Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1991, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1991.
17
l
Fylkir-IR.
Haukar-Grindavík.
iA-Tindastóll.....
Þróttur-Selfoss...
Þór-IBK...........
....1-1
....1-1
......6—0
....1-0
....2-1
Akranes.... 4 4 0 0 16-1 12
Keflavík.... ......4 2 1 1 9-4 7
Grindavík. ......4 2 1 1 6-3 7
ÍR ......4 2 1 1 7-5 7
Þróttur R.., 4 2 1 1 5-3 7
Þór Ak 4 2 1 1 7-7 7
Selfoss 4 1 1 2 4-7 4
Fylkir 4 0 3 1 3-4 3
Haukar 4 0 1 3 5-14 1
Tindástóll. .... 4 0 0 4 1-15 0
Markahæstir:
BragiBjörasson.ÍR.............4
Einar Daníelsson, Grindavík...4
JúlíusTryggvason, Þór.........4
Arnar Gunnlaugsson.ÍA.........4
Sigursteinn Gislason, ÍA......4
Þór vann Kef lavík
Þórsarar unnu dýrmætan sigur á
Keflvíkingum, 2-1, á Akureyri í gær-
kvöldi. Öll mörkin í leiknum voru
gerð í fyrri hálfleik.
Kjartan Einarsson kom gestunum
yfir snemma í leiknum en Ásmundur
Arnarsson jafnaði fyrir Þór. Júlíus
Tryggvason gerði sigurmark Þórsara
úr vítaspyrnu og tryggði liðinu 3
mikilvæg stig.
Tvö falleg mörk
„Það vantaði alla leikgleði í mína
menn og ljóst að við verðum ekki
með í toppbaráttunni að þessu sinni.
Við þurfum aftur á móti að huga að
því að tryggja sætið í deildinni,"
sagði Marteinn Geirsson, þjálfari
Fylkis.
Fylkir og ÍR gerðu 1-1 jafntefli á
Fylkisvelli í gær. Bæði mörkin voru
sérlega falleg. Fylkismenn urðu fyrri
til að skora og kom markið undir lok
fyrri hálfleiks, Kristinn Tómasson
skallaði í vinkilinn eftir aukaspyrnu.
ÍR náði að jafna í síðari hálfleik og
var það hinn 17 ára Kjartan Kjart-
ansson sem átti þrumuskot af um 18
metra færi sem markvörður Fylkis
réð ekki við.
„Það var frábært að skora jöfnun-
armarkið. Við vorum klaufar að
sigra ekki,“ sagði Kjartan.
Bestir hjá Fylki: Lúðvík Bragason
og Kristinn Tómasson. Hjá ÍR voru
bestir Kjartan Kjartansson, Bragi
Björnsson og Tómas Björnsson.
-Hson
Víðir mætir meisturunum
- þrír leikir á íslandsmótinu 1 knattspymu í kvöld
Fimmta umferð í 1. deild karla á
íslandsmótinu í knattspyrnu hefst í
kvöld með þremur leikjum og heíjast
þeir allir klukkan 20.
i Garðinum leika heimamenn í Víði
gegn íslandsmeisturum Fram. Víðis-
menn eru neðstir í deildinni með 1
stig sem þeir fengu í viðureign sinni
við Stjörnuna í síðustu viku. Með
þessu fyrsta stigi lyftist brúnin á leik-
mönnum liðsins og þeir mæta í leik-
inn gegn Fram fullir sjálfstrausts.
Fram vann sinn fyrsta sigur á fóstu-
dagskvöld og margir ætla nú að Safa-
mýrarliðið hrökkvi loks í gang eftir
dapurt gengi það sem af er íslands-
mótinu.
í Hafnarfirði verður nágrannaslag-
ur þegar FH-ingar taka á móti Stjörn-
unni úr Garðabæ. FH-ingar hafa enn
ekki unnið leik á íslandsmótinu og
eru í næstneðsta sæti deildarinnar
með 2 stig. Stjörnumenn eru skammt
undan með 4 stig. Það má því reikna
með miklum baráttuleik í Kapla-
krika þar sem bæði hð munu leika
til sigurs.
Stórleikur er á dagskrá í vestur-
bænum en þá taka KR-ingar á móti
Eyjamönnum á KR-velh. KR-ingar
eru í efsta sæti með 10 stig og eins
og þeir hafa leikið í þessum fyrstu
leikjum eru þeir hklegir kandítatar.
Eyjamenn eru í hópi efstu hða með
7 stig og með sigri á KR opna þeir
deildina upþ á gátt. Á íslandsmótinu
í fyrra gerðu Eyjamenn sér lítiö fyrir
og lögðu KR-inga á KR-velh og þeir
vilja örugglega endurtaka leikinn.
-GH
landamótinu í þriþraut i Svíþjóö. Hér
iþrautina, hjólið, sundbúninginn og
ísund krónur.
DV-mynd Guömundur Jakobsson
lAíham
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Leikur Skagamanna og Tindastóls
var heldur dauílegur í fyrri hálfleik
en Skagamenn höfðu allan tímann
yfirhöndina og fengu í það minnsta
fjögur góð tækifæri til að skora.
Theódór Hervarðsson skaut í hlið-
arnetið, Sigursteinn Gíslason einnig,
Gísli Eyleifsson og Theódór áttu skot
að marki en Gísli Sigurðsson varði
vel. Arnar Gunnlaugsson fékk
dauðafæri á lokamínútu fyrri hálf-
leiks en hitti ekki knöttinn.
Guðjón Þórðarson hefur greinilega
lesið yfir leikmönnum sínum í hálf-
leik því Skagamenn skiptu um gír
og rúlluðu hréinlega yfir Tindastóls-
menn. Það var samt Guðbrandur
Guðbrandsso'n, Tindastóli, sem fékk
fyrsta færið í síðari hálfleik eftir að-
eins tuttugu sekúndna leik en brást
bogalistin.
A 53. mínútu varði Gísli vel frá
nafna sínum Eyleifssyni en fimm
mínútum síðar var dæmd töf á Gísla
markvörð og Sigursteinn tók spyrn-
una snöggt, gaf á Bjarka Gunnlaugs-
son sem skoraði, 1-0. Mínútu síðar
skallaði Sigursteinn yfir mark gest-
anna. Á 65. mínútu átti Bjarki Gunn-
laugsson skot í þverslá og þaðan
barst boltinn til Theódórs Hervarðs-
sonar sem afgreiddi boltann í netið,
2-0.
Síðan koma fjögur mörk á fimm
mínútum og virtist sem lið Tinda-
stóls væri sprungið. Á 75. mínútu
skorar Arnar, 3-0. Tveimur mínút-
um síðar rústaði Gísli Eyleifsson
vörn gestanna, gaf á Harald Ingólfs-
son sem skoraði auðveldlega, 4-0. Á
79. mínútu skorar Sigursteinn með
skalla, 5-0, eftir góðan undirbúning
þeirra Haralds og Bjarka. Sjötta
markið skora Skagamenn á 80. mín-
útu. Eftir góða fyrirgjöf Haralds
skoraði Gísh Eyleifsson og fullkomn-
aði góðan leik sinn.
Skagamenn eru því enn taplausir
í 2. deild, með fullt hús stiga, og
stefna rakleitt í 1. deild. Á hinn bóg-
inn hafa Tindastólsmenn enn ekki
unnið leik og verður tímabilið þeim
eflaust erfitt.
• Eyjólfur Ólafsson dæmdi leik-
inn.
Haukar fengu
sitt fyrsta stig
Haukar náðu í sitt fyrsta stig í 2.
deild er þeir gerðu 1-1 jafntefli við
Grindvíkinga á Hvaleyrarholti í gær-
kvöldi. Jafntefli var sanngjörn úrslit
leiksins en bæði lið börðust af mikl-
um krafti.
Grindvíkingar komust yfir á 10.
mínútu með marki Ómars Torfason-
ar en fátt annað markvert gerðist í
fyrri hálfleik. Eftir það færðist meira
Qör í leikinn og Haukarnir náðu að
jafna á 61. mínútu þegar dæmd var
vítaspyrna á Grindavík. Ólafur Jó-
hannesson skoraði af öryggi úr
spyrnunni. Bæði lið fengu ágætisfæri
en mörkin urðu ekki fleiri.
Bræðurnir Ólafur og Brynjar Jó-
hannessynir voru bestir í liði Hauka
en hjá Grindavík bar langmest á Ein-
ari Þór Daníelssyni og einnig átti
Þorsteinn Bjarnason góðan leik í
markinu.
-RR
!. deildinni í gærkvöldi.
:ur í slaginn
lö í toppbaráttuna eftir tvo sigra 1 röð
Antoni markverði. Þróttarar drógu sig
th baka eftir markið og Selfyssingar
náðu sterkum tökum á miðjunni. Tvisv-
ar sinnum skall hurð nærri hælum við
Þróttaramarkið en heimaliöiö var hepp-
ið í þau skipti. Þróttarar léku einum
færri síðasta stundarfjórðunginn því
Dragan Malonvich fékk að líta rauða
spjaldið fyrir að fella Salih Porcha,
,júkkann“ í Selfossliðinu, sem var kom-
inn einn innfyrir. Selfyssingum tókst
ekki að nýta sér liðsmuninn og ef eitt-
hvað var þá voru Þróttarar nær því að
bæta við marki en Selfyssingar að jafna.
Goran Migic var bestur Þróttara en
Anton Hartmannsson stóð sig manna
best í Selfossliðinu.
Leikurinn var í heild prúðmannalega
leikinn og enginn leikmanna meiddist
en dómarinn Gísh Björgvinsson var sá
eini sem varð að yfirgefa völlinn. Það
gerðist í fyrri hálfleik eftir aö hann hafði
misstigið sig. Annar hnuvörður leiksins,
Ari Þórðarson, tók þá við dómarahlut-
verkinu og stóð sig ágætlega.
-KG
Iþróttir
• Á laugardaginn var
haldið opna Búnaöar-
bankamótiö í golfi hjá
Golfklúbbnum Mostra
í StykkishólmL Úrslit urðu sem
hér segir:
Án forgjafar
1. Sváfnir Hreiðarsson, GMS.74
2. Birgir V. Halldórsson, GR.75
3. Baldur Brjánsson, GK....79
Með forgjöf
1. Hannes Ellertsson, GMS..59
2. María Guðnadóttir, GMS..61
3. Birgir V. Halldórsson, GR.63
Bikarleiklr hjá
kvenfólkinu
• Fimm leikir eru í kvöld í bikar-
keppni kvenna í knattspyrnu og
hefjast alhr leikirnir klukkan 20.
Leikirnir eru: Sindri-Þróttur N„
Reynir S.-ÍBK, KA-Höttur,
Haukar-Valur og ÍA-Stjarnan.
Laddi sigraði
meðforgjöf
• í DV í gær var greint frá því
að Þórhallur Sigurðsson, Laddi,
heföi sigrað án forgjafar á opna
Dupont golfmótinu í Mosfellsbæ
á dögunum en hið rétta er að
hann sigraði í keppninni með
forgjöf. I keppninni án forgjafar
sigraði Ragnar B. Ragnarsson en
ekki Ragnar Bjarnason eins og
misritaðist í blaðinu. Hlutaðeig-
endur eru beönir velvirðingar.
Heimsmefhafinn mætir
Christie í Lausanne
...... • Leroy Burrell frá
3^ Bandaríkjunum, sem
setti glæsilegt heims-
—* met í 100 metra hlaupi
um síðustu helgi, mætir Evrópu-
meistaranum, Linford Christie, á
Grand Prix móti í Lausanne í
Sviss 10. júlí. Carl Lewis keppir í
200 metra hlaupi á sama móti.
Marseille hefur
augastað á Vanables
• Franska stórliðiö
Marseihe hefur hug á
að fá Terry Vanables
til að gerast fram-
kvæmdastjóri liðsins. Vanables
hefur þegar rætt lauslega við
Bemard Tapei, forseta Marsehle,
um þetta mál. Vanables vinnur
aö því aö eignast meirililuta í
Tottenham en ef það gengúr ekki
eftir er tahð víst að Vanables hafi
áhuga á að taka við Marseille.
Spasic frá Real
til Osasuna
• Júgóslavneski landsliðsmaö-
urinn Predrag Spasic skrifaði í
gær undir þriggja ára samning
við spænska félagið Osasuna.
Spasic lék með Real Madrid í vet-
ur og átti eftir þrjú ár af samn-
ingí við félagiö. Spasic náði sér
ekki á strik hjá Real Madrid og
var því seldur. Kaupverðiö var
ekki gefið upp. Osasuna gekk
mjög vel í 1, deild oghafnaði þeg-
ar upp var staðið í fjórða sæti.
Trapattoni yfirtil
Juventus á ný
• Giovanni Trapattoni mun
þjálfa Juventus á næsta tímabili.
TTapattoni var í vetur þjálfari
Inter Mhan og var samnings-
bundinn félaginu út árið 1992.
Ástæðan fyrir því að Trapattoni
yfirgefur Inter er ósætti við stjórn
félagsins. Trapattoni þjálfaði Ju:
ventus frá 1976-1986 og á þeim
tíraa vann hðið sex titla.
Miöasala gengurvel
á OL í Barcelona
• Þriöjungur aðgöngumíða á
ólympíuleikana í Barcelona 1992
hefur nú selst. Aðstandendur
leikanna eru mjög ánægðir með
söluna en nú hafa selst 1,5 miljj-
ónir miöa en seldir verða alls 4,2
mihjónir miöa. Uppselt er þegar
á opnunarhátíðina, úrslit í frjáls-
um og á körfuknattleikinn.