Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991. Útlönd______________________________ Ný stjóm í Frakklandi: Minni breytingar en búist var við Hinn nýi forsætisráðherra Frakk- lands, Edith Cresson, kynnti ráð- herralista sinn í gærkvöldi. Af tutt- ugu og níu ráðherrum eru aðeins fimm nýir og kom það á óvart. Fimm konur sitja í stjórninni. Ný kona í stjórninni er Martine Aubry sem er dóttir Jacques Delors, formanns framkvæmdanefndar Evr- ópubandlagsins. Mun hún gegna embætti vinnumálaráðherra. Risaráðuneyti Stjómin er ekki jafnvinstrilituð og búist var við. Pierre Beregovoy verð- ur áfram fjármálaráðherra en verk- svið hans verður útvíkkaö, að því er Cresson sagði um leið og hún kynnti ráðherralistann. Beregovoy verður ráðherra nokkurs konar risaráðu- neytis og falla undir það íjármál, fjár- lög, iönaður og utanríkisverslun. Þessi breyting er liður í undirbún- ingnum að innri markaði Evrópu-. bandalagsins sem verður að veru- leika 1993. Jafnvægi nauðsynlegt í fyrsta sjónvarpsviðtali sínu í gær lýsti Cresson því yfir að jafnaðar- stefnan væri ágæt formúla en aðlaga þyrfti hana núverandi aöstæöum. Hún lagði á það áherslu að styrkja þyrfti iðnað Frakklands og Evrópu. Samvinna við Japani væri ágæt en Japanir mættu ekki sækja kunnáttu til Evrópu án þess að láta eitthvað af hendi. Japanir hefðu skapað iðnað sinn með því að loka aðra úti og stefna þeirra heföi verið að ná yfirr- áðum á heimsmarkaðnum. Evrópu- bandalagið hefði enga slíka vernd- arstefnu. Cresson, sem er fyrrum Evrópu- málaráðherra, lýsti því yfir að skapa Reyndur stjórnmálamaður Cresson er enginn nýgræðingur í stjórnmálum. Hún hefur reynslu af því að reyna að láta í sér heyra í hópi karla. Hún sagði af sér embætti Evrópumálaráðherra í fyrra vegna ágreinings við Rocard. „Það tekur tvisvar sinnum lengri tíma fyrir mig en karlráðherra að fá áheyrn hjá for- sætisráðherranum,“ sagði hún þá. Áður hafði hún verið iðnaðarráð- herra, utanríkisviðskiptaráðherra og landbúnaðarráðherra. Franskir bændur reyndu ekki einu sinni að leyna hlátri sínum þegar hún var skipuð landbúnaðarráðherra. En Edith Cresson hló ekki og þegar hún var útnefnd ráðherra utanríkisvið- Bragð hjá Mitterrand Franska dagblaöið Le Monde skrif- ar að með því aö útnefna Cresson í embætti forsætisráðherra hafi Mit- terrand Frakklandsforseti verið að tryggja að hann gæti haft áhrif á val eftirmanns síns í forsetastól. Með þessu hefði hann verið að draga úr vonum Rocards, fyrrum forsætisráð- herra, um að geta orðiö næsti forseti Frakklands. Mitterrand, sem verður nær 79 ára þegar kjörtímabil hans rennur út 1995, er talinn vilja fá Laurent Fabius í forsetaembættið. Fabius var forsætisráðherra Mitter- rands á árunum 1984 til 1986. Reuter,TT A sömu stólum Roland Dumas verður áfram utan- ríkisráðherra og ekki er því búist við kúvendingu í utanríkismálum. Varn- armálaráðherrann Pierre Joxe og innanríkismálaráðherrann Philippe Marchand halda embættum sínum sem og Henri Nallet dómsmálaráð- herra og Lionel Jospin menntamála- ráðherra. Jack Lang menningar- málaráðherra fékk ekki nýjan ráð- herrastól þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir í þá átt. Edith Cresson gekk illa að koma saman ráðherralistanum og lauk ekki verkinu fyrr en hðið var á kvöldið. Ráðuneytisstjórar verða út- nefndir í dag. Franska dagblaðið Le Monde skrifar að með því að skipta um forsætisráð- herra hafi Mitterrand Frakklandsforseti verið að reyna að koma í veg fyrir að Rocard verði næsti forseti Frakklands. Rocard, sem lét af embætti forsæt- isráðherra í fyrradag, brosir hér til fréttamanna ásamt Edith Cresson, hinum nýja forsætisráðherra Frakklands. Símamynd Reuter þyrfti jafnvægi innan Evrópubanda- lagsins. Frakkland þyrfti að verða jafn sterkt og Þýskaland. skipta söknuðu bændur hennar. Hún hafði verið einn besti ráðherra sem þeir höfðu haft. Lausn stjórnmálakreppunnar í J úgóslavíu í sjónmáli Forsætisráð Júgóslavíu kemur aft- ur saman til fundar síðdegis í dag, að því er hin opinbera fréttastofa Tanjug tilkynnti í gærkvöldi. Svo virtist sem lausn á stjórn- málakreppunni væri í sjónmáli í gær þegar júgóslavneska þingið sam- þykkti þrjá fulltrúa í forsætisráðinu, frá Svartfjallalandi, Vojvodina og Kosovo. Samkvæmt stjómarskránni verða fulltrúar í forsætisráðinu að hljóta samþykki þingsins. Ástæðan fyrir því að fulltrúi Kosovo var ekki samþykktur var sú að hann var ekki þjóðkjörinn. Þegar hann var kynntur fyrir þinginu ásamt hinum tveimur neitaði þingið aö samþykkja aUa þrjá. Það var til að mótmæla þessu sem fulltrúi Svartfjallalands í forsætis- ráðinu, Branco Kostic, greiddi ekki atkvæði á miðvikudaginn þegar ráð- ið átti aö kjósa nýjan forseta fyrir júgóslavneska ríkjasambandið. Það leiddi til þess að Króatanum Mesic var hafnað. Eins árs kjörtímabil Ser- bans Jovics rann þá út og var röðin komin aö Mesic. Hann bindur nú vonir sínar við atkvæði Kostics. Reuter Verkfallinu í Færeyjum lokið Vinnudeilunni í Færeyjum er lok- ið. Seint í gærkvöldi samþykktu sam- tök atvinnurekenda og ófaglæröra hækkun launa um 64 danska aura á tímann. Upprunaleg krafa verka- lýðssamtakanna var 2,50 til viöbótar á tímann. Atvinnurekendur kröfðust hins vegar samsvarandi launalækk- unar. Hið nýja samkomulag gildir í eitt ár. VerkfalUð í Færeyjum hafði staðið í nær viku og var farið að gæta vöru- skorts í verslunum. Bensín var einn- ig gengið til þurrðar og dagvistunar- stofnunum var lokað. Bátar voru farnir að landa afla erlendis og póst- samgöngur milli Færeyja og útlanda lágu niðri. Rítzau Fyrrum forsætlsráðherra Bretlartds, Margaret Thatcher, ásamt Pik Bot- ha, utanríkisráðherra Suður-Afríku. Thatcher kom til Suður-Afríku á miðvikudaginn og hyggst dvelja þar i viku í boði de Klerk forseta. Simnmynd Reulcr Nokkur hundruð mótmælendur gengu um Höfðaborg i Suðm’-Afríku í gær og kröfðust lausnar pólitískra fanga. Mótmælendurnir lýstu einnig yfir andúð sinni á heimsókn Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bret- lands, til landsins. um sem miða aö því að þvinga suður-afrísk yfirvöld til að binda enda á aöskilnaðarstefnuna. Þjóf ur kafnar á flótta Tæplega sextugur spánskur þjófur kafnaði í gær eftir að hafa gleypt fölsku tennurnar sínar á flótta undan konu sem hann rændi. Forsaga málsins er sú að maðurinn komst inn á heimili gamallar konu á þeim forsendum að hann gerði við saumavélar, en notaði þá tækifærið og rændi hana £«gar inn var komið. Að því búnu lagði hann á flótta, en hið óvænta gerðist aö gamla konan elti hann. Á ílóttanum gleypti þjófur- inn fólsku tennumar sínar og þrátt fyrir ítrekaöar tilraunir vegfaranda tii að losa þær úr kokinu á honum kom allt fyrir ekld, hann kafnaði áður en hann komst á spítala. Reuter Bresk kona í sovéskt geimffar Bresk kona mun verða farþegi í sovésku geimfari sem skotið verð- ur á loft á morgun. Konan, Helen Sharman, sem er efnafræöingur, hefur verið í þjálfun í tvö ár i geim- vísindastöð nálægt Moskvu. Tveir sovéskir geimfarar halda út í geiminn um borð í Soyus TM- 12 ásamt Sharman til Mir-stöðvar- innar sem er á braut umhverfis jöröu. Sharman mun dvelja átta daga í Mir-stöðinni en sovésku geimfararnir verða eftir þar sem þeir eiga að taka við af annarri áhöfn sem dvalið hefur fimm mán- uði úti í geimnum. Sovétmenn reyna nú aö auka áhugann á geimferðaáætlunum sínum með því að bjóða útlending- um far gegn milljóna dollara greiðslu. Sovéska geimfarið Soyuz TM-12. Símamynd Reuter Andvígir verkamannafflokki Þrír stærstu flokkarnir á Grænlandi eru mótfallnir myndun verka- mannaflokks. Formaður Siumutsílokksins, Lars Emil Johansen, sem einnig er formaöur landsstjómarinnar, segir að verkalýðssamtökin SIK ættu heldur að einbeita sér að því aö efla starfsemi sína en að stofna flokk. Leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins Atassut, Konrad Steenholdt, er þeirrar skoðunar að lausnin fyrir félaga í verkalýðssamtökunum sé að styðja flokk sem vinnur fyrir alla þjóðina. Þess vegna eigi samtökin að styðja Atassutflokkinn sem lagt hefur fram tillögu um skattalækkanir fyrir hina lægst launuöu. Fella niður matvælaskatt Boris Jeltsin, forseti Rússfands. Simamynd Reuter Stjórn Rússlands hefur fellt niður fimm prósenta skatt af næstum öllum matvælum aö því er forseti rússneska þingsins, Boris Jeltsin, til- kynnti í gær. Skatturinn var lagður á 1. janúar síðastliðinn samkvæmt að hann „forsetaskattiim". Ein af kröfum námuverkamanna, sem voru í verkfalli, var að skattur- inn á öllum lífsnauðsynjum yrði felldur liiður. Stjóm Rússlands hefur ákveðiö aö skatturinn verði áfram á áfengi, tó- baki, kaffi og súkkulaði. Mörg önnur Sovétlýðveldi hafa þegar fellt niður fimm prósenta skattinn á helstu matvælum. Reuter, Rítzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.