Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 13. 'FEBRÚAR 1991.
39
Merming
A-ha - East of the Sun West of the Moon
Fyrir ofan garðog neðan
Norska tríóið A-ha hefur átt frekar erfltt uppdráttar
eftir fyrstu tvær plötur sínar sem slógu eftirminnilega
í gegn á sínum tíma. Þá ferðaðist hljómsveitin um gjör-
valla heimsbyggðina, fyllti hvern sahnn á fætur öðrum
og átti lög á öðrum hverjum vinsældalista um allan
heim.
Síðan rann æöið af og lítið spurst til drengjanna eftir
það. Þeir eru þó enn að en virðast einhvern veginn hafa
tapað áttum. Fyrst og fremst hefur þeim auðvitað ekki
Hljómplötur
Sigurður Þór Salvarsson
lukkast að semja jafnvinsæl lög og áður en í ofanálag
er eins og þeir séu að leita sér að nýjum stíl og hafa
ekki fundið hann ennþá almennilega.
Sá stíll virðist mér vera mun mýkri og rólegri en áö-
ur, eða réttara sagt; rólegi stíllinn sem var aukabúgrein
hjá A-ha til að byrja með er nú að taka yfirhöndina.
Og vissulega semur Pál Waaktaar prýðisgóð lög en þau
eru alltof meinlaus að minu mati mörg hver. Og fyrir
vikið grípur hljómsveitin til þess ráðs á þessari plötu
að dubba gamalt Everly Brothers lag, Crying in the
Rain, í þeirri von væntanlega að það muni selja plötuna.
SUkt kann ekki góðri lukku að stýra því ef A-ha geta
ekki selt plötur sínar útá eigin tónsmíðar geta þeir það
varla útá gamlar lummur með nýjum sykri. Kannski
er þetta bara tímaspursmál því hæfileikarnir eru fyrir
hendi í hljómsveitinni, á því leikur enginn vafi.
A-Ha, í leit að nýjum stil.
Mitsuko Uchida
Meðal þeirra píanóleikara sem hafa getið sér
gott orð fyrir upptökur á tónlist Mozarts er
Mitsuko Uchida. Meöal annars hefur hún leikið
allar píanósónöturnar inn á hljómdiska fyrir
Philips og einn þeirra barst í hendur tónlistar-
gagnrýnanda DV nýlega.
A diski þessum er að finna Sónötu í D dúr,
KV 284, sem stundum er kennd við Durftitz bar-
ón og áhugapíanóleikara sem pantaði verkið hjá
tónskáldinu á sínum tíma, auk Sónötu í B dúr,
KV 570 og Rondós í D dúr, KV 485. Sónatan í D
dúr var samin 1775 og var í hópi fimm annarra
píanósónatna sem Mozart samdi um það leyti.
Þetta er glæsilegt verk og býður túlkandanum
upp á gnægð viðfangsefna, bæði tækilegra og
listrænna, til þess að takast á við. í handriti að
fyrsta þætti er að finna eitt af fáum dæmum
þess að Mozart hafi þurft að skipta um skoðun
um ágæti þess sem hann var að gera. Þar strik-
ar hann yfir sjötíu fyrstu taktana og byrjar að
nýju og með betri árangri. Síðasti þáttur sónö-
tunnar er í tilbrigðaformi, sem oft á það til að
verða einhæft form, en ekki hjá Mozart. Hvert
tilbrigði fær skýra sjálfstæða gerð sem er hver
annarri fallegri.
B dúr sónatan er frá dánarári Mozarts 1791.
Hún var samin til flutnings fyrir áhugamenn
ffijómplötur
Finnur Torfi Stefánsson
og mjög einfóld að gerð, án styrkleikamerkja
og að töluverðu leyti aðeins tvíradda. Hér er þáð
fegurð einfaldleikans sem ræður ríkjum. Það
kemur hins vegar ekki í veg fyrir áhrifamátt
verksins né dregur úr andagift þess. Þessi tón-
list ber í sér harm heimsins undir björtu yfir-
borði og snertir hlustandann því dýpra sem hún
lítur sakleysislegar út. Síðasta verkið á diskin-
um er Rondo í D dúr glaðlegt og alkunnugt við-
fangsefni nemenda á píanó.
Ungfrú Uchida hefur fengið mikið lof fyrir
túlkun sína á Mozart og er skiljanlegt hvers
vegna. Flutningur hennar á þessum verkum er
sérlega vandaður og vel undirbúinn. Nákvæmi
hennar og snerpa er frábær og stundum svo að
jaðrar við vélrænu sem þó er í raun ósann-
gjarnt að segja því að ekki skortir blæbrigðin í
tóni og styrk. Túlkunin er smekkvís og allt í
tónhstinni nýtur sín til fulls. Það eina sem unnt
var að frnna að, þótt grannt væri hlustað, varð-
ar frekar upptökuna en hljóðfæraleikinn. Fyrsti
hljómur diskins í D dúr sónötunni hljómar lok-
aður og með öðrum lit en það sem á eftir kem-
ur. Þá heyrist örlítiö í hamarsverki píanósins í
hæga kaflanum í B dúr sónötunni, eins og tré-
smiður slái hamri sínum úti í hafsauga og væri
þaö í sjálfu sér í lagi ef það væri ekki í takt við
tónlistina. Upptakan að öðruleyti er mjög góö.
Svo viröist sem tónninn sé hafður örlítið fyllri
í B dúr sónötunni en þeirri í D dúr og er sá htar-
munur vel við hæfi. Vonandi að ekki sé um tíl-
viljun að ræða.
Fjölmiðlar
Sjónvarp um gervihnött
Samkvæmt fréttum hefur heldur
betur aukist sala á gervihnattadisk-
um sem nauðsynlegir eru til að
hægt sé aö ná þeim sjóvarpsstöðv-
um sem í boði eru á þennan máta,
en þær geta veriö allt að tuttugu og
tvær segir í auglýsingu frá einum
aðila sem selur gervihnattadiska.
Þetta er að vísu rétt en í auglýsing-
unni er ekki sagt að til að ná öhum
þessum stöðvum þarf að vera hægt
að stilla diskinn á mismunandi
gervihnetti.
Algengast í dag er aö notendur
stihti diskinn á Astra hnöttinn. Þar
er að flnna aliar Sky stöðvarnar,
MTV, sem er vinsæl tónlistarstöð,
tvær íþróttarásir og þýskar og hol-
lenskar stöðvar. Sú sjónvarpsstöð
sem mest hefur verið fjallað um að
undanfórnu, CNN, er ekki hægt að
ná þar. Til að ná CNN og öðrum
gervihnattastöðvum þarf að geta
fært diskinn og er hægt að fá hent-
ugan útbúnað th þess.
Það er enginn vafi áþví að útsend-
ingar Stöövar 2 frá CNN og Sjón-
varpsins frá SKY fréttaþjónustunni
hafa átt sinn þátt í aukinni sölu
gervihnattadiska. Það er þvi sýnt
að það er eins og að berja hausnum
við steininn að reyna að hafa áhrif
á þessar útsendingar, að þær verði
textaðar eða þýddar á einhvern hátt.
Það er sérstaklega Morgunblaöiö
sem er að reyna að segja þjóðinni
hversu óhoht það sé að horfa á
ótextaöar útsendingar gervihnatta-
stöðva og stundum verða útlistanir
þeirra þar á bæ bæði neyðarlegar
og hlægilegar eins og þegar fjöl-
miðlarýnir blaðsins hafði eins og
sjálfsagt margir aðrir stillt á SKY á
laugardagsmorgun og hitt þar á
ágætan dagskrárlið sem ekki fellur
undir fréttir. Honum fannst í byrj un
ekkert athugavert en fór samt aö
ókyrrast. í lok þáttarins rann það
upp fyrir honum að þátturinn var
ótextaður og óþýddur. Kominn tími
th finnst sjálfsagt mörgum.
Það er sama hvað barist er á móti
gervihnattaútsendingum og hvort
þær eru okkur óhollar eða ekki,
gervihnattasjónvarp er komiö th að
vera. Þegar hafa á þriðja tug þús-
unda íslendinga aðgang að sjón-
varpsútsendingum þessum og þeim
áeftiraöflölga.
-HK
, Veður
Vaxandi suðaustanátt og rigning vestanlands, viða
allhvasst er kemur fram á morguninn. Norðaustan-
lands þykknar upp með hægt vaxandi suðaustanátt,
kaldi eða stinningskaldi og dálítil rigning þegar liður
á daginn en þá verður kominn sunnan- og suðaust-
ankaldi með skúrum eða súld suðvestanlands. Hlýn-
andi veður, fyrst suðvestanlands, hiti viðast 4-8 stig
i dag.
Akureyri alskýjað 1
Egilsstaðir léttskýjað -3
Hjarðarnes alskýjað 1
Galtarviti rigning 2
Kefla víkurflug völlur rigning 6
Kirkjubæjarklaustur rigning 2
Raufarhöfn alskýjað 0
Reykjavik rign/súld 5
Vestmannaeyjar rign/súld 6
Bergen léttskýjað -10
Helsinki snjókoma -11
Kaupmannahöfn snjókoma -4
Osló . léttskýjaö -8
Stokkhólmur snjókoma -6
Amsterdam þoka -9
Barcelona léttskýjað 1
Berlín snjókoma -4
Chicagó skýjað -1
Feneyjar þokumóða 0
Frankfurt snjókoma -4
Glasgow léttskýjað -7
Hamborg þokumóða -10
London mistur -1
LosAngeles léttskýjað 14
Lúxemborg þokumóða -5
Madrid heiðskírt -5
Malaga súld 11
Mallorca léttskýjaö 2
Montreal snjókoma -9
New York alskýjað -2
Nuuk snjókoma -5
Orlando alskýjað 13
Gengið
Gengisskráning nr. 30. -i 3. febrúar 1991 kl. 9.15
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 53,750 53,910 54,690
Pund 106,815 107,133 107,354
Kan. dollar 46,587 46,726 47,027
Dönsk kr. 9,5785 9.6071 9,5553
Norsk kr. 9,4100 9,4380 9,4034
Sænsk kr. 9,8093 9,8385 9,8416
Fi. mark 15,1366 15,1816 15,1896
Fra.franki 10,8171 10,8493 10,8260
Belg. franki 1,7902 1,7955 1,7858
Sviss. franki 42,9845 43,1125 43,4134
Holl. gyllini 32,7096 32,8069 32,6361
Þýskt mark 36.8567 36,9664 36,8023
Ít. líra 0,04900 0,04914 0,04896
Aust. sch. 5,2380 5,2536 5,2287
Port. escudo 0,4171 0,4183 0,4153
Spá. peseti 0,5871 0,5888 0,5855
Jap. yen 0,41722 0,41846 0,41355
irskt pund 98,048 98,340 98,073
SDR 78,0359 78,2682 78,4823
ECU 75.7364 75,9619 75,7921
Fiskmarkaðinúr
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
12. febrúar seldust alls 66,704 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meöal Lægsta Hæsta
Smáþorskur 1,485 90,00 90,00 90,00
Steinbítur 0,450 76,00 76,00 75,00
Kinnfisk. 0,049 135,00 135,00 135,00
Smáýsa, ósl. 0,076 78,00 78,00 78,00
Langa, ósl. 0,023 69,00 69,00 69,00
Lýsa, ósl. 0,165 84,00 84,00 84,00
Vsa 3,399 109,13 101,00 112,00
Ufsi 1,472 52,00 52,00 52,00
Þorskur 41,670 104,13 103,00 106,00
Langa 0,152 69,00 69,00 69,00
Karfi 0.798 53,00 52,00 70,00
Hrogn 0.612 245,00 245,00 245,00
Ýsa, ósl. 5,603 89,66 86,00 97,00
Smáþorskur, ósl 0,970 76,00 76,00 76,00
Þorskur, ósl. 6,888 97,25 81,00 105,00
Steinbítur, ósl. 2,822 75,77 74,00 83,00
Keila, ósl. 0,157 38,00 38,00 38,00
Faxamarkaður
12. febrúar seldust alls 76,144 tonn.
Blandað 0,282 49,01 20,00 81,00
Gellur 0,037 275,00 275,00 275,00
Hrogn 1,898 152,46 70,00 295,00
Karfi 0,309 55,00 55,00 55,00
Keila 0.711 53.31 53,00 55,00
Langa 4,601 80,00 80,00 80,00
Lifur 0,082 9,35 9,00 10,00
Lúða 0,184 375,76 300,00 480,00
Lýsa 0,128 83,00 83,00 83,00
Rauðmagi 0,032 70,00 70,00 70,00
Steinbítur 1,217 69,08 64,00 77.00
Þorskur, sl. 18,290 105,45 101,00 108,00
Þorskur, smár 2.866 100,00 100,00 100,00
Þorskur, ósl. 20,731 101,28 72,00 110,00
Ufsi 11,652 53,85 25,00 55,00
Undirmál 1,516 89,71 83,00 92,00
Ýsa.sl. 7,862 107,90 65,00 114,00
Ýsa, ósl. 3.749 95,95 79,00 114,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
12. febrúar seldust alls 124,780 tonn.
Undirmál 0,100 83,00 83,00 83,00
Lýsa 0,154 56,58 44,00 61,00
Tindaskata 0,084 6,00 6,00 6,00
Rauðmagi 0,050 129,00 129,00 129,00
Geirnyt 0,160 25,00 25,00 25,00
Blálanga 0,066 77,00 77,00 77,00
Hlýri+steinb. 1,068 64,36 55,00 65,00
Ufsi 1,761 46,05 40,00 47,00
Skarkoli 0,057 72,75 71,00 73,00
Langa 2,111 75,74 64,00 80,00
Skata 0,165 89,90 82,00 92,00
6,114 48,22 43,00 55,00
Lúða 0,180 476,65 405,00 535,00
Hrogn 0,194 243,20 210,00 245,00
Karfi 1,436 55,98 47,00 58,00
Ýsa.ósl. 28,131 88,24 77,00 99,00
Þorskur, ósl. 78,106 107,29 73,00 126,00
Steinbítur 3,872 60,28 54,00 64,00
Blandað 0,976 47,22 40,00 50,00
MARGFELDI .145
PÖNTUNARSÍMI ■ 653900