Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1991, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1991, Side 2
Fréttir Starfsmannafélag ríkisstofnana: Atök í f ulltrúakjöri til þings BSRB í vor - þegarhafaþrírnafhalistarveriölagöirfram í fyrra kom til snarpra átaka í Starfsmannafélagi ríkisstofnana viö stjórnarkjör í félaginu. Nú virö- ast þessi átök ætla aö halda áfram viö kjör fulltrúa félagsins á þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæja sem haldið veröur í maí. Lagðir hafa verið fram þrír nafna- Ustar í félaginu við fulltrúakjörið. Listi uppstillinganefndar félags- ins var samþykktur á trúnaðar- mannafundi 20. febrúar síðastlið- inn. Á fundinum kom fram uppá- stunga um nokkur nöfn til viðbótar en þær tillögur voru felldar. Þessu vildi hópur fólks, sem kall- ar sig Hópur lýðræðissinnaðra fé- lagsmanna í SFR, ekki una. Hann hefur nú lagt fram nafnalista með 22 nöfnum en alls á að kjósa 49 fulltrúa á þing BSRB. Jafnframt hefur hópurinn sent félagsmönn- um SFR bréf þar sem þessi ákvörð- un er skýrð. í gær kom svo þriðji listinn en á honum eru 8 nöfn. í bréfi sem sá hópur hefur sent frá sér segir að þetta sé gert til að styrkja sitjandi stjórn félagsins. Hjörleifur Ólafsson rekstrarstjóri er einn þeirra sem er á lista Hóps lýðræðissinnaöra félagsmanna SFR. Hann sagði í samtali við DV að uppstillinganefnd félagsins hefði strikað út öll nöfn þess fólks sem ekki væri í öllu sammála sitj- andi stjórn. Það væru ekki margir sem heföu áhuga fyrir félagsmála- störfum en margir sannir áhuga- menn hefðu verið útilokaðir á trún- aðarmannafundinum. Hjörleifur tók fram að þessi hópur væri ekki sérstakur stuðningsmannahópur Einars Ólafssonar, eins og sumir héldu fram. Hjörleifur sagðist vera ósammála mörgu því sem stjóm félagsins væri að gera. Nefndi hann þar til þá hugmynd sem nú væri uppi um að hækka félagsgjöld í fé- laginu. Hann teldi slíkt vera út í hött á þjóðarsáttartíma. Ekki síst þar sem félagið hefði tekjuafgang. Sigríöur Kristjánsdóttir, formað- ur SFR, sagðist ekki kannast við þá óánægju með störf stjórnarinn- ar sem nú allt í einu væri sögö vera til staðar. Enginn hefði kvartað um það. Þá sagði hún ekkert ákveöið með að hækka félagsgjöldin þótt hugmyndin hefði verið nefnd. Ami Már Bjarnason, sem lagði fram lista með 8 nöfnum í gær, sagðist gera það til að styrkja nú- verandi stjóm. Hann sagði að þessi hópur, sem lagt hefði fram lista með 22 nöfnum, væri stuðnings- hópur Einars Ólafssonar sem féll viö formannskjör fyrir Sigríði Kristjánsdóttur í fyrra. Árni sagð- ist telja hsta uppstillinganefndar félagsins hafa verið sanngjaman hvað þessa tvo arma í félaginu snerti. -S.dór Viöræöur EB og EFTA: Undirritun frestast fram á haust - síðustu forvöð, segir Jón Baldvin Hannibalsson Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra kynnti stöðuna í viðræðum EFTA og Evrópubandalagsins í gær. DV-mynd Brynjar Gauti Eftir að óformlegum vinnufundi ráðherra EFTA lauk í síðustu viku hggur fyrir að þau mál sem eftir á að leysa varðandi viðræður EB og EFTA um evrópska efnahagssvæðið, EES, eru einkum tvö. Annars vegar er tekist á um hvernig staðið skuli að ákvarðanatökum og stjómun svæðisins og hins vegar um aðgang ríkja Evrópubandalagsins að fisk- veiðilögsogu íslendinga og Norö- manna en þeirri kröfu hafa fulltrúar EFTA-ríkjanna alfarið hafnað. Fram til þessa hafa fulltrúar Evr- ópubandalagsins staðið fast á því að þær reglur sem settar em af því sjálfu skuli gilda á efnahagssvæðinu og hafa verið ófáanlegir til að veita EFTA-ríkjunum nokkurn meö- ákvörðunarrétt. Þessu hafa fulltrúar EFTA-ríkjanna hafnað og segja óeðli- legt að þau verði aö lúta reglum sem þau taki ekki þátt í að móta. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráöherra segir að eftir síðasta vinnufund ráðherranna í desember síðastliðnum hafi staða viöræðnanna verið sú að EFTA-ríkin voru tilbúin aö faha frá kröfum um varanlegar undanþágur frá reglum EB, með nokkrum fyrirvömm þó, gegn því aö EB kæmi með ásættanlegar tillögur um stjómun hins fyrirhugaða Evr- ópska efnahagssvæðis og féhu frá kröfunni um aðgang aö fiskveiðiauð- hndum Noregs og íslands. Markmið- ið meö þessu hafi verið að leysa smærri ágreiningsatriði á gmndvelli hehdarlausna. „Eftir þessum nótum hefur síðan verið unnið. Samkvæmt tímaplaninu var gert ráð fyrir að í apríl ætti að vera komin póhtísk lausn þannig að samninganefndarmenn gætu sett stafina sína undir samningstextann. Samkvæmt því heföu utanríkisráð- herrar landanna getað undirritað samkomulagið í lok júlí með fyrir- vara um samþykki þjóðþinganna. Nú er það hins vegar ljóst að þetta tímaplan stenst ekki. Menn gera sér vonir um að textinn geti legið fyrir þegar sumarleyfi EB hefst. Undirrit- un ráðherra og samþykki þjóðþinga getur hins vegar fyrst orðið í haust,“ segir Jón Baldvin. Jón Baldvin segir að vegna þessar- ar tafar megi ekkert bera út af ef takast á að koma sameiginlegu Evr- ópsku efnahagssvæði á fót fyrir árs- lok 1992 en þá verður innri markaði Evrópubandalagsins komið á. „Máhð verður því ekki dregið lengur," segir Jón Baldvin. -kaa/ns MiWir loönuflekkir út af Patreksfj arðarflóa: Ný loðnuganga vestan úr haf i? Reynir Traustason, DV, Flateyri: Mikhr loðnuflekkir em á miðunum út af Patreksfjarðarflóa, að sögn línu- skipstjóra sem DV ræddi við í gær. Það var mat sumra þeirra að þessi loöna væri ekki hluti göngunnar sem nú er á Breiðafirði heldur kæmi hún utan af hafi. Láms Grímsson, skipstjóri á loðnuskipinu Júpíter, sem var ný- kominn á miðin, var búinn að taka tvö 400 tonna köst á fjórum tímum. Sagði Lárus í sambandi viö DV aö sér virtist vera mikil loðna í umferð á þessum slóðum. „Það era flestir loðnuskipstjórar sammála um að þaö hefur orðið ægilegt slys hvað varðar mat fiskifræðinganna á stærð loðnu- stofnsins. Fiskifræðingarnir vora grimmir og settu þjóðfélagið nánast á annan endann án þess að hafa rök fyrir staðhæfingu sinni. Nú eru þeir komnir í pattstöðu meö allt mghð. Veðurfræðingar spá en fiskifræðing- ar staðhæfa, þar liggur meinsemd- in.“ Láms er ósáttur við þá mælingu sem fiskifræðingarnir gerðu út af Hornafirði og var lögð til grundvallar loðnukvótanum. „Þeir fengu út úr þeirri mæhngu að um væri að ræða 450 til 500 þúsund tonn. Á sama tíma á sama stað árið áður gerðu þeir sam- bærilega mælingu og fengu út 750 þúsund tonn. Þaö var mat margra skipstjóra að um miklu meira magn hefði verið að ræða í vetur en árið á undan. Loðnuskipstjórar em meö allt að 27 ára reynslu af þessum veið- um en fiskifræöingarnir skreppa á sjó tvisvar á ári í þrjár til fjórar vik- ur í senn. Við viljum vinna með fiski- fræðingum en þá verður aö taka til- ht til þess sem við höfum fram að færa,“ segir Lárus Grímsson. MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 1991. 70 þúsund dollarar óvænt inn á reikninginn Valgarður Briem, lögmaður First National Bank of Boston hér á landi, hefur stefnt íslenskum manni fyrir bæjarþingi Reykja- víkur fyrir hönd bankans. Mað- urinn er samkvæmt upplýsing- um frá þjóðskrá sagður með lög- heimih í Suður-Afríku og er hon- um gert að endurgreiða bankan- um 70 þúsund dohara er voru lagðir inn á reikning hans í Afr- íku vegna mistaka. Maðurinn hefur endurgreitt 4.500 dollara af uppliæðinni, „Upphafið má rekja til þess að Landsbankinn sendi i nóvember 1988 telexskeyti til First National Bank of Boston í Boston með beiðni um að send yrðu skilaboð til útibús bankans í Chatarine Ave. í Jóhannesarborg í Suður- Afríku," segir Valgarður Briem lögmaður. „Starfsmenn Bostonbankans misskildu boðin og létu skuld- færa 70 þúsund dollara af reikn- ingi Landsbankans hjá bankan- um í Boston. Upphæðin var síðan greidd inn á reikning hjá banka i New York. Sá banki lét greiða 70 þúsund dollarana inn á reiking hjá fyrirtæki í Jóhannesarborg. íslendingurinn átti reikning hjá fyrirtækinu og lét það leggja upp- hæðina inn á reikning hans. Þegar mistökin uppgötvuðust í Landsbankanum fór hannfram á leiðréttingu og fékk féð endur- greitt hjá First National Bank of Boston. Hann ber því ekki fjár- hagstjón af þessum mistökum. Maðurinn er væntanlega stadd- ur hérlendis núna. Hann hefur haft samband við mig og hefur ekki mótmælt þvi að þessir pen- ingar hafi verið lagðir inn á reikning hans í Suður-Afríku.“ í stefnunni á hendur íslend- ingnum segir að hann hafi ekki mótmælt endurgreiðsluskyldu sinni en hins vegar borið við bág- bomum fjárhag sínum og lítilli greiðslugetu. -J.Mar Fyrirsjáanlegt öngþveiti áAlþingi Enn einu sinni eru alþingis- menn komnir í bullandi tíma- hrak. Ákveðiö hefur verið að þingstörfum ljúki fóstudaginn 15. mars, enda þá ekki nema 5 vikur til kosninga. Forsetar þingdeilda, þau Guðrún Helgadóttir, Árni Gunnarsson og Jón Helgason, vom sammála um, þegar DV ræddi við þau í gær, að miklar annir yrðu á Alþingi í næstu viku, jafnvel meiri en oftast áður. Vegna landsfundar Sjálfstæðis- flokksins verður ekkert þinghald eftir hádegi á morgun, fimmtu- dag, og engir þingfundir á fóstu- dag og laugardag. Þá eru ekki eftir nema fimm virkir dagar af fyrirhuguðum þingtíma. Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, sagði að hægt væri aö halda þingfundi laugar- daginn 16. mars en eftir það yrði þinghaldi ekki haldiö áfram. Al- þingismenn vildu komast heim í kjördæmin þar sem svo stutt væri til kosninga sem fram fara 20. apríl. Viö þetta allt bætist svo að inn- an ríkisstjórnarinnar er ekkert samkomulag um afgreiðslu þeirra mála sem ráðherrar höfðu sett á óskalista sína. í upphafi vom yfxr 80 mál á þeim lista. Síð- an fækkaði þeim um helming. Þingmenn, sem DV ræddi viö í gær, töldu að þessi listi myndi enn styttast. Samt verður mjög erfitt að afgreiða þennan mála- fjölda, jafnvel þótt kvöld- og næt- urfundir veröi einhveijir. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.