Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 24. 'fiíÁÍ1 'ítál Spumingin Ert þú búin að sjá Söngva- seið í Þjóðleikhúsinu? Þórdís Jensdóttir nemi: Nei, og ég hugsa aö ég fari ekki aö sjá þaö. Hulda Björnsdóttir húsmóðir: Nei, ég ætla ekki aö sjá þaö. Þuríður Bjarnadóttir húsmóðir, bú- sett í Svíþjóð: Nei, ég er nýkomin til landsins og ég hugsa að ég fari ekki aö sjá þaö. Unnur Brynjólfsdóttir, vinnur hjá Hagkaupum: Nei, ég er ekki búin aö sjá það en ég fer nú í maí. Guðrún Bjarnadóttir hjúkrunarfræð- ingu: Nei, og ég ætla ekki að sjá þaö. Stefanía Sigurðardóttir, aðstoðar- stúlka hjá tannlækni: Nei, ég er ekki búin að sjá það en fer um næstu helgi. Lesendur__________ Brýr fremur en jarðgöng Brúargerð er vaxandi þáttur í samgöngubótum víða um heim. Sumar eru margir kílómetrar að lengd. - Golden Gate brúin við San Francisco átti 50 ára afmæli fyrir 3 ártim. Simamynd Reuter Haraldur Sigurðsson skrifar: Þessa dagana er m.a. rætt um það að grafa jarögöng hér og þar í dreif- býlinu og á það víst að vera liöur í þeirri byggðastefnu sem mikið hefur veriö haldiö á-lofti hér. Einn þáttur- inn er einmitt sá að lofa íbúunum bót og betrun í samgöngumálum svo aö þeir flytji ekki burt. Lengi vel var þaö þó svo að um leið og samgöngu- bætur voru í höfn flutti góður hópur íbúanna brott og kom ekki aftur á heimaslóðirnar. í þessu standa nú Vestfirðingar og reyndar ekki síður Austfirðingar sem hafa lagt fram áætlanir um að krefja ríkisvaldið um forgang aö jarðgöngum hér og þar um flrðina, þannig að í framtíðinni verði hægt að aka í gegnum fjöllin í stað þess að fara yfir þau. Nú er það ekki alvitlaus hugmynd að leysa samgöngumál með jarð- göngum þar sem það á við. En það er fráleitt aö þau eigi við á Vestfjörð- um og Austfjörðum. Þar eru íbúar einfaldlega of fáir til þess að jarðgöng upp á marga milljarða króna borgi sig nokkurn tíma. Brúargerð yflr verstu torfærur, jafnvel á milli flarða yrði mun ódýrari kostur. Þetta á við hér á landi eins og annars staðar, þar sem brýr, sumar margar kílómetra að lengd, eru byggðar til aö auðvelda fólki umferð. Brúargerð yfir Hvalflörð yröi meira að segja ódýrari og heppilegri lausn en jarögöng, og er umferðin þó margfalt meiri þar en nokkru sinni á Vestflörðum og Austflörðum, þar sem hugað hefru verið að huga jarðgangagerð. Auðvitað geta slys orðið á brúm en það er þó opið mann- virki fyrir hvers manns augum, og möguleikar á að forða sér eru meiri þar en í göngum undir yfirborði jarð- ar. Til eru þeir sem vilja ýta fast á undirbúning jarðganga, þ.á m. var fyrrverandi samgönguráðherra, sem lofaði Vestflrðingum jarðgöngum nánast hvar sem menn bentu á lík- legan staö. Þetta á auðvitað að meta kalt og yfirvegað. Hvað kostar brú þar sem jarðgöng hafa verið fyrir- huguð? Ef brúarbygging er ódýrari, á að taka þann kost. - Og að sjálf- sögðu aðeins á þeim stöðum þar sem nokkum veginn er vitað að haldast áfram í byggð að hinum dýru sam- göngubótum yfirstöðnum. Fangelsi eiga að bæta menn Fangar á Kvíabryggju skrifa: Okkur sem inni sitjum þótti vænt um að sjá þau orð fyrrv. dómsmála- ráðherra, sem hér eru höfð í fyrir- sögn, í Þjóðviljanum 29. jan. sl. Til- efni þessara ummæla er sú skoðun fangelsismálastjóra að fangelsi séu ekki til að betra menn heldur ein- vörðungu til að refsa, sbr. viðtals- grein þann 26. jan. í sama blaöi. - Sem dæmi um vilja löggjafans í þessa veru nefnir dómsmálaráðherra skólahald á Litla-Hrauni og opna fangelsið í Kópavogi. Varðandi Kópavogsfangelsið er ráöherra að vísa til hins yfirlýsta hlutverks þess, að búa fanga undir að snúa aftur til þjóðfélagsins sem nýtir þegnar eftir langa afplánun. - Einmitt þetta er líklega jákvæðasti þátturinn í annars hægfara þróun fangelsismála hér á landi í marga áratugi. En hvernig hefur nú fangelsis- málastjóri framkvæmt þetta lofs- verða frumkvæði löggjafans? Jú, með því að nýta verulegan hluta þessa fangelsis til skammtímavistun- ar á sama hátt og Hegningarhúsið við Skólavörðsustíg og Síðumúla- fangelsið. Sem dæmi má nefna að nú fyrir nokkrum dögum voru þar að- eins flögur af tólf plássum nýtt fyrir fanga sem stunduðu vinnu eða skóla utan fangelsis. Og þetta gerist á sama tíma og fóngum, sem viröast full- nægja öllum skilyrðum, er synjað um aðlögunarvist á þeim forsendum aö fangelsið er sagt vera yfirfullt. Þessi misnotkun fangelsisins er í góðu samræmi við þau miðaldavið- horf fangelsismálastjóra til refsivist- ar og tilgangs hennar sem m.a. komu fram í áðurnefndri viðtalsgrein. Því viljum við fangar upplýsa fangelsis- málastjóra um að fangelsi eru sem betur fer ekki eingöngu hugsuð sem refsistofnanir, sbr. 37. og 43. gr. al- mennra hegningarlaga, 13. og 14. gr. laga um fangelsi og fangavist nr. 48/1988, og einnig samkvæmt IV. hluta evrópskra fangelsisreglna (útg. í Reykjavík 1989) um markmið með- ferðar. Reglum um vínveitingar verði breytt Þorgrímur skrifar: Ég, kona mín og önnur hjón vorum að koma frá jarðarfór einn dag fyrir stuttu. Klukkan var rétt um flögur, það var napur kuldi úti og við fórum inn á Hótel Borg og ætluðum að fá okkur kaffi og kökur og væntanlega glas af koníaki með seinni bollanum. - Þegar inn vár komið og spurt var hvort þetta væri ekki í lagi, svaraði ung og kurteis stúlka að þetta væri því miður ekki hægt því það væri lokaö fyrir vínveitingar eftir kl. 14.30 aö deginum. - Okkur þótti þaö und- arlegt að ekki mætti selja fólki glas með koníaki yfir hábjartan daginn en urðum að sætta okkur við lögin þótt ósanngjörn væru. Nú finnst manni það vera úr takt við tímann að vera aö burðast við að halda í úreltar reglur um svona nokkuð. - Alls staðar í heiminum eru vínveitingar frjálsar og standa til boða daglangt ef þær eru yfirleitt leyfðar - að undanskildu Bretlandi þar sem svipaðar reglur gilda og hér. En þar er nú líka ennþá í gildi vinstri handar akstur. Varla erum við að elta Breta í reglum um vínveitingar. Reglum um vínveitingar hér þarf að breyta sem allra fyrst. Það hefði átt aö gera um leið og miðvikudags- lokuninni var aflétt, reglu sem var jafntilgangslaus og núgildandi regla, að ekki megi selja koníak með kaffi um hábjartan daginn. Fer sala áfeng- is eitthvað í taugarnar á ráðamönn- um og þingliði þjóðarinnar? - Eða hver skyldu nú vera rökin fyrir þess- ari fáránlegu reglu? Fróðlegt væri að einhver gæti upplýst það. Úreltar reglur; eitt sinn var það miðvikudagslokun, nú síðdegisbann á kon- íak og annað áfengi. - Hvað næst? Spaugstofunnar verð ursaknað Hannes Sigurðsson skx-ifar: Margir telja það furöulega ráö- stöfun hjá Sjónvarpinu að hætta við þætti Spaugstofunnar án þess að sambærilegur þáitur komi í staðinn. Þessir þættir hafa verið nánast eina skemmti- og afþrey- ingarefnið sem fólk hefur veru- lega hlakkaö til að horfa á. Og það á ekki að vera náttúrulögmál að ekkert skemmtilegt megi vera á sumardagskrá í sjónvarpi. Kannski var tímabært að hætta úr því uppistaða síðasta þáttar var meira og minna endurtekn- ingar frá fyrri þáttum, ásamt baksviðsmyndum og „takka- fólki“ Sjónvarpsins. Spaugstof- unnar verður þó sárt saknað af mörgum. Það er varla aðstend- endum hennar að kenna að ekk- ert bitastætt afþreyingarefni tek- ur við. Borgarfulltrúar sameinast um þögnina Stefán Stefánsson skrifar: Mörgum þykja tíðindi, að Ellert B. Schram ritstjóri hafi hug á að gefa kost á sér í stól borgarstjóra, að undangengnu prófkjöri innan Sjálfstæðisflokksins. Við þessa frétt sló þögn á borgarstjóramálið í Qölmiðlum. Menn halda kannski að hér sé um grín eitt að ræða, eða vel undirbúna leik- fléttu, sem Ellerthafllátið til leiö- ast að taka þátt í. Í viðtali Eiríks Jónssonar á Bylgjunni við Ellert staðfestir hann hins vegar að honum sé fyllsta alvara. Þá bregður svo við aö þeir borgarfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins, sem fréttamaður ætl- aði að ná tali af, neita að tjá sig og segjast hafa gert „heiðurs- mannasamkomulag“ um að tala ekki við flölmiðla. - Þeir gera sér liklega ekki grein fyrir því að með ákvörðuninni aö sameinast um þögnina verða þeir um leið ekki lengur áhugaverðir sem kandid- atar fyrir borgarstjórastarf. Ásunnudegi með SvavariGests P.K. skrifar: Mér fmnst ágætt framtak hjá Ríkisútvarpinu aö endurtaka þáttinn Sunnudagur með Svavari Gests á rás 2 kl. 9 á sunnudags- morgnum. Þátturinn er svo end- urtekinn að nóttu til og nú síðast sl. mánudagsnótt. Þvf miður er það heldur seint fyrir venjulega borgara og þá sem virkilega vilja ekki missa af þáttum Svavars. En varðandi þátt Svavars er það að segja að þarna er leikin afar vönduð tónlist af léttara tag- inu og bætt inn fróðlegum atrið- um úr safhi RÚV. Stórhljómsveit- artónhstin hjá Svavari sl. sunnu- dag var t.d. einvher sú vand- aðasta sem ég hef lengi heyrt. Tannréttingarfyrir almenning? Anna Kristjánsdóttir hringdi: Ég er yfir mig undrandi á mál- flutningi tannréttingarsérfræð- inga sem segja að almenningur líði fyrir að hið opinbera haldi að þeim skýrslu sem verður að fylla út svo að endurgeiðsla megi eiga sér stað. En þarf almenningur á tannréttingum að halda? Sá hóp- ur er mjög fámennur. Foreldrar sem senda krakk- agrislingana sína í tannréttingar halda að börnin hafi gott af þessu. Sannleikurinn er sá að þvingun tanna frá upprunalegu formi get- ur verið skaðleg síðar meir. - Ég sé ekki annað en fólk megi láta sér í léttu rúmi liggja hvenær sérfræðingum í tannréttingum þóknast að sundurliða vinnu sína eins og aðrir. En þarna er jú um opinbert fé að ræða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.