Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1991, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1991, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1991. 36 Fréttir Myndgáta Baráttudagur verkalýðsins: Hefðbundin hátíðarhöld Alþjóðlegur baráttudagur verka- lýðsins, 1. maí, verður haldinn há- tíðlegur með hefðbundnum hættí á morgun. Það eru Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Iönnemasambands íslands sem standa aö hátíðarhöldunum. Safnast verður saman á Hlemmi klukkan 13.30 og gengið niður Laugaveginn að Lækjartorgi og munu Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngunni. Á Lækjartorgi verður útifundur og ræöumenn dagsins verða Ög- mundur Jónasson, formaður BSRB, og Sigurður Rúnar Magnús- son hafnarverkamaöur. Milh ræðuhalda munu nemendur úr Söngskóla Reykjavíkur, þau Ragn- ar Davíðsson og Auður Gunnars- dóttir, syngja lög við undirleik Jóns Stefánssonar. Þá mun Bubbi Mort- hens syngja nokkur lög. Fundar- stjóri verður Ehn Sigurðardóttir, formaður Iðnnemasambands ís- lands. Andlát Lilja Guðrún Kristjánsdóttir frá Hrafnkelsstöðum lést á Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt 29. apríl. Sigurbjörg Jónasdóttir andaðist i Héraðshælinu á Blönduósi þann 26. apríl. Þórólfur Jón Egilsson rafvirkja- meistari, Hlíf II, Isaílrði, andaðist á heimili sínu 26. apríl. Árni Guðmundsson frá Teigi, Grindavík, andaðist í Hrafnistu, Hafnarfirði aðfaranótt 29. apríl. Margrét Gunnarsdóttir, Reykjahlíð 12, lést í Landakotsspítala sunnudag- inn 28. apríl. Jón Anton Ingibergsson járnsmiður, Kleppsvegi 120, Reykjavík, lést fóstu- daginn 26. apríl í Landspítalanum. Friðrik H. Guðjónsson, fv. útgerðar- maður, ísafirði, lést í Landspítalan- um 28. aprh. Sigrún Gissurardóttir, Álfaskeiði 40, Hafnarfirði, lést á Sólvangi 28. apríl. Jarðarfarir Guðriður Stefanía Sigurðardóttir, fyrrv. stöövarstjóri Pósts og síma, Grundarfirði, Dalbraut 20, Reykja- vík, andaöist í Landspítalanum fóstudaginn 26. apríl sl. Jarðsett verður frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 4. maí. Útfor Kristólínu Guðmundsdóttur, Baldursgötu 26, fer fram frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 2. maí kl. 10.30. Erla Þorsteinsdóttir, Þverholti 2, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkra- húsi Akureyrar 26. apríl. Útfórin fer fram frá Ákureyrarkirkju fimmtu- daginn 2. maí kl. 13.30. Kjartan Ólafsson, Langholtsvegi 18, er lést 20. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2. maí kl. 13.30. Útfór Ingu Sigurrósar Guðmunds- dóttur, Efstalandi 4, sem lést 19. apríl, fer fram frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 30. aprh kl. 15. Sveinn Pálsson, fyrrverandi mennta- skólakennari, andaðist 18. apríl. Út- fór hans hefur verið gerð í kyrrþey. Tjjkyrmingar Gamlir nemendur Verslunar- skóla íslands 30. apríl fagna gamlir nemendur Verslun- arskóla íslands útskrift sinni. Veröur fagnaðurinn haldinn í Súlnasal Sögu og hefst kl. 19.30 meö setningu formanns Nemendasambandsins, Rósu Matthías- dóttur, þá tekur 3-rétta hátíðarmatseöill við, og mun síðan dansinn duna fram eftir nóttu, þar sem ungir sem aldnir minnast skólans með hlýhug. Jöklarannsóknafélag íslands Vorfundur félagsins verður haldinn á Hótel Lind, Rauðarárstíg, þriðjudaginn 30. apríl kl. 20.30. Dagskrá: 1. Hvemig kemst Hofsjökull af? Oddur Sigurðsson segir frá mælingum á Hofsjökli undan- farin 3 ár. 2. Kaffidrykkja og kökuát. 3. Fjailaklifur í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum. Ein- ar K. Stefánsson sýnir myndir og segir frá. Félag eldri borgara Opið hús i dag, þriðjudag, í Risinu, frá kl. 13 spilamennska. Kl. 17 leikfimi og einnig hittast Snúður og Snælda kl. 17. Kvennadeild Skagfirðinga- félagsins I Reykjavík verður með veislukaffi og hlutaveltu í Drangey, Síðumúla 35, miðvikudaginn 1. maí kl. 14. Tilraun með meðhöndl- un sorps I borginni Borás í Svíþjóð Fimmtudaginn 2. maí flytur Per Berg, lektor við Chalmers-tækniháskólann í Gautaborg, erindi á vegum verkfræði- deildar Háskóla íslands: „Tilraun með meðhöndlun sorps í Borás í Sviþjóð. Frá heimili til endumýtingar". Erindið verð- ur flutt á ensku í stofu 101 í Odda kl. 16.15. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Per Berg hefur starfað frá 1977 sem forstöðumaður deildar við Chal- mers, sem hefur sérhæft sig í rannsókn- um á meðhöndlun og nýtingu sorps. Auk þess hefur hann starfað sem ráðgjafi fyr- ir bæjarfélög og fyrirtæki á Norðurlönd- unum. Opið hús - kaffisala í MÍR 1. maí, á alþjóðlegum baráttu- og hátíðis- degi verkalýðsins, verður opið hús í fé- lagsheimili MÍR, Menningartengsla ís- lands og Ráðstjómarríkjanna, Vatnsstíg 10. Kaffisala verður þar frá kl. 14 fram eftir degi og hlaðborðið gimilegt sem jafnan áður. Þá verður margt góðra virm- inga í boði á hlutaveltu. Sýndar verða sovéskar teiknimyndir, einkum ætlaðar yngri kynslóðinni. í félagsheimili MÍR eru nú á veggjum ljósmyndasýningar um Tolstoj, Dostojevski og sovésk-kanadisk- an skíðaleiðangur yfir norðurpólinn á árinu 1988. Morgunkaffi Samtaka herstöðvaandstæðinga Öllum herstöðvaandstæðingum er boöið í morgunkaffi að morgni 1. maí. Að þessu sinni verður það í Hlaðvarpanum að Vesturgötu 3b, Reykjavik, og verður hú- sið opnað kl. 10.30. Morgunkaffi Samtaka herstöðvaandstæðinga 1. maí er nú oröið árviss viðburður og gefst þar gott tæki- færi fyrir alla þá, sem vilja leggja lið bar- átttmni fyrir heriausu, hlutlausu fslandi, að hittast og samstilla kraftana áður en göngur og fundahöld dagsins byija. Leiðabreytingar vegna lokunar Vonarstrætis Frá og með deginum í dag, 30. apríl, munu vagnar á leiðum 1, 2, 3, 4 og 6 á vesturleið frá miðborg aka um Skólabrú og Kirkjustræti í stað Vonarstrætis. Nýr viðkomustaður verður í KirKjustræti, vestan Pósts og síma. Vagnar á leiðum 13, 14, 100 og 115 munu aka suður Frí- kirkjuveg í stað Vonarstrætis og hafa viðkomu sunnan Vonarstrætis viö gamla Iðnskólann. IBR KRR REYKJAVIKURMOT MEISTARAFLOKKUR KARLA ÁRMANN-VÍKINGUR I kvöld kl. 20.00 Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL Fundir Kvenfélag Hallgrímskirkju Fundurinn sem vera átti fimmtudaginn 2. maí nk. fellur niður vegna vinnu við norðurálmu kirkjunnar. Sumarferðin auglýst síðar. ITC deildin Gerður heldur fund í Kirkjuhvoli, Garðabæ, mið- vikudaginn 1. apríl kl. 20.30. Fundurinn er öllum opinn. Upplýsingar gefur Helga Ólafsdóttir, s. 84328. Tónleikar Einleikstónleikar Bryndís Halla Gylfadóttir heldur ein- leikstónleika á vegum Musica Nova í Bústaðakirkju miðvikudaginn 1. mai kl. 20.30. Á efnisskránni eru fjögur íslensk einleiksverk fyrir selló: Eter eftir Hauk Tómasson, Dal regno del silenzio (Úr þagnarheimi) eftir Atla Heimi Sveinsson, Flakk eftir Hróðmar Inga Sigurbjömsson og Spuni 11 eftir Guðmund Hafsteinsson, en frumflutningur Bryndisar á þvi verki þann 25. apríl sl. þótti tíðindum sæta. Bryndís starfar nú sem fyrsti sellóleikari við Sinfóníuhijómsveit íslands. Snæfellingakórinn í Reykjavík heldur tónleika þriðjudaginn 30. apríl kl. 20.30 í Breiðholtskirkju (Mjódd). Flutt verða lög eftir innlenda og erlenda höf- unda, en sérstök áhersla verður lögð á tónhst eftir Mozart í tilefni 200 ára ártíð- ar hans. Einsöngvari: Theodóra Þor- steinsdóttir. Píanóleikar: Lára Rafns- dóttir. Stjórnandi Friðrik S. Kristinsson. Tvennir einleikaraprófstónleikar verða haldnir á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík og eru þeir síðari hluti einleik- araprófs Sifjar Tulinius fiöluleikara og Sigurjóns Halldórssonar klarínettuleik- ara frá skólanum. Fyrri tónleikamir verða í dag 29. apríl í Islensku óperunni og heflast kl. 20.30. Þar leikur Sif Tuli- nius, fiðluleikari ásamt Steinunni Bimu Ragnarsdóttur píanóleikara og flytja þær verk eftir Jón Nordal, J.S. Bach, Gabriel Fauré og Camille Saint-Saens. Seinni tón- leikamir em þriðjudaginn 30. apríl kl. 20.30 í Norræna húsinu. Sigurjón Hall- dórsson, klarínettuleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari, flytja verk eftir Claude Debussy, Igor Stravinski, Þorkel Sigurbjömsson og Jo- hannes Brahms. Aðgangur að tónleikun- um er ókeypis. Elfrun Gabriel á tónleikaferðalagi Þýski píanistinn Elfrnn Gabriel er komin hingað til lands. Hún fer að þessu sinni í tónleikaferð um Vestflrði og mun leika á eftirtöldum stöðum: Flateyri 1. maí kl. 21, Bolungarvík laugardaginn 4. maí kl. 17, Þingeyri mánudaginn 6. maí kl. 21. Tónleikar í Norræna húsinu Þann 1. maí heldur þýski harmóníkuleik- arinn Christiane Luder tónleika í Nor- ræna húsinu. Christiane hóf nám í harm- óníkuleik 8 ára gömul. Hún hefur haldið tónleika viða um Þýskaland og Portúgal og unnið til verðlauna bæði í Þýskalandi og á alþjóðlegum vettvangi. Hún er stödd hér á landi vegna sýningar Þjóöleik- hússins á Pétri Gaut. Á efnisskrá tónleik- anna má m.a. fmna verk eftir Scarlatti, Albeniz og Stravinsky að ógleymdum argentískum tangóum eftir Piazzolla. Tónleikamir hefjast kl. 16. Vortónleikar Skagfirsku söngsveitarinnar Skagflrska söngsveitin heldur árlega vor- tónleika fyrir styrktarfélaga sína og aðra velunnara í Langholtskirkju miðviku- daginn 1. maí og laugardaginn 4. maí. Tónleikarnir hefjast kl. 17 báða dagana. Efnisskráin er að þessu sinni flutt án undirieiks. Á henni em bæði íslensk og erlend lög, þar á meðal íslensk þjóölaga- syrpa í útsetningu Hjálmars H. Ragnars- sonar. Þá má einnig nefna að kórinn syngur nokkra negrasálma. Einsöng í þeim syngja Svanhildur Sveinbjöms- dóttir og Guðmundur Sigurðsson en þau em bæði kórfélagar. Þessi efnisskrá verður einnig flutt í Logalandi í Borgar- firði á uppstigningardag, 9. maí. Aukatónleikar á Púlsinum í kvöld, 30. apríl, verða aukatónleikar á Púlsinum með Bob Manning & KK-band ásamt djass- og blúshljómsveitinni Sálar- háska. Kór Rangæingafélagsins í Reykjavík heldur afmælistónleika í tilefni 15. starfs- árs kórsins þriðjudagskvöldið 30. apríl nk. í Áskirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Á dagskrá era eingöngu íslensk sönglög, m.a. þjóðlög í útsetningu Jóns Ásgeirssonar, lög ísólfs Pálssonar, Inga T. Lárassonar o.fl. Stjómandi kórsins er Elín Ósk Óskarsdóttir, einsöngvari á tón- leikunum er Kjartan Ólafsson og hljóð- færaleik annast Krystyna Cortes.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.