Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1991, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991.
íþróttir________________________________________________________________________________________dv
Hverjir fá
fæstu
spjöldin ?
-höfum rétt við!
I
s >a 2
c
<0
5
■S.
C/)
£
3
f
2
— eftir 4. umferð —
3/0 5/0 11/0 3/0 6/1 7/0 10/1 4/0 .5/0 8/0
■Í5 ^
i S
Opna Boss-mótið hjá Golfklúbbi Reykjavikur:
Sigurjón á þremur yf ir pari en sigraði samt
Sigurjón Arnarsson, GR, varö sig-
urvegari á opna Boss-mótinu í golfi
sem fram fór um síðustu helgi.
Leiknar voru 18 holur og lék Sigur-
jón hringinn á 74 höggum, þremur
höggum yfir pari vallarins.
Hörkukeppni var um efstu sætin
en í öðru sæti varð Einar L. Þóris-
son, GR, á 75 höggum og Björgvin
Þorsteinsson, GA, varð þriðji á sama
höggafjölda. Ólafur Skúlason og
Ragnar Ólafsson, báðir í GR, komu
næstir á 76 höggum og Sigurður H.
Hafsteinsson, GR, lék á 78 höggum.
í keppninni með forgjöf sigraði
Bjöm Kristján Árnason, GR, á 58
höggum nettó. Hann lék holurnar 18
á 82 höggum og er með 24 í forgjöf.
Mjög gött skpr hjá kylfingi með svo
háa forgjöf. í ööru sæti með forgjöf
varð Guðmundur Konráðsson, GR, á
66 högum nettó og Úlfar Ormarsson,
GR, þriðji á 67 höggum nettó.
-SK
Skotfimi:
Carl
þriðji
í Danmörku
-hlaut588 stig
Carl J. Eiríksson náði góðum ár-
angri í skotfimi á móti í Kaupmanna-
höfn um síðustu helgi. Carl tók þátt
í riffilskotfimi í opnum flokki og lenti
í þriðja sæti. Carl hlaut 588 stig af
600 mögulegum.
Carli hefur vegnað vel á þeim mót-
um sem hann hefur tekið þátt í er-
lendis sem sýnir að hann stenst er-
lendum keppendum snúning á góð-
um degi. Carl stefnir að þátttöku á
ólympíuleikunum í Barcelona næsta
sumar.
-JKS
Körfuknattleikur:
Auglýsingar
á húsþökum
Forráðamenn körfuknattleiks-
deildar UMFN eru þegar farnir að
hyggja að fjáröflunarleiðum fyrir
næsta vetur og er útlit fyrir að Njarð-
víkingar muni grípa til nýbreytni á
því sviði á næstunni.
Njarðvíkingar hafa í hyggju að
selja auglýsingar á húsþök í Njarðvík
en slíkt ku tíðkast víða erlendis.
Verða umræddar auglýsingar ekki
síður ætlaðar fljúgandi fólki en því á
jörðu niðri en útlit er fyrir að auglýs-
ingarnar verði bæði settar á slétt og
hallandi húsþök. Farþegar í flugi
geta því átt von á því að útsýniö yfir
Njarðvík breytist á næstunni ef fyrir-
tæki og aðrir aðilar taka vel í þessa
nýstárlegu hugmynd Njarövíkinga.
-SK/ÆMK
• Hart barist í leik Þróttar og Selfoss í 2
Þrótl
-liðiðkomi
Þróttarar sigruðu Selfyssinga 1-0 á
heimavelli sínum við Sæviðarsund í
gærkvöldi. Heimamenn voru sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik og voru með ólík-
indum klaufskir að skora ekki en Anton
Hartmannsson, márkvörður aðkomu-
liðsins, varði mjög vel í öll skiptin. Eina
mark leiksins leit dagsins ljós í upphafi
seinni hálfleiks. Þróttarinn Goran Migic
einlék þá upp allan vallarhelming Sel-
foss og var mjög óeigingjarn er hann gaf
laglega sendingu á Sigurð Hallvarðsson
sem sendi boltann örugglega framhjá
Vinsældir þríþrautar fara mjög vaxandi meðal Islendinga:
„Þetta er bara ein
faldlega svo gaman“
segir Einar Jóhannsson sem keppir á opna Norðurlandamótinu 1 Svíþjóð
Iþróttagreinar eru misjafnlega
erfiðar. Ein er sú íþróttagrein sem
teljast veröur í erfiðari kantinum
ef hún er þá ekki sú allra erfiðasta.
Hér er átt við þríþraut en ekki eru
mörg ár síðan farið var að stunda
þessa íþróttagrein hér á landi. Nú
er málum hins vegar svo komið hér
að vinsældir þessarar greinar fara
stöðugt vaxandi og fjöldi þeirra
iþróttamanna, sem iðkar þríþraut,
eykst stöðugt. í þríþraut er keppt í
sundi, hjólreiöum og hlaupi. Er
jafnan um langar vegalengdir að
ræða og því gefur augaleið að
íþróttagreinin er mjög erfið.
„Á opna Norðurlandamótinu,
sem ég fer á síðar í þessum mán-
uði, verður keppt í 2,5 km sundi,
80 km hjólreiðum og hlaupnir
verða 20 km. Þetta verður gífurlega
sterkt mót og ég veit til þess að
tveimur heimsþekktum atvinnu-
mönnum hefur verið boðin þátt-
taka. Þaö eru þeir Mark Allen og
Dave Scott. Þá munu allir bestu
þríþrautarmenn Norðurlanda
keppa á mótinu. Þetta er í fyrsta
skipti sem ég keppi erlendis og því
erfitt að geta sér til um árangur.
Ég reikna þó með að veröa um 5
mínútum á eftir atvinnumönnun-
um í sundinu, halda í við þá í hjól-
reiðunum og hlaupið er spurninga-
merki,“ segir Einar Jóhannsson en
hann mun keppa á opna Norður-
landamótinu í Svíþjóð um næstu
mánaðamót.
„Keppti fyrst í þríþraut
á Islandsmótinu í fyrra“
Einar Jóhannsson hefur verið ó-
sigrandi í hjólreiðum hér á landi
undanfarinn áratug og er marg-
faldur íslandsmeistari. En hvenær
vaknaði áhuginn á þríþrautinni?
„Þeir Stefán Friðgeirsson og Guð-
mundur Jakobsson vöktu áhuga
minn á þessari grein og það er ekki
langt síðan. Fyrst heyrði ég af þess-
ari grein fyrir 3-4 árum en það var
fyrst á íslandsmótinu í Hrafnagili
í fyrra sem ég keppti og varð annar
í röðinni. Síðan hef ég keppt tvíveg-
is á þessu ári og náð að sigra í
bæði skiptin."
ágæt. Hvað sundið varðar þá verð-
ur sjórinn hins vegar að vera 13
stiga heitur til að synda megi í hon-
um og hann er aldrei svo heitur
hér við land. Það er hins vegar
möguleiki á því að synda í vötnum
eða hreinlega í sundlaugum. Að
öðru leyti en þessu er öll aðstaða
mjög góð hér á landi.“
„Þaðfergífurlegur
tími í æfingarnar"
- Hvað um æfingatíma og aðstöðu
fyrir þríþrautarmenn hér á landi?
„Þaö gefur augaleið að það fer
alveg gífurlega mikill tími í þetta.
Ég æfi frá tveimur upp í sjö tíma á
dag en aðalæfingatíminn er á vet-
uma. Aöstaðan hér á íslandi er
Hjólaroftum 150
kílómetra á æfingu
Einar hefur æft mjög stíft undan-
farið og oft hjólar hann um 150 kíló-
metra á hverri æfingu. „Skipting-
arnar á millli sundsins, hjólreið-
anna og hlaupsins eru einnig mjög
erfiðar og sérstaklega er skiptingin
á milli hjólreiðanna og hlaupsins
erfið. Ég hef verið að æfa þessar
skiptingar sérstaklega undanfarið
og vonandi gengur þetta vel í Sví-
þjóð,“ segir Einar og er staðráðinn
í aö bæta árangur sinn í þríþraut-
inni í framtíðinni. „Ég hef verið aö
bæta mig í sundinu og hlaupinu og
einnig örlítiö í hjólreiðunum. Von-
andi heldur þetta áfram að batna.“
„Þetta er bara einfaldlega
svo ofsalega gaman“
- En hvað er það sem fær Einar til
að standa í þessu mikla puði?
„Það er einfalt svar við því. Þetta
er bara einfaldlega svo ofsalega
gaman. Svo hef ég verið að bæta
mig undanfarið og það gefur mér
byr undir báða vængi.“
Einar er þrítugur að aldri og seg-
ir að þríþrautarmenn séu yfirleitt
á toppnum um 25 til 35 ára. „Ég
ætla að halda áfram að æfa þrí-
þrautina þrátt fyrir að mikill tími
fari í þetta. Ég er ekki fjölskyldu-
maöur og það gerir það að verkum
að ég get staðið í þessu. Annars
væri þetta ekki hægt,“ sagði Einar
Jóhannsson.
Keppni í þríþraut er miserfið. Á
opna Norðurlandamótinu synda
' keppendur 2,5 km, hjóla 80 km og
hlaupa 20 km, eins og áður sagði
en í erfiðustu keppninni, sem vitað
er um, synda keppendur 3,9 km,
hjóla 180 km og hlaupa 42 km eða
heilt maraþonhlaup svona í lokin.
Þríþraut á mjög vaxandi vinsæld-
um að fagna hér á landi og svo virð-
ist sem vakning eigi sér stað þessa
dagana. Vitað er um íjölmarga
íþróttamenn sem eru í „startholun-
um“ og ef fram heldur sem horfir
verður þetta vinsæl íþróttagrein
hér á landi í náinni framtíð.
-SK
• Einar Jóhannsson keppir á opna Norður
er hann með útbúnaðinn sem þarf i þr
hlaupaskóna, búnaður sem kostar um 200 þi