Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1991, Page 32
E T X /V S
p
OTI
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Bitstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími
Frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991.
Þjóðverjinn leiddur í lögreglubil á
föstudagskvöld. DV-mynd S
í haldi vegna
hasssmygls
Lést eftir aðgerð
á Borgarspítala
Viðræðum
haldið áfram
Viöræðum ráöherra og aðila
vinnumarkaöarins var haldið áfram
í gær. Þá komu fulltrúar vinnuveit-
enda, BHMR og Kennarasambands-
ins til fundar við ráðherrana. Þar'
kynntu ráðherrarnir stööu ríkisfjár-
mála og hlustuðu á mál viðmælenda.
Andstaða viö vaxtahækkanir hefur
komið fram hjá þessum aðilum.
Frekari viðræður þessara aðila eru
fyrirhugaðar þegar kemur til
ákvarðanatöku í ríkisfjármálum.
-S.dór
LOKI
Væri ekki einfaldast
fyrir Davíð að
kasta uppteningi?
Þýskur maður og spænsk kona
hafa verið úrskurðuð í gæsluvarð-
' hald vegna gruns um innflutning og
sölu á 1600 grömmum af hassi. Parið
kom til landsins á fimmtudagskvöld
en var handtekið sólarhring síðar.
Hassið fannst í íbúð þar sem parið
dvaldi. Gæsluvarðhald yfir mannin-
um og konunni er til 24. maí. ^
35 ára gamall maður lést eftir að-
gerð á Borgarspítalanum 11. maí síð-
astliðinn. Aðgerðin, sem er frekar
algeng, er svokölluð kæflsvefnsað-
gerð. Þá er gerð aðgerð í hálsi og fór
maðurinn í hana 6. maí en komst
ekki aftur til meðvitundar. Yfirlækn-
ar á Borgarspítalanum hafa vísað
málinu til Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins.
Sigurbjörn Víðir Eggertsson hjá
RLR segir að rannsókn standi yfir
en ekkert sé hægt að segja um orsök
fyrr en réttarkrufning fer fram, en
hún á að fara fram í dag.
„Við þurfum að fá sérfræðiálit á
þessu og þegar við fáum niðurstöður
úr krufningu skoðum við þetta aftur.
Svona aðgerð hefur ekki þótt hættu-
leg til þessa þannig að við verðum
að komast að því hvað þarna hefur
gerst,“ segir Sigurbjörn Víðir. -ns
Aukin harka í slag borgarfulltrúa:
Jarn i jarn milli
Arna og Vilhjálms
um borgarstjórann
Aukin harka hefur færst í slag-
inn um borgarstjórastólinn meðal
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins. Spurst hefur að Davíð Oddsson
hafi á fundum með nokkrum borg-
arfulltrúum gefið upp að hann
hygðist benda á Árna Sigfússon
sem eftirmann sinn á fundi borgar-
stjórnarflokksins sem haldinn
verður á morgun. Heimildir DV
herma að Davíð hafi í samtölum
sínum við eínstaka borgarfulltrúa
beitt sér af fullum þunga til að
tryggja Árna meirihlutastuðning.
Innan borgarstjórnarflokksins
heyrast nú þær raddir að með þvi
að taka afstöðu hafi Davíð brugðist
trausti borgarfulltrúa sem sátta-
semjari i þeim átökum sem nú eiga
sér stað um stól borgarstjóra. Sam-
kvæmt heimildum DV ríkir mikil
gremja meðal margra þeirra vegna
þessa máls. Meöal sumra er nú tal-
að um að mæta verði örvæntingar-
fullum tilraunum Daviös til að
tryggja Árna borgarstjóraembætt-
ið af fullri hörku.
„Með þessu getur Davíð ekki
lengur talist hlutlaus. Því er óeðli-
legt að hann leggi fram ákveðna
tillögu á fundinum annað kvöld,“
sagðí borgarfulltrúi við DV.
Af samtölum DV við borgarfull-
trúa að dæma er staðan nú járn í
járn þar sem Árni og Vilhjálmur
bítastum borgarstjórastólhm. Mið-
að við þá í borgarstjórnarflokkn-
um, 20 manns, sem hafa látið uppi
hvom þeir velja hefur hvorugur
hreinan meirihluta. Eins og staðan
var í morgun höfðu þrír borgarfull-
tráur ekki gefið upp hvorn þeir
velja en munu engu að síður vera
ákveönir. Er eins atkvæðis munur
á Árna og Vilhjálmi, 8-7 Árna í hag.
„Þar sem hvorugur hefur hrein-
an meirihluta er ekki útilokað að
borin verði upp tillaga um Magnús
L, Sveinsson sem málamiðlun eða
utanaðkomandi aðila. Það gæti allt
eins orðið niðurstaðan. Ef Davíð
gerir tillögu um annaðhvort Árna
eða Vilhjáhn verður örugglega at-
kvæðagreiðsla," sagði annar borg-
arfulltrúi við DV í morgun.
hlh/kaa
Veðrið á morgun:
Stmnings-
kaldi
suðvestan-
lands
Á morgun verður suðvestanátt,
stinningskaldi suðvestanlands en
hægari norðaustanlands. Rigning
og súld, einkum sunnanlands og
vestan. Hiti 5-10 stig.
Björgunarafrek 1 nótt:
Voru hálftíma
íjökulköldum
sjónum
Mann tók út af fiskiskipinu Sjávar-
borg GK 60 þar sem það var að veið-
um á Dohrnbanka, miili islands og
Grænlands, um miðnætti í nótt. Mað-
urinn var ekki í flotgalla en félagi
hans, sem klæddur var slíkum, galla
kastaði sér nær samstundis á eftir
honum. Náði sá að halda honum á
íloti í ísköldum sjónum sem var núll
gráðu heitur. Sæmilegt veður var á
staðnum í gærkvöldi, austangola, en
erfiðlega gekk að ná mönnunum um
borð. Liðu heilar 27 mínútur þar til
mennirnir náðust loks upp úr jök-
ulköldum sjónum. Mun því undrun
sæta að maðurinn sem féll útbyrðis
hafi haldið lífi.
Haft var samband við Landhelgis-
gæsluna vegna slyssins um eittleytið
í nótt. Eftir samráð við þyrlulækni
var ákveðið að sækja manninn. Sjáv-
arborg sigldi á móti þyrlunni og en
þyrlan kom með manninn að Borgar-
spítalanum klukkan 6.21 í morgun.
Líðan mannsins mun vera eftir at-
vikum. a. -hlh
Jóhann héltsínum
hlutgegnSalov
Jóhann Hjartarson hélt vel sínum
hlut á svart gegn Salov í lokaum-
ferðinni á minningarmótinu um dr.
Euwe í Amsterdam í gær. Jafntefli
varð eftir 40 leiki og Salov deildi því
efsta sætinu með Short, sem gerði
jafntefli við Karpov. Báðir hlutu 6
v. Jóhann varð í 6.-7. sæti 10 kepp-
enda með 4 v. ásamt Timman eftir
slæma byrjun, þar sem hann tapaði
fyrir Short og Timman í fyrstu um-
ferðunum. Hann gerði jafntefli við
alla aðra keppendur nema
Ljubojevic, sem hann vann. í 3.-4.
sæti urðu Karpov og Kasparov með
5 % v. Þetta er í annað sinn á stuttum
tíma, sem heimsmeistarinn Ka-
sparov er ekki efstur á skákmóti eft-
ir að hafa sigrað á öllum mótum sem
hann hefur teflt á í tíu ár. -hsím
Spariskírteinl:
Markaður vill 8,15%
Er þetta rétt þýðing eða röng? gæti þessi menntaskólanemandi verið að hugsa en þessa dagana eru próf i
menntaskólum í fullum gangi og valda sem fyrr heilabrotum og kvíða hjá nemendum. En feginleikinn er einnig
mikill þegar prófum lýkur og götur fyllast þá af glöðum nemendum. Mynd þessi er tekin i þýskuprófi í Mennta-
skólanum i Hamrahlíð og sýnir tvo nemendur þungt hugsi. DV-mynd Brynjar Gauli
Ávöxtunarkrafan á spariskírtein-
um ríkissjóðs á Veröbréfaþingi ís-
lands hækkaöi í gær úr 7,85 upp í
8,15 prósent á spariskírteinum út-
gefnum frá 1987 til 1990 og einnig frá
1975 til 1984.
Ávöxtunarkrafa á spariskírteinum
útgefnum á árunum 1984 til 1987
hækkaði úr 8,05 upp í 8,35 prósent.
Þá hækkaði ávöxtunarkrafa á hús-
bréfum á Verðbréfaþingi íslands í
gærúr 8,40 uppí 8,50 prósent. -JGH
NEYDARHNAPPUR
FRA VARA
fyrir heimabúandi sjúklinga
I
og aldraða
@ 91-29399
IUÆW Alhliða
öryggisþjónusla
síðan 1969
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
5
TVOFALDUR1. vinningur