Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1991, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1991, Síða 11
LrAUdÁJRtóX‘G«4!;MW^'iéél! U r heimsmeistaramótinu Sem kurmugt er lauk heims- meistaramótinu í hestaíþróttum á sunnudaginn. Mótiö stóð yfir í flmm daga og var haldiö á útivist- ar- og íþróttasvæðinu Himmelsta- lund í Norrköbing í Sviþjóð. Mjög vel var að mótinu staðið af háifu gestgjafanna og áhorfendur ánægðir meö aðstæður. Knapar frá fjórtán þjóðum mættu með jóa sína. Flestir voru frá Evrópulöndum en auk þess kom einn knapi frá Kanada og flmm frá Bandaríkjun- um. Þó svo að flestir hhma 6.000 áhorfenda hafi komið til að sjá hrossin þá hefur félagslifið sitt að segja. Til dæmis fór hópur íslend- inga á heimsmeistaramótið tfl að hvetja sína menn og hitta kunn- ingja. Margir Islendingar, sem búa í útlöndum, mættu einnig. Margar stundir gefast milli atriða til að ræða við erlenda kunningja og skemmta sér. Þrátt fyrir harða samkeppni var grunnt á glensinu. Þegar setningarathöfnin fór fram röðuðu landslið íslands og Þýskalands sér upp hvort á móti öðru og gerðu sig líkleg til burtreiða en auðvitað varð ekkert úr þeim áformum. Knaparnir með fánana eru aðalkeppinautarnir í töltinu, Hinrik Bragason og Andreas Trappe. DV-myndir EJ Bændur ur Skagafirði og af Skeiðunum láta sig ekki vanta á slik mót. Frá vinstri: Pétur Sigurðsson, bóndi á Hjaltastöðum í Skagafirði, Sigurjón Runólfsson, bóndi á Dýrfinnustöðum í Skagafirði, og Guðmundur Þórðarson, bóndi á Kílhrauni í Skeiðahreppi. íslenskir áhorfendur gældu við þá hugmynd að sigur ynnist í töltkeppninni i þriðja skipti. Þrátt fyrir að Hinrik Bragason væri efstur eftir forkeppni á Pjakki tókst Andreas Trappe að sigra á Tý. Hinrik var annar og Sigurbjörn Bárðarson þriðji á Kraka. Sænsk stúika og íslenskur hundur. íslenskir hundar eru vinsælir í útlöndum. / Það skiptust á skin og skúrir, jafnt hvað árangur landsliðsins varðar, svo og veðurfarið. Erling Sigurðsson (fyrir miðju á myndinni) var sjálfskipaður „gleðigjafi" á áhorfendapöllunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.