Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1991, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991.
19
Hús og garðar
Málningarvinna
geturveriðmjög
skemmtileg
Málningarvinna er sennilega sú
viðhaldsvinna sem langsamlega
flestir húseigendur taka sér sjálfir
fyrir hendur. Fljótt á htið virðist
vera auðvelt að mála með nútíma
málningu sem það er ef borið er
saman við þegar málað var með
gamaldags olíumálningu. Húseig-
endur reyndu einnig þá að mála
sjálfir en árangurinn var auðvtitað
ekki jafngóður og þegar fagmenn
unnu verkið.
Undirbúningsvinna við máln-
ingu er mjög áríðandi, rétt eins og
um alla aðra vinnu sem fram-
kvæmd er. Ef kastað er höndunum
til undirbúningsins verður árang-
urinn oft eftir því, bæði lélegur og
málningin dugar skammt.
Breiðiö vel yfir
öll húsgögnin
Mjög mikilsvert er að breiða vel
yfir öll húsgögn, fjarlægja þau sem
mögulegt er að hreyfa úr stað.
Breiða verður vel yfir gólfið. Þetta
margborgar sig. Það er ergilegt að
fá málningarslettur á húsgögn,
gólfteppi eða að ekki sé nú talað
um parketgólfið. Haflð í huga að
þegar málað er með rúllu vill ýrast
úr henni og það oft langar leiðir.
Hægt er að kaupa sterkt plast sem
tilvalið er að nota í yfirbreiðslur
þegar málað er. Leggið plastið svo
snyrtilega saman að lokinni notk-
un og geymið ágóðum stað, þar til
mála á aftur.
Hreinsið
áhöldin vel
Þótt penslar séu e.t.v. ekki dýrir
í innkaupi borgar sig að venja sig
á að þvo þá vel að lokinni notkun.
Þegar notuð er vatnsmálning næg-
ir að þvo áhöldin upp úr vatni, má
kannski nota grænsápu ef erfltt
reynist að ná málningunni af
áhöldunum. Skohð mjög vel á eftir.
Ef notuð er olíumálning er nauð-
synlegt að hreinsa penslana með
terpentínu. Hægt er að geyma
pensla í vatni í nokkra daga en
best er að þvo áhöldin strax að
notkun lokinni. En ef skroppið er
frá í stutta stund, í mat eða kaffl,
er gott að hafa rúmgóðan plastpoka
til að setja bakkann með rúllunni
íámeðan. -A.Bj.
Málningarvinna er dæmigerð um viðhaldsvinnu sem öll. fjölskyldan
getur tekið þátt í - þótt þarna sé nú kannski á ferð einum of ungur hjálp-
armaður!
LP þakrennur
I o
Þola allar
veðurbreytingar
LP þakrennukerfið frá okkur er
samansett úr galvanhúðuðu
stáli, varið plasti. Styrkurinn í
stálinu, endingin í plastinu.
Leitið upplýsinga
BLIKKSMIÐJAN
SMIÐSHÖFÐA 9
112 REYKJAVÍK
SlMI: 91-685699