Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1991, Blaðsíða 26
34 KÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991. Afmæli Þorsteinn Guðmundsson Þorsteinn Guömundsson, fyrrv. b„ hreppstjóri og sýslunefndarfor- maður að Skálpastöðum í Lundar- reykjadal í Borgarfirði, verður ní- ræður fóstudaginn 31.5. nk. Starfsferill Þorsteinn fæddist að Syðstufoss- um í Andakíl en ólst upp í foreldra- húsum að Skálpastöðum frá eins árs aldri. Hann lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum að Hvanneyri 1923 og vann siðan að mestu á búi föður síns til 1930 nema síðasta árið. Sjálf- ur hóf hann búskap á Skálpastöðum 1930 og stundaði þar búskap í fjöru- tíu ár, síðustu niu árin í félagsbúi við tvo syni sína sem enn búa rausn- arbúi að Skálpastöðum. Er Þor- steinn tók við búinu fyrir sextíu árum voru tún þar sjö hektarar en eru nú samkvæmt opinberum skýrslum hundrað og sautján hekt- arar. Þorsteinn hefur gegnt fjölda trún- aðarstarfa fyrir sveit sína. Hann sat í hreppsnefnd í nær fjörutíu ár, var deildarstjóri i Kaupfélagi Borgfirð- inga í svipaðan tíma, sem og for- maður Búnaðarfélags Lunddæl- inga. Þá var hann hreppstjóri Lund- dæhnga í fimmtíu og eitt ár og sýslu- nefndarformaður í tuttugu ár. Eftir að Þorsteinn hætti búskap hefur hann skrifað tvær bækur sem eru endurminningar hans og bera heitið Glampar í fjarska á gullin þil. Fjölskylda Þorsteinn kvæntist 24.5.1929 Þór- unni Vigfúsdóttur, f. 17.4.1903, hús- freyju aö Skálpastöðum, en hún er dóttir Vigfúsar Eiríkssonar, b. og skipasmiðs í Tungu í Valþjófsdal i Önundarfirði, og konu hans, Guð- rúnar Sveinbjarnardóttur hús- freyju, frá Kirkjubóli í sömu sveit. Börn Þorsteins og Þórunnar eru Guðbjörg, f. 14.5.1930, kennslukona og húsmóðir í Svíþjóð, gift Nils Jó- hannssyni og eiga þau tvær dætur; Vigfús Onundur, f. 21.5.1931, d. 21.3. 1936; Þorsteinn, f. 16.12.1933, b. að Skálpastöðum, kvæntur Ásdísi Þor- steinsdóttur frá Úlfsstöðum í Hálsa- sveit og eiga þau fjögur börn; Guð- rún, f. 1.6.1936, húsfreyja, gift Val- geiri Jónssyni í Þverspyrnu í Hrunamannahreppi og á hún fimm börn; Guðmundur, f. 18.8.1937, b. á Skálpastöðum, kvæntur Helgu Bjarnadóttur húsfreyju, frá Hraun- ási, og eiga þau íjögur börn; Vigfús Önundur, f. 18.7.1941, læknir á Ak- ureyri, kvæntur Auði Sigurðardótt- ur hjúkrunarkonu og eiga þau þrjú börn. Þorsteinn átti þrjú systkini sem öll eru látin. Þau voru Guðrún Lov- ísa, f. 28.8.1894, en hún lést um fimmtugt, ógift og barnlaus; Ari, f. 18.11.1895, d. 21.5.1959, vegavinnu- verkstjóri, kvæntur Ólöfu Sigvalda- dóttur frá Stykkishólmi og áttu þau sex syni og eina dóttur; Kristín, f. 19.11.1899, húsfreyja að Eskiholti í Mýrasýslu, gift Bjarna Sveinssyni, b. þar, frá Kolsstöðum í Dölum, og áttu þau þijá syni og eina dóttur. Foreldrar Þorsteins voru Guð- mundur Auðunsson, f. 3.7.1865, d. 26.11.1935, b. og hreppstjóri að Skálpastöðum, og kona hans, Guð- björg Aradóttir, f. 22.7.1869, d. 30.4. 1921, húsfreyja og ljósmóðir að Skálpastöðum. Ætt Guðmundur var sonur Auðuns, b. á Gullberastöðum og á Varmalæk, Vigfússonar, b. á Fellsmúla á Landi, síðar á Grund í Skorradal, Gunnars- sonar, hreppstjóra í Hvammi í Landi, Einarssonar, hreppstjóra þar, Jónssonar. Móðir Vigfúsar var Kristín Jónsdóttir yngra, hrepp- stjóra í Vindási, Bjarnasonar, hreppstjóra og ættföður Víkings- lækjarættarinnar, Halldórssonar. Móöir Auðuns var Vigdís Auðuns- dóttir, prests á Stóru-Völlum, Jóns- sonar, prests á Mosfelli, Hannesson- ar. Móðir Guðmundar var Vilborg Jónsdóttir, á Hvanneyri, Þórðarson- ar, í Súlunesi, Jónssonar. Guðbjörg var dóttir Ara, b. á Syðstufossum, Jónssonar, b. þar, Gíslasonar, b. þar, Jónssonar. Móðir Jóns á Syðstufossum var Guðrún Jónsdóttir. Móðir Ara var Guðbjörg, dóttir Jóns Oddssonar, b. á Geita- bergi í Svínadal, og Oddnýjar Run- Þorsteinn Guðmundsson. ólfsdóttur. Móðir Guðbjargar var Kristín, dóttir Runólfs Jónssonar, b. á Innri-Skeljabrekku, og Ástríðar Jónsdóttur. Þorsteinn tekur á móti gestum að Skálpastöðum laugardaginn 1.6. nk. frá klukkan 15.00. Sigurður Gunnarsson Sigurður Gunnarsson sjómaður, Skálabrekku 1 á Húsavík, er sextug- ur í dag. Starfsferill Sigurður er fæddur að Arnarnesi í Kelduhverfi og ólst þar upp. Hann tók landspróf og var einn vetur í Lögregluskóla ríkisins. Auk þess tók hann minnapróf í siglingafræði. Sigurður vann við sveitastörf á unga aldri. Hann starfaði hjá lög- reglunni á Húsavík í þrjú og hálft ár en hefur unnið við sjósókn og skyld störf í tæp þrjátiu ár, þar af lengstásmábát. Siguröur hefur verið stjórnarmað- ur í Landssambandi smábátaeig- enda frá stofnun þess í desember 1985. Hann hefur ritaö nokkrar blaða- greinar og hafa flestar þeirra verið vegna baráttu smábátaeigenda fyrir rétti sínum. Fuglaskoðun og önnur náttúru- skoðun eru helstu áhugamál Sig- urðar og er hann einn af frumkvöðl- um jólatalningar á fuglum allt frá 1952 er þær talningar byijuðu. Sigurður hefur ritað tvær ritgerö- ir um fugla í Blika, tímarit fugla- áhugamanna, ogfjallar önnur um fuglalíf á Skjálfandaflóa að vetri. Fjölskylda Sigurður kvæntist 8. ágúst 1954 Þorbjörgu Theódórsdóttur, f. 13.7. 1926, húsmóður. Foreldrar hennar eru Theódór Gunnlaugsson, bóndi og refaskytta, sem fékkst einnig við ritstörf, og Guðrún Pálsdóttir hús- móðir. Sigurður og Þorbjörg eiga þrjú böm. Þau eru Sólveig, f. 4.1.1954. Maki hennar er Þorsteinn Rúnar Eiríksson vélstjóri og eiga þau þrjú börn og eru búsett á Seyðisfirði. Theódór Gunnar, f. 23.11.1956, læknir í Örebro i Svíþjóð. Maki hans er Guðrún Blöndal frá Siglufiröi. Þau eiga þrjú börn og eru búsett í Lindesbergí Svíþjóð. Guðrún Ásta, f. 16.11.1958. Maki hennar er Rúnar Bjarnason húsa- smiður. Þau eiga eina dóttur og eru búsett í Kópavogi. Sigurður á fimm systkini sem öll eru á lífi. Sigurður Gunnarsson. Foreldrar Sigurðar voru Gunnar Jóhannsson, f. 13.6.1897, sem lést í október 1978, bóndi, og Sigurveig Björnsdóttir, f. 8.6.1908, sem lést í desember 1946, húsmóðir. Þau bjuggu lengst af í Arnarnesi í Keldu- hverfi. Til hamingju með afmaelið 24. maí 85 ára Helga Gunnlaugsdóttir, Laugargötu 3, Akureyri. 80ára Jón Friðriksson, Miðstræti 24, Neskaupstað. 75 ára Guðmundur Sigurðsson, Urðargötu 7, Patreksfirði. Hannes Halldórsson, Skarðshíð 11H, Akureyri. Haildór Kristinsson, Horabrekkuvegi 7, Ölafsfirði. 70 ára Finnbogi Ólafsson, Tangagötu 4, Stykkishólmi. 60 ára Aðalsteinn Valdimarsson, Strandgötu87A, Eskifirði, Skúii Árnason, Höfðabraut 23, Hvammstanga. Björn Pálsson, Hafnarbyggö 5, Vopnafirði. Erlingur Helgason, Lindarflöt44, Garðabæ. Jón Pétur Guðmundsson, Hringbraut 74, Keflavík. Sigurður Gunnarsson, Skálabrekku 1, Húsavík. BirgirÁgústsson, Hraunbæ 84, Reykjavík. Kristín Pétursdóttir, Grundargötu 2, ísafirði. 50 ára Hreinn Guðlaugsson, Bólstaðahlíð 29, Reykjavík. Jóhann Gunnar Friðjónsson, Öldugranda 1, Reykjavík. Torfi B. Gunnlaugsson, Hamragerði 16, Akureyri. 40 ára Halldóra Jóhannsdóttir, Hringbraut 76, Reykjavík. Grétar Kristinsson, Drafnarbraut 6, Dalvík. Gunnjóna Guðmundsdóttir, Akurholti 9, Mosfellsbæ. Stefán Heigason, Höfðavegi 17, Húsavík. Anna Dóra Steingrímsdóttír, Mávabraut 70, Keflavík. Ómar Ólafsson, Laugalandi, Fljótahreppi. Ólafur Mogensen, Sólheimum, Grímsnesi. Guðlaugur Bergmundsson, Bogahlíð 12, Reykjavík. Sigurður Eiríksson, Lambeyrarbraut 4, Eskifirði. Haraldur Haruldsson, Vatnsendabletti 32, Kópavogi. Sviðsljós Bjöm Borg snýr aftur Sænski tennisleikarinn Björn Borg er nú byrjaður að æfa tennis aftur eftir átta ára hlé. Hann hefur undanf- arna mánuði verið við æfingar í Monte Carlo fyrir alþjóðlega opna mótið sem þar var haldið fyrir stuttu. Hann mætti í keppnina í fylgd prins Albert af Mónakó og leikarans Alain Delon. Fyrir mótið hafði hann sést á æfingu með Boris Becker sem virtist vera ánægður að hitta hann aftur. Honum gekk ekki vel í keppninni og tapaöi 6-2 og 6-3. Þrátt fyrir þaö segist hann vera ákveðinn að halda áfram. „Ég hef fengið fiölmörg tilboð í aö sýna tennis en fyrir mig jafnast ekkert á við að taka þátt í sterkum keppnum," sagði Björn Borg eftir keppnina. En það má vera ljóst að ef Björn Borg hyggst komast aftur í fremstu röð tennisleikara þarf hann að æfa stíft undir stjórn hinns nýja þjálfara síns, prófessors Ron Thatcher. Björn Borg kemur hér brosandi á æfingu fyrir keppnina á alþjóölega opna tennismótið i Monte Carlo, en hann hefur ekki keppt i átta ár. Simamynd Reuter Þetta naut reyndi árangurslaust að komast út úr nautaatshringnum. Ekki er vitað hvort það sá eitthvað áhugaverðara fyrir utan hringinn, sem það vildi kanna betur, eða hvort það var að flýja nautabanann. Nautið sneri þó að lokum aftur inn i hringinn og tók þátt í að Ijúka „sýningunni" (nautaat- inu) þar til það lá i valnum. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.