Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 32
un OmaaBBB F R ÉTTAS KOTIÐ
i—> —- -
Ö Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
^ — í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
—_— Ritstjórn - Auglýsíngar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Össur Skarphéöinsson:
„Þaö kemur auövitað ekki á óvart
að ríkisstjórnarflokkarnir tapi fylgi
frá síðustu könnunum vegna þess að
það er verið að gera ráðstafanir í fjár-
málum sem eru sársaukafullar og
um leið óvinsælar. Þær hljóta að
koma niður á ríkisstjórnarflokkun-
um,“ segir Össur Skarphéðinsson,
formaður þingflokks Alþýöuflokks-
ins.
„Það er líka alveg ljóst að það voru
ekki allir sáttir við þátttöku Alþýðu-
flokksins í þessari ríkisstjórn og það
hlýtur aö koma fram í upphafi. Þegar
árangur aðgerðanna kemur í ljós
mun þetta breytast."
- Hvað um fylgi ríkisstjórnarinnar?
„Ég vísa aftur til efnahagsaðgerð-
anna sem verið er að fara út í. Vaxta-
hækkunin er mjög erfið fyrir
marga.“ -JGH
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Kratar í mótbyr
„Niöurstöðurnar koma mér í sjálfu
sér ekkert á óvart. Eins og oft áður
eru óákveðnir stærsti hópurinn,“
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
þingkona Kvennalista.
„Mér sýnist að fólk sé að taka af-
stöðu til þessarar stjórnarmyndunar
sem átti sér staö og Alþýðuflokkur-
inn fái talsverðan mótbyr út á það
að hafa farið í þessa stjórn en ekki
notað það tækifæri sem hann hafði
til að mynda stjórn með fyrrverandi
stjórnarflokkum og Kvennalista.
Það er greinilegt aö það rennur
fylgi milli Alþýöuflokks og Alþýðu-
bandglags sem þarf ekkert að koma
á óvart. Eins og umræðan er í fjöl-
miðlum núna eru átökin fyrst og
fremst á milli fyrrverandi og núver-
andi stjórnarflokka og það er erfitt
fyrir Kvennalistann að fá svigrúm í
þeirri umræðu.“ -J.Mar
Margrét Frímannsdóttir:
Ég er ánægð
„Ég er auðvitað ánægð með fylgis-
aukningu Alþýðubandalagsins og ég
hef einmitt átt von á svona
niðurstöð-
um. Það að Alþýðuflokkurinn tapar
eins miklu fylgi og raun ber vitni
sýnir að kjósendur þess flokks hefðu
getað verið í stjórn með öörum flokk-
um en Sjálfstæðisflokknum," segir
Margrét Frímannsdóttir, þingflokks-
formaður Alþýðubandalagsins.
„Fylgi ríkisstjórnarinnar kemur
mér ekki á óvart miðað við þá tilfinn-
ingu sem ég fann um vilja fólks bæði
fyrir og eftir kosningar. Það var gerð
skoðanakönnun nýlega um áherslu-
mál fólks í stjómmálum og þessi rík-
isstjórn hefur þá málaflokka ekki á
stefnuskrá sinni, allavega miðað við
stefnuræðu forsætisráðherrans."
-ns
LOKI
Það virðist meiri þörf á að
friða krata en hvali!
Missa margir
af hækkuninni?
„Ég tel að hér hafi verið gerð tíðarplássum á íslandi viimi hús- enaðþettaverðitilþessaðkonurn-
grófmistök.Þeirsemgerðuþennan mæður almennt ekki lengur við ar geti ekki hætt að vinna fyrr en
samning um viðskiptakjarabatann fiskvinnsluna en fram í mai, í 14. júni. Unglingarnir verði því að
virðast ekki vita hvernig lífið geng- mesta lagi til mánaðamótanna bíða þangað til með að fá vinnu.
ur fyrir sig í sjávarþorpunum út maí-júní. Þetta gera konur til þess Ég fullyröi að þær skipta hundruð-
um land. Þessari dagsetningu, 14. aðunglingarnirfáivinnuyflrsum- um, ef ekki þúsundum, konurnar
júní, verðuraðbreyta,“sagðiBjörn arið en skólunum Ijúki almennt um allt land sem lenda í þessu,“
Grétar Sveinsson, formaöur Verka- upp úr miðjum maí. Samkvæmt sagði Björn Grétar.
lýðsfélagsins Jökuls á Höfn í þessum samníngum um viðskipta- Hrafnhildur Stefánsdóttir, lög-
Hornafirði, í samtali við DV. kjarabatann, sem gengið var frá fræðingur Vinnuveitendasam-
Ástæöa þessara ummæla er sú siðastliðinn miðvikudag, verða bandsins, sagði það rétt að miðað
að í samningnum um viðskipta- húsmæöur nú að vinna til 14. júní hefði verið við 14. júní.
kjarabæturnar segir að til þess að til þess að fá umsamdar 6.300 krón- „Einhverja dagsetningu varð að
fólk fái bæturnar hinn 1. júlí næst- ur greiddar hinn 1. júlí. miða við og ég tel víst að vinnu-
komandi verði það að hafa unnið „Þettakemursérákaflegaillahér veitendur taki tiilit til þess þótt
samfellt frá 1. mars síðastliönum hjá okkur á Höfn. Um þessar konur, sem vinna hjá þeim, víki
til 14. júní næstkomandi. Og það mundir eru húsmæður að hætta fyrir unglingum í sumarvinnu eins
er einmitt dagsetningin 14. júní vinnu eftir vertíðina og um það bil og tíðkast út um land,“ sagði
sem máliö snýst um. 80 unglingar eru að taka við í hum- Hrafhhildur.
BjörnGrétarsegiraðíöllumver- arvinnslunni. Ég fæ ekki betur séð -S.dór
Steingrímur Hermannsson:
Visst vantraust
„Þessar niðurstöður eru náttúrlega
stuðningur við fyrri ríkisstjórn og
þannig visst vantraust á þá ríkis-
stjórn sem nú situr. Þessi stuðningur
kemur kannski einum of seint. Þótt
þessi vilji hafi vissulega komið fram
í úrslitum kosninganna hefði hann
þurft að koma enn sterkar fram,“
segir Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins.
„Fylgi ríkisstjórnarinnar kemur
mér ekkert á óvart. Miðað við það
sem ég hef heyrt hjá fólki þá þykja
mérþettaraunhæfartölur." -ns
Friðrik Sophusson:
Sæmilegasáttur
„Ég er sæmilega sáttur við útkom-
una í þessari könnun. Ríkisstjórnin
hefur verið í því erfiða hlutverki að
segja vond tíðindi af efnahagsmálum
því að vandamálum hafði verið sópað
undir teppið," segir Friörik Sophus-
son, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins.
„Mér sýnist könnunin sýna það vel
að stjórnin hefur meirihluta og það
er full ástæða til að vera bjartsýnn
enda er mikil eining í ríkisstjórninni
umaðvinnavel.“ -JGH
Sérútbúinn slökkviliðsmaður kemur til að ræsa eiturloft' úr tilraunastofu
Eiturslys í tilraunastofu Háskólans:
Lengi kvartað
undan aðstöðunni
í tilraunastof unni
„Það er rétt aö nemendur hafa
lengi kvartað yfir aðstöðunni á til-
raunastofunni auk þess sem rektor
hefur verið sent bréf en án þess að
nokkuð hafl gerst. Nú er staðan sú
að tilraunastofan er að flytja í nýtt
húsnæði á árinu og menn því hik-
andi við að fara út í mikinn kostnað
vegna breytinga. Eina raunhæfa
leiðin nú er að flytja tilraunastofuna
á annan stað,“ sagði Þorsteinn Lofts-
son, prófessor í lyíjafræði lyfsala við
Háskóla íslands, í samtali við DV.
Glerílát með saltpéturssýru sprakk
í tilraunastofu Háskólans í gærmorg-
un. Lyfjafræðingur, sem var að
vinna með efnið, fékk það í augun
og hættulegar eiturgufur lagði um
tilraunastofuna. Maðurinn var flutt-
ur á slysadeild en menn ótttuðust að
hann missti sjónina en svo mun ekki
hafa farið. Slökkvilið var kvatt á
vettvang til að loftræsta og mættu
slökkvihðsmenn í sérstökum bún-
ingum vegna eiturloftsins.
Nemendur munu lengi hafa kvart-
að yfir aðstöðuleysi á tilraunastof-
unni en þar eiga að vera sérstakir
loftskápar til að vinna hættuleg efni.
Þar er hins vegar einungis einn lítill
skápur, fyrir einn til tvo í einu, þann-
ig að nemendur eru að vinna með
ýmis hættuleg efni á borðum. Einn
nemandi komst þannig að orði að
spurningin væri hvenær annnað slys
ætti sér staö, aðstaðan væri ekki
mönnum bjóðandi og Háskólanum
til skammar.
Þorsteinn sagði efnin mishættuleg
en að sérstök hlífðargleraugu væru
til staðar fyrir nemendur og kenn-
ara. Þau hefði hins vegar ekki verið
notuð í umræddu tilviki.
Tilraunastofan undirbýr bráðum
flutning í Haga þar sem verksmiðja
Vífllfells var áður til húsa. Þar segir
Þorsteinn að verði afar fullkomin
aðstaða til efnarannsókna og
kennslu.
-hlh
Háskólans.
Veöriðámorgun:
Þurrtoghlýtt
á Norðaustur-
landi
Suðvestlæg átt og fremur hlýtt,
einkum norðanlands og austan.
Skýjað um mestallt land, lítils
háttar súld eða rigning ööru
hveiju vestan til á landinu en
þurrt á Norðaustur- og Austur-
landi. Hiti á bilinu 9-14 stig.
DV-mynd S
VAKTÞJÓNUSTA
Oryggisverðir um alla borg...
...allan sólarhringinn
Vönduð og viðurkenna þjonusta
@91-29399
Allan sólarhringinn
Öryggisþjónusta
VARI síðan 1969