Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1991, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 1991.
25
LífsstOI
Hækkun iðgjalda á lögboðnum ökutækjatryggingum:
Umfram verðbólgu
Nikkelofnæmi
Tryggingafélögin hafa fengiö heim-
ild hjá Tryggingaeftirliti ríkisins fyr-
ir iðgjaldahækkun á lögboönum öku-
tækjatryggingum sem fara nokkuð
umfram verðlagsbreytingar í
landinu. Hins vegar lækkuðu kaskó-
tryggingar um 12%. Hækkunin hefur
valdið mikilh óánægju meðal margra
og Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefur sent frá sér harðorðar yfirlýs-
ingar þar sem lýst er yfir furðu á
þessum hækkunum.
Alltmælirgegn
hækkunum iðgjalda
í fréttatilkynningu FÍB kemur
fram að hækkanir tryggingafélag-
anna séu á lögboðnum tryggingum
sem gerir það að verkum að engir
tryggingatakar komist hjá því að
greiða þær. Hækkanirnar væru auk
þess langt umfram verðlagsbreyting-
ar á síðasta ári. Stjórn FÍB furðar sig
á þessum tiækkunum tryggingafé-
laganna og bendir á eftirfarandi at-
riði sem ættu að mæla gegn hækkun-
um.
Fyrir það fyrsta eru tíndar til slysa-
tölur frá Umferðarráði fyrir árin 1989
og 1990. Á árinu 1989 var fjöldi slas-
aðra 314 manns. Miklu færri slösuð-
ust á árinu 1990, aðeins 209. Árin
1983-1989 var meðalfjöldi slasaðra á
ári 345 manns svo að augljóst er að
slysum fer fækkandi í umferðinni og
því engin ástæða til hækkana.
Því til viðbótar kemur fram í frétta-
riti FÍB að ökutækjum fækkaði á sið-
asta ári um 2.913. Ökutæki í árs-
byijun 1988 voru 154.620 en í árs-
Iðqjöld framrúðutrygginga hjá tryggingafélögunum hækkuðu nýlega og hefur sú hækkun valdið óánægju margra.
DV-mynd GVA
byrjun 1991 voru þau orðin 151.702.
Þessi fækkun ætti að mæla með því
að tryggingariðgjöld lækkuðu.
Tryggingafélögin hafa sameinast á
síðustu árum og var markmiðið það
að skapa hagræðingu í rekstri þeirra.
Þessi hagræðing skilar sér greinilega
ekki í lægri iðgjöldum.
Rökstuðningur
tryggingafélaganna
Hreinn Bergsveinsson, deildar-
- algengasta ofnæmið hjá konum
Nikkel er algengasti ofnæmisvald-
urinn hjá konum. Lætur nærri að ein
af hverjum tíu konum þjáist af of-
næmi fyrir málminum nikkel. Sam-
kvæmt því eru yfir 12 þúsund konur
á íslandi sem þjást af þessari tegund
ofnæmis. Mun sjaldgæfara er að
karlmenn þjáist af nikkelofnæmi og
má eingöngu rekja það til þeirrar
ástæðu að karlmenn bera síður
skartgripi. Um einn af hveijum 100
körlum fær ofnæmiseinkenni af nik-
keli.
Finnst í mörgum
málmblöndum
Nikkel er segulmagnaður málmur
sem finnst sjaldan óbundinn í náttúr-
unni. Hann hefur verið notaður mik-
ið í ýmiss konar málmblöndur. Þar
má telja ryðfrítt stál, mynt og mjög
algengt er að nikkel sé notað sem
hlífðarhúð á aðra málma. Nikkel er
mjög algeng málmblanda í skartgrip-
um.
Þeir sem hafa nikkelofnæmi ættu
að forðast eftirfarandi málmblöndur
í skartgripum: Hvítagull, sem sam-
anstendur yfirleitt af þremur fjórðu
hlutum gulls og afgangurinn er oft
nikkel. Þó hefur það færst í vöxt að
notað sé efnið palladium í stað nikk-
els vegna ofnæmiseinkennanna af
síðarnefnda efninu.
Mjög algengt er að silfur sé blandað
nikkeli. Það er þó ekki algilt, því efn-
ið rhodium hefur oft verið notað í
stað nikkels, en það er dýrara og því
ekki eins mikið notað. Gullhúðað
silfur er einnig varasamt því það
inniheldur jafnan nikkel. Ryðfrítt
stál er nær alltaf með nikkelblöndu
og sömu sögu má segja um nýsilfur.
Hins vegar inniheldur rauðagull
yfirleitt ekki nikkel. Silfur, sem'
framleitt var fyrir löngu, inniheldur
yfirleitt ekki nikkel. Málmurinn
títan var fyrir tveimur árum tísku-
málmur í skartgripum en hann er
alveg laus við nikkel. Hins vegar sést
sá málmur æ sjaldnar í skartgripum
nú vegna þess hve erfiður hann er í
mótun. Nikkelofnæmi er ekki ein-
ungis frá skartgripum, heldur fá
menn þaö oft frá málmblöndum í
rennilásum, fatahnöppum eða hvers
kyns málmi sem fylgir fatnaöi.
Flestar konur finna fyrir nikkelof-
næmi eftir að þær hafa látið gera göt
á eyrun fyrir eyrnalokka. Flestir þeir
málmar, sem eru í eyrnalokkum,
innihalda nikkel. Fjöldi kvenna, sem
þjáist af ofnæmi fyrir nikkel, hefur
náð bata með því einfaldlega að
hætta að bera eyrnalokka eða aðra
þá skartgripi eða fót sem innihalda
málminn.
Nikkelofnæmið getur lagst æði
misjafnt á fólk. Einkennin eru allt frá
smáertingu upp í mjög slæm húðút-
brot. Vegna þess hve víðtækt vanda-
málið er, hafa verið gerðar fjöldi ráð-
stafana víða erlendis til að hjálpa
fólki með vandamálið. Hannað hefur
verið alþjóðlegt merki fyrir vörur
sem er átthyrningur með stafnum
„N“ í. Táknið merkir að efnið inni-
haldi ekki nikkel.
Auk þess hafa verið hannaðar sér-
stakar tegundir af byssum til að gera
göt í eyrun. Þær notast við rauða-
gull eöa plast sem hvorugt veldur
nikkelofnæmi. Þessar byssur hafa
þó ekki sést á markaði hérlendis eft-
ir því sem næst verður komist. Al-
þjóðlega varnaöarmerkið „N“ hefur
heldur ekki sést í skartgripabúðum.
Hins vegar hafa margir gullsmiðir
hér á landi verið á verði gegn málm-
inum. Það færist æ í vöxt að notaðar
séu málmblöndur sem innihalda
ekki nikkel og væri óskandi að flest-
ir skartgripir og málmar, sem kom-
ast í snertingu við húð, verði nikk-
elfríir í nánustu framtíð. í S
stjóri bifreiðadeildar VÍS, varð fyrir
svörum vegna þessa máls. „Slysatal-
an, sem tínd er til í fréttabréfi FÍB,
er aðeins tala slysa sem skráð eru
samkvæmt lögregluskýrslum á ár-
inu. Tjón í ökumanns- og eigenda-
tryggingu á árinu 1990 eru 1.176 en
voru 1.036 á árinu 1989. Meðaltjón
slysa á árinu 1990 var 889.218 krónur
Neytendur
en miklu minna árið áður eða 636.725
krónur. Þessar tölur eru unnar út
úr „statistik" sem fyrirtækið Talna-
könnun vinnur fyrir tryggingafélög-
in en fyrirtækið Talnakönnun er
hlutlaus aðili.
Tjón ábyrgðartrygginga, sem snúa
að slysaþætti, voru 836 á síðasta ári
en 688 á árinu 1989. Meðaltjón fyrir
árið 1990 var 835.909 krónur en
637.691 króna 1989. Á þessum tölum
eru hækkanirnar byggöar.
Tryggingafélögin fengu einnig
hækkun á framrúðutryggingum og
þær hækkanir eru studdar á grund-
velh eftirfarandi talna. T)ón á fram-
rúðum á árinu 1990 voru 10.221 á
móti 10.383 á árinu 1989. Meðaltjón á
framrúðum árið 1990 var 20.393 krón-
ur á móti 18.896 krónum á árinu á
undan. Því er augljóst að trygginga-
félögin þurftu að greiða meiri skaða
vegna framrúðutrygginga á árinu
1990 heldur en 1989. Sumir halda að
brot eða skemmdir á framrúðum séu
mun sjaldgæfari nú en hér áöur fyrr.
Það er ekki reyndin, eins og þessar
tölur sýna,“ sagði Hreinn að lokum.
ÍS
Mjög algengt er að eyrnalokkar,
sem innihalda málminn nikkel, valdi
ofnæmiseinkennum.
MUNKATILBOÐ!
Þú kaupir
eina steik
og færð
aðra fría
IDéturö
lilaastuf
Laugavegi 73 - pantanasími 23433