Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1991, Blaðsíða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 1991.
Limran
Svo kvaö snjótittlingur á fannfögru kvöldi á Kópareykjum í febrúar 1991:
„Hér á Kópa er lokiö veisludegi dýrum.
Fyrir þybbin korn vér þökkum rómi hýrum.
En vér gistum eigi hér,
því oss gisting boöin er
á því heföarsetri Hótel Borg á Mýrum. “
Jónas Árnason.
Afmæli
Kj artan Vilbergsson
Kjartan Vilbergsson, fyrrv. útgerö-
armaöur og skipstjóri, Vinaminni
(Fjarðarbraut 29), Stöðvarfiröi, er
sjötugurídag.
Starfsferill
Kjartan fæddist á Hvalnesi í
Stöövarfiröi og ólst þar upp. Hann
byijaði ungur til sjós og reri þá á
opnum bát með Þorgrími, bróður
sínum. Kjartan var einn af frum-
kvöðlum þilskipaútgerðar á Stöðv-
arfiröi en hann stofnaði, ásamt fé-
lögum sínum, Varðarútgerðina er
gerði út fjóra báta á árunum 1954-74
auk þess sem fyrirtækið átti hlut í
skuttogaranum Hvalbak SU-300.
Kjartan hætti til sjós 1968 og hóf
þá störf í landi við fy rirtæki sitt.
Árið 1975 gerðist Varðarútgerðin
einn af þremur aðalhluthöfum í
Hraðfrystihúsi Stöðvaríjarðar hf. og
lagði jafnframt niður sjálfstæða út-
gerðarstarfsemi. Kjartan sat í stjórn
Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar
1975-89. Hann vann sem trésmiður
hjá Hraöfrystihúsinu þar til hann
lét af störfum vegna heilsubrests
árið 1987.
Fjölskylda
Kjartan kvæntist 11.1.1943 Þóru
Jónsdóttur, f. 13.4.1921, húsmóður
en hún er dóttir Jóns Jóhannsson-
ar, b. í Hvalnesi, og Kristínar Stein-
unnar Sigtryggsdóttur húsfreyju.
Kjartan og Þóra ólu upp þrjú fóst-
urböm. Þau eru Kristrún Guðna-
dóttir, f. 24.6.1942, fiskverkakona á
Stöövarfirði, gift Olafi Guttorms-
syni og eru börn þeirra Kjartan,
Stefán, Óli Rúnar og Sigurður Fann-
ar; Bergþór Hávarðsson, f. 5.9.1946,
vélstjóri, búsettur á St. Martin í
Karíbahafinu en börn hans eru
Rögnvaldur, Ragnheiður Bergdís,
Páll Björgvin og Kjartan Hávarður;
Þóra Björk, f. 20.10.1959, banka-
starfsmaður á Stöðvarfirði en sam-
býlismaður hennar er Björgvin Val-
ur Guðmundssonar og er dóttir
þeirra Erna Valborg.
Systkini Kjartans: Sigurborg, f.
27.4.1906, nú á Dvalarheimilinu
Hrafnistu, gift Þorvaldi Sveinssyni
múrara og eiga þau sex börn; Þor-
grímur, f. 29.9.1907, d. 15.10.1979,
útvegsb. á Stöðvarfiröi; Magnús, f.
11.8.1909, dó ellefu vikna; Halldóra,
f. 26.3.1911, d. 12.9.1989, húsmóðir
á Stöðvarfirði og átti hún eitt bam;
Marta, f. 27.10.1913, húsmóðir á
Stöðvarfirði, var gift Stefáni Þórðar-
syni smið sem er látinn en þau ólu
upp eitt barn; Aðalheiður, f. 3.6.
1915, d. 2.5.1982, húsmóðir á Reyðar-
firði gift Hjalta Gunnarssyni útgerð-
armanni sem einnig er látinn og
áttu þau fimm börn; Þórarinn, f.
11.7.1919, húsasmiður á Siglufirði,
kvæntur Fanneyju Sigurðardóttur
húsmóöur; Ari Páll, f. 6.5.1925, d.
10.8.1988, vélstjóri á Stöðvarfirði,
var kvæntur Árnýju Elsu Þorsteins-
dóttur en þau slitu samvistum og
áttu eitt barn en sambýliskona hans
var Helga Magnúsdóttir; Anna
Kristin, f. 8.4.1928, húsmóðir á
Stöðvarfirði, var gift Stefáni Stef-
ánssyni sjómanni sem er látinn og
eignuöust þau þrjú börn.
Foreldrar Kjartans voru Vilberg-
ur Magnússon, f. 31.7.1882, d. 26.12.
1956, b. í Hvalnesi í Stöðvarfirði, og
Kjartan Vilbergsson.
kona hans, Ragnheiður Þorgríms-
dóttir, f. 19.2.1884, d. 26.9.1968, hús-
móðir.
Ætt
Vilbergur var sonur Magnúsar í
Fossárdal Jónssonar, b. á Lamb-
leiksstöðum, Magnússonar. Móðir
Jóns var Ragnheiður Jónsdóttir
„átján-barna-móðir“. Móðir Magn-
úsar í Fossárdal var Gróa Runólfs-
dóttir frá Brattagerði í Nesjum.
Móðir Vilbergs var Snjólaug, dótt-
ir Magnúsar Jónssonar frá Keldu-
skógum, b. í Fossárdal, og Ingibjarg-
ar Erlendsdóttur.
Ragnheiður var dóttir Þorgríms,
b. í Gautavík, Þorlákssonar, í Vetur-
húsum í Hamarsfirði, Ásmundsson-
ar. Móðir Þorgríms var Þórunn
Steingrímsdóttir.
Móðir Ragnheiðar var Halldóra
Sigurðardóttir frá Jórvíkurstekk í
Breiödal.
Andlát
Ásthildur Rósalinda Magnúsdóttir,
Bakkastíg 17, Eskifirði, lést að
morgni 5. mars.
Jarðarfarir
Ólafur G. Þórðarson andaðist í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á ísafirði 28. fe-
brúar sl. Útfórin fer fram frá ísa-
fjarðarkapellu fóstudaginn 8. mars
kl. 14.
Útfor Jónasar Bragasonar, Sunnu-
hlíð, Vatnsdal, veröur gerð frá Und-
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
UMFERÐAR
RÁÐ
Stjörnublikk
Smiðjuvegi 1, 200 Kópavogur s. 641144
Smíðum sílsalista á allar gerðir bifreiða,
einnig öll almenn blikksmíðavinna. Gerum
föst verðtilboð ef óskað er.
Gerið verðsamanburð
irfellskirkju föstudaginn 8. mars kl.
14.
Elinborg Þórarinsdóttir, Nönnugötu
3, verður jarðsungin frá Hallgríms-
kirkju fóstudaginn 8. mars kl. 10.30.
Jón S. Jakobsson, Grenimel 47, er
lést 21. febrúar sl., hefur verið kvadd-
ur og lagður til hinstu hvíldar í kyrr-
þey.
Guðmundur Jóhannes Arnason,
Snorrabraut 52, Reykjavík, veröur
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fóstudaginn 8. mars kl. 15.
Tilkyimingar
Ég er meistarinn
Út er komin hjá Máli og menningu leik-
ritið „Ég er meistarinn" eftir Hrafnhildi
Hagalín Guðmundsdóttur. Verkið var
frumsýnt í Borgarleikhúsinu haustið
1990. Þar er lýst tveimur ungum nemum
í klassískum gítarleik og fóður þeirra,
meistaranum: I samleik þriggja persóna
er tekist á viö andstæður snilldar og
meðalmennsku, hugsjóna og sjálfsblekk-
ingar, og spurt um þær fórnir sem listin
krefst eigi hún að ná hæstu hæöum. Ég
er meistarinn er fyrsta bók Hrafnhildar
Hagalín Guðmundsdóttur (f. 1965). Hún
stundaði tónlistamám um langt skeið en
nemur nú leikhúsfræði í París. Bókin er
85 bls. og er bæði gefin út í kilju og inn-
bundin. Kápu hannaði Ingibjörg Eyþórs-
dóttir. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.
Gervitunglamyndir af íslandi
Landmælingar íslands hafa gefið út tvær
gervitunglamyndir með skýringum, i
mælikvarða 1:100.000. Um er að ræða
tvær mismunandi útgáfur af sama svæði,
sem afmarkast af Esju og Þingvallavatni
í norðri og suðurströnd landsins í suðri.
Myndin var tekin úr bandaríska gervi-
tunglinu Landsat 5, þann 7. september
1986. Tölvuvinnslan fór fram í Þýska-
landi, filmuvinna og gerð skýringa hjá
Landmælingum íslands og Prentsmiðjan
Oddi sá um litgreiningu og prentun.
Myndimar, sem em af stærðinni 44x52,
fást í kortaverslun Landmælinga íslands,
Laugavegi 178, Reykjavík, og er verð
hvorrar myndar kr. 493. Tilgangur útgáf-
unnar er að kynna tækni og gögn sem
hægt er að nota til þess að fylgjast með
ástandi landsins.
Stúdentaleikhúsið endurvakið
Á haustdögum vakti hópur háskólanema
Stúdentaleikhúsið af funm ára löngum
þymirósarsvefni. Leikhúsið hafði á sín-
um tíma unnið sér verðugan sess í menn-
ingarlífi borgarinnar og þótti mörgum
missir að litskrúðugu starfi þess. Enn
bryddar Stúdentaleikhúsið upp á nýjung-
um þar sem fyrirhuguð er sýning á þrem-
ur ólíkum leikþáttum eftir nýgræðinga í
leikritagerð. Höfundarnir, Bergljót Am-
alds, Sindri Freysson og Melkorka Tekla
Ólafsdóttir hafa þó getiö sér orð á öðmm
vettvangi skáldskapar og hstsköpunar.
Leikstjóri verkanna er Ásgeir Sigur-
valdason. Leikmynd og búningar em
unnin í samvinnu við nema úr Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands. Frumsýn-
ing er áætluð í byijun apríl og munu
sýningar verða í Tjarnarbæ.
Námstefna um heilabilun
Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga
F.A.A.S. og Öldrunarráð íslands gangast
fyrir heilsdags námstefnu um heilabilun
föstudaginn 8. mars 1991 í Borgartúni 6,
í Reykjavík. Námstefnunni hefur verið
vahð heitið: Heilabilun, hvað er til ráða?
Námstefna þessi er tvískipt, fræðilegur
hluti fyrir hádegi kl. 9-12 og hagnýtur
hluti eftir hádegi kl. 13-16. Námstefnan
er öhum opin. Þátttökugjald fyrir allan
daginn er kr. 3.500, kaffi og hádegismatur
innifahð. Þátttökugjald fyrir síðari hlut-
ann e. hádegi er kr. 1.500 - kaffi innifalið.
Orðaþing
íslensk málnefnd og menntamálaráðu-
neytið hafa ákveöið að halda málþing,
hinn 9. mars nk. með orðanefndum og
öðmm sem áhuga hafa á íðorðastarf-
semi. Markmið málþingsins er að koma
á framfæri upplýsingum um það sem
menntamálaráðuneytið og íslensk mál-
nefnd hafa gert og hyggjast gera til þess
að efla íðorðastarfsemi í landinu. Einnig
gefst fólki kostur á að skiptast á skoðun-
um og skýra frá reynslu sinni af íðorða-
starfi. Óskaö er eftir því að fólk tilkynni
þátttöku til íslenskrar málstöðvar, í síma
91-28530, fyrir kl. 12 8. mars.
Skákkeppni framhaldsskóla
1991
hefst að Faxafeni 12 föstudag 8. mars kl.
19.30. Keppninni verður fram haldiö
fóstudag, 9. mars og lýkur sunnudag 10.
mars. Fyrirkomulag er með svipuðu sniði
og áður, hver sveit skal skipuð fjómm
nemendum á framhaldsskólastigi (f. 1969
og síðar). Fjöldi sveita frá hverjum skóla
er ekki takmarkaður. Sendi skóh fleiri
en eina sveit, skal sterkasta sveitin nefnd
a-sveit, næsta b-sveit o.s.frv. Ekkert þátt-
tökugjald. Þátttöku í mótið má tilkynna
í síma Taflfélags Reykjavíkur á kvöldin
kl. 20-22, í síðasta lagi fimmtudag 7. mars.
Tæknival og Hyundai gefa
Háskólanum 14 tölvur
í fyrra seldi Tæknival hf. um 2000 Hy-
undai tölvur af öhum gerðum og hlaut
fyrirtækiö sérstaka viðurkenningu frá
Hyundai fyrir mesta söluaukningu mhli
ára og besta markaöshlutdeild í einu
landi. Af þessu tilefni ákváðu Tæknival
og Hyundai að færa Háskóla islands 14
tölvur að verðmæti um 4 milljónir króna
að gjöf. Er það von gefenda að gjöfin
muni efla samstarf atvinnuveganna og
Háskólans og stuðla enn frekar að sjálf-
stæðri rannsóknarstarfsemi innan skól-
ans.
Ferðafélag íslands
Vetrarfagnaður - árshátíð
9.-10. mars að Flúðum
Viðburður í félagsstarfi vetrarins sem
enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Brottfór laugard. kl. 9, en einnig hægt að
koma á eigin vegum. Gönguferðir á laug-
ardeginum. Vetrarfagnaður (árshátíð
Ferðafélagsins) í Félagsheimilinu á Flúð-
um á laugardagskvöldið. Fordrykkur,
glæsileg máltíð, góð skemmtiatriði í um-
sjá skemmtinefndar F.Í., Dansað langt
fram á nótt. Frábær gistiaðstaða á her-
bergjum. Heitir pottar á staðnum. Hag-
stætt verð. Pantið og sækið miða tíman-
lega á skrifstofunni, Öldugötu 3. Símar:
19533 og 11798. Telefax: 11765. Miðareinn-
ig seldir á aðalfundinum i Sóknarsalnum,
Skipholti 50a, fimmtudagskvöldiö 7.
mars.
Ný hársnyrtistofa á
Grettisgötu
Ný hársnyrtistofa hefur verið opnuð að
Grettisgötu 9, Reykjavik, þar sem áður
var Hárgreiðslustofan Desirée. Þessi nýja
stofa ber nafnið tége-hársnyrting og er
alhhða hársnyrtistofa fyrir bæði kynin.
Eigandi stofunnar er Torfi Geirmunds-
son, en hann hefur verið í nokkur ár í
forsvari fyrir hársnyrtifólk og er núna
formaður Sambands hárgreiðslu og hár-
skerameistara. Fyrir utan að hafa stund-
að hársnyrtingu í tvo áratugi, þá hefur
Torfi einnig stundað nám í hársjúk-
dómafræðum hjá The institute of Tric-
hologists í Englandi og starfsnám viö
Hair and Scalp hospital í London. Torfi
hefur sl. tvö ár unnið að mörgum hár-
greiðslusýningum fyrir hársnyrtivöru-
framleiðendur í Bandaríkjunum og unn-
ið að markaðssetningu fyrir þá á Norður-
löndunum. Starfsmaður stofunnar ásamt-
Torfa er Steinunn Bára Þorgilsdóttir.
Kiwanisklúbburinn Setberg
styrkir aldraðra
Markmið Kiwanishreyfingarinnar hefur
ávaht verið stuðningur við unga sem
aldna. Kiwanisklúbburinn Setberg hefur
í ár sett sér það takmark að aldraðir í
Garðabæ skvdi njóta góðs af starfsemi
þeirra. Þar sem komið hefur verið upp
aðstöðu fyrir eldri borgara í Garðabæ til
að stunda líkamsrækt og uppbyggingu
sálar og andlegrar velhðunar þótti Set-
bergsfélögum fuh ástæða til að styrkja
þessa starfsemi. í tilefni af þessu voru
nokkrir Setbergsfélagar samankomnir 2.
feb. í Safnaðarheimilinu Garðabæ, til að
afhenda mjög fullkominn æfingarbekk
sem innlegg þeirra í þessa starfsemi.
Annaö sem Kiwanisklúbburinn Setberg
hefur gert á þessu ári í þágu aldraðra í
Garðabæ er skemmtikvöld á Garðaholti
sem haldið var 7. feb. Setbergsfélagar
voru þar mættir, og sáu þeir að öhu leyti
um veitingar og skemmtiatriði. Borðaður
var þorramatur, spiluð félagsvist,
skemmtiatriði og að lokum stiginn dans.
Verðlaun voru að sjálfsögðu veitt fyrir
besta árangurinn í félagsvist. Kvöld þessi
eru orðin árviss viðburður og óhætt að
segja að vinsældir hafa aldrei verið meiri.
Fundir
ITC deildin Gerður
heldur fund í Kirkjuhvoh, Garðabæ, mið-
vikudaginn 6. mars kl. 20.30. Á dagskrá
er m.a. fræðsla um E.B. (Efnahagsbanda-
lagið.) Fundurinn er öllum opinn. Nánari
upplýsingar gefur Helga Ólafsdóttir, s.
84328.
ITCdeildin Korpa
Mosfellsbæ
heldur deildarfund í kvöld, 6. mars, kl.
20 í félagsheimilinu Hlégarði. Haldið
verður upp á 5 ára afmæli dehdarinnar.
Upplýsingar veitir Gunnjóna, s. 667169.
Aðalfundur Ferðafélagsins
verður haldinn fimmtudagskvöldið 7.
mars í Sóknarsalnum, Skipholti 50a, og
hefst hann stundvíslega kl. 20. Venjuleg
aðalfundarstörf. Félagsmenn eru hvattir
tU að fjölmenna. Athugið að atkvæðisrétt
og kjörgengi hafa þeir einir sem greitt
hafa árgjald 1990 og gengið í félagið fyrir
áramótin.
Tónleikar
Lifandi tónlist á
Púlsinum
í kvöld, 6. mars, leikur færeyska fusion-
hljómsveitin Plúmm á Púlsinum. Hljóm-
sveitina skipa: Leivur Thomsen, gitar,
Magnus Johannessen, hljómborð, Finnur
Hansen, hljómborð, Amold Ludvig, bassi
og Rógvi Á. Rógvu, trommur. Sérstakur
gestur kvöldsins verður James Olsen
söngvari. Fimmtudagskvöldið 7. mars
heldur djasseldhuginn og píanóleikarinn
Guðmundur Ingólfsson sína fyrstu tón-
leika á Púlsinum. Með Guðmundi leika
þeir Guðmundur Steingrimsson á
trommur og Bjami Sveinbjörnsson á
bassa. Söngkona kvöldsins verður Linda
Gísladóttir.
Háskólatónleikar
Á Háskólatónleikum í Norræna húsinu í
dag koma fram Richard Talkowsky, selló,
Nora Kornblueh, sehó, og Snorri Sigfús
Birgisson, píanó.