Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 9
-ieei ÍAM M 5)UOA(IUT8Ör*l
FÖ9TUDA0UR- 24.' MAÍ -1-99U
8
Indverjar votta Rajiv Gandhi virðingu sína.
Simamynd Reuter
Indland:
Ottast óeirðir
- eftir bálfór Rajiv Gandhi
Tugþúsundir Indverja vottuðu í
morgun fyrrum forsætisráðherra
sínum, Rajiv Gandhi, virðingu sína
og gengu framhjá viðhafnarbörun-
um sem hann hvílir á. Fjöldi þjóð-
höfðingja mun verða viðstaddur bál-
fór Gandhis í Nýju Delhi í dag. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, verður við bálfor-
ina sem fulltrúi alþjóðlegra þing-
mannasamtaka sem bæöi hann og
Gandhi störfuðu í.
Að sögn háttsettra embættismanna
hefur rannsókn leitt í ljós að morð-
ingi Gandhis var kona sem hafði
bundið sprengiefni við sig innan-
klæða. Ekki er vitað hver hún var.
Embættismenn telja ekki útilokað að
hún hafi tilheyrt Frelsishreyfingu
tamílsku tígranna á Sri Lanka sem
beijast fyrir sjálfstæði tamíla. Marg-
ar konur eru í hreyfingunni og hafa
félagamir oft fómað lífi sínu í tilræð-
um.
Mikil öryggisgæsla hefur verið í
Tamil Nadu héraðinu þar sem
Gandhi var myrtur og hefur her-
mönnum og lögreglumönnum tekist
að koma í veg fyrir meiriháttar róst-
ur. Hins vegar er búist við miklum
ofbeldisverkum þegar kosningabar-
áttan hefst á ný eftir bálförina. Kosn-
ingabaráttan nú hefur verið sú blóð-
ugasta í sögu Indlands hingað til.
Reuter
" í viðjum persónudýrkunar: • * *•
Ekkjunum og dætrun-
um ýtt út í stjórnmálin
Fyrrum forsætisráðherra Pakistans, Benazir Bhutto, er komin til Nýju Delhi
til að vera við bálför Gandhis. Bhutto, sem er ein þeirra dætra fallinna
leiðtoga sem ýtt var út í stjórnmálin, er hér með Priyanka, dóttur Gandhis.
Litlar líkur eru nú á að Priyanka þurfi að fara sömu braut nú þegar móðir
hennar, Sonja, hefur hafnað boðinu um að verða leiðtogi Kongressflokksins.
Símamynd Reuter
Sonja Gandhi, ekkja fyrram for-
sætisráðherra Indlands, neitaði í gær
boði Kongressflokksins um að taka
við embætti leiðtoga flokksins vegna
þess harms sem kveðinn væri að
henni og bömum hennar. í leiðurum
indverskra dagblaða í dag er þessari
ákvörðun fagnað. Var bent á að Sonja
Gandhi hefði sýnt meiri stjórnmála-
lega hyggju heldur en þeir sem, án
þess að ganga úr skugga um óskir
hennar, hefðu „valið“ hana.
Talsmaður Kongressflokksins
hafði áður fullyrt við fréttamenn að
Sonja gæti ekki neitað aö taka við
embættinu og að uppruni hennar,
Sonja er ítölsk, skipti ekki máli fyrir
hindúa. Hún tilheyrði Gandhi-Nehra
fjölskyldunni.
Litið var á útnefningu Sonju sem
tilraun Kongressflokksins til að not-
færa sér í kosningabaráttunni þá
samúð sem fjölskyldan nýtur nú.
Stjórnmálasérfræðingar sögðu einn-
ig að útnefning hennar hefði verið
aðferð til að forðast hatramma valda-
baráttu innan flokksins. Algengt
væri að láta ættingja, eiginkonu eða
barn taka við því almúginn þekkti
nafnið. Væri þetta liður í þeirri miklu
persónudýrkun sem ríkti í Asíu.
Rajiv Gandhi, dóttursonur Nehrus,
fyrsta forsætisráðherra Indlands,
hikaði sjálfur við að steypa sér út í
hringiðu stjórnmálanna þegar móðir
hans, Indira Gandhi forsætisráð-
herra, var myrt 1984.
Sonja Gandhi hefði getaö orðið ein
af fjölda ekkna í Asíu og dætra sem
ýtt hefur verið út í stjórnmálalífið
vegna fráfalls eiginmanna þeirra eða
feðra.
Forsætisráðherra Bangladesh,
Begum Khaleda Zia, sem komst til
valda í kosningum í febrúar síöast-
hðnum, er ekkja fyrram forseta
landsins, Ziaur Rahman, sem var
myrtur í uppreisnartilraun 1981 eftir
sex ár við völd. Helsti keppinautur
hennar í kosningunum var Hasina,
sem er dóttir fyrsta forseta Bangla-
desh, Mujibur Rahman. Hann var
myrtur í uppreisn 1975.
Leiðtogi stjómarandstöðunnar í
Pakistan, Benazir Bhutto, sigraði í
þingkosningunum 1988. Kosninga-
sigurinn var þakkaður samúð þeirri
sem hún naut vegna örlaga föður
síns, Zulfikar Ali Bhutto forsætisráð-
herra. Hann var hengdur 1979 eftir
umdeild réttarhöld.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar á
Sri Lanka, Sirima Bandaranaike,
varð fyrsta konan í heiminum sem
varð forsætisráðherra eftir að eigin-
maður hennar og forsætisráðherra
landsins, Solomon Bandaranaike;
var skotinn til bana af búddamunki
1959.
í Burma er vinsælasti stjórnarand-
stöðuleiðtoginn Aung San Suu Kyi.
Faðir hennar, Aung Sán, leiddi
Burma til sjálfstæðis. Hún hefur ver-
ið í stofufangelsi síðan í júlí 1989.
Ein af frægustu starfandi ekkjun-
um er Corazon Aquino, forseti
Filippseyja. Hún tók við forystu
hreyfingarinnar sem tókst að koma
Ferdinand Marcos frá völdum. Eig-
inmaður hennar, Benigno, var skot-
inn til bana 1983 er hann sneri heim
úr útlegð í Ameríku.
Mönnum er enn í fersku minni
dýrkunin á Peronfjölskyldunni í
Argentínu. Er Juan D. Peron forseti
lést 1974 tók þriðja eiginkona hans,
Isabel Peron, við forsetaembættinu.
Hún hafði reyndar árinu áður verið
skipuð varaforseti landins. Reuter
9
Útlönd
New York á barmi gjakfþrots
New York-borg er á barmi gjald-
þrots aftur en sextán ár eru liðin
síðan efnahagsástand borgarinnar
var svo slæmt að fjármálamenn á
Wall Street þurftu að bjarga henni.
Kreppan nú er hins vegar
verri en 1975.
Hún er svo alvarleg að borgar-
stjórinn, David Dinkins, hefur kall-
að morgundaginn „dómsdag". Ef
ekki næst samkomulag um fjárlög
fyrir helgina veröur borgin gjald-
þrota.
Þúsundir opinberra starfsmanna
eiga á hættu að missa störf sín or
ýmis þjónusta hins opinbera dregs
saman fljótlega. Dinkins segir að
allir íbúar New York-borgar, 7,6
milljónir, muni finna fyrir ástand-
David Dinkins, borgarstjóri New
mu.
York. Simamynd Reuter
Gaftenórnumáhann
Á æfingu á óperanni Cosi Fan Tutte eftir Mozart í London snerist leikur-
inn í alvöru. Það þótti að minnsta kosti Ðavid Ellis sem syngur í kómum
í óperunni og gaf hann bandaríska tenórnum Kurt Streit á hann eftir
ástarsenu með sópransöngkonunni Amöndu Roocroft. Hún er unnusta
Ellis sem fannst Streit faðma hana á heldur ástriðufullan hátt.
Talsmaður Glyndebourne-óperuhússins segir Ellis hafa beðist afsökun-
ar og málið því úr sögunni.
Hörð gagnrýni á Cresson
Michel Rocard, fyrrum torsætisróðherra Frakklands, kyssir eftirmann
Sinn, Edith Cresson. . Símamynd Reuter
Edith Cresson, hinn nýi forsætisráöherra Frakklands, þykir ekki hafa
slegið i gegn með stefnuræðu sinni. í leiðurum franskra dagblaða í gær
segir að henni hafi ekki tekist að blása nýju lífi í pólitík sósiahsta eins
og ætlunin hafi veriö. Ræða hennar hafi verið innantóm orð. Forsætisráð-
herranum er meira að segja líkt við gætna húsmóður og torgsölukerl-
ingu. Saratímis þvi sem Cresson sætir þessari gagnrýni í dagblöðunum
prýða myndir af henni forsíður allra vikublaðanna í Frakklandi.
En þrátt fyrir alla athyglina, sem beinist að henni, minnkar fylgi henn-
ar hratt samkvæmt skoðanakönnunum. Strax eftir útnefninguna í emb-
ætti forsætisráðherra hlaut hún stuðning 70 prósenta aðspurðra en sam-
kvæmt niöurstööum skoðanakönnunar, sem birt var í gær, styðja aðeins
43 prósent Cresson sem þegar í gær þurfti að takast á við ýmis vandamál.
Lestarferðir til flestra úthverfa Parísar lágu niðri í gær vegna verkfalls
járnbrautæ-starfsmanna. Og lögreglan efndi til kröfugöngu á meðan nýi
forsætisráðherrann kynnti áætlanir sínar. Læknar og þjúkranarkonur
hafa boðað verkfall í byrjun næsta mánaðar.
Moldavía skiptir um naf n
Sovéska lýðveldið Moldavía ákvaö í gær að sleppa orðunum „sovésk-
ur“ og „sósíálískur" í opinberu nafni sínu. Heitlr það framvegis aðeins
lýðveldið Moldavía (Moldova). Nafnið Moldova var tekiö upp i fyrra-
haust því það hljómar eölilegar á rúmensku sem í fyrra var gerö að opin-
beru máli lýðveldisins.
Ýmis önnur sovésku iýðveldanna fimmtán hafa sleppt oröunum „sov-
éskur“ og „sósíalískur“ í nöfhum sínum, þar á meðal Eystrasaltslöndin
þrjú og Kákasuslýðveldin Georgia og Armenía.
Forsetinn má vera flokksbundinn
Fulltrúaþing Rússlands hafnaði í
gær kröfunni um aö forsetar lýð-
veldisins megi ekki vera flokks-
bundnir eöa félagar í fiöldasamtök-
um. Litiö er á þessa niðurstöðu sem
hlutasigur iyrír kommúnistafiokk-
inn en fiórir af sex írambjóðendum
til forsetakosninganna í Rússlandi
i júní eru félagar í flokknum.
Jeltsin, forseti rússneska þings-
ins og líklegur sigurvegari í kosn-
ingunum, sagði sig úr kommún-
istaflokknum í fyrrasumar. .
R«uter, TT þingsins. Simamynd Reuter