Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991.
13
í DV laugardaginn 4. maí birtist
opnuviðtal við Eyjólf Kristjánsson
undir fyrirsögninni „Eurovision-
klúður". Þar sem í þessu viðtali
virðist gæta nokkurs misskilnings
tel ég rétt að upplýsa lesendur
blaðsins um ýmis atriði er varða
framkvæmd Söngvakeppni sjón-
varpsstööva Evrópu.
Hlutverk sjón-
varpsstöðvanna
Sjónvarpsstöðvarnar standa fyr-
ir vali laganna með þeim hætti sem-
þær sjálfar kjósa. Flytjendur lag-
anna eru á ábyrgð sjónvarpsstöðv-
anna og geta þær þannig valið
hvern þann flytjanda sem þær telja
að henti viðkomandi lagi. Sjón-
varpið hefur ævinlega tekið fullt
Allir í hópnum sýndu sínar bestu hliðar á úrslitastundinni. Það skiptir
öllu máli að vita að maður hafi gert sitt besta, segir greinarhöfundur m.a.
i grein sinni.
„Klúður eða slúður“
tillit til óska höfunda í þessum efn-
um.
Sjónvarpsstöðvarnar koma því
höfundum og flytjendum á fram-
færi, bæði á heimavelli og á erlend-
um vettvangi. Það er hins vegar
ekki hlutverk sjónvarpsstöðvanna
að auglýsa höfunda, flytjendur eða
land og þjóð.
Það er fyrst og fremst hagsmuna-
mál höfunda, flytjenda og plötuút-
gefenda að auglýsa lagið og tryggja
að það sé leikið sem víðast eftir 1.
apríl þegar heimilt er að spila
keppnislögin.
Ef vel gengur rennur hagnaður
til höfunda og plötuútgefenda en
ekki sjónvarpsstöðvanna.
Að þessu sinni hafði Eyjólfur
samið við P.S. MUSIK og Jupiter
Records um að annast útgáfu og
kynningu á Nínu.
Framlag Sjónvarpsins
Söngvakeppnin er vinsælt sjón-
varpsefni. Kostnaöurinn er um-
talsverður þó reynt sé að gæta
fyllsta aðhalds en jafnframt standa
eins vel að verki og framast er
unnt innan þess fjárhagsramma
sem markaður er hverju sinni.
Söngvakeppnin á sl. ári kostaði
9,5 milljónir króna í útlögðum
kostnaði; þá er ekki reiknaður fast-
ur kostnaður Sjónvarpsins. Til
samanburðar má geta þess að út-
lagður kostnaður vegna allra
Spaugstofuþáttanna á sama ári
voru liðlega 7 milljónir.
Þegar lag hefur verið valið hefur
Sjónvarpið greitt höfundi eða flytj-
endum ákveðna fjárupphæð til
þess að undirbúa lagiö til áfram-
haldandi keppni. Höfundi er í
sjálfsvald sett hvernig hann ráð-
stafar þessu fé. Höfundar og flytj-
endur hafa lagt á það áherslu að
búningar og sviðshreyfingar væru
í þeirra höndum og þar réði þeirra
smekkur.
í ár greiddi Sjónvarpið Eyjólfi
Kristjánssyni 400 þúsund krónur í
þessu skyni, auk þeirra 200 þúsund
króna sem hann fekk greiddar sem
verðlaunafé.
Sjónvarpið sá auk þess um far-
gjöld, hótelgistingu og greiddi
hveijum og einum rúmar 36 þús-
und krónur í dagpeninga fyrir þá
viku sem undirbúningur og keppn-
in fóru fram.
Hljómsveitin Stjórnin fékk
greiddar 500 þúsund krónur til
undirbúnings sl. ár, enda lágu
umfangsmeiri æflngar að baki lagi
hennar. Þetta er ekki sagt til að
gera lítið úr undirbúningi hópsins
sem flutti Nínu. Því lagi hentaði
einfaldlega hófstilltari sviðsfram-
koma. Sjónvarpið greiddi ekki
ferðakostnað þess aðila sem sá um
sviðshreyfingar fyrir Stjórnina.
Lagið var fullæft þegar farið var
utan. í ár var því ekki heldur talin
nein ástæða til að Sjónvarpið
greiddi fyrir Helenu Jónsdóttur
sem sá um sviðshreyfingar í Nínu.
Hótel eða gistiheimili
í viðtalinu er haft eftir Eyjólfi
hversu Sjónvarpið hafi staðið illa
KjaUarinn
Sigmundur Örn
Arngrímsson
varadagskrárstjóri
innlendrar dagskrár
að vali á hóteli. Slæm staðsetning
hótelsins hafi komið i veg fyrir að
flytjendurnir gætu verið innan um
aðra keppendur og jafnframt kom-
ið í veg fyrir að þeir næðu nægi-
legri athygli blaðamanna.
Þeir aðilar, sem halda keppnina
hverju sinni, senda sjónvarps-
stöðvunum lista yflr verðflokka, án
þess að þar komi fram nöfn ákveð-
inna hótela. Sjónvarpið valdi hótel
í svipuðum verðflokki og undan-
farin ár en hins vegar voru það
gestgjafarnir sem sáu um að
ákveða staðsetningu hótelsins eins
og verið hefur hingað til. Eins
manns herbergi kostaði á þessu
hóteh rúmar 6 þúsund krónur á
nóttu en á Sherantonhótelinu um
15 þúsund krónur.
Viðbótarkostnaður Ríkissjón-
varpsins hefði því orðið um 650
þúsund krónur hefði það hótel orð-
ið fyrir valinu. Slíkt kom þó aldrei
til greina þar sem ákveðnar reglur
gilda um það hvað uppihald ríkis-
starfsmanna á ferðum erlendis má
kosta.
Hverju herbergi á þessu hóteli,
sem Eyjólfur kýs að kalla „gisti-
heimili" fylgdi sérbað, sími og sjón-
varp. Auk þess var á hótelinu veit-
ingastaður, setustofa og bar með
lifandi tónlist. Þeir sem þekkja til
hótela geta sjálflr metið hvort gisti-
heimili er réttnefni fyrir þess hátt-
ar hótel.
Það er hins vegar rétt að hótelið
var ahlangt frá Cinecitta þar sem
keppnin fór fram. Keppendum var
hins vegar ekið til og frá hótelinu
þegar þeir þurftu að mæta á æfing-
ar og oft í lögreglufylgd til að flýta
förinni.
Til gamans má geta þess að ekki
virðist nein fylgni milh þess á
hvaða hóteli þátttakendur bjuggu
og í hvaða sæti þeir lentu síðan í
keppninni. U.þ.b. helmingur þeirra
þjóða, sem voru ofan við miðju, bjó
á öðru hóteh en Sheratonhótehnu.
Blaðamannafundir og
metnaður Sjónvarpsins
Eyjólfi verður tíðrætt um hversu
lítið Sjónvarpið hafi gert til að
vekja athygh á flytjendunum og
hafi haft lítinn metnað fyrir þeirra
hönd. Forsvarsmenn Sjónvarpsins
bjóða blaðamenn velkomna á þá
blaðamannafundi sem forsvars-
menn hverrar keppni ákveða að
halda hveiju sinni. Það er hins
vegar keppendanna sjálfra að
reyna að ná augum og eyrum
blaðamanna, ef þeir á annað borð
kjósa að vekja á sér athygli. Stjórn-
in haföi í fyrra sérstakan upplýs-
ingafulltrúa, sem var talsmaður
hennar, og greiddi ferðakostnað
hans.
Eyjólfur fer lofsamlegum orðum
um Jupiter Reckords sem hélt sér-
stakan blaðamannafund á Shera-
tonhótehnu og er ekkert nema gott
um það að segja. Platan og upplýs-
ingaefni um Nínu barst hins vegar
ekki til blaðamanna fyrr en á
fimmtudegi áður en keppnin var
haldin, sem að mínu mati var alltof
seint.
Metnaður Sjónvarpsins felst fyrst
og fremst í því að keppendur komi
vel út í sjónvarpinu, þ.e. að mynd,
söngur og undirleikur skih sér á
sem bestan hátt til áhorfenda. Þetta
eru þau atriði sem dómnefndir
leggja til grundvallar þegar lag er
metiö.
Sjónvarpið er ekki hafið yfir
gagnrýni og mun taka ljúfmann-
lega við skýrslu þeirri sem E.K.
hefur tilkynnt að hann muni koma
með um ferðina til Rómar. Gagn-
rýni verður hins vegar að byggjast
á réttum forsendum og mikilvægt
að hún sé sett fram á málefnanleg-
an hátt. Ég harma þau ummæli sem
höfö eru eftir Eyjólfi um ítalska
keppandann og vona að þau séu
ekki rétt eftir honum höfð.
Ég vh að lokum nota tækifærið
og þakka samferðamönnum mín-
um fyrir dvölina í Róm. Þeir Stefán
og Eyfi sýndu sínar bestu hliðar á
úrshtastundinni. Það skiptir öllu
máh að vita að maður hafi gert sitt
besta. Þegar allt kemur til alls
mega íslendingar vel við una með
þennan næstbesta árangur sinn í
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva
Evrópu þó vissulega hefði verið
gaman ef Nína heföi fengið fleiri
stig.
Sigmundur Örn Arngrímsson
í ár greiddi Sjónvarpið Eyjólfi Kristj-
ánssyni 400 þúsund krónur í þessu
skyni, auk þeirra 200 þúsund króna
sem hann fékk greiddar sem verð-
launafé.
Nýr umboðsmaður
HÚSAVÍK
Þórunn Kristjánsdóttir
Brunnagerði 11 S. 41620
........... . . 11. maí 1991
Vinningstolur laugardaginn
22) 0íf
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
"1 . 5 af 5 0 2.573.704
o Z. 4 af 2 223.348
3. 4af5 115 6.700
4. 3af5 3.382 531
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.586.742 kr.
I Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út
á Lottó sölustöðum.
• 190/40 stafir á sekúndu
• Fullkomin pappírsfærsla
og þræðing
19.500.-
m/vsk./stgr.
HÉÍSNIi AUGLVSINCASTOFA