Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
25
Hús og garðar
fjölær fjallaplanta, mjög skemmtileg
og falleg. Hún er dálítið erfið í rækt-
un í Reykjavík en hér lifir hún eins
og hún hafi aldrei gert annað. Svo
er aftur verra með suma aðra fjölær-
inga, eins og musterisblómið, sem
þarf lengra sumar en við getum boð-
ið. Það á erfitt með að blómstra héma
en fyrir sunnan er einmitt það sumar
sem það þarf. Þetta á við um sein-
blómstrandi fjölærar plöntur og
runna líka. Sumarið á ísafirði er
styttra en í Reykjavík en það er ákaf-
ara. Hér er meira logn, meira skjól
og betri vaxtarskilyrði og sprettan
verður örari. Vandamálið hér er
þurrkurinn. Oft rignir ekki allan
maímánuð svo kemur kannski vætu-
tíð í júní þó að það hafi brugðist
núna og síðan er kannski sólskin og
þurrkur allan júlímánuð. Hér verða
þurrksk'emmdir í görðum af því að
fólk vökvar ekki nóg. Það þarf að
vökva mikið, sérstaklega á Eyrinni
þar sem allt vatn hripar niður um
gljúpan jarðveginn."
- Hvað ætli það séu margar tegund-
ir af plöntum í garðinum hjá Ásthildi
og Elíasi?
„Það er eitthvað á annað þúsund
tegundir af blómjurtum, trjám og
runnum. Fyrir utan allmargar teg-
undir af trjám og runnum er töluvert
um mismunandi kvæmi af einstök-
um teguridum, t.d. fjallaþinur og
hvítþinur. Hérna erum við með
finnska hengibjörk fyrir utan ís-
lenska birkið. Svo er töluvert af fjöl-
ærum blómum. Við erum í sambandi
við Herdísi í Fornhaga, sem hefur
gaukað aö okkur ýmsu sem hún á í
fórum sínum, afskaplega merkileg
kona og mikil ræktunarmanneskja,
og sama er að segja um Vigdísi á
Hofi í Vatnsdal. Þær hafa gert mikið
að því að safna fjölærum jurtum og
fjölga þeim.“
Kúluhúsið fellur gjörsamlega inn í umhverfið.
\
um eru þau bæði á kafi í sínum eigin
garði og hjá öðrum á ísafirði. Garð-
urinn þeirra (sem að hluta til er inni
í kúluhúsinu) hefur að geyma gífur-
legan fjölda plantna.
Elías vinnur á vetrum við iðn sína,
múrverkið, en á sumrin tekur hann
að sér að koma görðum í stand fyrir
fólk og ýmist hannar hann þá í sam-
ráði við eigendur eða vinnur eftir
hugmyndum og skipulagi annarra. Á
meðal fallegustu garða á ísafirði eru
nokkrir sem Stanilas Bohic hefur
hannað en hann er franskur garö-
arkitekt í Reykjavík.
íbúð og garður
undir sama þaki
Kúluhúsið er á þriðja hundrað fer-
metrar að flatarmáli, þar af garður-
inn rúmlega helmingur. íbúðin er á
stöllum baka til í kúlunni og tyrft
yfir. Þessa dagana er gríðarlega heitt
í forgarðinum, það vantar bara
skrækjandi apa og páfagauka í trén
svo að þetta sé alveg eins og í hita-
beltinu.
En hvað segir Ásthildur um garð-
menningu ísfirðinga? Er mikill mun-
ur á görðunum á ísafirði og í Reykja-
vík?
„Ef þú hefðir spurt mig fyrir bara
tveimur árum þá hefði ég sagt já. En
það hefur orðið alveg ótrúlegt stökk
,ram á við í þessum efnum á allra
síðustu árum og allt á mjög góðri
leið. Það er að vísu meiri fjölbreytni
í görðunum fyrir sunnan, ástæðan
er meðal annars heita vatnið sem þar
er nóg af. Við erum heldur ekki enn-
þá með eins mikið af listaverkum og
styttum og öðrum skemmtilegheit-
um í görðunum en þetta er allt í rétta
átt.“
Aðstæður frábrugð-
nar en ekki verri
- En hvað með aðstæður til garð-
ræktar á ísafirði, borið saman við
Suðvesturhornið, að heita vatninu
frátöldu? Eru þær verri hérna?
„Aðstæðurnar hérna eru frá-
brugðnar en þær eru ekkert verri.
Við þurfum í sumum tilvikum öðru-
vísi plöntur. Sem dæmi má nefna
stjörnublöðkuna, Lewisíuna, sem er
LAGER-
ÚTSALA
Flísabúðarinnar
á Dverghöfða 27
Allir afgangar eiga að seljast.
Ótrúlegt verð.
Verð: 500 kr. fm.
Ath.: Aðeins á afgöngum.
Stórhöfða 17 v/Gullinbrú,
sími 674844.
SÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA
Við hjá DV höfum ákveðið að taka í notkun
svokölluð GRÆN NÚMER sem er ný þjónusta hjá
Pósti og síma.
Ef þú, lesandi góður, hringir í þessi númer greiðir
þú aðeins gjald fyrir staðarsímtal eða gjaldflokk 1.
DV, sem er rétthafi GRÆNA NÚMERSINS, greiðir
hins vegar langlínugjaldið. Það er því sama hvaðan
af landinu þú hringir, þú munt ætíð bera
lágmarkskostnað vegna símtalsins.
Þjónusta GRÆNA SÍMANS verður eingöngu ætiuð
vegna áskriftar og smáauglýsinga.
ÁSKRIFTARSÍMINN:
99-6270
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN:
906272
SIMINN
- talandi dæmi um þjónustu!