Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1991, Page 46
58 LAUGARD4GUR 11. MAÍ1991. Afrnæli Sæmundur Ami Hermannsson Sæmundur Árni Hermannsson framkvæmdastjóri, Skagfirðinga- braut 47 á Sauðárkróki, verður sjö- tugurídag. Starfsferill Sæmundur er fæddur á Ysta-Mói í Fljótum í Skagafirði og ólst þar upp. Hann gekk í bamaskóla þrjá vetrarparta í gamla þinghúsinu í Haganesvík. Hann var fermdur í Barðskirkju af sr. Guðmundi Bene- diktssyni sem jafnframt sagði hon- um til í íslensku, reikningi og dönsku. Á unglingsárum var Sæ- mundur aðallega við bústörf en vann jafnframt tíma og tíma í vega- vinnu og við uppskipun á vörum í Haganesvík. Hann stundaði nám í Héraðsskól- anum í Reykholti tvo vetur, 1940 til 1942. Á sumrin var hann í síldar- vinnu og á vertíð í Keflavík í nokkra vetur, auk þess að vinna á búi for- eldra sinna. Um tíma var Sæmund- ur með bílaútgerð í Fljótum og flutti afurðir bænda til Siglufjarðar og til baka ýmsa aðdrætti fyrir Sam- vinnufélagið. Tvo sumarparta starf- aði hann í lögreglunni á Siglufirði. Árið 1950 flutti Sæmundur til Vestmannaeyja og gerðist þar hótel- stjóri hjá Helga Benediktssyni. Þar starfaði hann einnig um tíma sem tollvörður og því starfi gegndi hann einnig sumarlangt á Þórshöfn á Langanesi. Síðar flutti Sæmundur til Kópavogs og byggði sér hús en réðst til starfa á Keflavíkurflugvelli semtollvörður. Árið 1957 flutti Sæmundur með fjölskyldu sína til Sauðárkróks. Þar gegndi hann stöðu tollvarðar en tók við starfi framkvæmdastjóra Sjúkrahúss Skagfirðinga í ársbyrj- un 1961 og hefur gegnt því starfi síð- an. Sæmundur hefur víða komið við í félagsmálum. Hann var í stjóm ungmennafélagsins í Haganes- hreppi og formaður þess um skeið. Á þeim árum er unnið var að Skeið- fossvirkjun stofnaði hann ásamt fleirum verkamannafélag í Fljótum og var fyrsti formaður þess. í Vest- mannaeyjum var hann einn af stofnendum félags ungra framsókn- armanna og sat í stjórn þess félags. Hann var einn af stofnendum Vír- nets hf. í Borgarnesi og sat i stjórn þess um skeið. Á Sauðárkróki hefur Sæmundur mikið starfað með Framsóknarfé- lagi Sauðárkróks og var í stjórn þess alllengi. Hann sat í bæjarstjórn Sauðárkróks nokkur kjörtímabil, bæði sem aðalmaður og varamaður. Hann átti einnig sæti í stjórn Hesta- mannafélagsins Léttfeta um nokk- urt skeið. Sæmundur hefur veriö formaður byggingarnefndar öld- runarmannvirkja á Sauðárkróki frá stofnun nefndarinar árið 1980. Jafnhliða aðalstarfi sem fram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Skagfirö- inga hefur Sæmundur rekið hrossa- ræktarbú að Ytra-Skörðugili frá ár- inu 1971. Fjölskylda Sæmundur kvæntist 26. janúar 1952 Ásu Sigríði Helgadóttur, f. 18. 3.1930, skrifstofustjóra á Sauðár- ' króki. Hún er dóttir Helga Jónatans- sonar, útgerðarmanns í Vestmanna- eyjum og Ellen Marie Jónatansson, konuhans. Sæmundur og Ása eiga sjö börn. Þau eru Elín Helga Sæmundsdóttir, f. 1.3.1952, hjúkrunarfræðingur á Sauðárkróki. Maður hennar er Jón Örn Bemdsen verkfræðingur og eigaþautvöbörn. Herdís Sæmundsdóttir, f. 30.7. 1954, leiðbeinandi á Sauðárkróki. Sambýlismaður hennar er Guð- mundur Ragnarsson tæknifræðing- ur og eiga þau tvö börn. Hafsteinn Sæmundsson, f. 18.2. 1956, iðnfræðingur í Reykjavík. Kona hans er Anna María Sverris- dóttir fóstra og eiga þau tvö þöm en Hafsteinn á að auki eina dóttur. Gunnhildur María Sæmundsdótt- ir, f. 22.5.1957, fóstra í Mosfellsbæ. Maður hennar er Ragnar Sveinsson húsasmíðameistari og eiga þau tvö böm. Margrét Sæmundsdóttir, f. 27.12. 1960, hjúkrunarfræðingur og ljós- móðir í Mosfellsbæ. Sambýlismaður hennar er Kristján Ragnarsson tæknifræðingur. Hermann Sæmundsson, f. 19.6. 1965, nemi í Háskóla íslands. Sam- býliskona hans er Guðrún S. Gríms- dóttir BA. Anna Elísabet Sæmundsdóttir, f. 14.11.1966, nemi i Háskóla íslands. Sambýlismaður hennar er Arnar Sigurðsson vélstjóri. Systkini Sæmundar eru Halldóra Margrét f. 1912, húsmóöir á Siglu- firði, gift Friðriki Márussyni verk- stjóra. Lárus, f. 1914, verslunarmað- ur í Reykjavík. Níels Jón Valgarð, f. 1915, eftirlitsmaður í Reykjavík, kvæntur Steinunni Jóhannesdótt- ur. Rannveig Elísabet, f. 1916, var gift Jóni Jónssyni frá Hvanná en þau em bæði látin. Hrefna, f. 1918, húsmóðir á Siglufirði, gift Jónasi Sæmundur Arni Hermannsson. Björnssyni vigtarmanni. Haraldur, f. 1923, verslunarmaður á Sauðár- króki, kvæntur Guðmundu Her- mannsdóttur. Georg, f. 1925, bif- reiðastjóri á Ysta-Mói. Björn Valtýr, f. 1928, tollstjóri í Reykjavík, kvænt- ur Rögnu Þorleifsdóttur. Foreldrar Sæmundar voru Her- mann Jónsson, f. 1891 d. 1974, hrepp- stjóri á Ysta-Mói í Fljótum og Elín Lárusdóttir, f. 1890 d. 1980, húsmóð- ir. Hermann var sonur Níelsar Jóns Sigurðssonar, verkstjóra á Bíldudal og Halldóru Magnúsdóttur. Foreldr- ar Elínar voru Lárus Ólafsson, út- vegsbóndi á Hofsósi og Margrét Jónsdóttir ljósmóðir. Margrét Ásbjamardóttir Margrét Ásbjarnardóttir myndlista- kona, Aðalstræti 21, Patreksfirði, er fimmtugídag. Starfsferill Margrét fæddist í Vesturbotni í Rauðasandshreppi en ólst upp í Skápadal til sjö ára aldurs og síðan á Patreksfirði. Hún hefur verið hús- móðir, fyrstu fimm árin í Noregi en síðan á Patreksfirði. Margrét hóf ung að mála myndir og stundaði nám í myndlist í Fær- eyjum er hún var sautján ára. Hún hefur nú tekið aftur til við myndlist- ina eftir nokkura ára hlé. Fjölskylda Margrét giftist 17.1.1960 Hermod Lund, f. 20.3.1934, verktaka við húsaviðgerðir í Noregi, en þau skildu. Margrét og Hermod eiga þijár dætur. Þær eru Marta Edvarda Kristín Lund, f. 25.12.1960, húsmóð- ir á Akranesi, gift Ólafi Aðalsteins- syni sjómanni og eiga þau tvö börn; Sólveig Helen Lund, f. 24.10.1962, húsmóðir í Reykjavík en sambýlis- maður hennar er Jóhann Bjarnason og á hún eitt barn; Kristín Áslaug Lund, f. 20.6.1974, nemi. Margrét giftist seinni manni sín- um 11.5.1985, Gunnari Solbakken, f. 22.7.1942, starfsmanni hjá Pat- rekshreppi. Foreldrar Margrétar: Ásbjörn Ól- afsson, f. 20.3.1898, fyrrv. b. í Skápadal og síðar smiður á Patreks- firði, og kona hans, Marta Guðrún Margrét Asbjarnardóttir. Vilhjálmsdóttir, f. 27.7.1903, d. 28.12. 1982, húsmóðir. Valgerður Guðný Óladóttir Valgerður Guðný Óladóttir, Álfta- mýri 4, Reykjavík, veröur 80 ára á morgun, sunnudag. Fjölskylda Valgeröur er fædd á Báe í Ámes- hreppi á Ströndum og ólst þar upp. Hún er tvígift. Fyrri maður hennar hét Guðjón Guðmundsson, d. 15.12. 1940, matsveinn. Hann dó ungur af veikindum. Valgerður og Guðjón eignuðust þrjú börn. Þau em: Fríða M., gift Ólafi Bjamasyni múrara og eiga þau fimm böm; Garðar, kvæntur Guð- laugu Haraldsdóttur og eiga þau þijú böm; og Magnús, fráskilinn og áþrjúböm. Síðari eiginmaður Valgerðar hét Guðni Hannesson, d. 16.8.1962, klæðskeri. Valgerður og Guðni eignuðust þijá syni, þeir eru: Hannes, múrari, kvæntur Erlu Bjarnadóttur og eiga þau fjögur böm; Friðgeir, kvæntur Kristínu Ragnarsdóttur og eiga þau tvö böm; óskírður, lést við fæðingu. Guðni heitinn lést vegna veikinda. Systkini Valgeröar eru: Friðgeir, d. 10.11.1944, læknir, fórst með Goðafossi og öll hans fjölskylda; Guðbjörg, húsmóðir, bjó lengst af í Danmörku en er nú látin; Sigríður, d. 30.3.1990, nú látin; og Halldór B., rafvirki, kvæntur Huldu Eyjólfs- dóttur og býr í Reykjavík. Foreldrar Valgeröar voru Óh G. Haildórsson, d. 1961, kaupmaður á ísafirði og í Reykjavík, fæddur á Melum í Strandasýslu, og Valgeröur G. Guðnadóttir, d. 1966, húsmóðir. Valgerður var fædd að Fjarðarhorni Valgeröur Guðný Óladóttir. í Gufudalsveit. Afmælisbamið verður erlendis á afmæhsdaginn. Til hamingju með afmælið ll.maí Pnfnahnlnm 2, Rpykjíivík Qn A |.n Rafn Kristján Viggósson, w ***** Liósheimuml4,Reykjavík. Andrésson, SíS Fornósi 5, Sauðárkróki. * annartem 8, KcyKjaviK. 85 ára 50 éra ftaunbæS’Rcykja^k. SSSSSttir, Flyörugranda 8, Reykjavík. Furugrund 41, Akranesi. Marsý Droin Jonsdottir, OU ára Bólstaðarhhö52,Reykjavik. Uldliu ilaluerg, Höskuldur Bjamason, Drápuhhð 46, Reykjavík. Aöalbraut 4, Kaldrananesi. __ , 40 ara 7*? nrn f í/ aia Þorsteinn Jóhannesson, Sölvi Jónasson, Vogaseli 1, Reykjavík. Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík. Katrin Gunnarsdóttir, Róbert Róbertsson, Reykjabyggð 10, Mosfellsbæ. Grandavegi 47, Reykjavík. öm Sigurðsson, Sigurður Gissurarson, Þórufelli 10, Reykjavík. Vesturgötu 28, Reyjavík. Gunnar Sverrir Guðmundsson, Hæðargarði2, Reykjavík. 7Q ára Sæbergi 16,Breiðdalsvík. f v CII O Jóhann V. Sveinbiörnsson, r„ A.. . Álftarima 1, Selfossi. (jruöion Arason, _ ^ Hólmi, Mýrahreppi Ömar Gunnarsson, Gestur Eyjólfsson. Garðarsvegi 18, Seyðisfirði. Hveramörk2,Hveragerði. Willard Helgason, Svarfaöarbraut30, Dalvik. Sæunn Ragnarsdóttir, /.a NjálSgötu 12A,Reykjavík. ÖU ara SteínþórStefónsson, Bergstaöastræti 46, Reykjavik. Erlendur J. Sæmundsson, Engihjalla 17,Kópavogi. Erlingur ísleifsson, HVITASUNNUFERÐ1 Vikuferð: Brottför miðvikudaginn riL LONDON Takmarkaður sætafjöldi 15. maí kl. 16 (4 vinnudagar) = FLUGFERÐIR féim mw, aTra forfallatrygging Verð aðeins kr.49ií WW- inn,falið = SOLRRFLUG Vesturgötu 12 - sfmar 620066 - 15331

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.