Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1991, Síða 3
ÞRIÐJUÐAGUR 30. APRÍL 1991.
3
Ingvar Bjamason, íslenskur lækn-
ir búsettur í London, hlaut nýlega
gullmedalíu þar í landi fyrir upp-
götvun sína á nýjum sjúkdómi í smá-
girni.
Ingvar er sérfræðingur í melting-
arsjúkdómum, með Cand. med.
gráðu frá Háskóla íslands, og hefur
unnið að rannsóknum sínum á melt-
ingarsjúkdómum í bráðum níu ár.
„Þetta kom mér nú ekki sérlega á
óvart því mér hefur að mörgu leyti
gengið betur með mínar rannsóknir
en mörgum Bretanna," sagði Ingvar,
en hann er fyrsti útlendingurinn sem
hlýtur þessa medalíu.
„Það er breska meltingarsérfræð-
ingafélagið „British Society of
Gastroenterology" sem veitir verð-
launin einu sinni á ári og það er
mikill heiður fyrir mig að hljóta þau
í ár,“ sagði Ingvar ennfremur.
Ingvar uppgötvaði nýjan sjúkdóm
í smágimi sem er aíleiðing gigtar-
lyíjameðferðar. í þeirri meðferð eru
sjúklingum geíln bæði verkja-
stillandi og bólgueyðandi lyf, sem
rannsóknir Ingvars leiddu í ljós að
valda bólgu í smágimi hjá flestum
þeirra. Bólgan veldur því svo að
blæðir inn í gömina.
„En þetta er bara hluti af þeim
rannsóknum sem ég er að vinna að,
ég er einnig að rannsaka frásogsein-
kenni í smágirni og króníska gama-
sjúkdóma," sagði Ingvar og bjóst við
Ingvar Bjarnason læknir er fyrsti
útlendingurinn sem hlýtur gullmed-
aliu breska meltingarsértræðingafé-
lagsins BSG.
að vinna að þeim rannsóknum í
a.m.k. tvö ár til viðbótar.
Ingvar verður því eitthvað áfram í
Bretlandi ásamt fjölskyldu sinni,
skoskri eiginkonu sem hann kynnt-
ist í Glasgow og þremur börnum, en
sagðist ekki geta sagt til um það á
þessari stundu hvort eða hvenær von
væri á honum heim til íslands.
Atvmnumlölun námsmanna:
Horf urnar ekki góðar
- líkur á að um 1100 störf vanti 1 sumar
„Mér sýnist atvinnuástandið vera
svipað og í fyrra en þá var það talið
sérlega slæmt. Það er verið að tala
um batnandi ástand en ég hef ekki
orðið var við þaö,“ segir Börkur
Gunnarsson, framkvæmdastjóri At-
vinnumiðlunar námsmanna um
horfur í atvinnumálum stúdenta í
sumar.
í fyrra gat Atvinnumiðlunin útveg-
að tæplega 500 störf en umsóknir
voru hins vegar rúmlega 1100. Börk-
ur segist búast við svipaðri tölu í ár.
„Það er vika liðin síðan við opnuð-
um og mér sýnist þetta vera mjög
svipað og þaö var í fyrra, bæði hvað
varðar framboð og eftirspum á störf-
um. Það era komin milh 30 og 40 störf
sem 300-400 námsmenn sækja um,“
segir Börkur.
Þau störf sem bjóðast segir Börkur
vera margvísleg en algengust eru þó
afgreiðslu-, skrifstofu- og dagvistar-
störf. Námsmenn úr öllum deildum
Háskólans eru á skrá atvinnumiðl-
unarinnar.
„Við sendum bréf til allra atvinnu-
rekenda sem höfðu samstarf við okk-
ur í fyrra en okkur sýnist ástandið
vera það slæmt núna að við ætlum
að senda bréf til mun fleiri aðila. Ég
er hins vegar bjartsýnn á að þeir at-
vinnurekendur sem réðu fólk frá
okkur í fyrra geri það aftur því þeir
voru yfirleitt mjög ánægðir,“ segir
Börkur.
-ns
Hljóöláta myndbandstækiö frá Sharp. Eintak úr magnsendingu sem nú er í boði á 20% afslættil
ÞADfÓKST!
að tryggja aðra magnsendingu af myndbandstækjum fyrir sumarið!
Tækið fæst nú fyrir aðeins kr. 35.900.- stgr. og um er að ræða
lækkun uppá kr. 8.000.-
EIGINLEIKAR: • Mjög liljódlátt • Takir þú upp fleiri en einn þátt á spólu merkið tcekið
staðinn. Með því að ýta á DBSS finnur tœkið staðinn sjálft. Ytirðu tvisvar fcerðu þátt númer
tvö o.s.frv. • 100% skýr kyrrmynd • Þú getur tekið upp átta mismunandi þœtti 365 dagafram í
tímann. • Tvöfaldur og áttfaldur hraði með mynd • Rammi fyrir ramma • Hœgspilun •
Móttakari fyrir kapalsjónvarp • Fjölpinnatengi fyrir niynd og Itljóð • Tekur spólur bceði fyrir
PAL og SECAM kerfið • Stilling á myndgceðum með fjarstýringu. • Bamalcesing sem tryggir
að skipanir haldi og gerir tœkið óvirkt án fjarstýringar.
SJÓNVARPSTÆKI !!!
Eigum fyrirliggjandi á lager takmarkað magn Sharp sjónvarpstækja á verði sem er lægra en
þig grunar. Stærðir; 28, 21, 20, 14 og 3ja tommu!
VERSLUNIN
Hverfisgötu 103 - sími 25999
GULLNI HANINN
- lítill, notalegur og ódýr - líttu inn!
Fréttir
íslenskur læknir fær medalíu 1 Bretlandi:
Þetta er mjög
mikill heiður
- segir Ingvar Bjamason læknir
Ölvaður
velti bíl
Gylfi KristjáDsson, DV, Akureyri:
Ungur, ölvaður ökumaður, sem var
á ferð á Ólafsfjarðarvegi milli Akur-
eyrar og Dalvíkur aðfaranótt laugar-
dags, var orðinn lúinn og fór svo að
hann sofnaði undir stýri.
Ökuferðinni lauk þar með því bif-
reið hans fór út af veginum, valt og
hafnaði að lokum á réttum kili í snjó-
skafli. Ökumaðurinn var fluttur á
sjúkrahús á Akureyri en meiðsli
hans reyndust ekki alvarleg og bif-
reiðin slapp furðuvel.
RAUTT
LJÓS!
GULLNI HANINN
er mátulega stór veitingastaður til
að skapa notalega stemmningu og
góð tengsl milli gesta og starfsfólks.
GULLNI HANINN
býður ódýran matseðil dagsins í
hádeginu auk rétta af gómsætum
sérréttaseðli hússins.
GULLNI HANINN
veitir frábæra þjónustu hvort sem
þú iítur inn í hádeginu eða kemur
í ró og næði á kvöldin.
GULLNI HANIN'N
er opinn 11.30-15.00 og 18.00-
22.30 alla virka daga og um helgar
18.00-24.00. Líttu inn!
Laugavegur 178
Sími347 80. Fax.680155.