Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991. DV tekur hús á Hrólfi Vagnssyni í Þýskalandi: Tveir harmóníku- leikarar í hjónaband - þegar háskólaneminn giftist prófessomum sínum Hrólfur Vagnsson, íslendingur meö háskólapróf í harmóníkuleik. Það var fyrir tilviljun að blaðamað- ur DV í Þýskalandi fékk spurnir af Bolvíkingnum sem hafði unnið sér það til frægðar að stunda háskóla- nám í harmóníkuleik árum saman í borginni Hannover í Þýskalandi. Og það var ekki nóg með það heldur hafði hann gert sér lítið fyrir og gifst prófessornum sinum í greininni. Ha, hvernig gat það v.erið? Jú, prófessor- inn var svissnesk kona og þetta var ást við fyrstu sýn. Hún heitir reyndar Elsbeth Moser og er mjög virt á sínu sviði, ekki bara seni harmóníku- kennari heldur ekki síður sem fram- úrskarandi hljóðfæraleikari. Hún er ein af fáum harmóníkuleikurum í heiminum sem fengnir eru til þess að leika viðamikil verk með stórum hljómsveitum hvort sem er á tónleik- um eða inn á hljómplötur. Síðast en ekki síst hafa verk veriðskrifuð sér- staklega fyrir hana - og á síðustu árum fyrir Hrólf líka. Þegar komið var til Hannover og loks búið að hafa upp á húsinu þar sem þau Hrólfur og Elsbeth búa kom í ljós að það er beint á móti tónlistar- háskólanum þar sem hún kennir. Hún þarf því ekki nema að hlaupa yfir götuna til þess að komast í vinn- una. íbúðin sem þau búa í er í einu orði sagt ævintýraleg. Hún er ekki mjög stór í sjálfu sér, en óhætt er að segja að þar sé hátt til lofts og vítt til veggja. Hún er í stóru og virðulegu húsi sem byggt var upp fljótlega eftir stríðið í upprunalegri mynd, en þá hafði ekkert staðið eftir nema steypt- ur kjallarinn þar sem veggirnir eru á þriðja metra að þykkt. Stofuglugg- arnir, sem snúa út að götunni, eru feiknarlega stórir og minntu íslenska gestinn helst á höll eða eitthvað í þá veruna. Miklar yfirbyggðar svalir snúa út í garðinn og þar sögðust þau hjónin sitja öllum stundum á vorin og sumrin - og skal engan undra. Hafa 4 ketti og 2 harmóníkur Þau hafa íjóra ketti, þrjá bröndótta og einn rauðan. Þetta eru systkin úr sama gotinu en móðir þeirra hljóp fyrir bíl og endaði þar lífdaga sína þegar kettlingarnir voru mjög ungir. Þeir létu fara vel um sig í ævintýra- legri íbúðinni og sagði Hrólfur að þeir kæmust líka niður í kjallara þar sem svefnherbergin væru og þaðan lægju leiðir þeirra inn í völundarhús geymslukjallarans. „Við þorum ekki að láta þá út fyrr en kvölda tekur," sagði hann við blaðamann þegar hann sá að hann varð svolítið skrít- inn á svipinn. „Þeir eru svo vernd- aðir hér inni og ef við sleppum þeim út í umferðina á daginn þá yrðu þess- ir sakleysingjar ekki lengi að týna lífinu undir einhveijum bílnum eða sporvagninum. Við vorum farin aö leyfa þeim að vera svolítið úti yfir daginn en þá fóru nágrannarnir að kvarta. Kettirnir okkar voru sagðir hafa skotist inn um opna glugga þar sem þeir gæddu sér á mat uppi á borðum fólks og í eldhúsum þess.“ Þegar blaðamann bar að garði var Hrólfur einn heima. Elsbeth var enn að kenna þó komið væri fram yfir venjulegan vinnutíma. Hann sagði að hún kenndi nokkuð stórum hópi áhugasamra nemenda og kæmu þeir hvaðanæva að því ekki væri unnt að stunda háskólanám í harmóníkuleik nema í örfáum skólum í heiminum. Þaö var ekki að spyrja að íslensku gestrisninni þótt í Þýskalandi væri og Hrólfur fór þegar að hafa til kaffi. Hann er afar rólegur og yfirvegaður og lætur greinilega ekki fara mikið fyrir sér alla jafna. Hann er glaðvær og hress og ekki var að sjá á honum merki þess að hann hefði fyrir stuttu verið skorinn upp við brjósklosi og ætti enn í þeim veikindum. Raunar hafa þau heldur betur sett strik í reikninginn því þau Hrólfur og Els- beth voru búin að ákveða að fara í hljómleikaferð um ísland í sumar ásamt sellóleikara og flautuleikara. Nú er sýnt að fresta verður þeirri ferð fram á næsta ár. Gafútplötu í fyrrasumar Hrólfur setti plötu á fóninn og brátt fóru að hljóma kliðmjúk lög um stof- una. Auðvitað var það harmóníkan sem fór með aðalhlutverkið. Þriðja lagið var hiö kunna verk Jóns Múla Árnasonar, „Vikivaki“, og var flutn- ingurinn vandaður og útsetningin smekkleg. Blaðamaður spurði strax hvaða plata þetta væri. „Jú,“ svarði Hrólfur, „ég gaf hana út heima á ís- landi í fyrrasumar, en ég held að hún hafi ekki fallið neitt sérstaklega vel í kramið. Það má líka vel vera að ég hafi ekki kynnt hana nógu mikið,“ sagði þessi hógværi tónlistarmaður. Hann kvaðst hafa ætlaö að reyna að gefa út plötu með ýmsu efni, enda væri þar að finna dægurlög, djass og jafnvel þá tónlist sem hann hefði mest gaman af að leika - svokallaða nútímatónlist skrifaða fyrir harmón- íku. Hann kvaðst hafa leikið á flest hljóðfærin sjálfur, en þó hefðu ýmsir góðir hljómlistarmenn lagt honum lið, eins og til dæmis konan hans. „Ég lék sjálfur á gítar, bassa og tromm- ur, þó ég kunni það auðvitað ekki neitt,“ sagði Hrólfur, „auk hljóm- borös og að sjálfsögðu á harmóník- una mína. Plötuna tók ég upp hérna i kjailaranum en þar hef ég komið mér upp stúdíói, sem ég ætla í fram- tíðinni að reyna að byggja afkomu mína á, auk þess að leika á harmón- íkuna.“ Aðspurður sagðist Hrólfur hafa komið við sögu á nokkrum hljóm- plötum heima á íslandi á síðustu árum þó hann hefði verið búsettur í Þýskalandi í heilan áratug. „Eitt sumarið var ég meira að segja í hljómsveit. Þá kom ég heim ásamt júgóslaveskum félaga mínum og við stofnuðum hljómsveit ásamt Jó- hanni Sigurðarsyni leikara og vorum atvinnupopparar í þrjá mánuði.“ Hrólfur skellihló eins og hann flokk- aði þetta undir bernskubrek og hann gæti ekki hugsað sér að endiírtaka þetta. „Áður en við fórum utan tii Þýskalands um haustið tókum við upp barnaplötu - um Smjattpattana, í Stúdíó Stemmu hjá Didda fiðlu. Samnefndir þættir voru lengi vel sýndir í barnatíma Sjónvarpsins. Fyrir um tveimur árum hafði síðan Magnús Þór Sigmundsson samband við mig og bað mig um að leika með sér inn á plötu sem hann hafði í bí- gerð. Þar var hann með eigin lög við ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk. Hann vantaði einhvern sem hafði verið viðloðandi rafmagnshljómborð en hefði jafnframt eitthvað af klasæ ískri tónhst að segja því hann vildi hafa klassískt yfirbragð á tónlistinni. Það endaði með því að ég spilaði allt inn á plötuna nema trommur og bassa en hann lék síðan á gítarinn. Þetta var skemmtileg vinna." Sjö ára háskólanám í harmóníkuleik Hrólfur var nú beðinn um að segja undan og ofan af námsferli sínum, allt frá því að hann fór fyrst að fást við harmóníkuna. „Ég lærði fyrst á harmóníku hjá föður mínum, Vagni Hrólfssyni, sem strákur heima í Bolgungarvík. Ung- ur fór ég síðan í tónlistarskólann þar og loks lá leiðin til Reykjavíkur þar sem ég var lengi í harmóníkunámi hjá Emil Adolfssyni sem rekur þar samnefndan tónlistarskóla. Sjáifur lagði hann stund á nám í harmóníku- leik hér í landi, eða í Trossingen, þar sem hinar frægu Hohner-harmón- íkuverksmiðjur er að fmna. Emil ráðlagði mér að sækja um skólavist hér í Hannover sem ég gerði. Hér stundaði ég námið í heil sjö ár. Ég er því bæði með próf sem kennari á hljóðfærið og sem einleikari.“ Blaðamaður hafði tekið eftir því að hljóðfæri Hrólfs var ekki eins og þær harmóníkur sem hann hafði séð heima á íslandi. Hún var ekki með píanóhljómborði, heldur með fjölda hnappa í stað hinna hefðbundnu takka. Hann var því spurður í hverju munurinn væri fólginn. „Hnappaharmóníka eru miklu full- komnari en takkaharmóníkan. Til þess að hin síðarnefnda gæti náð tón- sviði hinnar, þyrfti hljómborð henn- ar líklega að vera um þrír metrar á lengd. Hér er eingöngu kennt á hnappaharmóníku og réttast væri að þeir sem eru að byrja að læra á harm- óníku notuðu eingöngu þá gerðina, það munar svo miklu þegar fram í sækir. Heima lærði ég á venjulega harmóníku og þegar ég kom hingað út varð ég að æfa mig á hina í heilt ár, daga og nætur, áður en ég fór í inntökuprófið.“ Harmóníkan ekki bara fyrir „gömlu dansana" Það hefur ekki farið fram hjá nein- um að harmóníkan er að verða æ vinsælli í hvers kyns dægurlagatón- list. „Já, sem betur fer er þetta stað- reynd. Vinsældir harmóníkunnar hafa aukist mjög á undanförnum árum, einkum þó vegna þess hversu mikið hún hefur verið notuð í popp- tónlist og djassi. Þetta verður von- andi til þess að böm og unglingar fái meiri áhuga á henni, en mörgum þykir þetta hljóðfæri hallærislegt og aðeins viöeigandi til að spila „gömlu dansana". Sjálfur vissi ég ekki betur lengi vel. Faöir minn spilaði mjög mikið á harmóníku og ferðaðist mikið með hana í farteskinu til þess að leika á hinum ýmsu samkomum. Sem ungl- ingur þekkti ég ekkert annað en þessa svokölluðu „gömlu dansa-tón- lisf‘. Það var ekki fyrr en ég fór að læra hjá Emil sem ég uppgötvaði að unnt var að leika annars konar tón- list á þetta hljóðfæri.“ - Eru hin fjölmörgu félög harmón- íkuunenda ekki einmitt að reyna að auka þekkingu fólks á töfrum þessa skemmtilega hljóðfæris? „Nei, því miður, því það er nú öðru nær. Mér finnst að hugsunarháttur- inn sem þar er ríkjandi sé algjörlega staðnaður. Harmóníkan er í raun ekkert örðuvísi en önnur hljóðfæri, eins og til dæmis píanó og fiðla. Því á hún rétt á allri tónlist og henni er misboðið ef aðeins er leikin ein teg- und tónlistar á hana - í þessu tilviki „gömlu dansarnir". Félögin virðast einskorða sig við þetta og sinna ekki annarri tónlist sem jafnvel er skrifuð sérstaklega fyrir hljóðfærið - í hæsta lagi kannski umskrifuðum óperufor- leikjum sem hæfa harmóníkunni ekki einu sinni. Ég hef reynt að vekja áhuga félags- manna á ýmsum öðrum möguleikum hljóðfærisins þegar ég hef verið heima á íslandi. Ég hef til dæmis boðið þeim á tónleika hjá mér en það er eins og öll gluggatjöld séu dregin fyrir þegar þeir sjá að á efnisskránni eru ýmis verk sem þeir ekki þekkja, eftir höfunda eins og Scarlatti og Bach og marga fleiri. Á landsmóti harmóníkufélaganna á Laugum í Þingeyjarsýslu í fyrra- sumar fékk ég þann heiður aö spila i fimmtán mínútur af þeim þrjátíu sem harmóníkufélagið á Isafirði hafði fengið úthlutað í dagskránni. Mér þótti að sjálfsögðu gott að fá þetta tækifæri til þess að kynna fólki hvað ég hef verið að fást við en þetta sýnir kannski andann gagnvart fólki sem hefur menntað sig í harmóníku- leik, að þurfa að fá lánaðar nokkrar mínútur hjá einu félaginu." Aukinn áhugi tónskálda á harmóníkunni Það var komið vel fram yfir kvöld- mat þegar Elsbeth kom heim frá því að kenna. Hún settist við hhð Hrólfi án þess að taka þátt í samræðunum, sem að sjálfsögðu fóru fram á ís- lensku. „Ég skil bara eitt og eitt orð,“ sagði hún, „en ég veit að Hrólf- ur talar alltaf svo fallega um mig, þess vegna er mér alveg sama þó ég skilji ekki hvað þið eruð að tala um.“ En nú barst tahð að harmóníkunni sem hljóðfæri og hlut hennar í tón- bókmenntunum. „Þetta er svo ungt hljóðfæri og því fór harmóníkan á mis við hinar klassísku tónlistarhókmenntir. Það var ekki fyrr en á þessari öld sem tónskáld fóru að skrifa fyrir hana. Fyrsta verkið var skrifað 1927 og viö það ártal er ávallt miðað. Þaö var síðan ekki fyrr en um 1950-’60 sem alvöruþenkjandi tónskáld fóru að fá áhuga á hljóðfærinu. Á síðustu árum hefur þetta breyst mjög til hins betra og æ fleiri tónskáld koma auga á hvað þetta hljóðfæri er skemmtilegt og lifandi. Það er greinileg uppsveifla í gangi og nefna má aö möguleikum á tónleikum er alltaf að fjölga og yfir- leitt atvinnutækifærum fyrir harm- óníkuleikara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.