásinni sem hófst í
eldhúsinu lýkur. Þó hið ytra sé fagurt og myndavélin
Þjófurinn og elskhuginn, Michael Gambon og Alan
Howard.
beinlínis gæli við hraukuð borð og girnilega rétti eru
áhorfendur reglulega minntir á aö allt er forgengilegt.
Hinn fegursti matur fúlnar og rotnar og allt hold er
hey. Aðeins þrennt í þessum heimi skiptir máli. Það
er matur, kynlíf og hinn óumflýjanlegi dauði. Undir
öllu þessu grætur síðan dapurleg en falleg tónlist sem
verður stór hluti af heildinni.
Leikarinn Michael Gambon fer með hlutverk Al-
berts og lætur dæluna ganga viðstöðulaust. Gambon
skilar þessu erfiða hlutverki með mikilli prýði og skap-
ar eftirminnilegt Ulmenni. Fylgisveinar hans eru
skemmtileg tilbrigði við hann sjálfan en andstæður
þeirra, fagurkerarnir, góða fólkið, Georgína, kokkur-
inn Richard og elskhuginn Michael eru síður sannfær-
andi.
Stöðugur, magnaður texti Alberts, glæsileg mynda-
taka og óvægin frásögn vinna saman aö því aö skapa
heilsteypt en grimmilegt verk. Það er aldrei litið und-
an og hrottalegar tiltektir Alberts, hömlulaus matar-
og kynlífslyst og síöar hefnd Georgínu kann að
hneyksla einhverja áhorfendur en slíku fólki er ekk-
ert hægt að ráða annað en að vera heima. Hinir, sem
unna góðum kvikmyndum og vUja láta koma sér á
óvart, eru hvattir til þess að missa ekki af þessum
kvikmyndakonfektmola.
Bresk - The Cook, Ihe Thiel, His Wile and Her Lover.
Leikstjóri: Peter Greenaway.
Aðalhlutverk: Michael Gambon og Richard Bohringer
Van Morrison - Enlightment
Alltaf í úrvalsf lokki
Nafn Van Morrison er fyrir löngu orðið að gæðast-
impli í tónlistarheiminum og má heita óbrigðult að
ganga að því sem vísu að plata frá honum er í hæsta
gæðaflokki. Nýja platan hans, Enlightment, er engin
undantekning þar frá; hún er afskaplega Ijúf og þægi-
leg en samt langt því frá að vera einfóld.
Flest lög Morrisons eru nefnilega margbrotin í sjálfu
sér og full af blæbrigðum sem uppgötvast smátt og
smátt við frekari hlustun. Og það má segja að þetta
Hljómplötiir
Sigurður Þór Salvarsson
sé það atriði sem heiUar mann mest viö lög Morrisons
fyrir utan gullfaUegar melódíumar auðvitað.
Og af þeim er nóg að taka á þessari plötu sem og
síöustu plötum þessa írska snillings. Og allt leikur
þetta í höndunum á honiun, því hann semur líka text-
ana eins og venjulega, mnihaldsríka texta sem segja
Van Morrlson, bregst ekki frekjar en fyrrl daginn.
manni eitthvað. Aö auki stjómar Morrison sjálfur
upptökum og syngur með þeirri tilfinningu sem ávann
honum nafngiftina, besti hvíti soulsöngvari heims, á
sínum tíma. Þeir gerast ekki betri.