Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Síða 26
34
MítiviícilbÁótjá 13! FÉfekÚAR 'löbl.
Fólk í fréttum
Hörður Ágústsson
Hörður Ágústsson, listmálari,
fræðimaður og kennari, Grænuhlíð
12, Reykjavík, er ásamt Fríðu Á.
Sigurðardóttur handhafi íslensku
bókmenntaverðlaunanna í ár, en'
Hörður fékk verðlaunin fyrir fræði-
ritið Skálholt II.
Starfsferill
Hörður fæddist í Reykjavík 4.2.
1922. Hann lauk stúdentsprófum frá
MR1941, stundaði nám í verkfræði-
deild HÍ1941-42, í Fagurlistaskólan-
um í Kaupmannahöfn 1945-46, við
Academie de la Grande Chaumiére
í París 1947-50 auk þess sem hann
fór námsferð til Ítalíu 1948 og var
við nám í London 1946.
Hörður hefur verið listmálari og
stundað fræðistörf. Hann hefur
haldið fjölda myndlistarsýninga hér
á landi og erlendis. Hann stundaði
auglýsingateiknun 1956-63, var
kennari við Myndlistaskólann í
Reykjavík 1953-61, við Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1962-68, var
skólastjóri þar 1968-75 og síðan
kennariþartill989.
Hörður var formaður Félags ís-
lenskrar listiðnar 1971-73, sat í
stjórn Húsfriðunarnefndar frá
stofnun 1970, í stjórn Torfusamtak-
anna frá stofnun 1972 og var formað-
ur Hins íslenska fornleifafélags frá
1982.
Hörður hefur staðið að og samið
greinargerð um könnun gamalla
húsa víðs vegar um land, m.a. Húsa-
könnun í Reykjavík, gamli borgar-
hlutinn (ásamt Þorsteini Gunnars-
syni) 1967-70; Húsakönnun á Seyðis-
firði, 1976; Húsakönnun á Sauðár-
króki, 1977; Húsakönnun í Stykkis-
hólmi, 1978, og Húsakönnun á Eski-
firði 1980.
Hann var stofnandi og ritstjóri
tímaritanna Vaki 1952-53 og Birting-
ur 1955-68 og skrifaði í þau greinar
og viðtöl. Hann hefur samið mikinn
fjölda greina, greinaflokka og rit-
geröa um myndlist, listiðn, bygg-
ingalist og íslenska byggingasögu í
dagblöð og íslensk og erlend tíma-
rit. Hann ritaði grein um íslenska
torfbæinn í bókaflokkinn íslensk
þjóðmenning en meðal síðustu rita
hans má nefna Dómsdagur og helgir
menn á Hólum, útg. 1989 og Skál-
holtlog II.
Fjölskylda
Hörður kvæntist 23.6.1952 Sigríði
Magnúsdóttur, f. 23.11.1924,
menntaskólakennara. Foreldrar
hennar voru Magnús Skaftfjeld, bif-
reiðastjóri í Reykjavík, og kona
hans, Steinunn Kristjánsdóttir hús-
móðir.
Börn Harðar og Sigríðar eru
Gunnar Ágúst, f. 15.9.1954, heim-
spekingur og lektor við HÍ, kvæntur
Guðbjörgu Benjamínsdóttur deild-
arstjóra; Steinunn, f. 19.9.1956, líf-
fræðingur í Reykjavík en sambýlis-
maður hennar er Magnús Ólafsson
hagfræðingur; Guðrún, f. 5.3.1966,
nemiíFlórenz.
Systkini Harðar eru Jóhann
Ágústsson, aðstoðarbankastjóri
Landsbanka íslands; Kristín
Ágústsdóttir, húsmóðir í Bandaríkj-
unum, og Erla Ágústsdóttir, starfs-
maður hjá Flugleiðum í Reykjavík.
Foreldrar Harðar voru Ágúst
Markússon, f. 30.7.1891, d. 30.12.
1965, veggfóðrarameistari í Reykja-
vík, og kona hans, Guðrún Guð-
mundsdóttir, f. 4.7.1893, d. 27.9.1947,
húsmóðir.
/Ett og frændgarður
Föðurbróöir Harðar er Karl, afi
Markúsar Arnar Antonssonar út-
varpsstjóra. Ágúst var sonur Mark-
úsar, söðlasmiðs í Reykjavík, bróð-
ur Guðlaugs, afa Andrésar Gests-
sonar nuddara, Óskars Jónssonar
fræðimanns og langafa Víglundar
Þorsteinssonar, formanns Félags ís-
lenskra iðnrekenda. Markús var
sonur Þorsteins, b. í Gröf í Hruna-
mannahreppi, bróður Jóns, langafa
Þorsteins Einarssonar íþróttafull-
trúa. Þorsteinn var sonur Jóns, b. á
Högnastöðum, Jónssonar, ættfóður
Högnastaðaættarinnar. Móðir
Markusar var Guðrún, systir Ingi-
bjargar, langömmu Eðvarðs Sig-
urðssonar alþingismanns. Guðrún
er dóttir Jóns, b. í Galtafelli, Björns-
sonar, b. í Vorsabæ, Högnasonar,
lögréttumanns á Laugarvatni,
Björnssonar, bróður Sigríðar, móð-
ur Finns Jónssonar biskups. Móðir
Jóns var Bryngerður Knútsdóttir,
systir Sigríðar, ömmu Tómasar
Guðmundssonar skálds og Hannes-
ar þjóðskjalavarðar og Þorsteins
hagstofustjóra Þorsteinssona. Móð-
ir Guðrúnar var Guðrún Guð-
mundsdóttir, prests í Hruna, Magn-
ússonar, prests á Þingvöllum, Sæ-
mundssonar, prests í Miklabæ,
Magnússonar, b. í Bræðratungu,
Sigurðssonar. Móðir Sæmundar var
Þórdís Jónsdóttir (Snæfríður ís-
landssól).
Móðir Ágústs var Jóhanna Svein-
björnsdóttir, b. í Ási, Jónssonar, og
konu hans, Kristínar Einarsdóttur,
systir Ingveldar, langömmu Stein-
þórs Gestssonar alþingismanns.
Móðursystir Harðar er Andrea,
amma Kristjáns Oddssonar, fram-
kvæmdastjóra íslandsbanka. Guð-
rún var dóttir Guðmundar, veit-
ingamanns í Reykjavík, bróður
Guðmundar, langafa Jóhanns
Hjartarsonar stórmeistara. Guð-
mundur var sonur Ámunda, b. á
Sandlæk í Gnúpverjahreppi, Guð-
mundssonar og konu hans, Guðríð-
ar Guömundsdóttur, b. í Langholti,
Bjömssonar. Móðir Guðríðar var
Guðrún Ámundadóttir, smiðs og
málara í Syðra-Langholti og vefara
í Innréttingunum í Rvík, Jónssonar.
Móðir Guðrúnar Guðmundsdóttur
var Kristín, systir Magnúsar, próf-
asts og alþingismanns á Gilsbakka,
föður Péturs ráðherra, föður Ás-
geirs Péturssonar bæjarfógeta og
Hörður Ágústsson.
Gunnars Más deildarstjóra, föður
Kjartans Georgs framkvæmdasjóra.
Kristín var dóttir Andrésar, b. og
hreppstjóra í Syðra-Langholti, bróð-
ur Helga í Birtingaholti, afa Jó-
hanns Briem listmálara en Helgi var
einnig langafi Ólafs Skúlasonar
biskups. Andrés var sonur Magnús-
ar, alþingismanns í Syðra-Lang-
holti, Andréssonar, langafa Ás-
mundar Guðmundssonar biskups.
Móðir Magnúsar var Margrét Ólafs-
dóttir, b. á Efra-Seli, Magnússonar
og konu hans, Marínar Guðmunds-
dóttur, b. á Kópsvatni, Þorsteins-
sonar, ættföður Kópsvatnsættar-
innar. Móðir Andrésar í Syðra-
Langholti var Katrín Eiríksdóttir,
b. og dbrm. á Reykjum á Skeiðum,
Vigfússonar, ættföður Reykjaættar-
innar, langafa Sigurgeirs Sigurðs-
sonar biskups, fóður Péturs bisk-
ups. Móðir Katrínar var Ingunn Ei-
ríksdóttir, b. í Bolholti, Jónssonar,
ættföður Bolholtsættarinnar.
Afmæli
Jóhannes Guðmundsson
Jóhannes Guðmundsson, bóndi á
Auðunarstöðum í Víðidal í Vestur-
Húnavatnssýslu, er sjötíu ogfimm
áraídag.
Starfsferill
Jóhannes fæddist á Auðunarstöð-
um og ólst þar upp. Hann fór í
Bændaskólann á Hvanneyri haustið
1934 og lauk þaðan búfræðiprófi
voriö 1936. Þá fór hann vestur í Arn-
ardal við ísafjarðardjúp þar sem
hann var tvö sumur hjá Sveini Sig-
urðssyni, b. og útgerðarmanni, við
ýmis störf en yfir vetrartímann við
verslunarstörf á Hvammstanga. Að
ööru leyti dvaldi hann að mestu
heima á Auðunarstöðum.
Árið 1942 hófu Jóhannes og kona
hans sjálfstæðan búrekstur á Auð-
unarstöðum í samvinnu við foreldra
hans sem hættu búskap 1945. Þá
fengu Jóhannes og systir hans jörö-
ina til eignar og ábúðar og hafa Jp-
hannes og kona hans búiö á hálfri
jörðinni síðan, nú síðustu árin með
innan við hundrað kindur og nokk-
urhross.
Jóhannes var formaöur Ung-
mennafélagsins Víðis 1937-45, for-
maður Ungmennasambands Vest-
ur-Húnvetninga 1938-39, formaður
og gjaldkeri Sjúkrasamlags Þorkels-
hólshrepps 1945-72, var um skeið
formaður bygginganefndar félags-
heimilisins Víðihlíðar, sat í hrepps-
nefnd Þorkelshólshrepps frá 1950-86
og oddviti þar síðustu tólf árin, var
fulltrúi hreppsins á þingum Fjórð-
ungssambands Norðlendinga, for-
maður skólanefndar 1950-58 og í
skólanefnd Laugarbakkaskóla
1972-74. Hann var formaður Búnað-
arfélags Þorkelshólshrepps 1966-78
og sat í stjórn Búnaðarsambands
Vestur-Húnvetninga. Jóhannes hef-
ur starfaði í áratugi í félögum sjálf-
stæðimanna í Vestur-Húnavatns-
sýslu og sat á Alþingi sem varamaö-
url971.
Fjölskylda
Jóhannes kvæntist 14.10.1941
Ingibjörgu Ólafsdóttur, f. 5.8.1917,
húsfreyju. Ingibjörg er dóttir Ólafs
Jónssonar og Margrétar Jóhannes-
dóttur, búenda á Stóru-Ásgeirsá í
Víðidal.
Böm Jóhannesar og Ingibjargar
eru Kristín, f. 9.3.1942, húsfreyja í
Gröf á Vatnsnesi, gift Tryggva Egg-
ertssyni, hreppstjóra þar; Margrét,
f. 27.4.1945, húsmóðir á Hvamms-
tanga, gift Guðmundi E. Gíslasyni,
verkstjóra á Hvammstanga, og eiga
þau þrjú börn, Maríu og Ingibjörgu,
nema í Fjölbrautaskólanum á Akra-
nesi, og Jóhannes, nema á Hvamms-
tanga; Guðmundur, f. 29.1.1953, sjó-
maður í Kópavogi, kvæntur Krist-
ínu Guðmundsdóttur húsmóður og
eiga þau eina dóttur, Ingibjörgu
Auði, en sonur Kristínar er Guð-
mundur Siguijón; Ólöf, f. 27.8.1957,
húsmóðir á Hvammstanga, sambýl-
ismaður hennar er Björn Ó. Þor-
valdsson bifreiðarstjóri og eiga þau
tvo syni, Þorvald og Jóhannes Inga.
Systkini Jóhannesar: Ingibjörg, f.
16.4.1914, húsmóðir í Reykjavík, gift
Óskari Hanssyni rafverktaka og
eiga þau tvo syni; Sophus Auðunn,
f. 6.4.1918, skrifstofustjóri hjá Al-
menna bókafélaginu í Reykjavík,
kvæntur Áslaugu Friðriksdóttur,
fyrrv. skólastjóra, og eiga þau fjögur
börn; Kristín, f. 20.7.1919, d. 29.9.
1944, var gift Sigurði Tryggvasyni,
stöðvarstjóra á Hvammstanga, og
eignuðust þau tvo syni; Erla, f. 28.4.
1921, húsfreyja á Auðunarstöðum,
gift Bimi Lárussyni frá Gríms-
tungu, b. á Auðunarstöðum, og eiga
þau eina dóttur; Gunnar, f. 10.9.
1923, rafverktaki og kaupmaður í
Reykjavík, kvæntur Hallfríði Guð-
mundsdóttur, húsmóður og versl-
unarmanni, og eiga þau þrjú börn;
Hálfdán, f. 24.7.1927, viðskiptafræð-
ingur og skattstjóri á Hellu, búsett-
ur í Mosfellsbæ, kvæntur Önnu
Margréti Jafetsdóttur, kennara við
Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar, og
eiga þau sex böm. Sonur Sophusar
er Friðrik alþingismaður en sonar-
dóttir Gunnars er Björk Guðmunds-
dóttirsöngkona.
Foreldrar Jóhannesar voru Guð-
mundur Jóhannesson, f. 25.6.1884,
d. 26.4.1966, b. á Auðunarstöðum,
og kona hans, Kristín Gunnarsdótt-
ir, f. 22.8.1890, d. 11.8.1969.
Ætt og frændgarður
Guðmundur var sonur Jóhannes-
ar, b. á Auðunarstööum, Guð-
mundssonar. Móðir Jóhannesar var
Dýmnn Þórarinsdóttir, frá Reykj-
um í Hrútafirði, systir Þuríðar,
langömmu Halldórs E. Sigurðsson-
ar, fv. ráðherra. Dýrunn var einnig
systir Guðrúnar, móður Þórarins í
Efri-Hólum, föður Haraldar, prests
í Mjóafirði. Þá var Dýrunn systir
Helgu, ömmu dr. Finns Guðmunds-
sonar fuglafræðings.
Móðir Guðmundar var Ingibjörg
Eysteinsdóttir frá Orrastöðum,
systir Björns, b. í Grímstungu, afa
Þorbjörns Sigurgeirssonar prófess-
ors, Bjöms Þorsteinssonar prófess-
ors, Bjöms Pálssonar, fv. alþingis-
manns á Löngumýri, Halldórs bún-
aðarmálstjóra, Hannesar á Undir-
felli, sem var afi dr. Hannesar Hólm-
steins, og Þórönnu veðurfræðings,
auk þess sem Björn í Grímstungu
var afi Huldu, móöur Páls, þing-
flokksformanns á Höllustöðum, og
Más, sýslumanns í Hafnarfirði.
Kristín var dóttir Gunnars, hrepp-
stjóra í Valdarási í Víðidal, Kristó-
ferssonar, en hálfbróðir Kristófers
var Jóhannes, afi Bjöms Líndal, lög-
manns á Svalbarði, afa Sigurðar
Líndal lagaprófessors, og Páls Línd-
al ráðuneytisstjóra. Jóhannes var
Jóhannes Guömundsson.
einnig afi Margrétar á Stóru-
Ásgeirsá í Víðidal, ömmu Grétars,
skólastjóra Garðyrkjuskólans á
Reykjum.
Móðir Kristínar í Valdarási var
Kristín, systir Pálínu, ömmu Bern-
harðs, blaðafulltrúa Þjóðkirkjunn-
ar, Kristjáns, fyrrv. bæjarstjóra, og
Gísla, föður Guðmundar, brúar-
smiðs á Hvammstanga. Kristín var
dóttir Guðmundar, b. á Neðri-Fitj-
um, Guðmundssonar. Móðir Guð-
mundar á Neðri-Fitjum var Unnur
Jónsdóttir.
Móðir Kristínar Guðmundsdóttur
var Kristín, systir Ragnheiðar,
ömmu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.
Kristín var dóttir Bjarna, b. á Bjargi
í Miðfirði, Bjarnasonar, prests á
Mælifelli, Jónssonar, föður Guðrún-
ar, langömmu Ólafs á Akri, föður
Ólafs landlæknis.
Jóhannes verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Tilhamingjumeðafmælið 13. febrúar
85 ára________________
Herdís Sigtryggsdóttir'F
Litlahvammi 3, Húsavík.
80 ára
Bjami Kristjánsson,
BleiksárhlUð 56, Eskifirði.
Regina Sigurgeirsdóttir,
Ketilsbraut 8, Húsavík.
Aðalheiður Tryggvadóttir,
Hlíf, Torfnesi, Isafirði.
Guðrún Jónasdóttir,
Garðarsbraut 31, Húsavík.
75ára_________________
Guðrún Ingibjörg Ólafsdóttir,
Ljósheimum 12, Reykjavík.
70ára
Guðjón Einarsson,
Blönduhlíð 24, Reykjavík.
50 ára
Stefanía Ólöf Antoníusdóttir,
Berunesi I, Beruneshreppi.
Ólafur Einir Gunnarsson,
Rjúpufelli35, Reykjavík.
Eiríkur Eiríksson,
Glaðheimum 20, Reykjavík.
Fanney Þórðardóttir,
Syðra-Brekkukoti, Amames-
hreppi.
Eiríkur Erlendsson,
Heiðarhvarami 8A, Keflavík.
Þorbergur Halldórsson,
Illéskógum 20, Reykjavík.
KonráðÓlafsson,
Ilamrahlíð 14, Vopnafirði.
GunnarL.S. Pétursson,
Skriðustekk 5, Reykjavík.
Kristín Vilhjálmsdóttir,
Túngötu 45, Eyrarbakka.
Þórður Jónsson,
Hringbraut 128E, Keflavík.
Helga Guðjónsdóttir, '
Mýrum 4, Patreksfirði.
40ára
Ingjaidur Eiðsson,
Logafold 178, Reykjavík.
Inga Lára Bragadóttir,
Kveldúlfsgötu 10, Borgarnesi.
Páll Geir Ingvarsson,
Steinholtsvegi 8, Eskifirði.
Einar Hannesson,
Reynigrund 9, Akranesi.
Ingibjörg Ásmundsdóttir,
Seljabraut 80, Reykjavík.