Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1991, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1991. FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1991. 25 Iþróttir Sport- stúfar Guðrún Júlíusdóttir hlaut gullverölaun í einliðaleik kvenna í badminton á Eyjaleik- unum sem lauk á Álandseyjum um helgina. Hún sigraði Ronnie Jubb frá Jersey, 8-11,11-2,11-7, í úrslitaleik. Guðrún komst einnig á verðlaunapall í tvíliðaleik kvenna, ásamtÁslaugu Jónsdótt- ur, en þar höfnuðu þær í þriðja sæti. í liðakeppninni varð Island númer tvö í sínum riðli en komst ekki áfram. í karlaflokki kepptu Frímann Ferdinandsson, Kristj- án Kristjánsson, Andri Stefáns- son og Viðar Gíslason, og vann enginn þeirra til verðlauna. Fjögur kepptu á NM í fjölþrautum Fjórir íslendingar voru meöal þátttakenda á Norðurlandameistara- raóti unglinga í íjöl- þrautum sem fram fór í Noregi um síðustu helgi. Þuríður Ingv- arsdóttir, HSK, varð í 5. sæti í sjöþraut í flokki 19-20 ára stúlkna meö 4648 stig, Kristín Markús- dóttir, UMSB, varð í 9. sæti í sjö- þraut i flokki 15-16 ára stúlkna með 3614 stig, Ómar Kristinsson, UMSE, varð í 7. sæti í tugþraut í flokki 15-16 ára pilta með 4974 stig, og Freyr Olafsson, HSK, varð í 8. sæti í tugþraut í flokki 17-18 ára pilta með 5326 stíg. Ómar sigraði í tveimur greinum, spjótkasti og 100 metra hlaupi, og Þuríöur sigraði í 800 metra hlaupi. Aðalfundur handknatt- leiksdeildar Breiðabliks Aðalfundur hand- knattleiksdeildar Breiðabliks verður haldinn fimmtudaginn 11. júlí í Félagsheimili Kópavogs. Á dagskrá eru venjuleg aðalfund- arstörf. Leeds keypti Steve Hodge frá Forest Enska knattspymufé- lagið Leeds keypti í gær landsliðsmanninn Steve Hodge frá Nott- ingham Forest. Félögin hafa ekki gengið endanlega frá kaupverði en reiknað er með að það verði í kringum 700 þúsund krónur. Hodge er fjórði leikmaðurinn sem Leeds kaupir í sumar, hinir eru tvíburarnir Ray og Rodney Wallace frá Southampton og Tony Dorigo frá Aston Villa. Atkinson keypti nafna sinn Ron Atkinson, ffamkværada- stjóri Aston Villa, tók líka upp buddúna í gær og snaraði út 1,6 milljónum punda fyrir framherj- ann Dalian Atkinson frá Real Sociedad á Spáni. Dalían Atkin- son lék undir stjóm Rons Atkin- sons hjá Sheffield Wednesday, en Ron seldi hann til Spánar fyrir tveimur árura. Dalian er 23 ára gamall og lék áður með enska 21-árs landsliðinu. „Um leiö og ég tók við hjá Villa var ég ákveðinn í að kaupa Dalian. Hann er ein- hver efnilegasti leikmaður sem ég hef unniö með,“ sagði Ron Atkinson um nafna sinn í gær. Sundmeistarinn upptekinn íflugi Stefan Pfeiffer frá Þýskalandi, þrefaldur verðlaunahafi á heimsmeistaramótinu í sundi fyrr á þessu ári, er hættur viö að taka þátt í Evrópumeist- aramótinu í þessum mánuði. Pfeiffer er í þjálfún sem flugmað- ur og segir að hann þurfi að taka þýðingarraikil próf á sama tíma og Evrópumótið fer fram í Grikk- landi. Áttunda umferð 1. deildar hefst í kvöld: Stórleikur í Laugardal - Fram og KR mætast í sannkölluðum toppleik í kvöld dregur heldur betur til tíð- inda í 1. deild íslandsmótsins í knatt- spymu þegar Framarar taka á móti KR-ingum á Laugardalsvellinum í sannkölluðum stórleik. Aöeins tvö stig skilja liöin í fyrsta og þriðja sæti deildarinnar og leikur- inn í kvöld hefur því úrshtaþýðingu fyrir framhald toppbaráttunnar. Framarar eru á mikilli siglingu um þessar mundir, hafa unnið fjóra leiki í röð eftir slæma byrjun á íslands- mótinu, en KR-ingar virðast hins vegar vera að gefa eftir, hafa gert jafntefli í tveimur síðustu leikjum sínum. Fallslagur í Garðinum Annar hálfgildings úrslitaleikur fer fram í Garðinum þar sem Víðismenn taka á móti FH-ingum. Víðir hefur ekki unnið leik og þarf nauðsynlega á sigri að halda í kvöld, annars verð- ur staða liðsins orðin dökk. FH- ingum hefur gengið lítið skár og virö- ast líka eiga faUbaráttu fyrir hönd- um. Miðjuliðin á Akureyri Þriðji leikur kvöldsins er viðureign KA og Víkings á Akureyri. Þar fara miðjulið deildarinnar eins og staðan er í dag, og leikurinn skiptir því miklu máli fyrir bæöi um hvorum hluta deildarinnar þau tilheyra. AUir leikimir í kvöld hefjast klukkan 20. „Mikið í húfi fyrir bæði lið“ - segir Pétur Ormslev um leik Fram og KR „Þaö er alveg ljóst aö leikurinn í kvöld gegn KR verður einn af úrsUta- leikjum íslandsmótsins og mikiö er í húfi fyrir bæði liðin. Eg veit að KR-ingar mæta ljóngrimmir tU þessa leiks en við Framarar fórum í þenn- an leik með sigur í huga og það er mikUl hugur í liðinu fyrir leikinn,“ sagði Pétur Ormslev, fyrirliði Fram, í samtaU við DV í gær um toppleik Fram og KR í kvöld. Pétur sagði að að allir leikmenn Uðsins gengju heUir til skógar nema að Pétur Arnþórsson á við meiðsli að stríða og leikur af þeim sökum ekki. Mikil stemning fyrir leiknum í kvöld „Það er ekki nein spurning að leikur- inn gegn Fram í kvöld er mjög mikil- vægur fyrir bæði.Uðin. Framarar eru á miklum skriöi þessa dagana og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur tU að stöðva sigurgöngu þeirra. Fram tók af okkur sex stig í fyrra en í kvöld ætlum við að snúá blaðinu við,“ sagði Atli Eðvaldsson KR-ingur í samtali við DV í gær. „Ég held að í síöasta leik gegn Stjörn- unni hafi leikmenn verið komnir meö annan fótinn niður á Laugar- dalsvöll og það hafi komið niður á leik okkar þá. Leikurinn gegn Fram hefur verið ofarlega í huga okkar og nú er stóra stundin runnin upp. Þetta verður einn af toppleikjum 1. deildar í sumar,“ sagði ÁtU Eðvaldsson. -JKS Stórsigur hjá íslendingum - unnu Dani, 28-19, í landsleik í gærkvöldi íslenska landsliðiö í handknattleik vann stórsigur á Dönum, 28-19, í landsleik í handknattleik í Dan- mörku í gærkvöldi. Þar með hefndu íslendingar fyrir tapið á mánudags- kvöldið en þá unnu Danir naumlega með eins marks mun. Þaö var aðallega góður varnarleik- ur sem skóp sigur íslendinga í gær- kvöldi. í leikhléi var staðan 14-10, íslendingum í vU. Valdimar Grímsson var marka- hæstur í íslenska liðinu með 7 mörk en Jakob Sigurðsson kom næstur með 6 mörk. -RR Gummi Steins kinnbeinsbrotinn - verður ekki með Víkingum á næstunni Víkingar urðu fyrir miklu áfalU í gærkvöldi þegar Guðmundur Steins- son, markahæsti leikmaður Uðsins, kinnbeinsbrotnaði á æfingu. Guð- mundur verður frá keppni í mánuð að minnsta kosti. „Þetta gerðist í upphitun og Guð- mundur rakst á annan leikmann með þessum afleiðingum. Það er ljóst aö þetta er mikill missir fyrir okkur því Guðmundur hefur átt mjög góða leiki en það kemur maður í manns stað,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari VUdnga, í samtaU við DV í gær- kvöldi. Guðmundur hefur skorað sex mörk með Víkingum það sem af er íslandsmótinu og er næstmarka- hæsti leikmaður 1. deUdar. -RR Iþróttir • Jennifer Capriati, 15 ára gömul stúlka frá Bandarikjunum, sigraði hina frægu Martinu Navratilovu á Wimbledon-mótinu í tennis í gær. Capriati er þar með komin í undanúrslit og mætir þar Gabrielu Sabatini. Símamynd Reuter Allt galopið í 3. deild 3. deUdin opnaðist upp á gátt í gær- kvöldi þegar engu af efri liöunum tókst að sigra í leikjum sínum. • Leiftursmennhaldasamttoppsæt- inu eftir 1-1 jafntefli á Dalvík. Guðjón Stefánsson skoraði þar fyrir heima- menn en Þorlákur Ámason jafnaöi fyrir Leiftur. • ÍK sigraði SkaUgrím, 4-1, í Kópa- vogi og var þetta fyrsta tap Borgnes- inga í deildinni í sumar en þeir eru samt áfram í 2,sæti deildarinnar. Ólaf- ur Már Sæyarsson skoraði tvö mörk fyrir ÍK og Úlfar Óttarsson, besti mað- ur Kópavogsliösins, bætti því þriðja við. Valdimar Sigurðsson minnkaði muninn fyrir SkaUagrím en rétt fyrir leikslok varði Bogi Petersen, mark- vöröur ÍK, vítaspyrnu frá Valdimar. Það var síðan á lokaminútu leiksins að Þröstur Gunnarsson innsiglaði ör- uggan sigur ÍK með fjórða markinu. • BÍ vann Reyni, 2-0, á ísafiröi og skoruðu þeir Ámundi Sigmundsson og Guðmundur Gíslason mörk ísfirðinga. • Völsungur sigraði Magna, l-O, og gerði Hörður Benónýsson eina mark ieiksins. • Á Neskaupstað gerðu Þróttur og KS markalaust jafhtefli í sannkölluð- um hörkuleik. Stórsigurhjá Hvötog HSÞ-B í D-riðU 4. deildar sigraði Hvöt Uð SM, 5-1. Bjarni Sigurðsson gerði þrennu og Orri Baldursson tvö mörk fyrir Hvöt en Bergur Stefánsson gerði mark SM HSÞ-B vann 6-1 sigur á Neistanum. Jónas Hallgrímsson og Þröstur Sig- urðsson geröu tvö mörk hvor, þeir Viðar Sigurjónsson og Einar Jónsson eitt hvor en mark Neistans gerði Þór- hallur Ásmundsson úr víti. ÚMSE-B vannKormák, 2-1, ogskoraði Sigurður Skarphéðinsson bæði mörk UMSE-B en Albert Jónsson gerði mark gest- anna. • í E-riðli vann höttur Val, 0-2, á útiveUi. Jónatan Vilhjálmsson og Freyr Sverrisson skoruðu mörk Hatt- ar. Austri vann óvæntan sigur á Sindra, 4-1. Siguröur Kristjánsson, Bryngeir Stefánsson, Sigurður Magn- ússon og Jón Steinsson skoruöu fyrir Austra en Þrándur Sigurösson geröi eina mark Horafirðinga. KSH vann 3-0 sigur á Hugin í miklum hörkuleik. Jón Ingimarsson gerði tvö mörk KSH og fékk síðan rautt spjald og annar leik- maður KSH, Albert Jensson, fékk einnig að sjá rauða spjaldið. Albert Jónsson gerði þriðja mark KSH í leikn- ura en Huginsmenn misnotuðu vita- spyrnu. Loks vann Leiknir Einherja, 1-0, með marki Kára Jónssonar. Markalaust hjá KAogVal I 1. deild kvenna gerðu KA og Valur markalaust jafntefli á Akureyri og var þetta fyrsta stigið sem KA-stúlkurnar fá í sumar. -RR/KH/MJ/IH Grand-Prix frjálsíþróttamótið í Stokkhólmi: Sigurður f immti í spjótkastinu - kastaði 76,40 metra en Seppo Raty sigraði auðveldlega Sigurður Einarsson náði aðeins 5. sæti á Grand-Prix frjálsíþrótta- mótinu í Stokkhólmi í gær. Sigurð- ur kastaði lengst 76,40 metra sem er allangt frá hans besta. Heims- methafinn Seppo Raty frá Finn- landi sigraði af öryggi með kasti sem mældist 88,66 metrar. Gavin Lovegrove frá Nýja Sjálandi varð annar með 81,92 metra og Viktor Zaitsev fá Sovétríkjunum þriðji. Fimmta sæti ekki slakt „Þetta var ekki nógu gott hjá Sig- urði en ég er viss um að þetta er smávægilegt tækniatriði sem hefur farið úrskeiðis. Fimmta sæti er samt ekki slakt á svona stórmóti," sagði Stefán Jóhannsson þjálfari í spjalli við DV. Burrell vann MOOmetra hlaupi Bandaríkjamaðurinn Leroy Bur- rell, nýi heimsmethafinn í 100 metra tilaupi, sigraði í gær á tíman- um 10,21 sek. Hann var seinn af stað en náði að komast fram úr Kanadamanninum Bruny Surin og landa sínum Mark Witherspoon á síðustu 10 metrunum. „Það er erfiðara að keppa núna því nú vilja allir sigra mann og slá nýtt met,“ sagði Burrell eftir hlaup- ið en heimsmet hans á dögunum var 9,90 sek. Carl Lewis beiö lægri hlut í 200 m. hlaupinu þegar hann tapaði fyr- ir Namibíumanninum, Frankie Fredericks, í gær. Fredericks hljóp á 20,41 sek. en Lewis á 20,46 sek. Þetta var annaö tap Lewis á þrem- ur dögum en á mánudag tapaði hann fyrir Dennis Mithell á móti í Frakklandi. „Mér líður ágætlega þrátt fyrir tapið. Ég á eftir að gera betur í næsta hlaupi í Lausanne í næstu viku. Síðan mun ég einbeita mér að 100 metra hlaupi og langstökki á heimsmeistaramótinu í Tokyo," sagði Lewis eftir hlaupið í gær. • í 400 m. grindahlaupi sigraði Samuel Metete frá Zambíu á 48,11 sek. • Í sömu grein í kvennaflokki bar Margirita Ponomarjeva, Sovét- ríkjunum, sigur úr býtum á 55,20 sek. í 3 þúsund metra hlaupi vann Moses Kiptanui frá Kenýa sigur á tímanum 8:07,89 mín. • í langstökki sigraði David Cul- bert frá Ástralíu en hann stökk 8,05 metra. • í 110 m grindahlaupi karla sigraði Greg Foster frá Bandaríkj- unum á 13,24 sek. • í þrístökki kvenna sigraöi Inessa Kravets frá Sovétríkjunum, hún stökk 14,35 metra. • í 3 þúsund metra hlaupi kvenna sigraði Marie-Pierre Duros frá Frakklandi á 8:40,76 mín. í 1500 metra hlaupi karla vann Noureddine Morceh frá Alsír á tím- anum 3:31,01 mín. • Svíinn Patrick Sjörberg sigraði af nokkru öryggi í hástökki, stökk 2,31 metra. • í 100 metra hlaupi kvenna sigr- aði hin glæsilega hlaupakona frá Jamaíka, Marlene Ottey, á 10,98 sek. • í 800 metra hlaupi kvenna bar Doina Melinte, Rúmeníu, sigur úr býtum á tímanum 1:58,11 min. í 800 metra hlaupi karla sigraði Tom McKean frá Bretlandi á tímanum 1:44,41 mín. • í 5 þúsund metra hlaupi karla vann Salvatore Antibo frá Ítalíu á 13:13,66 mín. • í stangarstökki karla sigraði Bandaríkjamaðurinn Greg Du- plantis en hann stökk 5,70 metra. • í þrístökki karla sigraði Oleg Protsenko frá Sovétríkjunum, hannstökk 17,20 metra. -RR • Sigurður Einarsson varðfimmti. Navratilova fékk óvæntan skell - á Wimbledon-mótinu 1 tennis Martma Navratilova fra Banda- um undanúrslitaleiknum eigast við ríkjunum féll í gær út úr keppni á - "Steíi Graf og Mary Joe Fernandez. Wimbledon-mótinu í tennis þegar hún beiö lægri hlut fyrir löndu sinni Jennifer Capriati í fjórðungsúrslit- unum, 6-4 og 7-5. Navratilova, sem hafði titil að veria, lenti strax í vand- ræðum gegn hinni 15 ára gömlu Capriati og varð að játa sig sigraða. Argentíska stúlkan Gabriela Sa- batini er komin í undanúrslit eftir öruggan sigur á Lauru Gildemeister, 6-2 og 6-1, og í undanúrslitunum mætir hún Jennifer Capriati og í hin- Boris Becker, Þýskalandi, er komin áfram í 5. umferð eftir sigur á Svían- um Christian Bergström, 6-4, 6-7 (4-7), 6-1, 7-6 (7-2). Þá tryggði Frakk- inn Guy Forget sér sæti í 5. umferð eftir sigur á Tim Mayott, Bandaríkj- unum, 6-7 (4-7), 7-5, 6-2 og 6-4. Ann- ar góður tennisleikari, Andre Ag- assi, Bandaríkjunum, sömuleiðis kominn í 5. umferö eftir sigur á Hol- lendingnum Jacco Eltingh, 6-3, 3-6, 6-3 og 6-4. • Hluti þátttakenda i bæjakeppninni sem fram fór á Sauðárkróki Sauðkrækingar unnu bæjakeppni Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki: Bæjakeppni í golfi fór fram á Hlíö- arendavelli um síðustu helgi. Kepp- endur voru 60 talsins, frá Blönduósi, Ólafsfirði og Skagastönd, auk heima- manna frá Sauðárkróki. Sauðkræk- ingar sigruðu í keppninni, meðalskor sex bestu var 70,3 högg. Blönduósing- ar komu næstir með 77,2 högg, Skag- strendingar urðu í þriðja sæti með 78,2 högg og Ólafsfirðingar ráku lest- ina með 78,3 högg. I karlaflokki með forgjöf sigraði Adolf Berndsen Golfklúbbi Skaga- strandar. í keppni með forgjöf sigraði Öm Sölvi Halldórsson, Golfklúbbi Sauðárkróks. í kvennaflokki sigraði Valgerður Sverrisdóttir, Golfklúbbi Sauðárkróks, bæði með og án forgjaf- ar. í keppni unglinga sigraði Steinþór Karlsson, Golfklúbbi Skagastrandar, með forgjöf og Guðjón Baldur Gunn- arsson, Golfklúbbi Sauðárkróks, í keppni án forgjafar. Kani í sigti hjá Haukum - tveggja metra risi í viöræðum við Hauka Úrvalsdeildarlið Hauka í körfu- knattleik er nú á höttunum eftir þjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Eins og komið hefur fram hér í DV er Glenn Thomas hættur með liðið en hann stjórnaði því á síðasta keppnistímabili. Forráðamenn Hauka hafa verið í sambandi við umboðsmenn í Banda- ríkjunum og í dag eru Haukar með spilandi þjálfara í sigtinu. Sá er 30 ára gamall Bandaríkjamaður, 2,04 sentímetrar á hæð og leikur í stöðu miðherja. Hann hefur leikið í Noregi og á Englandi við góðan orðstír og þá hefur hann spilað körfubolta í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. „Við höfum rætt við leikmanninn og umboðsmann hans og gert honum tilboð. Hann er að skoða tilboðið og ætlar að gefa okkur svar um næstu helgi. Við höfum ekki séð leikmann- inn en höfum fengið ítarlegar upplýs- ingar um hann sem okkur list vel á. Hann þykir mjög góður leikmaður, tekur mikið af fráköstum og þar sem hann hefur leikið hefur hann skorað að jafnaði 30-40 stig í leik. Þetta ætti að skýrast betur á næstu dögum,“ sagði Ingvar Kristinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, í samtali við DV í gær. Jón Örn til Hauka? Haukamir eru byrjaðir að æfa að loknu sumarleyfi. Jón Örn Guð- mundsson, sem leikið hefur með Þór á Akureyri tvö síðustu ár, hefur ver- ið að æfa með liðinu en ekki gengið frá félagaskiptum. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.