Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Blaðsíða 4
18 Hús og garðar MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991. DV Veðurfarsleg áhrif meiri hér en á nokkru öðru byggðu bóli: Hafiö í huga að steypan þarf aö anda „Eftir tuttugu ára predikanir er nú loksins farið að taka upp þær aðferð- ir sem við höfum haldið á lofti við frágang á steyptum húsum,“ sögðu þeir félagar Haraldur Hjartarson og Elias Guðmundsson, eigendur Stein- prýði hf., í samtali við DV. Fyrirtæk- ið hefur m.a. umboð fyrir bandarísku Thoroefnin sem notuð eru viö frá- gang á steypu og koma, að sögn þeirra félaga, í veg fyrir raka- skemmdir á steypunni. Allir kannast við steypuskemmdir á húsum, svokallaðar alkalískemmd- ir eða venjulegar sprungur sem koma í hús og valda bæði tjóni og ómældum leiðindum húseigenda. Við spurðum þá félaga hver væri ástæðan fyrir lekum húsum. „Ástæðurnar fyrir lekum húsum eru margar og mismunandi. Það get- ur verið efnið, vinnan eða hönnunin eða allt þetta. Ein orsökiner að raka- streymi stoppar við málninguna. All- ir kannast við poka í málningunni. Þeir eru fullir af vatni sem kemst ekki út. Thoroefnin eru opin efni. Þau eru 100% steinefni sem notuð eru á hús- in, bæði utan og innan en aðallega að utan. Nefna má ýmsar stórbygg- ingar þar sem þetta efni hefur verið notað, eins og innan á veggi geðdeild- ar Landspítalans og á Þjóðarbók- hlöðuna. Arið 1978 tókum viö að okk- ur þakið á Laugardalshöllinni. Það var bæði lekt og einnig farið að þynn- ast mikið. Thoro þróaði nýtt efni sem notað var á þakið á kúlunni og tókst það mjög vel. Við erum nú að vinna ný hús sem Álftárós er að byggja fyrir DAS í Jök- ulgrunni. Við köllum að við „hreins- um“ nýju húsin, við hreinsum hugs- Haraldur Hjartarson, framkvæmda- stjóri Steinprýöi hf. DV-mynd Hanna é - segja Haraldur og Elías í Steinprýði Haraldur og Elías lögðu áherslu á að þeir framkvæmdu ekki viðhald húsa heldur viðgerðir. Þeir sögðust aldrei gera föst verðtilboð í viðgerðir nema alveg lægi ljóst fyrir hvað raunverulega þyrfti að gera við hús- ið. Þeir gera hins vegar verðtilboð í ný verk og geta þá fyllilega staðið við það. Við spurðum um kostnaðinn við notkun Thoroefnanna. Fyrirtækið lét Hagvang gera hlutlausa könnun á kostnaði á frágangi steyptra útveggja með Thoroefnum miðað við hefðbundna aðferð (múrhúðun og málning). Sú könnun leiddi í ljós að þar sem um var að ræða slétta áferð reyndist Thoroaðferðin um 47% ódýrari en ef um var að ræða hraun- aða fleti var mismunurinn enn meiri. Thoroaðferðin var þá 54% ódýrari en hefðbundin aðferð. Mismunurinn er í rauninni enn meiri þar sem viðhald húsa, sem unnin eru með Thoroaðferðinni, er svo miklu minna heldur en ef notuð er hefðbundin aðferð (miðað við að hefðbundna aðferðin heppnist 100%). „Við höfum tekið að okkur viðgerð- ir á eldri húsum. Við höfum t.d. ver- ið um það bil ár að vinna einbýlishús á. Seltjarnarnesi sem var mjög illa Óskaplegt veðurálag í vetur var birt könnun sem gerð hafði verið á veðurfari hér á landi. í ljós kom að hér á landi er verðurfar þannig að það er óskaplegt álag á allar byggingar og meira heldur en þekkist á nokkru öðru byggðu bóli í heiminum. Nefna má að frost og þíðuverkanir geta verið 80 á ári að meðaltali. Þar að auki er sólin mjög sterk hér á landi þegar hún skín. Allt þetta gerir að verkum að vanda verður til byggingaframkvæmda hér umfram það sem nauðsynlegt er annars staðar í heiminum. „Við leggjum áherslu á að vinna með Thoroefnum er ekki málningar- vinna heldur múrvinna. Menn geta borið Thoroefnin sjálfir á hús sín ef þeir eru heiðarlegir og vandvirkir. Þaö þýðir ekkert að reyna að spara sér vinnu eða efni. Það verður að gera þetta eftir nákvæmri forskrift," sagði Elías. Þeir félagar sýndu okkur einbýlis- hús í Smáíbúðahverfi sem með- höndlað hafði verið með Thoro í fyrra. Það hafði verið kústað á það fyrir átján árum, húseigendur höfðu gert það sjálfir. Það tókst mjög vel Þessar myndir eru teknar af einbýlishúsinu á Seltjarnarnesi er verið var að vinna þar en húsið var mjög illa farið. Ekki þurfti að hafa mikið fyrir að brjóta úr skyggninu á bílskúrnum, það hreinlega molnaði þegar við þaö var komið. Skorsteinninn var mjög illa farinn. Ef myndin prentast vel má sjá hvernig ysta húðin í pússningunni flettist af. anlega olíu sem komið hefur úr mót- unum, hreinsum burtu steypu- slamma, ysta lagið sem kemur í steypuna þegar hún kemur úr mót- unum. Þetta er þunn sementshúð svona 1 mm á þykkt. Svo er Thoro- efnunum sprautað eða kústað á vegg- ina sem veröa algerlega þéttir en hleypa samt í gegnum sig raka. Þetta kemur í veg fyrir að húsin springi auk þess sem viðhald húsa, sem meðhöndluð hafa verið með Thoro- efninu, er hverfandi lítið,“ sögðu þeir félagar. Sem dæmi nefndi Haraldur tíu húsa raöhúsalengju. Níu af húsun- um voru meðhöndluð með Thoroefn- inu utanhúss fyrir tíu árum og hafa ekki þurft neitt viðhald síðan. Einn húseigandinn vildi ekki þá meðferð heldur notaði heföbundnar aðferöir. Hann hefur þurft aö mála sitt hús fjórum sinnum á þessu tíu ára tíma- bih! farið. Það þurfti að hreinsa múrhúð- unina gjörsamlega af húsinu, taka burtu allar skemmdir sem í ljós komu, t.d. var skorsteinninn alger- lega ónýtur. Þetta verk reyndist mjög dýrt í framkvæmd, kostnaður fer yfir eina milljón kr. Þetta hús hafði verið málað mörg- um sinnum en með því var aldrei komist fyrir vandann heldur aðeins breitt yfir misfellurnar með máln- ingu,“ sagði Elías. og segja þessir húseigendur að þetta sé besta ijárfesting sem þeir-hafi nokkru sinni gert. Um fjörutíu manns tengjast Stein- prýði, þar af 15-18 múrarar. Fyrir- tækið gengst fyrir námskeiðum fyrir múrara og byggingameistara. í vor sóttu hundrað manns námskeið fyr- irtækisins í húsakynnum þess að Stangarhyl 7. -A.Bj. Rakastig í nýjum íbúðum ofthátt: Loftræstið vel og opnið glugga Það má eílaust leita með logandi ljósi um allan heim án þess að finna jafnvönduö hýbíli eins og á íslandi. Auðvitað eru sérstakar kröfur hér á landi hvað varðar styrkleika húsa gagnvart jarðskjálftum. Hér á landi eru veður einnig slík að hvergi annars staðar á byggðu bóh verða húsbyggingar fyrir eins miklu álagi af völdum veðurs og hér á landi. Við verðum einnig að taka sérstakt tillit th jarðskjálfta- virkni hér á landi. Hér á landi hafa komið jarðskjálftar af styrkleika sem leggja hús að velli erlendis en hreyfa ekki við byggingum hér á landi. Þó er ekki því að neita að stundum fmnst manni eins og það keyri um þverbak hve byggingar hér eru rammgerar. Þegar farið er að nota þrefalt eða jafnvel fjórfalt gler í glugga og aht eftir því! Svo er fólk alveg hætt að opna glugga, sagði viðmælandi okkar er við ræddum um íburðarmikil húsa- kynni Reykvíkinga. Hann sagöist vita dæmi um að í nýjum húsum væri gjarnan kvartaö undan raka, í verstu tilfellum læki rakinn niður veggina. Þetta er aöeins vegna þess að íbúðir eru illa loftræstar, fólk er hreinlega hætt að opna glugga, sagði hann. Um daginn kom ég í íbúð til ungra hjóna sem áttu lítið barn. íbúðin var ný en í henni mik- ill raki. Ungu hjónin voru óhress með þetta en ég rak strax augun í að gluggarnir voru þrútnir og höföu greinilega ekki verið opnaðir lengi. Þau sögðust ekki geta opnað glugga vegna þess að þau væru með ungbam og vildu ekki fá kulda á barnið. Rakinn er örugglega miklu verri fyrir barnið en kuldinn enda ótrúlegt að kuldi í íbúð í Reykjavík geti verið skaðlegur nokkrum manni, ungum eða gömlum. í húsnæði, þar sem raki virðist hafa tekið sér bólfestu, er ráðlegt að loftræsta vel. Jafnframt er nauð- synlegt að kynda vel á meðan hús- ið er að þorna. Njótið þess að láta ferska loftið leika um húsakynnin. -A.Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.