Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 7
FÖSTIUDAGUR 24. MAÍ' 1991. 7 Fréttir Fundur stjómar Náttúrulækningafélagsins með heilbrigðisráðherra um heilsuhælið: Hugmynd haslinu í umaðbreyta heilsuhótel herra í fyrradag. Aðrir stjórnarmenn eru Ragnhildur Óiafsdóttir, Erna Indriðadóttir og fyrir enda borðs situr Vil- hjálmur Ingi Árnason, formaður stjórnar NLFÍ. DV-mynd Brynjar Gauti „Það liggja fyrir tvær leiðir eftir fund með heilbrigðisráðherra. Ann- ars vegar að Heilsuhæli NLFÍ í Hvhragerði verði rekið á daggjöldum og hins vegar að ríkið hætti allri þjónustu við heilsuhælið og að stofn- að verði heilsuhótel. Þetta eru hug- myndir sem ráðherrann var að velta upp en hann kom ekki með beinar tillögur. Hann sagði þó að það væri ekki hægt að reka hælið áfram eins og verið heíði,“ segir Vilhjálmur Ingi Árnason, formaður stjórnar Nátt- úrulækningafélags íslands. „Ef við rekum hælið á daggjöldum er ekki hægt að afskrifa eignirnar á sama hátt og gert hefur verið. Því yrði NLFÍ að sjá um allt viðhald og uppbyggingu á staðnum. Meðlimir félagsins þyrftu þá að leggja fram 10 til 15 milljónir úr eigin vasa til að halda byggingunum við. Það treyst- um við okkur ekki til að gera. Ráðherra vill að við afskrifum um eitt prósent á ári sem þýðir að það tæki um 100 ár að afskrifa hverja byggingu. Margar byggingar eru orðnar 35 ára gamlar og eru að verða ónýtar en eiga samkvæmt þessu að duga næstu 65 árin. Stjórn NLFÍ telur að eftir 35 ára starfsemi félagsins sé komin hefð á sérdaggjöldin enda hefur þeim aldrei verið andmælt. Það hafa allir vitað af þeim og við höfum aldrei fengið neinar athugasemdir. Það hefur allt- af legið á borðinu aö við notum 4,7 prósent til afskrifta og uppbyggingar. Okkar bókhald hefur alltaf verið eins og hjá öðrum íslenskum fyrirtækjum öðrum en ríkisfyrirtækjum sem af- skrifa einungis um eitt prósent. \ Hugmyndin um að reka heilsuhótel hefur veriö í athugun áður. Hún var komin fram áður en þetta mál kom upp á yfirborðið. Þá töldum viö að það yrði erfitt dæmi með svona stóra einingu en við neyðumst til að gera það ef ekki er önnur leið.“ - Þið hafið fengið heimild til að segja upp öllu ykkar starfsfólki, ætlið þið að beita þeirri heimild? „Þaö fer eftir því hvað ríkið gerir. Ef ríkið segist ekki vilja kaupa af okkur þjónustu eins og það hefur gert þýðir það að við verðum aö breyta rekstrinum og í framhaldinu verðum við að hafa frjálsar hendur við endurskipulagninguna.“ - Var ekki heimildarinnar aflað til að segja læknum stofnunarinnar upp? „Jú, það má segja það. Annar lækn- irinn hafði skrifað bréf sem hann afhenti fulltrúa stéttarfélags nokk- urs. í því leggur hann til að stofnun- in verði tekin úr okkar höndum og sett í hendur aðila eins og Gigtarfé- lagsins, Krabbameinsfélagsins, Fé- lags lamaðra og fatlaðra og jafnvel Rauða krossins. Þetta bréf vildum við fá hjá ráðherra beint. En eina svarið, sem ráðherra gaf okkur, var aö þetta bréf hefði ekki verið bókað í ráðuneytinu. Ég hafði séð þetta bréf í gögnum Ríkisendurskoðunar en það vill enginn segja hvaðan það kom. Okkar vantar þetta bréf sem við vitum að hefur verið sent undirritað. Þetta er að verða eins og í glæpareyf- ara. Við þurfum að fara að rekja slóð- ina frá manni til manns og láta þá votta að þeir hafi tekið við bréfmu úr hendi hins og þessa. Það er hins vegar í votta viðurvist búið að viður- kenna tilurð bréfsins." -J.Mar Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra um viðræðumar við Náttúrulækningafélagið: Eg kom ekki fram með nein tilboð „Þeir greindu mér frá því sem hefði komiö fram á þingi Náttúru- lækningafélagsins, síðan afhentu þeir mér skriílegar athugasemdir viö skýrslu Ríkisendurskoöunar. Einnig var gerð grein fyrir stjórnarfundi heilsuhælisins og samþykkt sem var gerð þar varðandi uppsagnir starfs- fólks. Málefni heilsuhælisins í Hveragerði voru svo rædd í fram- haldi af þessu og ýmsar hugmyndir um reksturinn en ég kom ekki fram með nein tilboð," segir Sighvatur Björgvinsson um fund sinn með stjórn NLFÍ „Það er ekki komið að því að menn geri tillögur um leið út úr þessum vanda. Við ætlum ekki að gera eitt eða neitt að óathugðu máli. Við ætl- um að gefa okkur þann tíma sem þarf til að leysa þetta mál þannig að allir geti við unað.“ - Nú er það komiö fram að þú hafir fengið bréf frá læknum hælisins en ráðuneytið viðurkenndi ekki tilvist þess: „Ég átti ekki von á því að það yrði farið að vitna í samtöl á fundinum og ég tek ekki þátt í þeim leik. Ég vil lýsa undrun minni á því að það skuli gert. Við leysum ekki málin á þann hátt.“ Næsti fundur heilbrigðisráðherra og stjórnar NLFÍ hefur ekki verið ákveðinn. -J.Mar Bilasalan SKEIFAN Skeifunni 11 Sími 689555 Heitt kaffi á könnunni og ailir fá Fanta að drekka DAGAR í Skeifunni föstudag og laugardag Sýnum og seljum gott úrval notaðra Honda bifreiða um helgina. Notaðir uppítökubílar frá Hondaum- boðinu seldir á niðursettu verði. Allt að 25% afsláttur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.