Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1991, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 1991.
Spumingin
Hvað ætlarðu að gera í
sumarfríinu?
Sonja Jónasdóttir húsmóðir: Hafa
það gott og njóta veðurblíðunnar á
Islandi.
Ragnheiður Anna Georgsdóttir,
starfsmaður Morgunblaðsins:
Draumurinn er að fara aftur til
Korfu á Grikklandi og leigja sumar-
hús.
Sigrún Sigurjónsdóttir afgreiðslu-
mær: Ég veit það ekki, það kemur í
Ijós.
Sigurður Rúnarsson nemi: Vinna.
Hrólfur Sæmundsson skjalavörður:
Fara í tónleikaferðalag til Evrópu.
Lúlu, vinnur í Blómavali: Fara til ít-
alíu.
Lesendur dv
Febrúarsamningarnir:
Hvað næst?
„Aðeins tæpt misseri eftir af gildistíma þjóðarsáttarsamninga. - Hvað tekur
þá við?“
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Það var í febrúar í fyrra sem full-
trúar atvinnurekenda, verkalýðsins
og bænda undirrituðu þjóðarsáttar-
samningana. Nú er tæpt misseri eftir
af gildistíma þeirra. Af þeim sökum
hljóta menn að hafa spurt sig hvað
þá taki við. Veröa t.d. átök á vinnu-
markaðinum með tilheyrandi verk-
fóllum, „fólskum" launahækkunum
er jafnharðan brenna upp? - Eða
hyggjast menn halda áfram á þeirri
braut er þegar hefur verið mörkuð?
Við þessum spurningum eru til ein-
fóld svör að mínu mati. - Launþeginn
ræður sjálfur hver framvinda mála
verður. Kjósi hann t.d. að dusta ryk-
ið af gömlu baráttuaðferðinni og
halda sig síðan í fúafeninu verður
það svo. En verði vilji fólksins hins
vegar að þrauka enn um sinn og
reyna í sameiningu að styrkja og
bæta núverandi smíö verður það
einnig svo. Ég fyrir mitt leyti vel
seinni kostinn. Ekki fyrir það að
hann sé óaðíinnanlegur, öðru nær,
heldur vegna þess að betri leið til að
veija kaupmátt launanna hefur ekki
enn fundist.
Hygg ég einnig að þorri almennings
hafi svipaðar ráðstöfunartekjur úr
að moða nú og hann hafði fyrir rúmu
ári, m.a. sökum lágrar verðbólgu, lít-
illa verðhækkana og ýmissa annarra
atriða. Og er það sigur út af fyrir sig.
Líka er ég þeirrar skoðunar, að 18
Jón Gísli Jónsson og Jón Jónsson
skrifa:
Snemma á þessu ári var haldið
meiraprófsnámskeið á Hólmavík.
Nemendur voru 22 og var almenn
óánægja meðal þeirra með marga
þætti námskeiðsins. Og fyrir hönd
nemenda á námskeiðinu sendum við
þessar línur.
Almennt voru kennslugögnin mjög
misjöfn, en þó alveg ótrúlega léleg
um vél og undirvagn, t.d. illa ljósrit-
uö blöð, með skýringarmyndum sem
annaðhvort voru sem ijót klessa eöa
þær voru máðar þannig vélarhlutir
sáust illa eða ekki. - Glærurnar, sem
kennarinn fékk, voru ekki skárri.
Viö fengum þarna einnig bókina
„Bíllinn minn“ sem myndi sjálfsagt
fremur henta barnaskólastigi. í
henni stendur m.a. að við ættum að
Steinólfur Lárusson, Ytri-Fagradal,
skrifar:
Ég ætla að víkja eilítið aö trygging-
um, einkum foktryggingum. Þegar
ég var að byggja mína kofa yfir fólk
og fénað fékk ég mjög ströng fyrir-
mæli um að negla niður járnplötur í
mánuðir séu of skammur tími til að
sanna ellegar afsanna jafnviðamikið
ætlunarverk og hér um ræðir. - Sök-
um þess ber að gefa framtakinu ann-
að tækifæri áður en það er dæmt úr
leik.
Að sönnu bauð þjóðarsáttin ekki
upp á miklar kauphækkanir. Samt
er það svo að kerfið, sem verkalýðs-
félögin notuðu í áratugi, og gagnaðist
leggja peninga inn á banka til að eiga
fyrir ófyrirsjáanlegum viögerðum -
að smursían sé eins og niðursuðudós
áfóst hreyflinum - til að finna loft-
hreinsarann þurfi að fylgja breiöu
slöngunni frá blöndungnum - hvern-
ig og hvaö þyrfti til að þvo bíl að
utan! - og að heppilegt sé að eiga
felgulykil ef springi á bílnum o.fl.
o.fl. - Verra var þó að þurfa að spyija
hvort svara ætti spurningunum rétt
- eða samkvæmt kennslugögnunum!
Það var kennaranum að þakka að
nemendur vissu meira en áður, m.a.
vegna þess að hann tók upp úr bók-
inni „Bíllinn" eftir Guðna Karlsson,
og útskýrði það sem þurfti. - En
kennslu var einnig ábótavant.
Skyndihjálp og umferðarlög voru vel
útskýrð, svo og flest um vél og vagn,
en kennslugögnin vantaði. Kennari
beinni röð, og alls ekki mætti ég
hnykkja naglana.
Rök fyrir þessum reglum voru þau,
að brunaliðsmönnum væri ómögu-
legt að rífa upp þakplötur til að kom-
ast að eldi undir járninu ef öðruvísi
væri neglt. - Þessar reglur voru
þeim ágætlega í fyrstu, var orðið
úrelt hró. Ekki síst fyrir þær sakir
að það net er óneitanalega verö-
bólguhvetjandi eins og dæmin hafa
sannað best. Ég staðhæfi því fullum
fetum að verðbólgan er versti óvinur
hins lægst launaða, og að við getum
ekki og megum ekki hleypa púkan-
um aftur af stað.
hefði þurft aö fara yfir allar þær
reglugerðir um búnað bíla sem okk-
ur var ætlað aö fara yfir, fremur en
láta slag standa um það sem hann tók
fyrir. - Umferðarlög og reglugeröir
hefði t.d. átt að sameina.
Þá er það kennslubíllinn. Hvers
vegna þurfti að fá vörubíl úr Reykja-
vík? Hér eru til vörubílar. Eigendur
þeirra hefðu áreiðanlega viljað
kenna eða leigja þá bílana og kannski
fyrir lægra gjald en það sem greitt
var fyrir þessa bifreið. - Framkvæmd
prófanna var hins vegar til fyrir-
myndar. Þegar litið er til baka finnst
manni að þar hafi menn staðið fyrir
sem ekki hafa vit á því sem þeir eiga
að sjá um. - Sendum samt þakkir
fyrir það sem vel var gert.
reykvisk og helvísk verkfræði! Ég
þverbraut því allar þessar reglur,
sikk-sakk negldi þakjámið, og
hnykkti hvern nagla. Sjálfsagt fengi
ég engar bætur ef brynni hjá mér.
En ég spyr: Hvort er algengara, elds-
voði eða stórballarsteytingur?
Það hefði sparað ófáar milljónir
gegnum árin ef þakjám hefði verið
neglt niður eins og ég er búinn að
lýsa. Þök geta að vísu fokið af í heilu
lagi. En Skaftfellingar kunna að
súrra niöur þök og sperrur á veggi,
enda ekki mark takandi á öðrum
verkfræðingum en skaftfellskum -
eöa þaðan ættuðum. Þaö hefur aldrei
heyrst t.d. aö Skaftfellingar þyrftu
ráðunaut til að segja til um hvernig
eigi að þjónusta konur! - Reykvíking-
ar hafa shkan ráðunaut, sléttviðaðan
að sjálfsögðu. Verkfræði í Reykjavík
er ekki komin á hærra plan!
Þegar mikið liggur við um hönnun
mannvirkja skal því ráða til þess
Skaftfellinga. Einnig þarf að hafa upp
á erindrekanum frá tryggingunum,
sem kom hingað fyrir nokkrum
árum, setja ætti hann yfirmann allra
trygginga í landinu. - Vonandi hefur
hann ekki horfið eins og meiripart-
urinn af eigum samvinnuhreyfingar-
innar.
ATVRIokuðkl.6
Pétur Sigurðsson skrifar:
Ég var staddur í Kringlunni
síðla dags sl. föstudag. Er ég kom
að verslun ÁTVR flaug mér i hug
að kaupa svo sem eina eða tvær
kippur af bjór. Ég beygði inn í
anddyrið og ætlaði að ganga inn.
- Én þá brá mér í brún - búið aö
harðloka versluninni! Og klukk-
an var ekki nema 18:15. Allar
aðrar verslanir þarna voru opn-
ar, og það til kl. 19.
Ég varð fyrir vonbrigðum með
þetta þjónustuleysi. Hússtjórn
Kringlunnar ætti að krefjast þess
að útibú ÁTVR hafi sama af-
greiðslutíma í húsakynnum
hennar og aðrar verslanir. Af-
greiðsluhættir ÁTVR eru nógu
slæmir samt þótt þeir svo i
þokkabót geti ekki fylgt hinni al-
mennu reglu sem gildir á fiölfarn-
asta verslunarstað í höfuöborg-
inni.
Þarfstríðtil að
fábeinarút-
sendingar?
Hiknar Guðjónsson skrifar:
Nú horíði maður á fréttastöðina
Sky News í siöasta sinn í gær-
kvöldi (sl. sunnudagskvöld), ef
Ríkisútvarpið heldur því til
streitu að loka endanlega á þessa
fróðlegu fréttastöð. Ég veit ekki
hvað Ríkisútvarpið hefur sér til
halds í því efni. Einhvers staðar
minnir mig þó að hafa lesiö um
að úr því aö stríðinu við Persa-
flóann væri lokið þyrftu lands-
menn ekki lengur að horfa á Sky
News, að áhti RÚV.
Ég spyr þá: Þarf stríð til að fá
aftur beinar útsendingar frá Sky
News gegnum Ríkisútvarpið? -
Ég er sannarlega ekki einn um
þá skoðun að þáttur Ríkisút-
varpsins varðandi lokun Sky
News sé einn ömurlegasti mál-
staður þess hingað til.
Losnar þá ekki
stóllinn?
Margrét Haraldsdóttir hringdi:
Ég sé í DV í dag (4. febr.) haft
eftir forseta borgarstjómar,
Magnúsi L. Sveinssyni, að menn
hafi ekki leitt hugann að eftir-
manni Davíðs Oddssonar - forseti
borgarstjómar htur svo á að
hann sé ekki að hverfa úr borgar-
stjórastóli. Hann bætir því svo
viö að þetta hafi ekki ekkert verið
á dagskrá hjá þeim eins og er.
Annað hvort er forseti borgar-
stjómar svona heimskur (sem ég
held nú að hann sé varla) eða þá
að hann er eindæma gloppóttur
ef ekki ósannsöguh er hann stað-
hæfir að menn hafi ekki leitt hug-
ann að eftirmanni Davíðs í borg-
arsljórastólnum. - Auðvitað
gegnir Davíð ekki embætti borg-
arstjóra, forsætisráðherra - og
formanns ef hann hlýtur kjör for-
manns flokks síns.
Sandurágang-
stéttumóþarfi
Daníel hringdi:
Ég er einn þeirra sem alltaf
reyna að þrífa gangstéttina fyrir
framan hús sitt, og hef gert árum
saman, jafnvel þótt nágrannamir
séu þeir endemis slóöar að sjá
ekki sóma sinn í því að hreinsa
fyrir framan hjá sér. Það er nátt-
úrlega ekki hægt aö ætlast til að
borgin þrifi daglega götur og
gangstéttir, en í vetur hefur hún
gert minna að því en áður.
Taka verður tihit til mismun-
andi veðurfars og í svona tíðar-
fari, sem er þó ekki einsdæmi,
verður borgin að vera fyrr á ferð-
inni og senda hreinsunarbíla og
götusópara (nú gert með vél) til
að hreinsa götur og gangstéttir.
Sanddreifing á gangstéttir er
raunar óþarfi og er alltaf til ama,
því hálka hér stendur yfirleitt
stutt yfir.
Meiraprófsnámskeið á Hólmavík
Þakplötur og tryggingar