Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991.
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991.
íþróttir
íþróttir
stúfar
Aðalfundur Fram verður hald-
inn þriðjudaginn 28. maí kl. 20 í
félagsheimili Fram.
Fatiaðir á Norðuriandamót
í sundi um helgina
Norðurlandamót fatl-
aðra í sundi fer fram í
Stavanger í Noregi um
helgina. Eftirtaldir
keppendur hafa verið valdir til
þátttöku fyrir islands hönd: Guö-
rún Ólafsdóttir, Ösp, Bára Erl-
ingsdóttir, Ösp, Sigrún H. Hrafhs-
dóttir, Ösp, Rut Sverrisdóttir,
Óðni, Lilja Snorradóttir, SH,
Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR,
Jón H. Jónsson, ÍFR, Svanur Ing-
varsson, Suðra, Ölafur Eiríksson,
ÍFR, Haildór Guðrbergsson, ÍFR,
Gunnar Þór Gunnarsson, Suöra,
og Birkir Gunnarsson, ÍFR.
Körfuboltaskóli
Péturs ogUBK
TTJ Körfuboltaskóli Péturs
Guðmundssonar og
/r Breiðabiiks verður í
..... íþróttahúsinu í Digra-
nesi í Kópavogi 11.-15. júní. Skól-
inn er fyrir drengi og stúlkur alls
staöar af landinu. í skólanum
verða fjölbreyttar æfingar og
keppni á hveijum dégi og verða
vegleg verðlaun veitt og þá fá all-
ir körfuboltaboli og fleira. Nánari
upplýsingar og skráning er í síma
91- 27053 fyrir 1. júní.
Búlgarskur þjálfari til
Skylmingafélags Reykjav.
Skylmingafélag Reykjavíkur hef-
ur fengiö búlgarskan þjálfara til
liðs við sig sem mun leiðbeina
skylmingamönnura hjá félaginu.
Búlgarinn hefur unnið til verð-
launa á heimsmeistaramóti og
ætti hann því að geta kennt
skylmingamönnunum til verka.
Dunlopmótið í golfi
Opna Ilunlopmótið í
golfi verður haldið á
Hólmsvelli í Leiru um
næstu helgi. Þetta er
36 holu keppni og er stigamót til
landshðs. Glæsileg verðlaun eru
í boði, þar á meðal golfsett, og er
skráning í golfskálanum síma
92- 14100.
KR vann í 7. tilraun
Mistök urðu í þriðju-
dagsblaðinu þegar sagt
var frá því að KR-ingar
hefðu ekki unnið Víði
í síðustu 7 leikj um liöanna í deild-
ar- eða bikarkeppni. Hið rétta er
að KR hafði ekki unnið í síðustu
6 leikjum því vesturbæjarliðið
sigraði Víöi í fyrsta leik liðanna
í 1. deild árið 1985 í Garöinum.
Pepsímót Víkings
Pepsímót í knattspymu í 7. ald-
ursflokki fer fram á vegum knatt-
spymudeildar Víkings á gamla
Víkingsvellinum við Hæðargarð
á laugadaginn og hefst mótiö
klúkkan 9. Þar keppa 10 félög og
alls 20 lið í A og B-liðum. Á með-
an mótið stendur yflr veröur veit-
ingasala í Breiðagerðisskóla.
Barceiona Spánarmeistari
í handknattleik
'S'".Barcelona tryggði sér í
jr“ fyrrakvöld Spánar-
// meistaratitilinn í
———* handknattleik þegar
hðiö vann sigur á Kristjáni Ara-
syni og félögum hans 1 Teka,
19-18. Kristján skoraði 2 afmörk-
um Teka en hjá Börsungum var
Júgóslavinn Portner markahæst-
ur með 8 mörk. Hart er barist um
annað sætið þegar tveimur um-
ferðum er ólokið. íslendingaliðin
þrjú eru í baráttunni Teka er
með 22 stig en Bidasoa og Atletico
Madrid em með 21 stig.
Maður var í stór-
hættu í hringnum
- sagöi Eggert Bogason sem vann gullverðlaun í kringlukasti
Stefin Kristjánsson, DV, Andorra:
„Það er óviðunandi að bjóöa upp á
svona aðstæður í þessari keppni.
Maður var hreinlega í stórhættu í
kasthringnum sem var eins og svell,“
sagöi Eggert Bogason en hann vann
í gær guhverðlaun í kringlukasti
karla og Pétur Guðmundsson vann
til bronsverðlauna. Eggert kastaði
54,16 metra og Pétur 48,92 metra. ís-
lendingar unnu til tvennra gullverð-
launa í gær og var árangur frekar
slakur.
Eggert sagði í samtali við DV að
það hefði verið leiðinlegt að geta ekki
kastað lengra því hann væri í sinni
bestu æfingu: „Ég hef aldrei verið
sterkari og aldrei haft eins gott vald
á tækninni. Ég hef verið að kasta
mjög langt á æfingum undanfarið og
því var mjög svekkjandi að kast-
hringurinn var glerháll,“ sagði Egg-
ert ennfremur.
Marta Ernstdóttir vann mikinn yf-
irburðasigur í 3000 metra hlaupinu
og kom í mark rúmlega 100 metmm
á undan öðrum keppendum á 9:41,93
mín. „Þetta var mjög erfitt hlaup og
það vissi ég fyrir enda er loftið hér
mjög þunnt,“ sagði Marta eftir
hlaupið.
Báðir langstökkvararnir
meiddust í keppni
íslendingar riðu ekki feitum hesti frá
keppninni í langstökki karla. Ólafur
Sigurgegn
Mónakó
Stefin Kristjánsson, DV, Andorra:
íslenska karlalandshðið í körfu-
knattleik á góöa möguleika á að leika
til úrslita á smáþjóðaleikunum hér í
Andorra. Liðiö varö efst i sínum riðli
og leikur næst gegn Möltu. Vinnist
sigur í þeim leik mun íslenska liðið
leika til úrslita gegn Kýpur eða Lúx-
emborg.
í gær lék ísland gegn Mónakó og
vann íslenska liðið, 101-91. Staðan í
leikhléi var 54-50, íslandi í vil. Teitur
Örlygsson var atkvæöamestur í ís-
lenska liðinu en Guðmundur Braga-
son átti einnig ágætan leik.
Stig íslands: Teitur Örlygsson 21,
Guömundur Bragason 20, Jón Kr.
Gíslason 16, Valur Ingimundarson 13,
Falur Haröarsson 10, Sigurður Ingi-
mundarson 8, Albert Oskarsson 4,
Guðni Guðnason 3 og Axel Nikulásson
2.
• Eggert Bogason sigraði í kringlukasti í gær og kastaði hann 54,16 metra.
Aðstæður í kasthringnum voru ekki upp á það besta að sögn Eggerts.
Guðmundsson varð í 5. sæti með 6,76
metra og Jón Oddsson varð í 8. sæti
með 6,59 metra. Báðir meiddust þeir
í keppninni, gömul meiðsh tóku sig
upp í baki hjá Jóni og Ólafur meidd-
ist á fæti.
íslendingar áttu tvo menn í úrslit-
um í 400 m hlaupi karla. Hvorugur
þeirra komst á verðlaunapall. Egill
Eiðsson varð í 4. sæti á 21,72 sek. og
Gunnar í 5. sæti á 21,74 sek. Mikill
meðvindur var í hlaupinu, 5,5.
Olympíuleikar smáþjóða
Skipting
VERÐLAUNA
iORRAjV99‘'
Island
Malta
Kýpur
Lúxemborg
Liechtenstein
Mónakó
San Marino
Andorra
Samskiptasamningur íslendinga og Eystrasaltsríkjanna
• Samstartssamningur milli íslands og Eystrasaltsríkjanna var undirritaður á dögunum. Samningur þessi er á
sviði iþrótta og hefur hann i för með sér að ríkin þrjú við Eystrasalt og ísland eru tilbúin að efla samskipti sín á milli
í íþróttamálum. Á myndinni eru, standandi frá vinstri: Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri ÍSÍ, Edda Jónsdótt-
ir, fulltrúi skrifstofu ÍSÍ, Hannes Þ. Sigurðsson, stjórnarmaður hjá ÍSÍ, og Vaidotas Verba sem sér um alþjóöasam-
bönd hjá Litháen. Sitjandi eru frá vinstri: Sveinn Björnsson, formaður ÍSÍ, og Algirdas Rasjlanas sem sér um
stjórn íþróttamála hjá menntamálaráðuneyti Litháens.
Stúfar
frá
Andovra
Stefin Kristjánsson, DV, Andorra:
Það er mikil aldurs-
munur á yngsta og
elsta keppandanum
hér á ólympíuleikum
smáþjóða. Yngsti keppandinn er
sundkona frá Mónakó en hún er
aðeins 12 ára. íslendingar eiga
hins vegar elsta keppandann en
það er skotmaðurinn Carl J. Ei-
ríksson sem er 61 árs.
Mikill áhugi fjölmiðla
á smáþjóðaleikunum
Greinilega er mjög mikill áhugi
hjá fjölmiðlum á smáþjóðaleik-
unum að þessu sinni. Alls eru hér
320 fréttamenn frá 13 löndum
þannig að fleiri en keppnisþjóðir
hafa áhuga á því sem hér er að
gerast. Hér eru alls 85 blaða-
menn, 52 ljósmyndarar, 17 frá
útvarpi og 166 frá sjónvarpi.
Leikur Jón Kr. 100.
landsleikinn í Andorra?
'TT'Uj Jón Kr. Gíslason, fyrir-
jÍV liði karlalandshðsins í
/7 körfuknattleik, á
~~~* möguleika á því að
leika 100. landsleik sinn hér í
Andorra. Ef ísland kemst í úr-
shtaleikinn verður það 100.
landsleikur Jóns Kr. Fær hann
þá meðal annars gullúr frá KKÍ.
Það ætti ekki að kosta mikið þvi
úr eru mjög ódýr hér í Andorra.
Lyfjanefnd ÍSÍ
græddi á lyfjaprófinu
Hvemig getur það nú verið. Jú,
Guðmundur Karlsson, sem vann
guhverðlaunin í sleggjukastinu,
var kallaður í lyfjapróf eftir sig-
urinn í sleggjunni og þar með
þurfti lyfjanefnd ÍSI ekki að
greiða kostnaöinn við lyfjapróf
Guðmundar en hann átti að fara
í lyfjapróf á vegum nefndarinnar
vegna íslandsmetsins sem hann
setti á íslandi á dögunum. Lyfia-
nefndin græddi þarna 15 þúsund
krónur.1
Enginn íslendingur
í nokkrum greinum
~~| Það hefur vakið at-
hygli aö enginn ís-
lenskur keppandi er í
" nokkrum greinum
frjálsra íþrótta á smáþjóðaleik-
unum. Til að mynda keppti eng-
inn íslendingur í 800 m hlaupi
karla og kvenna. Ástæðan er
eflaust peningavandræði en þess
má til gamans geta að íslendingar
eiga hlaupara sem hefði unnið
örugg gullverðlaun í 800 m hlaupi
kvenna.
Engin upphitun
fyrir kringlukastið
Eggert Bogason var ekki ánægð-
asti maðurinn á frjálsíþróttavell-
inum í gær eftir kringlukastið.
Einhverra hluta vegna fengu
kringlukastaramir enga upphit-
un fyrir keppnina eins og venja
er en sleggjukastarar, sem
kepptu í fyrradag, fengu upphit-
unarköst. Eggert sagðist hafa leit-
að skýringa en engin svör fengið
enda kynni ekki nokkur maður
ensku á vellinum.
3 Islands-
met í sundi
- og fjögur leikjamet
Stefin Kristjánsson, DV, Andorra:
íslenska sundfólkið stóð sig með mikihi
prýði á smáþjóðaleikunum í gær, setti þrjú
ný íslandsmet, fiögur leikjamet og vann til
fimm gullverðlauna af tíu sem keppt var um
í gær.
Ragnheiður Runólfsdóttir setti íslandsmet
og leikjamet í 100 m baksundi kvenna, synti
á tímanum 1.07,49 mín. Sveit íslands í 4x200
m skriðsundi kvenna setti nýtt íslandsmet og
leikjamet, synti á tímanum, 8.58,34 mín. í
sveitinni voru Bryndís Ólafsdóttir, Ingibjörg
Arnardóttir, Arna Sveinbjömsdóttir og Helga
Sigurðardóttir. Þá setti karlasveitin í 4x200 m
skriðsundi íslandsmet, synti á tímanum
8.13,34 mín. í sveitinni voru Magnús Ólafsson,
Arnar Ólafsson, Eðvarð Þ. Eðvarðsson og
Gunnar Ársælsson.
Ingibjörg Arnardóttir setti leikjamet í 400 m
skriðsundi kvenna, synti á 4.36,90 mín. Eð-
varð Þór Eðvarðsson setti leikjamet í 100 m
baksundi karla og kom í mark á 59,49 sek.
Helga Sigurðardóttir vann gullverðlaun í
50 m skriðsundi kvenna á 27,90 sek. Ehn Sig-
urðardóttir varð í 4. sæti á 29,03 sek.
Magnús Már Ólafsson varð annar í 50 m
skriðsundi karla á 24,48 sek. Eðvarð Þór Eð-
varðsson varð í 6. sæti á 25,56 sek. Sigurvegar-
inn, Kýpurbúi, synti á 24,29 sek.
Arna Þ. Sveinbjörnsdóttir varð í 2. sæti í
100 m flugundi og synti á 1.08,32 mín. Bryndís
Ólafsdóttir varð í 3. sæti á 1.08,47 mín. Sigur-
tími var 1.06,46 mín.
Hörður Guðmundsson keppti í 400 m skrið-
sundi karla og varð í 2. sæti á 4.32,17 mín.
Gunnar Ársælsson varð í 5. sæti í 100 m flug-
sundi karla á 1.01,51 mín. Arnar Ólafsson
varð í 7. sæti í sama sundi á 1.02,40 mín.
Góður dagur
blakliðanna
Stefin Kristjánsson, DV, Andorra:
Keppninni í kvennakörfuknattleik lauk í
gærkvöldi og tapaði íslenska hðið þá fyrir
Lúxemborg, 38-63. Staðan í leikhléi var 24-33
fyrir Lúxemborg.
ísland hafnaði í þriðja sæti af fiórum þjóðum
og hlaut því bronsverðlaun á leikunum. Liö
Lúxemborgar sigraði í öllum sínum leikjum
og vann gullverðlaunin. Kýpur varð í öðru
sæti og Malta rak lestina.
Stigin gegn Lúxemborg: Anna María Sveins-
dóttir 15, Björg Hafsteinsdóttir 8, Linda Stef-
ánsdóttir 6, Guðbjörg Norðfiörð 5, og Hafdís
Helgadóttir 4.
Karlaliðið í blaki
vann loksins sigur
islensku landsliðin í blaki unnu bæði leiki
sína á smáþjóðaleikunum í gær. Karlaliðið
vann sinn fyrsta sigur er liðið mætti And-
orra, lokatölur 3-0 og hrinur fóru 15-4,15-10,
og 16-14. Kvennaliöið lék einnig gegn Andorra
og sigraði, 3-1. Hrinur fóru 15-11,15-6,13-15,
og 15-6.
Carl vann bronsið
með loftskammbyssu
Carl J. Eiríksson vann til bronsverðlauna í
keppni með loftskammbyssu í skotfiminni í
gær. Carl hlaut 555 stig en sigurvegarinn frá
Lúxemborg fékk 567 stig. Aðeins munaði einu
stigi á Carli og silfurhafanum sem var frá
Mónakó.
Þeir Gunnar Kjartansson og Theódór Kjart-
ansson héldu áfram keppni í haglabyssu í gær
en henni lýkur í dag. Gunnar var í 4. sæti
eftir keppnina í gær með 133 stig og Theodór
í 7. sæti með 116 stig. Efsti maður er Kýpur-
búi með 149 stig.
Stefán Krisfjánsson
íþróttafréttamaður DV
skrifar frá Andorra
Erum komnir
til að sigra“
Víðir Sigurðsson, DV, Albaniu:
Á sunnudaginn verður íslenska
knattspymulandsliðið í óvenju-
legrí stöðu. Það leikur á útivelh í
Evrópukeppninni - en dagskipunin
er sigur og ekkert annað. Ástæðan?
Jú, mótherjar íslendinga eru Al-
banir, lægst skrifaða knattspyrnu-
þjóð Evrópu útn þeSsar mundír, og
Saevar Jónsson verður fyrirliði
i ieiknum gegn Aibönum.
allt annað en sigur yrði slæmt fyrir
íslenska knattspyrnu.
„Þetta verður mjög harður og
erfiður leikur. Albanskir knatt-
spymumenn leika með hjartanu
og þeir era örugglega staðráðnir í
að sigra. Þeir hafa misst marga
góða menn úr landi, en þeir sem
fylla í skörðin mmiu leika af sama
eldmóðinum,“ sagöi Bo Johansson,
landsliðsþjálfari Islands, í samtali
við DV í Durres í gær.
íslenska liðiö býr í liafnarborg-
inni Durres og æfði þar á ósléttum
vehi 1. deiidar hðsins Lokomotiv í
gærkvöldi. Leikurinn á sunnudag
fer hins vegar fram á Qemal Stafa,
þjóðarleikvangi Albana í höfuð-
borginm Tirana, og hefst klukkan
15 að íslenskum tíma.
„Við munum reyna að leika okk-
ar venjulega leik og við ermn
komnir til að sigra. Önnur úrsht
yrðu vonbrigði, og við eigum að
vera með nógu gott hð til þess,“
sagði Johansson.
Byrjunarhð íslands liggur nánast
fyrir og Johansson sagði að þaö
yrði eins og DV sagði fyrir um í
fyrradag. Bjarni Sigurðsson i
markinu, Sævar Jónsson og Ólafur
Krisfiánsson bakverðir, Guðni
Bergsson og Gunnar Gíslason mið-
verðir, Þorvaldur Örlygsson, Ólaf-
ur Þórðarson, Rúnar Kristinsson
og Sigurður Grétarsson tengiliðir
og þeir Eyjólfur Sverrisson og Ar-
nór Guðjohnsen framherjar.
Johansson sagðist reyndar eiga
eftir að gera endanlega upp hug
sinn um hvort Ólafur Kristjánsson
eða Einar Páll Tómasson yröu í
stöðu vinstri bakvarðar. Þá er Am-
ór ókomirm til Albaníu, hann leik-
ur meö Bordeaux á fóstudaginn en
kemur síðan álaugardag. Forfállist
hann veröur Anthony Karl Greg-
ory í byrjunarliöinu.
Sævar Jónsson verður fyrirliði í
stað Atia Eðvaldssonar sem er í
lelkbanni. „Við hugsum bara um
aö vinna þessa karla, við hljótum
að geta gert þær kröfur til sjálfra
okkar,“ sagði Sævar við DV í gær-
kvöldi.
,Kn Frakkar voru í vandræðum
með að vinna hérna og við megum
ekki fara að afsaka okkur með
framandi aðstæðum. Knattspyrn-
an á sér enginn landamæri, það er
sama hvar leikið er, það þarf aö
gefa hundrað prósent og meira en
það til að sigra. Ef víð náum upp
góöri stemningu og verðum sam-
taka er ég ekki hræddur við leikinn
á sunnudag. En við verðum að hafa
fyrir hlutunum, það er ljóst," sagöi
Sævar.
21 árs liðið leikur á laugardag:
Tekst strákunum að
vinna sinn fyrsta leik?
Víðir Sigurðsson, DV, Albaiúu:
Albanía og ísland mætast á morg-
un, laugardag, í 1. riðh Evrópu-
keppni 21 árs landshða og fer leikur-
inn fram í Elbasan sem er um 50 kíló-
metra suðaustur af höfuðborg lands-
ins, Tirana. Leikurinn verður þar á
heimavelh 1. deildar hðsins Labinoti
og er jafnframt liður í forkeppni
ólympíuleikanna.
ísland og Albanía eru neðst í riðlin-
um, bæði án sigurs, og íslenska lið-
inu hefur til þessa ekki tekist að
skora mark. Liðin skiidu jöfn, 0-0,
þegar þau mættust í fyrsta leik
keppninnar á Kópavogsvelh fyrir ári
en síðan hefur ísland tapað 0-1 fyrir
Frökkum, 7-0 fyrir Tékkum og 2-0
fyrir Spánveijum.
Albanar gerðu 0-0 jafntefli við
Frakka en töpuðu síðan 1-0 fyrir
Spáni, 3-0 fyrir Frakklandi og 1-5
fyrir Tékkum. Staðan í riðlinum er
þessi:
Tékkósl........4 4 0 0 17-3 8
Spánn..........4 3 0 1 5-36
Frakkland......5 2 1 2 5-3 5
Albanía........5 0 2 3 1-9 2
ísland.........4 0 1 3 0-10 1
íslenski 21 árs hópurinn er þannig
skigaður: Kristján Finnbogason, ÍA,
og Ólafur Pétursson, ÍBK, eru mark-
verðir. Aðrir leikmenn: Steinar
Adolfsson, Ágúst Gylfason og Örn
Torfason, Val. Ríkharður Daðason,
Steinar Guðgeirsson og Ágúst Ólafs-
son, Fram. Þormóður Egilsson, KR,
Valgeir Baldursson og Valdimar
Kristófersson, Stjörnunni, Amar
Grétarsson og Grétar Steindórsson,
Breiðabliki, Þorsteinn Jónsson, Þór,
Kristján Hahdórsson, ÍR, og Finnur
Kolbeinsson, Fylki.
Stúfarfrá
Albaníu
Víðir Sigurðsson, DV, Aibaníu:
Þó að leikur Albaníu
og íslands fari fram í
höfuðborginni, Tirana,
dvelur íslenska hðið
ekki þar. Það býr á hóteh í hafn-
arborginni Durres sem er um 30
kílómetra vestur af Tirana, á
strönd Adríahafsins. Durres hef-
ur verið tals vert í fréttum að und-
anfórnu því þaðan hafa margir
Albanar flúið yfir til ítahu síð-
ustu mánuðina. íslenska 21 árs
liðið dvelur ekki á sama stað því
það heldur til í borginni Elbasan
þar sem leikur þjóðanna í þeim
aldursflokki fer fram.
Reiknað með
sigri íslands
Það er að heyra á fólki, sem DV
hefur rætt við í Albaníu, að ekki
sé búist við miklum afrekum af
hálfu heimamanna. „Allt liðið er
flúið, við eigum enga möguleika.
ísland vinnur, 1-0,“ sagði Dashi
flugvaharstarfsmaður- við DV.
„Þetta verður jafn leikur, úrslit,
0-0 eða 1-1, eða þá 2-1 sigur ís-
lands,“ sagði Arjoni Voioh, krá-
areigandi og fyrrum leikmaður
1. deildar hðs 17 Mentori.
• Steinar Adolfsson er fyrirliði 21
árs liðsins.
Mótí
kendo
Á sunnudaginn kemur, 26. maí, fer
fram fyrsta íslandsmeistaramótið í
kendo, japönskum skylmingum.
Mótið verður haldið í Hagaskóla og
hefst keppni í undanriðlum klukkan
15 en úrslitakeppni efstu manna fer
síðan fram klukkan 17 og 18. Mót
þetta er liöur í undirbúningi fyrir
næsta Evrópumót í kendo sem haldið
verður á Spáni 1992 en þá verða ís-
lenskir kendomenn meðal keppenda
1 fyrsta sinn.
Lacostemót í golfi
Lacostemótið í golfi fer fram á
sunnudag hjá GR í Grafarholti. Um-
boðsaöilar Lacoste á íslandi gefa
glæsileg verðlaun til mótsins. Ræst
verður út klukkan 9 á sunnudags-
morgun en skráning fer fram í golf-
skálanum í síma 82815.
Víðir Sigurðsson
skrifarfráAlbaníu
Eyjólf ur samdi
einsárs
- hefur skrifað undir eins árs samning hjá Stuttgart
Víðir Sigurðssan, DV, Albarúu:
Eyjólfur Sverrisson hef-
ur skrifað undir eins árs
atvinnusamning við
þýska knattspyrnuliðið
Stuttgart og verður því áfram þar á
næsta keppnistímabih.
„Þetta er fullur atvinnusamningur
en til þessa hef ég talist áhugamaður
þótt það hafi fyrst og fremst verið á
pappírunum,“ sagði Eyjólfur við DV
í Albaníu í gærkvöldi en hann mun
leika sinn 2. landsleik fyrir íslands
hönd í Tirana á sunnudag.
„Ég samdi til eins árs, forráðamenn
Stuttgart vildu tvö til þrjú ár í viðbót
en ég ætla að bíða fram á haustið
með að ákveða eithvað í þeim efnum.
Mér hður mjög vel hjá Stuttgart og
okkur hefur gengið ágætlega að und-
anfórnu. Við vorum í 16. sæti fyrir
áramót en nú erum við í Evrópu-
sæti,“ sagði Eyjólfur Sverrisson.
Einar Þörvarðarson, markvörö-
ur Valsmanna í handknattleik, hef-
ur átt í viðræðum við l. deildar hð
Selfoss um að hann taki við þjálfún
liðsins fyrir næsta keppnistímabil.
Björgvin Björgvinsson, sem þjálf-
aði Selfyssinga í vetur, verður ekki
með hðið áfram og Selfyssingar
standa því uppi þjálfaralausir.
„Það er-rétt, ég hef átt í viöræðum
viö forráðamenn Selfossiiðsins um
að ég taki að mér þjálfun liðsins. Það
kemur sterklega til greina. iiðið er
mjög efnilegt, ineð því allra efúileg-
asta í deildinní og vissulega væri
gaman að taka við þessum mann-
skap en það er ekkert klárt ennþá.
Það er mjög erfið ákvörðun fyrir
mig hvort ég eigi að taka að mér
þjálfunina eða hvort ég eigi að spila
eitt ár enn í 1. deild,“ sagði Einar.
-GH