Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Side 11
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991. 11 Utlönd Nauðungaruppboð Nauðungaruppboð í Barðastrandarsýslu 21. maí 1991 Svo virðist sem tilraunir James Bakers til að fá ísrael og araba til að sitja friðarráðstefnu hafi mistekist. Friðartilraunir Bakers árangurslausar: Við eigum Jerúsalem! - segir forsætisráðherra ísraels AUt bendir til þess að tilraunir James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til þess að fá ísraela og araba til þess að hefja friðarvið- ræður hafi mistekist. Baker hélt áleiðis til Washington í gær eftir að hafa rætt við Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, og engar formlegar yfirlýsingar hafa verið gefnar um árangur viðræðn- anna sem talið er benda til þess að þær hafi engan árangur borið. „Ég hef ekki orðiö fyrir vonbrigð- um en enn er þó eftir að leysa tvö mikilvæg ágreiningsmál, þ.e. hvort Sameinuðu þjóðirnar taki þátt í fyr- irhuguðum friðarviðræðum og hvort viðræður fari fram einu sinni eöa reglulega,“ sagði Baker er hann hélt áleiðis heim á leið. Shamir virtist vera honum sam- mála og fullyrti að Baker hefði feng- ið Israela til að samþykkja fjölmörg atriði en neitaöi hins vegar að til- greina það nánar. „Viöræðurnar mistókust ekki, samkomulag hefur náðst um fjöl- mörg atriði sem enn er ekki hægt að ræða um í fjölmiðlum." ísraelar hafa neitað að tala við leið- toga Frelsissamtaka Palestínu, PLO, á þeim forsendum að þau séu hryðju- verkasamtök og þeir vilja heldur ekki ræða við Palestínumenn frá austurhluta Jerúsalem sem þeir hertóku árið 1967. Palestínumenn vilja að austurhluti Jerúsalem verði í framtíðinni höfuð- borg Palestínu en ísraelsmenn líta á borgina sem sinn höfuðstað. Þeir vilja því ekki gefa í skyn að hægt sé að semja um Jerúsalem með því að samþykkja að tala við palestínu- menn frá austurhluta borgarinnar. „Það verður að vera alveg á hreinu að það er ekki með í myndinni að semja um Jerúsalem, við eigum Jerúsalem," sagði Shamir. Aðspurður hvort ísraelar muni samþykkja þátttöku Sýrlendinga í friðarviðræðunum fullyrti Shamir að enn hefði enginn verið útilokaður. Sýrlendingar hafa staðið á því fastar en fótunum að Sameinuðu þjóðirnar eigi að taka þátt í fyrir- huguðum friðarviðræðum en ísrael- ar telja þær vera hlutdrægar og vinna gegn ísrael. ísraelar vilja ennfremur að ráð- stefnan verði einungis haldin einu sinni og að strax eftir að hún er sett verði haflst handa við að semja um deiluatriðin. Þeir óttast að allt annað form gæti hugsanlega snúist upp í allsheriardómstól gegn ísrael. Reuter Þýski seðlabankastjórinn segir af sér: Engra breytinga að vænta Þýski seðlabankastjórinn Karl Otto Pöhl tilkynnti í gær að hann ætlaði að segja af sér embætti til að geta helgað fjölskyldu sinni meiri tima. Hann neitaði því ein- dregið að ástæðan væri ágreining- ur við þýsk stjórnvöld. Afsögn hans tekur gildi í lok október. Pöhl, sem verið hefur seðla- bankastjóri síðan árið 1980, hefði að öllu óbreyttu átt að gegna emb- ættinu í fjögur ár til viöbótar eða þar til seinna tímabili hans lyki. í marsmánuði lýsti Pöhl þvi yfir að framkvæmd efnahagssamruna Þýskalands á síðasta ári hefði verið fáránleg og hann hefur viðurkennt að hann hafi ekki alltaf verið sam- mála efnahagsstefnu ríkisstjómar- innar. Þar af leiðandi settu menn afsögn hans í samband við þá óánægju og töldu hann vera að mótmæla fram- kvæmd ríkisstjórnar Helmuts Kohl. Pöhl fullyrðir hins vegar að svo sé ekki. „Ég er ekki að segja af mér til að mótmæla einu eða neinu, þessi ákvörðun er hluti af langtímaáætl- un um hvemig ég vilji haga lífi mínu,“ sagði þessi 61 árs gamh áhrifamaður. „Þið verðið að skilja það að eftir að hafa starfað hjá hinu opinbera í meira en 21 ár vil ég helga fjöl- skyldu minni og áhugamálum meiri tíma en mögulegt hefur veriö fram að þessu.“ Eftirmaður Pöhls verður líklega tilnefndur á næstu tveimur vikum. Sérfræðingar telja að afsögn hans komi ekki til með aö hafa miklar breytingar í fór með sér þar sem efnahagsstefna landsins hefur ver- ið mjög stöðug í gegnum árin og skapað sér virðingu út á við og því borgi sig ekki að breyta miklu. Reuter Karl Otto Pöhl, þýski seðlabanka- stjórinn, sagði af sér i gær til að geta helgað fjölskyldu sinni meiri tíma. Annað og síðara nauðungaruppboð á fasteigninni Lækjarbakki, Tálkna- firði, þingl. eign Herberts Guðbrandssonar, fer fram eftir kröfu íslandsbanka h/f þriðjudaginn 21. maí 1991, kl. 10.00, á skrifstofu embættisins, Aðal- stræti 92, Patreksfirði. Annað og síðara nauðungaruppboð á frysti- og vinnsluhúsi ásamt vélum og tækjum, þingl. eign Flóka h/f, fer fram eftir kröfu Fiskveiðasjóðs íslands og Búnaðarbanka íslands þriðjudaginn 21. maí 1991, kl. 18.30, á skrif- stofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði. SÝSLUMAÐURINN í BARÐASTRANDARSÝSLU J vV Veitingastaður ^ í miðbæ Kópavogs 3------------rrV. ---- -D -1 w Tilboð vikunmr Sérríbœtt rjómasveppasúpa og grillaðar lambakótilettur með bakaðri kartöflu og grcenmeti. Kr. 1.390 Einar Logi við píanóið. Opið um hvítasunnuna. Veisluþjónusta Hamraborg 11 - sími 42166 1 zé SMC. TOPP ▼ GÆÐI SLÁTTUORF - HEKKKLIPPUR Garösnyrtitæki frá Skil eru byggö samkvæmt ströngustu öryggis- og neytendakröfum, viöurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins. SPÁÐU í VERÐIÐ!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.