Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991.
Fréttir
Davíð Oddsson um „heiðurssamkomulagið‘ ‘:
Fullyrðingar Jóns
Baldvins oftúlkun
„Þaö var það samkomulag milli
okkar Jóns að nauðsynlegt væri að
færa verkefni til umhverfisráðu-
neytisins án þess þó að þau verkefni
væru mörkuð. Formaður Alþýðu-
flokksins nefndi ákveðna þætti í við-
ræðum okkar en það kom fram af
minni hálfu að á þeirri stundu gæti
ég ekki samþykkt einstaka þætti.
Þeir verða að koma til skoðunar í
sumar. Það er oftúlkun að við höfum
gert sérstakt samkomulag um til-
færslu skógræktarinnar og land-
græðslunnar. En það er rétt að skoða
þessa þætti eins og aðra,“ sagði Dav-
íð Oddsson fyrir miðstjórnarfund
Sjálfstæðisflokksins í gærdag.
Davxð átti fund með Jóni Baldvin í
gærmorgun þar sem fjallaö var um
tilfærslu verkefna til umhverfis-
ráðuneytisins. í sameiginlegri yflr-
lýsingu frá fundinum segir að nauð-
synlegt sé að treysta og efla stöðu
umhverfisráðuneytisins. Við endur-
skoðun á því kæmi til álita að færa
verkefni milli ráðuneyta. „Þar er
ekki um að ræða eitt ráðuneyti frek-
ar en annaö. Það er ljóst að um-
hverfismáhn koma víða við. Við vilj-
um báðir styrkja stöðu þessa ráðu-
neytis. Það verður gert á fundum í
sumar þar sem löggjöf, sem tekur til
þessara breytinga, verður ákveðin."
Davíð taldi ekki vera kominn trún-
Jón Baldvin Hannibalsson:
H vorugur okkar
Davíðs Oddssonar
segir ósatt
- þótt yfirlýsingum þeirra beri ekki saman
Þingflokksfundur Alþýðuflokksins
var haldinn í gær og stóð frá klukkan
16.00 til 19.15. Þar var meðal annars
til umræðu sá ágreiningur sem upp
er kominn milh stjómarflokkanna
um heiðursmannasamkomulag sem
Jón Baldvin hefur sagt opinberlega
að gert hafi veriö mihi hans og Dav-
íðs Oddssonar. Samkomulagiö segir
Jón fela í sér að skógrækt og landnýt-
ing verði færð frá landbúnaðarráðu-
neyti til umhverfisráðuneytis. Davíö
Oddsson segir ekkert slíkt heiðurs-
mannasamkomulag hafa verið gert.
Jón Baldvin oftúlki samtal þeirra.
Greimlegt er á svörum Jóns Bald-
vins að máhð hefur veriö svæft eða
deyft á þingflokksfundinum í gær.
Hann sagði eftir þingflokksfundinn:
„Það er enginn misskilningur milh
okkar Daviðs Oddssonar um það sem
sagt var. Ég er prýðilega ásáttur við
þá fréttatilkynningu sem hann hefur
sent frá sér um þetta mál. Þaö kemur
síðan til umfjöllunar á Alþingi í
haust og er nú í réttum farvegi. Meira
vil ég ekki segja um málið og hér eru
engar ásakanir uppi,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra eftir þriggja klukkustunda
þingflokksfund Lgær.
Hann var þá spurður hvor þeirra,
hann eða Davíð, segðu ósatt um heið-
ursmannasamkomulagið sem Jón
Baldvin sagði að gert hefði verið en
Davið að ekki hefði verið gert. Svar
Jóns var stutt og skýrt:
„Hvorugur."
Mjög þungt var í nokkrum þing-
mönnum Alþýðuflokksins sem DV
ræddi við. Nokkrir sögðu framkomu
sjálfstæðismanna í þessu máli vera
hneyksli. Það var einnig ljóst að ekki
voru allir ánægðir meö niðurstöðu
þingflokksfundarins því aö nokkrir
þingmenn og ráöherrar yfirgáfu
fundinn meira en hálftíma áður en
honum lauk og formaðurinn kom
fram ásamt nokkrum þingmönnum
sem eftir sátu. Þessu máh er því
trauðla lokið.
-S.dór
Jóhann vann
Lubojevic í gær
Jóhann Hjartarson vann Lubomir
Ljubojevic á skákmótinu í Amster-
dam í gær og er nú í sjötta sæti með
þrjá vinninga.
Kasparov, sem gerði jafntefli í
fyrstu sex skákum sínum, sigraði
Viktor Kortsnoj í sjöundu umferð-
inni í gær. Karpov vann Timman,
Salov vann van der Wiel en Short
gerði jafntefli við Gurevich.
Short og Saíov eru í fyrsta sæti
með fimm vinninga, Karpov hefur
fjóra og hálfan, Kasparov fjóra og
Kortsnoj þrjá og hálfan. Reuter.
Bragi Guðbrandsson
aðstoðar Jóhönnu
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur ráðið Braga
Guðbrandsson, félagsmálastjóra í
Kópavogi, sem aðstoðarmann sinn. ■
Bragi var áður í Alþýðubandalag-
inu en gekk fyrir nokkru í raðir
krata.
-hlh
aðarbrest milli ríkisstjórnarflokk-
anna. Hann sagði að hins vegar yrðu
menn að fara varlega í yfirlýsingar
þótt þær væru skemmtilegt frétta-
efrú. Mikilvægast væri fyrir ríkis-
stjórnina að vera sem mest samstiga,
bæði út á við og inn á við.
- Nú var mest áhersla á að mynda
ríkisstjórnina og gerðist það á met-
tima og síðan að láta lausn einstakra
verkefna ráðast. Mátti ekki eiga von
á ýmsum árekstrum innan ríkis-
stjórnarinnar við slíkar kringum-
stæður?
„Við hugsuðum ekki umfram allt
að mynda stjórnina. Ég tel að í öhum
meginatriðum höfum við náð að setja
okkur þann ramma sem við ætlum
að starfa eftir. Hins vegar hugsuðum
við báðir eins og skipstjóri á skipi.
Við sjáum ekki allar siglingar fyrir
fjögur ár fram í tímann en við höfum
helstu meginreglurnar klárar."
- Kemur til greina aö ráðuneytin
sameinist um að stjórna málaflokk-
um eins og landgræðslu og skóg-
rækt?
„Nei. Það er nauðsynlegt að hafa
skýrar línur. Það þarf að vera ljóst
hver er húsbóndinn á heimihnu.“
-hlh
Verið er að koma fyrir öryggishólfum í herbergi Hótel íslands en hótelið
mun verða opnað í júli. DV-mynd GVA
Hótel ísland
opnað í júlí
Stefnt er að opnun Hótel íslands í
júh og nú er unnið dag og nótt við
framkvæmdir. Konráð Guðmunds-
son byggingarstjóri segir að fyrst í
stað verði einungis hluti hótelsins
tekinn í notkun eða um 40 herbergi
af 110-120 herbergjum.
„Það er búið aö bóka 50-60% fyrir
sumarið þannig aö horfur eru sæmi-
legar. En við opnun bara einn þriðja
hótelsins og afgangurinn verður tek-
inn í notkun um næstu áramót," seg-
ir Konráð.
Fyrir utan venjuleg hótelherbergi
verða opnaðar tvær svokallaðar svít-
ur. Þá verður opnaður í júlí matsalur
þar sem gestir geta snætt morgun-
verð, hádegisverð og kvöldverð. Ahs
eru um 40 manns að vinna við að
komaHótelíslandiígagniö. -ns
Fundur lögreglustjóra:
Slæmtaðræða
málineftirá
, ,Það er fagnaðarefni þegar yfir-
stjórn löreglunnar og vaktmenn
geta talast við á fundi eins og
þessum og yfirleitt voru menn
ánægðir með fundirm sem slíkan.
Hins vegar hefði þessi fundur átt
að vera haldhm fyrir hálfum
mánuði th þrem vikum. Þá hefðu
menn verið verulega ánægðir.
Það er alls ekki gott þegar svona
mál eru rædd eftir á, þegar allt
er komið í hörku og á fullt i fjöl-
miðlum,“ sagöi lögreglumaður
hjá lögreglunni í Reykjavík við
DV.
Böðvar Bragason lögeglustjóri
boöaði lögreglumenn á sinn fund
í gær þar sem nýtt skipurit emb-
ættisins var til umfiöhunar og
mál Hilmars Þorbjörnssonar sem
ráðinn var sem varðstjóri af fyrr-
um dómsmálaráðherra í óþökk
lögreglustjóra og síðan sagt upp
aftur. Lögreglustjóri viðurkenndi
á fundinum að hafa setiö á um-
sóknum um stöðu varðsfióra og
ekki gert neitt í málinu fyrr en
ráöuneytið fór að rukka hann um
það. -hlh
Húsgögntek-
in úr mann-
lausri íbúð
Brotist var inn i íbúð við Njáls-
götu í gærdag eða fyrrinótt og
þaðan stolið stórum sex sæta
hornsófa úr svarbrúnu leðri,
sófaborði og sjónvarpstæki.
íbúinn var ekki heima en farið
hefur verið inn um glugga. Tíma-
setning er ekki nákvæm en inn-
brotið kann að hafa átt sér stað
um hábjartan dag.
Þar sem annaðhvort sendibíll
eða vörubíll hefur ílutt þýfið á
brott er mögulegt að íbúar við
Njálsgötu eða næstu götur kunni
að hafa séð er það var flutt úr
íbúðinni.
-hlh
Hólaskóli fær
að útskrifa
stúdenta á ný
Þórhnllur Ásitumds., DV, Saudárkróki:
Bændaskóhnn á Hólum hefur
fengið heimild til að útskrifa
stúdenta og stefnt er að því að
fyrsti stúdentinn frá skólanum
verði útskrifaður næsta vor, á
110. afmælisári skólans. Þá verða
190 ár höin frá því stúdent var
síðast útskrifaður á Hólum, frá
Hólaskólanum gamla 1802.
Jón Bjamason skólastjóri sagði
að það væri ekki af hégómagirnd
sem þessi breyting á stöðu skól-
ans i skólakerftnu ætti sér stað.
Að vlssu leyti hefði skólinn lent
inn á blindgötu þar sem búnað-
arnámið heíði til þessa ekki
tengst almennu framhaldsskóla-
námi og þvi ekki verið raun-
verulegur valkostur til undir-
búnings háskólanáms.
Þrátt fyrir þann möguleika að
bændaskólinn geti útskrifað
stúdenta verður kennsluskylda
skólans ekki aukin, Hann mun
áfram útskrifa búfræðinga sem
áöur. En til að nemendur Hóla-.
skóla útskrifist sem stúdentar
þurfa þeir að hafa lokið sem nem-
ur 3-4 önnum úr framhaldsskóla
og hafa aö auki próf úr sam-
ræmdum greinum framhalds-
skóla, það er íslensku, öðmm
tungumálum og raungreinum.
Aformað er að með tímanum
verði inntökuskilyröi í Hólaskóla
hert að gerðar veröi kröfur um
ákveöinn punktafiölda xir fram-
haldsskóla.
I
i
i
i
1
I
>
i
*
I
i